Dagur - Tíminn - 20.11.1996, Blaðsíða 13
|Dagur-'0Knttrat
Miðvikudagur 20. nóvember 1996 - 25
Smá
Húsnæði óskast
Par óskar eftir aö taka 3ja-4ra herb.
íbúö á leigu.
Skilvísum greiðslum og reglusemi heitið.
Uppl. í síma 473 1142,____________
Starfsmaður Dags-Tímans óskar eftir
snyrtilegri 2ja herb. eöa einstaklings-
íbúö til leigu á Akureyri, sem fyrst.
Uppl. I símum 460 6119, 896 2075.
Eldhús Surekhu
Hvernlg væri aö prófa indverskan mat,
framandi og Ijúffengan, kryddaöan af
kunnáttu og næmni?
Ekta indverskir réttir fyrir einkasam-
kvæmi og minni veislur.
í hádeginu á virkum dögum er hægt aö
fá heitan mat á tilboösverði.
Alltaf eitthvaö nýtt í hverjum mánuöi.
Hringiö og fáiö upplýsingar í síma 461
1856 eöa 896 3250.
Vinsamlegast pantiö meö fyrirvara.
Indís,
Suöurbyggö 16, Akureyri.
Landsbyggðafólk
Þiö sem þurfiö aö skreppa til Reykjavík-
ur.
Við höfum til leigu mjög góða íbúð í
hjarta borgarinnar.
Svefnrými fyrir 5 manns.
Uppl. I síma 554 6396 og 562 3229.
Geymið auglýsinguna.
Felgur - Varahlutir
Eigum mikið úrval af innfluttum notuö-
um felgum undir flestar geröir japanskra
bila. Eigum einnig úrval notaöra vara-
hluta í flestar gerðir bifreiða.
Bílapartasalan Austurhlíð, Akureyri.
Opiö 9-19, laugard. 10-17.
Sími 462 6512, fax 461 2040.
Gæludýr
Fjórir sætir kettlingar fást gefins.
Uppl. í síma 462 6347.
Samkomur
HVfTASUnnUKIRKJAn »s«6
Hvítasunnukirkjan Akureyri.
Miðvikud. 20. nóv. kl. 20.00: Bænasam-
koma og biblíulestur í umsjá Önnu Hösk-
uldsdóttur.
hús
Samhygð-samtök um sorg og
sorgarviðbrögð á Akureyri og
nágrenni verða með opið hús í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju fimmtudaginn 21. nóvember kl.
20.30. Gestur fundarins verður Sigmundur
Sigfússon, geðlæknir.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit.
Opið hús í Punktinum alla miðvikudaga
frá kl. 15-17.
Kaffiveitingar í boði, dagblöð liggja frammi
og prestur mætir á staðinn til skrafs og ráða-
gerða.
Sérstök dagskrá auglýst ef svo ber undir.
A ku rey ra r ki r kj a.
Fundir
□ RÚN 5996112019 = 7
Messur
Glerárkirkja.
í dag miðvikudag verður kyrrð-
^ arstund í hádeginu kl. 12.00-
13.00. Orgelleikur, helgistund,
altarissakramenti, fyrirbænir. Léttur máls-
verður að stundinni lokinni.
Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
Takið eftir
Stígamót, samtök kvenna gegn kynferðis-
legu ofbeldi. Símatími til kl. 19.00 í síma
5626868.__________________________
AÞríhyrningurinn
andleg miðstöð
Furuvöllum 13, 2. hæð.
Sími 461 1264.
Miðalamir Sigurður Geir Ólafsson og Guð-
finna Sverrisdóttir starfa dagana 27. nóv. til
1. des.
Tímapantanir á einkafundi fara fram í síma
461 1264 alla daga.
Ath.: Heilun er alla Iaugardaga frá kl.
13.30 til 16.00 án gjalds.
Komið og kynnið ykkur góðan stað í rólegu
umhverfi, alltaf kaffi á könnunni.
Þríhyrningurinn andleg miðstöð
Akureyri.
Athugið
Minningarkort Akureyrarkirkju fást í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju, Blóma-
búðinni Akri og Bókvali.
Minningarkort Gigtarfélags Islands fást í
Bókabúð Jónasar.______________________
Samúðar- og heillaóskakort Gideonfé-
lagsins.
Samúðar- og heillaóskakort Gi-
deonfélagsins liggja frammi í
flestum kirkjum landsins, einnig
hjá öðrum kristnum söfnuðum.
Ágóðinn rennur til kaupa á Biblíum og
nýjatestamentum til dreifíngar hérlendis og
erlendis.
Útbreiðum Guðs heilaga orð.
Minningarkort Glerárkirkju fást á eftir-
töldum stöðum: í Glerárkirkju, hjá Ásrúnu
Pálsdóttur Skarðshlíð 16a, Guðrúnu Sigurð-
ardóttur Langholti 13 (Rammagerðinni), í
Möppudýrinu Sunnuhlíð og versluninni
Bókval.________________________________
Frá Náttúrulækningafélagi Akureyrar.
Félagar og aðrir velunnarar eru vinsamlega
minntir á minningakort félagsins sem fást í
Blómabúðinni Akri, Amaro og Bókvali.
Iþróttafélagið Akur vill minna á minning-
arkort félagsins. Þau fást á eftirtöldum stöð-
um: Bjargi Bugðusíðu 1 Akureyri og versl-
uninni Bókval við Skipagötu Akureyri.
Minningar- og tækifæriskort Styrktarfé-
lags krabbameinssjúkra barna fást hjá fé-
laginu í síma 588 7555. Enn fremur hjá
Garðsapóteki, sími 568 0990 og víðar um
land.
Minningarkort Umhyggju, félags til
stuðnings sjúkum börnum, fást í síma 553
2288 og hjá Body Shop, sími 588 7299
(Kringlan)/561 7299 (Laugavegur 51).
DENNI DÆMALAUSI
<C)NAS/D.iii. BUIIS
„Ég er hérna vegna þess að ég vissi ekki
að nei þgðir nei. “
Akureyri
Harmoniku-
dansleikur
Félag harmonikkuunnenda við
EyjaQörð heldur dansleik í Fiðl-
aranum, 4. hæð, Alþýðuhúsinu,
laugardaginn 23. nóvember kl.
22-03.
Skákfélag Akueyrar
10 mínútnamót með skylduleikj-
um (ítalski leikurinn) verður háð
í Skákheimilinu að Pingvalla-
stræti 18, fimmtudaginn 21. nóv-
ember kl. 20. Allir velkomnir.
Höfuðborgarsvæðið
Elínrós í Gallerí
Horninu
Laugardaginn 23. nóvember
opnar Eh'nrós Eyjólfsdóttir sýn-
ingu á akrýlmálverkum í Gallerí
Horninu að Hafnarstræti 15.
Sýningin ber yfirskriftina „Berg-
mál blóma.“ Sýningin stendur til
11. desember og verður opin
alla daga kl. 11-23.30.
Kvenfélag Kópavogs
heldur fund í Félagsheimihnu á
1. hæð á fimmtudagskvöld kl.
20.30. Kyrintar verða jólaföndur-
vörur.
Rangæingafélagið í
Reykjavík
Félagsvist í kvöld kl. 20.30 í
Skaftfelhngabúð, Laugavegi 178.
Allir velkomnir.
Upplestur í
Gerðarsafni
Fimmtudaginn 21. nóvember
heldur upplestraröð á vegum
Rithstarhóps Kópavogs áfram í
kaffistofu Gerðarsafns, milli kl.
17 og 18. Gestir þessa vikuna
verða Birgir Svan Símonarson,
Guðríður Lillý Guðbjörnsdóttir
og Kjartan Árnason.
Úr Safni Ásgríms
Jónssonar
Safn Ásgríms Jónssonar hefur
geflð út listaverkakort eftir
vatnslitamynd Ásgríms, „Brenna
í Rútsstaðahverfi í Flóa“, frá ár-
inu 1909. Kortið er til sölu í
Listasafni íslands á opnunartíma
safnsins, kl. 11-17, alla daga
nema mánudaga. Tekið er á
móti pöntunum í síma 562 1000,
kl. 8-16, alla virka daga.
Jólakort Barnaheilla
Barnaheill hafa undanfarin jól
gefið út falleg kort til styrktar
samtökunum og er svo einnig
gert að þessu sinni í samvinnu
við prentsmiðjuna Odda. Kostar
hvert kort 100 kr.
AL-ANON
Samtök ættingja og vina
alkohólista.
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Ef svo er getur þú í gegnum samtökin:
- Hitt aðra sem glfma við
samskonar vandamál
- þyggt upp sjálfstraust þitt.
- bætt ástandiö innan fjölskyldunnar.
- fundið betri líðan
Fundarstaður:
AA húsið, Strandgötu 21, Akureyri,
sími 462 2373.
Fundir f Al-Anon deildum eru:
Miðvikudaga kl. 21.00 og
laugardaga kl. 11.00
(nýliðar boðnir velkomnir kl. 10.30)
Lífsskólinn að hefja
námskeið
Lífsskólinn, Vesturbergi 73, mun
hefja námskeið sín laugardaginn
23. nóvember.
Á dagskrá skólans í vetur
verða m.a. helgarnámskeið í
meðferð ilmoha, sogæðanudd,
reiki og stjörnuspeki fyrir byrj-
endur.
Jólamerki
Lionsklúbbsins Þórs
Jólamerki Lionsklúbbsins Þórs
fyrir jólin 1996 eru komin út.
Merkin eru hönnuð af Þórhildi
Jónsdóttur auglýsingateiknara
og sýna Fríkirkjuna í Reykjavík.
Ágóði merkjanna rennur í
líknarsjóð klúbbsins, en Þór hef-
ur um árabil styrkt vistheimihð
að Tjaldanesi og gefið gjafir á
barnadeUdir sjúkrahúsanna í
Reykjavík.
Merkin kosta kr. 200 örkin.
Þau fást hjá frímerkjasölum í
Reykjavík og hjá klúbbfélögum.
Árshátíð Ferðafélags
íslands
Árshátíð (uppskeruhátíð) Ferða-
félags íslands verður haldin
laugardaginn 23. nóvember n.k.
í félagsheimilinu Mörkinni 6. Er
þetta fyrsta árshátíð félagsins
sem haldin er í eigin húsakynn-
um. Dagskrá: Gestum verður
hefisað með fordrykk og ljúfum
gítartónum kl. 19, er húsið verð-
ur opnað. GlæsUegt veisliUUað-
borð, fjölbreytt skemmtiatriði,
happdrætti með góðum vinning-
um, dans fram á nótt. Þátttak-
endur úr ferðum sumarsins eru
sérstaklega hvattir tU að mæta
og hitta ferðafélagana, en árshá-
tíðin er öUum opin. Verð aðeins
2.900 kr., pantanir og miðar á
skrifstofunni, s. 568 2533, fax
568 2535.
Landið
Leikfélag Húsavíkur
frumsýnir „Sölumaður
deyr“
Föstudaginn 22. nóvember kl. 20
frumsýnir Leikfélag Húsavíkur
leikritið „Sölumaður deyr“ eftir
Arthur MiUer. Leikstjóri er Guð-
rún Alfreðsdóttir og aðaUUutverk
eru í höndum Ingimundar Jóns-
sonar og Herdísar Birgisdóttur.
Þetta er annað verkefni Leikfé-
lags Húsavíkur á þessu leikári
en hið fyrsta var „Auga fyrir
auga“. I ár eru 110 ár Uðin frá
því fyrst var sýndur „sjónleikur"
á Húsavík og finnst Leikfélagi
Húsavíkur sérstök ástæða tU að
fagna þeim áfanga.
Fjáröflunarsamkoma í
Ýdölum
Fjáröflunarsamkoma tfi styrktar
Ólafi Helga Gíslasyni frá Brúum í
Aðaldal, verður haldin í félags-
heimilinu Ýdölum laugardaginn
23. nóvember og hefst kl. 14. Á
dagskrá verður m.a. einleikur á
fiðlu og harmoniku, tvísöngur,
leikþáttur, vísnamál (hagyrðing-
ar), happdrætti, kórsöngur og
margt fleira. Kvenfélögin í
GrenjaðarstaðarprestakalU
bjóða upp á kaffiveitingar og
heiðursgestur verður sr. Pétur
Þórarinsson í Laufási. Aðgangs-
eyrir er kr. 1500 fyrir fuUorðna,
500 kr. fyrir börn á skólaaldri en
ókeypis fyrir yngri.
Brúðuleikhúsið
Sögusvuntan
Sögusvuntan, leikhús Hallveigar
Thorlacius, er á ferð um Norður-
land um þessar mundir. Sýnt
verður í skólum og leikskólum
og einnig verða þrjár opnar sýn-
ingar á leikriti HaUveigar,
„Prinsessan í Skýjaborgum“.
Þetta er upplagt tækifæri tfi að
njóta þess að gera eitthvað
skemmtilegt með barni sínu að
loknum vinnudegi. Sýningarnar
verða: Miðvikudaginn 20. nóv-
ember í Deiglunni, fimmtudag-
inn 21. nóvember í Borgarhóls-
skóla á Húsavík kl. 18 og föstu-
daginn 22. nóvember í Safnaðar-
heimilinu á Dalvík kl. 17.
Gítartónleikar á
Húsavík
Gítarleikarinn Kristinn Árnason
heldur tónleika í Safnahúsinu á
Húsavík miðvikudaginn 20. nóv-
ember kl. 20.30. Á efnisskránni
eru verk eftir Mudarra, Sor,
Ponce og fleiri.
Opin bók á Hótel
ísafirði
Menningarmiðstöðin Edinborg
stendur fyrir Opinni bók, kynn-
ingu á nýútkomnum skáldverk-
um frá Máli og menningu og
Forlaginu, á Hótel ísafirði
sunnudaginn 24. nóvember kl.
16. Eftirtaldir höfundar lesa út
verkum sínum: Einar Kárason,
Böðvar Guðmundsson, Guð-
mundur Andri Thorsson og Þór-
arinn Eldjárn, Gerður Kristný,
Andri Snær Magnason. Gísh Sig-
urðsson íslenskufræðingur flytur
erindi. Allir velkomnir.
lést að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 18. nóvember.
Reynir Jónsson, Rósa Andersen,
Sigurður Heiðar Jónsson,
Aðalbjörg Jónsdóttir, Tryggvi Pálsson,
og fjölskyldur.