Dagur - Tíminn - 19.12.1996, Side 4

Dagur - Tíminn - 19.12.1996, Side 4
16 - Fimmtudagur 19. desember 1996 íDagur-®tmmrt UmBúdaíauót Heims um ból og lifsins hjól Hlín Agnarsdóttir skrifar Já, nú eru blessuð jólin að koma aftur, einu sinni enn. Þá hætta allir að rífast og verða voða góðir. Skrítið, það verður alltaf styttra og styttra veikt og sumir sverja að þeir ætli ekki að taka þátt í því. Þeir komast bara ekkert hjá því, nema fara til Tíbet. Okkur var einu sinni kennt að til að halda jól þyrfti aðeins eitt skilyrði og það er að vera góður við náungann eins og Jesús kenndi okkur. En hver man eftir Jesú, er pláss fyrir hann í iðnu og lúnu hjarta okk- ar? Margir eru svo vondir allan ársins hring að þeir eru sligaðir af sektarkennd þegar jólin nálgast og fyllast þá botnlausri gæsku. Að vera góður á jólun- samviskulaust í sig um jólin. Á aðfangadagskvöld hverfur jóla- undirbúningurinn oní maga á hálftíma og gjafir eru tættar úr pökkum í trylltu adrenalínkasti. Svo er legið í gjafaharðsperrum jóladagana og beðið eftir að búðirnar opni aftur, svo hægt sé að skipta ljóta dótinu. Svona getur verið erfitt að vera góður. En sem betur fer kemur gamlárskvöld strax eftir jólin og þá er hægt að gera upp árið og vera svolítið vondur, hafi maður verið of góður um jólin og enginn þakkað fyrir milli jólanna. Kannski líður tím- inn hraðar eftir miðjan aldur eða er líf okkar svo vel skipu- lagt að við tökum ekki eftir að við lifum því og svo allt í einu er það búið og við vissum varla að við vorum til. í desember, þegar jólaundirbúningurinn stendur sem hæst, eru alltaf einhverjir sem þurfa að hafa orð á því hvað þetta jólabrjáiæði sé geð- um jafngildir því í dag að gefa gjafir. En getur sá, sem ekki er svolítið góður allt árið, verið góður á jólunum? Þegar þjóðin á allt í einu að lifa heilbrigðu og fallegu ijölskyldulífi um jól, endar það oft í eyðslukasti og ofáti, enda er það orðinn hluti af jólaundirbúningnum að fara á fitubrennslunámskeið 8 vik- um áður, svo hægt sé að troða það. Svo í janúar, þegar timbur- mennirnir af nýárinu eru hvað verstir, er hægt að fara á útsöl- urnar eða á annan fitu- brennslukúrs, því í febrúar byrja árshátíðarnar og þorra- blótin og þá þarf maður að passa í dressin og í mars er hægt að fara að undirbúa páskana eða fermingarnar og þegar fermingarveislunum lýk- ur þá kemur apríl með sumar- daginn fyrsta og í maí hætta skólarnir og þá er hægt að fara í stúdentaveislur, svo byrjar sumarið í júm og allir fara að grilla ódýrt svínakjöt og ferða- skrifstofurnar keppast um að bjóða ódýrustu og bestu sólar- landaferðina og í júlí og ágúst koma útlensku túristarnir og gefa af sér. Svo kemur haustið og það fer aftur að kólna, skól- arnir byrja og allir þurfa sínar bækur og sín skólaföt og í októ- ber og nóvember er hægt að fara tii Glasgow eða Dublin og kaupa ódýrt fyrir jólin. Já og þá eru jólin komin aftur einu sinni enn og allt getur byrjað upp á nýtt. Og allir vilja vera svo góð- ir, því árið hefur liðið svo hratt og enginn hefur haft tíma til að vera nógu góður við nógu marga. Við erum ekki herrar eigin tilveru, stundum er eins og henni sé stjórnað af ósýni- legum öflum sem skipuleggja fyrirfram allt okkar stúss og engin stund afgangs til að átta sig á lífsins hjóli, sem snýst lát- laust hring eftir hring. Þegar við lítum loks tilbaka og gefum okkur þennan dýr- mæta tíma til að vega og meta hvað þetta líf okkar er, þá vild- um við gjarnan ... bara við hefðum verið betri hvert við annað ... æ, en nei, það er ekki og var ekki tími til þess. Ást- Ieysið er kannski hið sanna hlutskipti mannsins í heimin- um. Já, nú eru blessuð jólin sem sagt alveg að koma og mig langar svo til að vera góð og innilega væmin og sýna öllum hvað mér þykir vænt um þá ... en jólin eru svo stutt og það eru svo margir sem vilja vera góðir á jólunum, en fá það ekki. Þá er bara að bíða eftir gamlárs- kvöldi og vera svolítið vondur yfir því að fá ekki að vera góður og fara svo á útsölurnar í janú- ar. Sósíal realismi - bókmeimtabónus rynjólfur Bjarnason heimspekingur, kommúnisti og ráð- herra segir í einni af bókum sínum eitt- hvað á þá leið að aðal mikillar list- ar sé að hún tjái hið ai- menna og sammann- lega í formi hins einstaka og sértæka. Undir þetta geta víst flestir tekið þó fáir skilji hvernig Brynjólfur og félagar hans í Komintern hafi náð að yfir- færa þessa almennu skil- greiningu sína á list yfir á hinn sovéska sósíal real- isma sem hafinn var til vegs og virðingar á dögum Stal- íns. Konur með rauðan fána á dáttarvél hafa einhvern veginn ekki elst vel sem listaverk, þó þær hafi þótt frábær tjáning hins sam- mannlega hjá öreigastétt- inni á sínum tíma. í dag finnst mönnum sósíal realisminn hins vegar ekki alveg ná þessum stór- fengleika, þó flestum finnist raunar traktorskonan skondið innskot í listasög- una. Þar með hefur stalín- isminn, sem alla jafna er hvorki skondinn né skemmtilegur, fengið á sig örlítið húmoríska hlið. Sjálf- sagt var Stalín sjálfum þó aldrei hlátur í hug þegar sósíai realisminn var ann- ars vegar. Stalín er hér En stalínisminn er lífseigur ekki sxst í heimi bókmennt- anna. Nú bendir nefnilega allt til að Stalín sé hér, livað svo sem Vélsteinn Lúðvíks- son segir um það mál. Ásýnd hans er þó öll önnur og mannúð- legri að þessu sinni, hann minnir eigin- lega meira á jólasveininn en Stalín. Jó- hannes í Bón- us er höfuð- paurinn í hin- um bók- menntalega stalínisma hann er Stal- ín bónus real- isma nútím- ans. Þó svo að sósíalismi og öreigavinskapur Jóhannes- ar felist ekki í alræði öreig- anna heldur alræði sam- keppninnar, og sovét hans séu hvorki í Pétursborg né Moskvu heldur í Bónusbúð- um á íslandi, þá er hin list- ræna undiralda sú sama. Metsölulisti Nú munu Bónusljóðin kom- in á metsölulista Morgun- blaðsins, en Bónusljóð eru einmitt dæmi um það hvernig tekist hefur að tjá hið almenna og sammann- lega í formi hins einstaka og sértæka. Bónusljóð Qalla um upplifum manns sem verslar í Bónus, lífsreynslan við grænmetisborðið, við kælinn, við kassann, o.s.frv. íslenska þjóðin virðist enn næm fyrir sósíal realisman- um og kaupir grimmt Bón- usljóð rétt eins og mönnum þóttu dráttavélakonurnar full frambærilegar fyrir nokkrum áratugum. Allt á þjóðin þetta að þakka sínum nýja íslenska Stalín, bók- menntastalíninum, Jóhann- esi í Bónus. Garri.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.