Dagur - Tíminn - 14.12.1996, Blaðsíða 24
iDagur-Βmtmt
Laugardagur 14. desember 1996
FLOTTASTA
PIPARKÖKU-
HÚSIÐ
að er fastur liður í jóla-
undirbúningi á mörgum
heimilum að 'baka og út-
búa piparkökuhús og þessa
dagana má sjá margar
skemmtilegar útgáfur af húsum
fyrir fram verslun Hagkaups í
Kringlunni.
Húsin keppa til verðlauna í
árlegum piparkökuhúsaleik
matvælaiðjunnar Kötlu. Frestur
til að skila inn fullbökuðu húsi
rann út á miðvikudag og bárust
um 20 hús af ýmsum stærðum
og gerðum. Dómnefndin er
skipuð 4 valinkunnum matar-
gæðingum, sem taka meðal
annars tillit til hugmyndauðgi
bakaranna, hefða og vand-
virkni. Klukkan 14:00 í dag
verður tilkynnt um val á,flott-
asta piparkökushúsinu og
verðlaunin afhent, en heildar-
verðmæti vinninga er um 600
þúsund krónur.
ÞU GETUR EKKI H/ETT AÐ BORÐA ÞAÐ....
GOTT EITT SÉR - GOTT MEÐ SÚPU - GOTT MEÐ ÖU
GOTT MEÐ RAUÐVÍNI - GOTT MEÐ POTTRÉTTUM
KOMIÐ SMAKKIÐ OG SANNFÆRIST..
TRYGGVABRAUT & BREKKUGÖTU
ATH:
NYI I
SÍMANÚMER 461 4010