Dagur - Tíminn - 26.11.1996, Síða 5

Dagur - Tíminn - 26.11.1996, Síða 5
©agur-'OIutrimt Þriðjudagur 26. nóvember 1996 - 5 Framsókn Tekist á iim auðlindina Framsóknarmenn deildu harl um sjáv- arútvegsmál á flokks- þingi sínu um helgina en skildu sátfir. Framsóknarmenn tókust á um sjávarútvegsmál á flokksþingi sínu um helg- ina af meiri ákafa, en áður hef- ur sést á þeirra samkomum. Segja má að formaður flokks- ins hafi gefið tóninn, þegar hann í setningarræðu varpaði fram hugmyndum um breyt- ingar, sem Dagur-Tíminn sagði frá á laugardag. Hann sagði verðið á kvótanum alltof hátt og að til greina kæmi að ríkið leigði hluta kvótans á markaði og vöktu hugmyndir hans mis- mikla hrifningu. Sjávarútvegs- nefnd flokksþingsins ræddi þessi riiál fram og aftur í 7 klukkustundir og var á köflum heitt í kolunum. Hún var gerð afturreka með drög að ályktun, sem fóru mjög fyrir brjóstið á fámennum en háværum hópi þingfulltrúa. Um síðir náðist svo sátt um ályktun, sem menn töldu sig geta unað við. Málamiðlun í drögum sjávarútvegsnefndar sagði m.a „Framsóknarmenn hafna veiðileyfagjaldi, enda greiðir sjávarútvegurinn skatta til samfélagsins eins og önnur atvinnustarfssemi.“ I endan- legri ályktun flokksþingins varð niðurstaðan „Þingið telur að sjávarútvegurinn hafi ekki svig- rúm til að greiða auðlindaskatt, enda greiðir hann skatta til samfélagsins...“ Þetta var málamiðlun og eins og oft vill verða er misjafnt hvernig menn túlka hana. Stefán Guð- mundsson, þingmaður, segir að engin efnisleg breyting hafi orðið. „Við erum að hafna veiði- Ieyfagjaldi. Auðvitað er stjórn- un fiskveiða alltaf í end- urskoðun og ég ætla ekki að spá til langs tíma, en hér er al- veg skýrt tekið fram að sjávar- útvegurinn hafl ekki svigrúm til að greiða auðlindaskatt." Und- ir þetta tekur G. Valdimar Valdimarsson. „Hugsun okkar, sem settum það inn í upphafi að hafna þessu, var sú að gefa atvinnugreininm skýrt svar, um það að við værum ekki að fara að taka upp veiðileyfagjald á næstu 2 árum. Menn töldu betra að orða þetta svona, en skilaboðin eru nákvæmlega þau sömu.“ Rætt áfram „Niðurstaðan er að flokkurinn hafnar þessum óljósu, óútfærðu hugmyndum, sem menn hafa verið með um veiðileyfagjald, að svo stöddu. Það þýðir jafn- framt að flokkurinn vill fylgjast með þróun mála og áskilur sér allan rétt til að breyta áhersl- um, þegar forsendur breytast," segir Hjálmar Árnason, þing- maður af Reykjanesi. Már Pét- ursson, dómari, tekur í svipað- an streng. „Niðurstaðan er sú að umræðunni er haldið op- inni. Flokkurinn bar gæfu til að taka á sig þá kvöð, að ræða og útfæra þessi mál, í samráði við hagsmunaaðila og í samræmi við siðferðisvitund þjóðarinnar, sem hefur verið stórlega mis- boðið á margan hátt. Sjálfstæð- ismenn báru ekki gæfu til þess á sínu flokksþingi að fara eins að. Ég álít að Framsóknar- flokkurinn hafi tekið frumkvæð- ið af Alþýðuflokknum, í því að koma með skynsamlegar tillög- ur til lagfæringar á núverandi kerfi.“ Mynd GTK. Nýkjörin forusta Framsóknarflokksins. Eyjafjörður Erlent íj ármagn laðað að Verið að leita að erlendum fjárfestum til að taka þátt í matvælaframleiðslu í Eyjafirði. Iðnþróunarfólag EyjaQarðar, Atvinnumálanefnd Akureyrar og Héraðsnefnd Eyjafjaröar, Fjárfestingaskrifstofa íslands og Iðnþróunarsjóður hafa tekið saman höndum um það verk- efni að laða að erlenda fjárfesta í matvælaiðnaði á íslandi, og þá með sérstaka áherslu á Eyja- fjarðarsvæðið. Segja má að matvælavinnsla sé stóriðnaður á Eyjafjarðarsvæðinu, heildar- velta matvælaiðnaðarins á svæðinu er um 20 milljarðar króna á ári. Gefinn hefur verið út upplýsingabæklingur um Eyjafjarðarsvæðið og kosti þess gagnvart erlendri Qárfestingu, hvað hér er verið að gera í mat- vælaiðnaði auk þess sem er- lendur ráðgjafi hefur komið að verkefninu. Hann hefur verið að skrá aðila í matvælaiðnaði og tengdúm iðnaði á ákveðnum svæðum í heiminum sem skil- greina má sem markhópa Eyjlaijarðarsvæðisins, þ.e. hluti austurstrandar Ameríku og hluti af Evrópulöndunum. Um skammtímaverkefni er að ræða sem stendur í átta mánuði, og hefur Guðbjörg Pét- ursdóttir, markaðsfræðingur hjá Iðntæknistofnun, verið ráð- in til þess verkefnis. Áætlað er að aður verkefnið nemi um 12 milljón- um króna sem skipt- ist jafnt milli stofn- ana á Ak- ureyri og Fjárfest- ingaskrif- stofunnar ásamt framlagi frá Iðnþró- unarsjóði. Helgi Jó- hannsson, fram- kvæmda- stjóri At- vinnumála- skrifstofu Akureyrar- bæjar, seg- ir að þetta verkefni muni ekki skila áþreifan- legum ár- angri strax, heldur á mun lengri tíma. Verið er að leita að fjármagni, þekkingu, kunnáttu, samstarfi og aðgengi að mörk- uðum. Samhliða ofangreindu verk- efni er verið að vinna að undir- búningi og skipulagi vegna ann- ars konar iðnaðar en matvæla- iðnaðar. Þar er um að ræða vinnu við mörkun iðnaðar- stefnu, gerð svæðisskipulags, úttekt á vinnumarkaði og að- stæðum í Eyjafirði vegna kynn- ingar svæðisins fyrir erlendum fjárfestum. Gert var sérstakt samkomulag milli Iléraðsnefnd- ar Eyjaijarðar, Byggðastofnun- ar og Markaðsskrifstofu Iðnað- arráðuneytis og Landsvirkjunar um þann þátt málsins. GG Fiskiþing Hvetur til hvaiveiða Fiskiþing hvetur ríkisstjórn- ina til þess að leyfa hval- veiðar hér við land strax á sumrinu 1997. Þingið telur að ijölgun raski jafnvægi í lífríki sjávar en veiðarnar verði eftir sem áður alfarið eftir ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. Einnig er hvatt til að Alþingi eða Sjávarútvegsráðuneytið afli fjár til selveiða vegna þeirra áhrifa sem selur hefur á sjávarútveg hérlendis. M.a. sé ljóst að blöðruselur valdi miklu tjóni hjá neta- og línu- veiðimönnum fyrir Norður- landi, og svo hafi verið um árabil. Allar kannanir benda til að hringormur í íiski fylgi aukinni selagengd. GG íbúð óskast! Starfsmaður Dags-Tímans óskar eftir einstaklings eða 2ja herb. íbúð á Akureyri. Upplýsingar í síma 460 6119 eða 896 2075. (Gunnar). Atvinnurekendur Atvinnurekendur á Norðurlandi innan Samtaka iðnaðarins ogVinnuveitendasambands íslands. Haustfundur Skrifstofu atvinnulífsins verður haldinn á Fiðlaranum Akureyri, þriðjudaginn 26. nóv. kl. 17. Dagskrá: 1. Kynning á starfsemi Skrifstofu atvinnulífsins: Ásgeir Magn- ússon. 2. Nýjar leiðir í kjarasamningum, hlutverk kjarasamninga: ÞórarinnV. Þórarinsson. 3. Áherslur Samtakanna í skattamálum: Sveinn Hannesson. Skrifstofa atvinnulífsins. SAMTÖK IÐNAÐARINS JæL vinnuveitendasawiband CgXjJ ÍSLANDS

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.