Dagur - Tíminn - 14.12.1996, Blaðsíða 4
16- Laugardagur 14. desember 1996
MENNING O G
jDagur-Βrnmn
LISTIR
Gluggað
IBókatíðindum þetta árið eru
fáar íslenskar ljóðabækur,
þær eru vel innan við tutt-
ugu. Nokkrn- heildarsöfn eru þá
ekki talin með. Ljóðahöfundar
Bókatíðinda skarta heldur ekki
eins frumlegum útgáfunöfnum
og í fyrra. Stóru forlögin gefa
flestar bækurnar út og Bókaút-
gáfan ein stendur ein!
Alla leið hing-
að heitir ljóða-
fá ljóðabók
Nínu Bjarkar
Árnadóttur.
Titilll bókar-
innar er sér-
lega
skemmtfleg-
ur því fjar-
lægðin langa er umfjöllunareíh-
ið, lengdin og löngunin í hið
horfna og þá kannski helst ást-
ina. Og ljósrauði endurminn-
ingaglampinn gengur upp.
Ljóðin eru full af innileik og til-
Nína Björk
íinningu, lesandinn skynjar ótta
og bælingu ég-sins sem er furðu
hlutlaust eða atkvæðalítið í eig-
in heimi.
í bókinni Engilhnn í snjónum
(1994) var flóttinn frá raun-
veruleikanum dálítið ofgerður,
sem hin eina lausn. Hér er
þessi flótti farinn, ljóðmælandi
velkist frekar um og með yfir-
vegaðri ró og tryllingi til skiptis.
En það eru frostrósir á hjart-
anu og óttinn er þarna en hann
hefur læst sig lengst inni í
hjartanu.
Þessi örfáu ljóð, 24 stykki,
eru hnitmiðuð og í einfaldleika
sínum segja þau oft mikla sögu,
sögu sem hefur þó verið sögð
ótal sinnum.
Gripið niður í Ijóðið Forboðin:
(...)
En þetta er bara ég
að elska þig
ég gat þá aldrei hœtt því
og vitaskuld tárastu
vitaskuld
ÞJÓÐLEIKHDSID
Stóra sviðið kl. 20.00
Jólafrumsýning:
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
Frumsýning: 26. des. kl. 20,
2. sýn. föstud. 27. des.
3. sýn. lau. 28. des.
Smíðaverkstæðið
kl. 20.30
LEITT AÐ HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
Föstud. 27. des.
Laugard. 28. des.
Athygli skal vakin á að sýningin
er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning er hafin.
Litla sviðið kl. 20.30
í HVÍTU MYRKRI
eftir Kari Ágúst Úlfsson
Sunnud. 29. des.
Athugið að ekki er hægt að hleypa gest-
um inn í salinn eftir að sýning er hafin.
★ ★ ★
GJAFAKORT í LEIKHÚS
- SÍGILD OG
SKEMMTILEG GJÖF
★ * ★
Listaklúbbur Leikhúskjaliarans
sunnudag 15. des. kl. 16.00
Jólakaffi með skáldskap
Leikarar og höfundar mæta með
jólabækurnar: Þórarinn Eldjárn,
Nína Björk Árnadóttir, Bragi
Ólafsson, BöðvarGuðmundsson,
Guðmundur Andri Thorsson, Vigdís
Grímsdóttir, Ólafur Gunnarsson,
Gyrðir Elíasson, Ólafur Haukur
Símonarson, Þorsteinn Gylfason og
Bjarni Bjarnason. Umsjón: Helga
Bachmann og Edda Þórarinsdóttir.
Miðasalan er opín mánudaga og
þriðjudaga kl. 13-18, miðvikudaga
til sunnudaga kl. 13-20 og til
20.30 þegar sýningar eru á þeim
tíma. Einnig er tekið á móti síma-
pöntunum frá kl. 10 virka daga.
Sími 551 1200.
14 1
Undir berum himni
eftir Steve Tesich
Frumsýning
á „Renniverkstæðinu"
(Strandgötu 49)
sunnudaginn 29. des. kl. 20.30.
Uppselt
2. sýning mán. 30. des. kl. 20.30.
3. sýning fös. 3. jan. kl. 20.30.
4. sýning lau. 4. jan. kl. 20.30.
5. sýning sun. 5. jan. kl. 20.30.
Athugið takmarkaðan
sýningarfjölda.
Leikhúsunnendur athugið! Leikfélag
Akureyrar opnar nýft leiksviS á 80 ára
afmælisári sinu. I tilefni af því verður
þeim gestum sem koma á einhverja af
fyrstu fimm sýningunum boðið að fá
nöfn sín rituS á sérstaka árnaðaróska-
skrá í leikskránni. Til þess þurfa leik-
húsunnendur að tryggja sér miða fyrir
15. desember. Miðasalan er hafin.
Tryggið ykkur miða.
Dýrin í Hólsaskógi
eftir Thorbjorn Egner
Sýningar:
Sunnud. 15. des. kl. 14.
Síðasta sýning.
MiSasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram aS sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miSasölu: 462 1400.
ífjafxtkwt
£d(ipé£agA (Mwteysuvt
&t géd jólagjitf,
®agur-®mtirat
- besti tími dagsins!
í lj óðabækur
Gyrðir Eiíasson
Indíánasumar
Gyrðis Elías-
sonar er mun
léttari og ein-
faldari bók en
margar fyrri
bækur hans
og minnir
efnið og stíll-
inn stundum
á smásagnasafnið Tréfiskur.
Himininn, jörðin og sólkerfið,
allt er þetta á fleygiferð í ein-
hverri tímavitund sem er alltaf
undir hjá Gyrði. Tíminn vinnur
hægt og bítandi á öllu saman,
en nú er ekki eins dimmt í sál-
arholunni eins og í Mold í
skuggadal (1995). Myndirnar
eru líka einfaldari þó lífsþrosk-
inn djúpi sé einnig til staðar og
þá grunurinn um að eitthvað
muni gerast. Það er spenna og
þrá í þessari efnismiklu og vel
gerðu bók. Það gæti einfaldlega
verið von á öðru Indíánasumri.
Hófatak
Dökku hestarnir í túninu
þessa nótt, hvert rása
þeir? Hliðið er opið,
og ég sé út um svefn-
herbergisgluggann uppi
að þeirfara suður
mýrarnar, svo dökkir
að andartak held ég
að mig sé að dreyma
En mig dreymir ekki
Dökkuhestarnir
sökkva og hverfa
í gljúpa mýri
þessa nótt
í sumarlok
Yfir mýrinni
œða skýin
Jónas Þorbjarnarson
Villiland Jónas-
ar Þorbjarnar-
sonar byrjar á
ljóði um Ind-
íána, en það er
frekar hægt að
festa hönd á
Indíánum Jón-
asar en Gyrð-
is. Þeir reyn-
ast álftir, hvítir Indíánar, enda
er heimurinn hjá Jónasi að
opnast í allar áttir, flýgur jafn-
vel útundan sér! Ljóðmæland-
inn er verulega sjálfhverfur,
sem er skemmtilegt. Maðurinn
er að basla við að átta sig á því
hvar honum sleppir og hvar
eitthvað eða einhver tekur við.
Þetta gerir Jónas með æðru-
leysi og því skellir maður upp
úr á köflum.
Myndirnar eru oftast einfald-
ar, einn hjólar dagana þangað
til kemur að kollveltunni og
annar fiskar lífið uppúr djúpun-
um því fyrir honum eru sfldar-
árin aðeins skáldskapur. Enn er
fjaliað um tímann á kómískan
hátt sem er nýlunda, en dauð-
inn er fyrirferðaminni en í And-
artaki á jörðu (1992). Villiland
er heilsteypt og skemmtilegt
land. Stfll Jónasar minnir
stundum einum of á stfl Sigfús-
ar Bjartmarssonar þótt þar sé
einfaldleikinn tekinn fram yflr
margræðnina hjá Sigfúsi (sbr.
Veggir bls. 46).
Brot úr Hvalnum:
(...)
égferðast um eigin tilverudjúp
og öðru hverju sérðu mér skjóta
upp
gerir ósjálfrátt þá athugasemd:
„þarna er þessi“
og svo hverf ég undir yfirborð
huga þíns á ný
Stundum vildi ég helst að ég
hefði ekki meira af mér að
segja en þúc
kæmi einstöku sinnum til sjálfs
mín
til að tuldra „þetta er ég"
en þess á milli einhver algleym-
issigling-
milli endurfœðinga, endur-
funda
Óskar Árni
Óskar Árni
Óskarsson er
hættur við
hækurnar sem
I fylltu Norður-
leið (1993) en
ferðalagið er
honum eins
liugleikið í
nýju bókinni
Ljós til að
mála nóttina, þó fremur sé
ferðast um í tíma en rúmi. Ljóð-
in sem mála nóttina eru oftast
stakar myndir en eins eru
lengri prósaverk og mætti Ósk-
ar gera meira af því að flæða. í
stuttu ljóðrænu ljóðunum næst
ekki alveg nógu sterk tilfmning,
kannski vegna hátíðleika.
Æskuminningar, sumar í
anda Þorpsins, eru áberandi í
bókinni og það eru helst til mik-
il þyngsli yflr hugsuninni. Kald-
hæðni hefði kannski átt betur
við? -mar
Ljóðfrexjur bjóða veitmgar
Tvær ljóðfreyjur koma á
vettvang í jólabókaflóðinu
og bjóða eitt og annað af
bökkum sínum: Elísabet Jökuls-
dóttir kemur fram með „Lúðra-
sveit Ellu Stínu“ og Linda Vil-
hjálmsdóttir er með „Valsa úr
síðustu siglingu". Báðar eru
áhugaverðar.
Lúðrasveit Ellu Stínu er sjálf-
stætt framhald af Galdrabók
Ellu Stínu sem höfundur gaf út
sjálf fyrir nokkru. í hvorugri
bóka Ellu Stínu er um ljóð að
ræða, frekar ljóðrænar örsögur.
Galdrabókin var skemmtilega
„stelpuleg" enda Elísabet mikið
fyrir þá stemmningu. Hægt var
að hafa talsvert gaman af sög-
um Ellu Stínu og sumar hreint
fínar og talsvert dýpri en við
blasti fyrst; eins og kom fram á
upplestrarkvöldi fyrir nokkru
hefur Ella Stína bætt við sig
lúðrasveit í nýju bókinni og er
jafnvel enn skemmtilegri en
fyrr. Við sumar sagnana nær
maður sambandi, við aðrar
glímir maður lengur ef maður
er ekki „stelpa“. Nú gefur Mál
og Menning út. Þetta eru enn
„stelpulegar sögur", hugtak
sem ekki mun notað mikið í
bókmenntafræðum en orðið
gefur til kynna hvað er á ferð-
inni. Léttlyndi, kerskni, hæðni,
draumar og tilfinningar við alls
kyns aðstæður sem brugðið er
upp með smámyndum þar sem
óvæntur endir er nánast regla.
Og kannski ekki svo óvæntur
þegar maður er viðbúinn hon-
um. En það er gaman að vera
með Ellu Stínu.
Linda Vilhjálmsdóttir er ein
af okkar bestu skáldkonum og
sendir frá sér agnarsmátt en
efnismikið kver. Állir ljóða- og
blómaunnendur ættu að tvinna
þetta tvennt (blóm og valsa
Lindu) saman til tækifærisgjafar
við hátíðleg tilefni. En Iesa fyrir
sig sjálfa fyrst. Linda fer í sigl-
ingu með stóru skipi og á því
ferðalagi er sálin greinilega
besti ferðafélaginn.
Eftir stórskemmtilegan og
vel skrifaðan inngang með
æskuminningum sjómannsdótt-
ur er látið úr höfn og ljóðin
streyma fram við hæga undir-
öldu úthafsins og stúss um
borð. Margt er þarna vel gert
hjá Lindu og kverið hinn besti
ferðafélagi, fjölbreyttar ferða-
myndir koma fram og gleðja
mann hvort heldur maður situr
í Fokker, strætó eða húsbónda-
stólnum. Allt er kverið hið
besta mál og er mælt með því
við alla sem leita að fallegri
tækifærisgjöf fyrir sig sjálfa eða
aðra. Linda er snjöll: Bókin ætti
að fást í öllum betri blómabúð-
um. -sjh.
Linda Vilhjálmsdóttir með agnarsmátt en efnismikið kver. Mynd:GVA