Dagur - Tíminn - 19.12.1996, Side 5

Dagur - Tíminn - 19.12.1996, Side 5
jDí'tgur-Cnímtmt Fimmtudagur 19. desember 1996 -17 VIÐTAL DAGSINS 700 bls. um talsímakonur „Þetta er deyjandi stétt, eða dáin rétt- ara sagt. Það er bara til launaflokkur með þessu nafni.“ Svo mælir Ásthildur Stein- sen, sem um 30 ára skeið starfaði sem talsímakona. Hún hefur tekið saman bókina „Stelpurnar á stöðinni" sem kom út fyrir skömmu í 2 bind- um, samtals 700 bls. í bókinni segir frá um 2000 konum sem störfuðu við talsímann á árun- um 1906 til 1991, eða þar til sjálfvirknin var orðin slík að þeirra var ekki þörf. „Fyrsti vottur af sjálfvirkni var þegar við lentum inni á símsvörun- um,“ segir Ásthildur. Smám saman jókst sjálfvirknin og hef- ur nú tekið svo „gífurlegt stökk að þú getur nærri því séð orðin á snúrunni.“ í stuttu máli var starfi tal- símakvenna „spurning um að tengja saman tvær persónur og svo þær fengju að tala í friði.“ Þessi tenging krafðist menntun- ar og lengi vel fóru tilvonandi talsímakonur í 6 mánaða nám í Póst- og símamálaskólanum. „Þetta var strangur skóli en ef þær stóðu sig vel þá fengu þær fasta vinnu.“ Flugfreyjur síns tíma „Þetta er eiginlega fyrsta kvennastarfið, ásamt ljósmóð- urstarfinu, sem borin var virð- ing fyrir. Það var litið upp til þessara kvenna eins og flug- freyjanna seinna meir. Þetta var eftirsótt starf langt fram yf- ir ’50.“ - Hvað var eftirsóknarvert? „Það voru föst laun og lífeyr- issjóður ríkisstarfsmanna, sem allir mændu til og þótti gott veganesti þá.“ - Þú heldur því fram að þessi stétt kvenna hafi haft áhrif á þróun atvinnusögu kvenna. Hvernig? „Þessar konur sem voru „Margar af þessum konum áttu failegustu heimilin í bænum, ekki af því að þær voru efnaðri heldur tókst þeim að nurla saman og gátu þá keypt sér ým- islegt í búið, sem flestar konur voru alla ævi að safna fyrir. Þær áttu þá sinn heimanmund þegar þær giftu sig og voru ekki alveg upp á manninn sinn komnar með alla hluti.“ Mynð: H,ima, p* þarna framundir ’30, það eru þær sem gerðu kröfur til þess að börnin þeirra menntuðu sig til þess að komast áfram. Fisk- reitirnir og vistin var ekki það sem fólk langaði í.“ Engar rauðsokkur - Þið hljótið þá að hafa hlustað á boðskap rauðsokkanna og feministanna á kaffistofunni? „Nei. Við höfðum vinnu, starfið var vel metið, og á sín- um tíma vel launað, þannig að við vorum ekki í neinum vand- ræðum. Það var ekki fyrr en háskólamenntuðu konurnar fóru að koma út úr skólum og finna að þær væru láglauna- konur sem vandræðin byrjuðu. En upphaflega eru þetta nú aðallega dætur heldri manna bæjarins sem fá þarna störf. Þetta þótti fínt starf og talsíma- konurnar voru þá þéraðar. Eldri konur sögðust ekkert hafa verið að þiggja laun heldur bara verið þarna til að dreifa tímanum. En þær byrjuðu samt með um 600 kr. í árslaun." - Gátu konur framfleytt sér á þessu? „Nei, þær hættu allar að vinna þegar þær giftu sig. Þær máttu ekki vinna eftir að þær áttu börn.“ - HA!!! „Yfirmennirnir leyfðu það ekki. Anna Jónsdóttir frá Stokkseyri skrifaði í sína grein í bókinni: „Ég var búin að eign- ast dóttur og mátti ekki halda starfinu.” Svona var þetta, það var ekki ætlast til þess að konur með börn og heimili væru úti að vinna. Þá varstu að taka starf frá öðrum. Þetta var náttúru- lega á þeim árum þegar karl- maðurinn vann einn og það var alveg nóg fyrirvinna.” LÓA Hallgrímur Sveinsson skrifar Þingeyri við Dýraíjörð er gott dæmi um sjávarþorp, sem virðist ætla að fara mjög illa út úr þeirri uppstokk- un sem nú gengur yfir íslensk- an sjávarútveg. Þetta áður framsækna sjávarpláss, má heita rúið sínum frumburðar- rétti. Þar eru nú hvorki til stað- ar heppileg skip né fiskveiði- heimildir. Aðeins fáeinir smá- Atvinnulaust fagfólk í fiskvinnslu bátar, sem mega veiða nokkra tugi tonna af fiski yfir árið, eru gerðir út frá staðnum og er afli þeirra að mestu unninn hjá ný- stofnuðu fiskvinnslufyrirtæki, Unni ehf. Tíðindi nokkur hafa því orðið í Dýrafirði, þar sem til skamms tíma voru gerðir út tveir nýtísku togarar. Frá því er að segja, að sextíu til sjötíu manns, flest fagfólk í fiskvinnslu, einum af undir- stöðuatvinnuvegum þjóðarinn- ar, gengur nú atvinnulaust í heimabyggð sinni og fær ekki að gert og hefur svo verið í nokkra mánuði. Eitt af bestu hraðfrystihúsum landsins stendur ónotað á Þingeyri og þrátt fyrir að forráðamenn Fáfnis hf. sem er dótturfélag Kaupfélags Dýrfirðinga og telst eigandi hússins, hafi lagt nótt við dag allt síðastliðið ár, til að koma fótunum undir rekstur þess og útvega því hráefni, virðist fátt benda til annars en daprir dagar séu enn framund- an hjá áðurnefndum sérfræð- ingum í ílskvinnslunni á Þing- eyri. Fyrir þessu ástandi eru ýms- ar samverkandi orsakir, sem ekki verður nánar farið út í hór. Þó skal það nefnt, að margir telja að verstu annmarkar kvótakerfisins komi nú fram með fullum þunga á Þingeyri. Þeir benda á sem dæmi, að þó vaðandi þorskgengd sé þessa dagana úti fyrir Vestíjörðum, á miðum sem heimamenn og for- feður þeirra hafa nytjað um aldir, eru mönnum í Dýrafirði allar bjargir bannaðar, þar sem nú eru hvorki til heppileg skip né heimildir fyrir hendi til veiða, sem áður segir. Og bæði sjómenn og landkrabbar tala nú um, að menn hefðu betur bundið hluta af veiðiheimildum í kvótakerfinu við einstaka staði, en ekki eingöngu við skip, sem einn góðan veðurdag sigla sinn sjó og sjást ekki meir í sinni heimahöfn til að landa þar afla til vinnslu. Það er því ekki vonum fyrr að nokkrar vaskar konur í Dýrafirði hafa nú hrint báti á flot og hafið undirskriftasöfnun á móti þeim draugum, sem ríða beislislausir í hinu svokallaða kvótakerfi og hananú!

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.