Dagur - Tíminn - 26.11.1996, Qupperneq 11

Dagur - Tíminn - 26.11.1996, Qupperneq 11
Jlagur-Œímrtm Þriðjudagur 26. nóvember 1996 -11 SKÍÐI Kristinn í 3. sætí ámótiíNoregi Kristinn Björnsson, skíða- maður frá Ólafsfirði, hafn- aði í 3. sæti á alþjóðlegu svig- móti sem haldið var í Aurdal í Noregi á sunnudaginn. Þetta var fyrsta mót Kristins á keppn- istímabilinu og árangur hans er ekki síst athyglisverður fyrir það að Kristinn hefur lítið sem ekkert keppt á þessu ári, eftir að hann meiddist á hásin. Kristinn fékk 14 styrkleika- punkta fyrir árangurinn og lækkaði sig úr 22 punktum nið- ur í átján á mótinu. íslandsmeistarinn í svigi og stórsvigi, Arnór Gunnarsson frá ísafirði, hafnaði í 11. sæti á sama móti og lækkaði einnig um fjóra punkta. Hann fór nið- ur úr 32 punktum í 28 punkta. Þeir munu báðir keppa á móti í dag og á morgun í stórsvigi sem haldið verður í Geilo í Noregi. Sigríður Þorláksdóttir frá ísaflrði, sem varð íslandsmeist- ari kvenna fyrr á árinu, keppti einnig á móti í Noregi á sunnu- daginn. Hún hafnaði í 10. sæti og lofar árangur hennar góðu fyrir veturinn. Sundfélag Hafnarfjarðar varði bikarmeistaratitil sinn í sundi um helgina eftir harða keppni við Ægi í Sundhöllinni í Reykjavík. SH hlaut 27.742 stig, sem var 530 stigum meira en Kristinn Björnsson. A-Uð Ægis hlaut í mótinu. Lið SH hafði vinninginn bæði í karla- og kvennaflokki en Keflvíkingar náðu þriðja sætinu í samanlögðu með 25.727 stig, ÍA og UMSK voru í næstu sæt- KARFA • Bikar Haukargegn Keflvíkingum Haukar og Keflavík drógust saman þegar dregið var í sextán liða úrslit í Bikarkeppni karla í körfuknattleik í gær en umferðin verður leikin 5.-6. desember. Eftirtalin lið drógust saman: Njarðvík-ÍA UMFG-Tindastóll Valur/Leiknir-Skallagrímur Haukar-Keflavík Breiðablik-KR Glói-Selfoss KFÍ-Þór um, en í neðsta sæti varð B-lið Ægis sem fellur niður í 2. deild. Sæti liðsins taka Ármenningar sem unnu aðra deildina eftir harða keppni við Selfyssinga. gþö/fe SUND • Bikarkeppni SSÍ SH hafði betur gegn Ægi Allt íjámum á toppnum Newcastle og Liverpool hikstuðu en Arsenal nálgast toppsætið Roy Keane skoraði fyrra mark Manchester United í 2:2 jafntefli við Midd- lesbrough. Mikið var um jafntefli í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. Topplið Newcastle hikstaði gegn Chels- ea og liðin skildu jöfn 1:1 og sama má segja um Liverpool, sem hefði getað náð toppsætinu með sigri á Wimbledon. Man- chester United missti tvisvar niður forustu í 2:2 jafntefli við Middlesbrough og er nú komið í sjöunda sæti. Arsenal er á góðri siglingu og komst í annað sætið með fræknum sigri á Totten- ham á sunnudag. Dýrasti knattspyrnumaður heims, Alan Shearer, snéri aftur eftir meiðsl og skoraði markið sem tryggði Newcastle áframhaldandi setu á toppnum. Chelsea náði forustu um miðjan fyrri hálfleik með ítölsku marki. Gianfranco Zola tók auka- spyrnu sem virtist fara beinustu leið í markið en landi hans, Gi- anluca Vialli, fagnaði og sagðist hafa komið við boltann á leið- inni í netið. „Ég snerti boltann. Ég myndi aldrei stela marki frá Zola, sérstaklega ekki í fyrsta heimaleiknum hans, ef þetta væri ekki heilagur sannleikur,“ sagði Vialli og Zola staðfesti eftir leikinn að hann væri tilbú- inn að láta skrifa markið á Vi- alli. „Kannski Vialli hafi snert boltann með eina hárinu sem hann hefur á kollinum," sagði Ruud Gullit, þjálfari liðsins. Það þykir kaldhæðnislegt að Vialli er sagður fá 300 þúsund króna bónusgreiðslu fyrir hvert mark sem hann skorar en Zola er ekki með nein slík ákvæði í samningi sínum. Newcastle lók nær allan síðari hálfleik einum færri eftir að David Batty fékk rauða spjaldið fyrir að lumbra á Mark Hughes. Kevin Keegan var ekki sáttur og kvartaði sár- an yfir því að Hughes skildi sleppa við rautt spjald fyrir sinn þátt í hasarnum. Sætur sigur Arsenal lagði Tottenham í ná- grannaslag á sunnudag. Ian Wright kom Arsenal yfir með vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Tottenham virtist ætla að hanga á jafnteflinu. En leikmenn Ar- senal tryggðu sér þrjú stig og annað sætið í deildinni með tveimur mörkum frá Tony Ad- ams og Dennis Bergkamp á síð- ustu þremur mínútum leiksins. Liverpool byrjaði vel gegn Wimbledon og Stan Collymore, sem kom á ný inn í byrjunar- liðið, skoraði eftir aðeins 33 sekúndur og er sennilega met í deildinni í vetur, það dugði þó skammt gegn baráttuglöðum leikmönnum Wimbledon. Norð- maðurinn Oyvind Leonhardsen jafnaði eftir mistök David Jam- es, markvarðar Liverpool, og Wimbledon er nú taplaust í síð- ustu 16 leikjum. Aðdáendur Li- verpool eru ekki vanir að baula á sína menn en í lok leiksins létu þeir vanþóknun sína ber- lega í ljós. Manchester United missti tvívegis niður forustu gegn Middlesbrough á útivelli og 2:2 jafntefli voru sanngjörn úrslit. Meistararnir eru með langan sjúkralista og að þessu sinni voru stór skörð í vörninni. Báð- ir Neville-bræður eru meiddir og sama má segja um Dennis Irwin og Gary Pallister en í þeirra stað voru valdir ungir bakverðir, John O’Kane og Mi- chael Clegg. Auk þess eru Ryan Giggs og Ole Gunnar Solskjær meiddir og ungur kantmaður, Ben Thornley, var í byrjunar- liðinu. Middlesbrough sótti meira í leiknum og tvisvar vildi Ravanelii fá vítaspyrnu en ekk- ert var dæmt. Dómarinn benti loks á vítapunktinn á 83. mín- útu þegar skotið var beint. Craig Hignett skoraði úr vítaspyrnunni og liðin sættust á jafnan hlut. Dómaramistök Nágrannaslagur Coventry og Aston Villa var líflegur og yfir- fullur af umdeildum atvikum. Slagsmál brutust út í lok leiks- ins og Andy Townsend, fyrirliði Villa, sást á sjónvarpsupptöku reyna að slá Paul Williams, varnarmann Coventry. Paul Durkin, dómari, sá ekki atvikið en Townsend hafði fengið gult spjald fyrr í leiknum. Durkin þarf að svara fyrir önnur mis- tök í leiknum því hann sýndi Liam Daish, miðverði Coventry, tvívegis gula spjaldið en gleymdi að lyfta því rauða og Daish lék allan leikinn. Ljósi punkturinn í leiknum var end- urkoma Steve Staunton eftir fimm vikur frá vegna meiðsla. Hann skoraði sigurmarkið fyrir Villa með glæsilegu langskoti. Leeds sigraði Southampton 2:0 og mörkin komu bæði á síð- ustu tíu mínútunum en það fyrra skoraði Gary Kelly með fallegu skoti. Þetta var fyrsta mark þessa írska bakvarðar fyrir Leeds. Southampton var betri aðilinn í leiknum en brenndu af góðum færurn. Matt Le Tissier meiddist í fyrri hálf- leik og verður sennilega frá keppni í allt að sex vikur en í hans stað kom Aly Dia, sem skrifaði undir mánaðar samn- ing við Southampton í síðustu viku. Hann er æskuvinur Ge- orge Weah, sem kom því í kring að Dia fengi að æfa með enska félaginu. Dia fór illa með færin og var skipt aftur útaf í síðari hálfleik. Úrvalsdeild Úrslit Chelsea-Newcastle 1:1 (Vialli 24) (Shearer 41) Coventry-Aston Villa 1:2 (Dublin 75) (Joachim 29, Staunton 85) Leicester-Everton 1:2 (Walsh 83) (HinchcliíTe 12, Unsworth 52) Liverpool-Wimbledon 1:1 (Collymore 1) (Leonhardsen 67) Middlesbrough-Man. Utd. 2:2 (Ravanelli 27, Hignett víti 83) (Keane 17, May 72) Southampton-Leeds 0:2 (Kelly 82, Sharpe 89) Sunderland-Sheff. Wed. 1:1 (Melville 68) (Oakes 66) West Ham-Derby 1:1 (Bishop 17) (Sturridge 43) Arsenal-Tottenham 3:1 (Wright vfti 28, Adams 88, Bergkamp 90) (Sinton 57) Staðan Newcastle 14 9 2 3 25:15 29 Arsenal 148 4 2 27:12 28 Liverpool 14 8 4 2 24:13 28 Wimbledon 14743 25:16 25 Chelsea 1466 2 23:19 24 Everton 146 5 3 22:15 23 Man. Utd. 146 5 3 26:21 23 Aston Villa 146 3 5 18:15 21 Tottenham 14 6 2 6 15:14 20 Sheíf. Wed. 14 5 5 4 16:18 20 Derby 14464 15:16 18 Leicester 145 2 7 13:18 17 West Ham 14446 13:18 16 Leeds 14 5 1 8 13:20 16 Middlesbrough 14 3 5 6 20:25 14 Sunderland 14 3 5 6 10:17 14 Southampton 14 3 4 7 22:26 13 Coventry 14 1 7 6 8:19 10 Blackburn 13157 11:17 8 Nottm. Forest 13 1 5 7 10:22 8 1. deild Úrslit Barnsley-Portsmouth 3:2 Birmingham-Swindon 1:0 Charlton-Bradford 0:2 Crystal Palace-Wolves 2:3 Iluddersfield-Grimsby 2:0 Ipswich-Port Vale 2:1 Man. City-Tranmere 1:2 Oldham-Oxford 2:1 Reading-QPR 2:1 Stoke-Southend 1:2 Sheff. Utd.-Bolton 1:1 Staða efstu liða Bolton 20 11 7 2 41:26 40 Crystal Palace 19 9 7 3 43:18 34 Barnsley 1896 3 33:24 33 Norwich 189 5 4 27:18 32 Sheff. Utd. 17 8 6 3 32:18 30 Tranmere 19 8 5 6 28:22 29 Wolves 19 8 5 6 26:21 29 Oxford 20 8 5 7 25:17 29 Swindon 19 8 2 9 29:23 26 Birmingham 18 7 5 6 22:21 26 Ipswich 20 6 7 7 27:29 25 Stoke 1766 5 24:29 24 Huddersfield 1966 7 22:25 24 Port Vale 20 5 9 6 18:22 24 Portsmouth 20 6 5 9 24:28 23 West Brom 18 5 8 5 23:27 23 Southend 20 5 8 7 22:32 23 Charlton 17 7 2 8 18:25 23 QPR 20 5 7 8 22:28 22 Reading 18 6 4 8 22:29 22 Man. City 19 6 2 11 20:28 20 Bradford 20 5 5 10 18:33 20 Oldham 20 4 7 9 22:25 19 Grimsby 19 3 5 11 19:39 14 Hamar félagsheimili Þórs: Salir til leigu Tilvaldir til hvers konar íþrótta- og tóm- stundaiðkana. Gufa - Pottur - Búningsaðstaða Hamar sími 461 2080

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.