Dagur - Tíminn - 26.11.1996, Síða 1

Dagur - Tíminn - 26.11.1996, Síða 1
Umboðsmaður barna Skilnaðarmál erfið Erindi er tengjast erfiðleik- um barna við skilnað for- eldra bar hæst í starfi Umboðsmanns barna á fyrsta starfsári embættisins. Skrifleg og munnleg erindi sem bárust voru alls 356. „Algengt er að börn hafi vakið athygli mína á því að þau séu lögð í einelti af öðrum nemendum og jafnvel einstökum starfsmönnum skóla. Þetta geta verið alvarlegar ásakanir sem taka ber með var- úð, en ég tel þó augljóst að hér sé á ferðinni víðtækt vanda- mál,“ segir Þórhildur Líndal umboðsmaður barna. Embættið tók fimm mál til sérstakrar umfjöllunar á síð- asta ári. Pau eru skráning öku- tækja á ófjárráða börn, skil á nafnskírteinum til 14 ára barna, útivistartími og öryggi barna á öllum sviðum samfé- lagsins. Skólakostnaður 400.000 á íjölskyldu Heildarútgjöld íslend- inga til fræðslumála námu tæpum 26 millj- örðum króna árið 1995 ✓ slendingar vörðu hátt í 26 milljörðum króna til fræðslumála í fyrra - sem jafngildir um 385.000 kr. á hverja 4ra manna Qölskyldu. Upphæðin samsvarar 4,9% af landsframleiðslu síðasta árs. Nærri 7. hluti upphæðarinnar eru bein útgjöld heimilanna, en afgangurinn kemur úr sjóðum hins opinbera. Tæplega helmingur opin- berra framlaga til skólamála, eða rösklega 11 milljarðar króna, fóru í rekstur grunnskól- anna. Sá hluti kostar því kring- um 165.000 kr. að meðaltali á hverja 4ra manna íjölskyldu. Um 6 milljarðar fóru í rekst- ur framhaldsskólanna og kring- um 3 milljarðar í háskólana. Þar við bættist svo tæplega 1,5 milljarða framlög til námslána- kerfisins, en afgangurinn er kostnaður vegna annarra fræðslumála en þegar eru upp talin. Síðasta hálfan annan áratug voru opinber framlög til fræðslumála, sem hlutfall af landsframleiðslu, lægst árið 1984, um 4,2% - en hins vegar hæst árin 1988 og 1992, kring- um 5,2%. Síðustu þrjú árin hef- ur þetta hlutfall farið heldur lækkandi, niður í 4,9% í fyrra sem áður segir. Hlutur heimilanna hefur vaxið smám saman og næstum tvöfaldast frá 1982 til 1995 - úr 0,4% upp í nær 0,8% af lands- framleiðslu. Akureyri Björn Steinar Sóibergsson, organisti í Akureyrarkirkju, við orgelið sem lítur illa út eftir skemmdarverkið um helgina. Sjá bls. 4. Mynd: jhf Skólamál íslensk börn utangátta erlendis Það er nógu erfitt fyrir börnin að fiytja milli ianda, þó svo að þau lendi ekki í því að vera færð niður um jafnvel fleiri en einn bekk í nýjum og fram- andi skóla. ✓ formleg könnun blaðsins hefur leitt í ljós að tals- verð brögð virðast vera að því að íslensk börn, sem koma í erlenda skóla, séu lækk- uð um bekk, eða jafnvel bekki, oftast vegna þess að þau eru langt á eftir erlendum jafnöldr- um sínum í námi, sérstaklega í stæðfræði. Meðal dæma, sem blaðið hefur haft spurnir af, er tólf ára drengur á Ítalíu, sem er af þar- lendum skólayfirvöldum talinn vera a.m.k. tveimur árum á eft- ir jafnöldrunum í stærðfræði- kunnáttu og verður því að fara í bekk með tíu ára börnum. Þetta er mjög leiðinlegt fyrir dreng- inn , segir amma hans. Hann er hávaxinn og ljóshærður og sker sig nú þegar úr hópi ítalskra jafnaldra sinna, hvað þá þegar liann verður kominn í bekk með mikið yngri krökkum. Hann verður eins og Gulliver í Putalandi. Ég veit hins vegar að þetta er ekkert einsdæmi. Fólk sem fer utan með börnin sín er að lenda í þessu út um alla Evr- ópu. Meðal annarra barna, sem blaðið hefur frétt af, eru tólf ára stúlka í Svíþjóð og tíu ára stúlka í Belgíu, sem báðar hafa verið færðar niður um bekk vegna ónógrar stærðfræðikunn- áttu. Allt eru þetta börn sem stóðu sig í góðu meðallagi í skólum á íslandi. Kennarinn, sem vitnað var í hér að ofan, er einmitt þessa dagana að senda tólf ára börn- um vinafólks síns erlendis námsefni fyrir 8. og 9. bekk á íslandi, í von um að það komi þeim að einhverjum notum, enda mun það námsefni vera mun nær því sem kennt er í 7. bekk í mörgum öðrum Evrópu- löndum. H.H.S.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.