Dagur - Tíminn - 20.12.1996, Page 1

Dagur - Tíminn - 20.12.1996, Page 1
Föstudagur 20. desember 1996 - 79. og 80. árgangur - 244. tölublað HVAÐ VILTU í JÓLAGJÖF? Sara, 5 ára: „Mig langar í talandi dúkku. Hún er svolítið lítil." Gunnur, 8 ára: „Ég vil fá bókina Ekkert að marka. Þegar ég var í sveit t Vík þá las bóndakonan fyrir mig nokkrar blaðsíður úr Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Hún var skemmti- leg. Svo langar mig líka í Völundar- spilið og nokkur föt.“ Tryggvi Snær Friðjónsson, 5 ára, Akureyri: „Leikfangafarsíma og fullt af bókum.“ Hjördís, 6 ára: „Ég vil fá Sega- Mega tölvu með fullt af leikjum. Stóra systir mín á eina sem er bil- uð en ég fæ aldrei að leika mér í henni.“ Kristján, 7 ára: „Veit það ekki. Ekk- ert. Éða svona stórt Playmo-virki með riddurum og minnsta kosti 10 hestum." Kristján Pálmi Kristjánsson, 4 ára, Akureyri: „Leikfangabílasíma." Einar, 7 ára: „Æi, ég veit það ekki. Jú, Spiderman. Spiderman spólu. Ekkert annað." Agnar Ingi, 5 ára: „Rafmagnsbíl, sem hægt er að stjórna með fjar- stýringu. Bara svona venjulegan torfærujeppa." Sædís Ólöf Pálsdóttir, 6 ára, Akur- eyri: „Videóspólu með barnamyndum.“ Hjördís, 5 ára: „Mig langar í tölvu- úr.“ Kristín Helga Hermannsdóttir, 3 ára, Akureyri: „Barbí-hús og -dúkkur.“ Katrín Guðmundsdóttir, 5 ára, Ak- ureyri: „Ég veit það ekki. Jóla- sveinninn er búinn að gefa mér mandarínur í skóinn.“ Baldur, 5 ára: „Mest af öllu langar mig að eignast rafmagnsbíl. Svona venjulegan jeppa, ekki torfæru- jeppa. Hvítan.“ Guðrún Gísladóttir, 3 ára, Akureyri: „Barbídót." Kristinn Jakobsson, 13 ára, Akur- eyri: „Hettupeysu og geisladiska." Birgir Þ. Þrastarson, 13 ára, Akur- eyri: „Ferðageislaspilara." Daníel Sigurðsson, 5 ára, Fellabæ. „Lítinn rafmagnsbíl með fjarstýr- ingu.“ Þorvaldur Ragnarsson, 6 ára, Eg- ilsstöðum: „Legoskip." Guðmundur Örn Gunnarsson, 21 mánaða og 19 daga gamall: „Pabba heim um jólin.“ Kári ritstjórnarköttur, 10 mánaða: „Eðalfisk á Ameríkumarkað af Sléttbak EA.“

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.