Dagur - Tíminn - 20.12.1996, Side 10

Dagur - Tíminn - 20.12.1996, Side 10
22 - Föstudagur 20. desember 1996 |Dítgur-'9Itmtmt BOICAFRETTIR ! »Seí.. Jólabækur stangveiðimanna Stefán Jón Hafstein skrifar Urriðadans Össurar Skarphéðinssonar, Rennt í hylinn eftir Björn á Laxamýri, og íslenska stang- veiðiárbókin ’96 eftir Guðmund Guðjónsson, eru ólíkir, en ei- gulegir gripir fyrir stangveiði- menn. Þó er sú síðastnefnda ef til vill sú eina sem beinlínis er fyrir stangveiðimenn. Við byrj- um á henni. Af silunga- og laxaslóðum er titill árbókarinnar sem stang- veiðiblaðamaður Morgunblaðs- ins hefur tekið saman. Guð- mundur er áhugasamur um efnið, það leynir sér ekki, og skrifar líílega. Hann liggur ekki á skoðun sinni um stórmál í heimi stangveiða, svo sem óhóf- lega græðgi „maðkaveislu- manna“ sem stunda Qöldadráp á löxum þegar hófsamir og prúðir fluguveiðimenn hafa þakkað fyrir sig. Þá reifar hann ólík sjónarmið gagnvart „veitt og sleppt“ aðferðinni, en það er vaxandi hitamál. Þetta er kost- ur á bókinni, Guðmundur þorir að taka á ýmsu því sem veiði- menn ræða sín í milli. Stór hluti bókarinnar fer í „hringferð um landið" þar sem veiðisumrinu er lýst í helstu ám. Af því má hafa nokkra skemmtun þótt aflatölur séu ekki meðal helstu áhugamála. Fengur er að svipaðri hringferð um silungaslóðir, sá veiðiskap- ur hefur verið vanræktur í ræðu og riti þótt mun fleiri stundi en laxinn. Bókin sýnir reyndar hve langt er á milli bakka hjá þeim sem annars vegar kaupa veiði- leyfx á 200 þúsund krónur á dag, og hinna sem skemmta sér við netta smábleikjuveiði í lækj- um og vötnum. Áhaldið er í báðum tilvikum stöng, en hug- arfarið allt annað. Það sýnir lofsverða viðhorfs- og áherslu- breytingu höfundar að færa sig til móts við allan venjulegan þorra veiðimanna; sömu breyt- inga verður vart hjá stangveiði- félögum. Bestu hlutar bókarinnar eru frásagnir af óvenjulegum atvik- um, að maður tali nú ekki um þegar hægt er að draga lærdóm af athugulum veiðimönnum sem auðga blaðsíðurnar af reynslu sinni. Næstu árbækur ættu að færa sig meira í þessa átt. Síðri eru skýrslukaflarnir, Stangveiðimenn fá a.m.k. þrjár ólíkar, en áhugaverðar hœk- ur fyrir sig um þessi jól. og langtum sístir þeir hlutar þar sem heimildir eru af skorn- um skammti, en veiðileyfasalar róma „fengsæld" í vötnum sín- um. Ég hygg að fleirum fari sem mér að kannast ekki við þá stöðu mála í sumum tilvikum. Bókin er vel þess virði að blaða í þótt margt sé mishittið eins og gera má ráð fyrir þegar reynt er að fara yfir sviðið allt. Þingvallatröllin Össur Skarphéðinsson skrifar um Þingvallaurriðann og gerir það vel. Bókin er fögur og vel frá gengin, öflug að fróðleik og skemmtilegum sögum, stíll Öss- urar líflegur svo mjög að þjóð- kunn rödd hans talar til manns eins og þegar hann er í essinu sínu í pólitíkinni (að skemmta sjálfum sér). Þetta er ekki „veiðimanna- bók“ í þeim skilningi að hún Qalli um veiði, en sagan er af merkilegri bráð, og skrýtinn má vera sá veiðimaður sem ekki hrífst með, og syrgir það um- hverfisslys sem varð þegar þessum stofni var nær útrýmt. Vísindi, þjóðlegur fróðleikur, sagnamennska af bestu tegund - hvað vill maður meira um þennan mikilfenglega fisk? Bókin mun heilla alla góða veiðimenn, en ekki er víst að hinn almenni lesandi nenni að lesa langtímum um svo ijarlæga söguhetju. Þeir sem hafa glímt við náfrændur Þingvallaurrið- ans, tala ekki um þá sem hafa komist í kastfæri við hann, munu skemmta sér vel. Össur á heiður skilinn fyrir bókina. Hvort í henni eru strangvís- indalegar gildrur fyrir okkur óinnvígða er nokkuð sem aka- demían verður að taka á sjálf - í fljótu bragði er höfundur sannfærandi í öllum tilgátum sínum. Fín bók og til sóma. Laxá, drottningin. Björn á Laxamýri skrifar Rennt í hylinn. Hér er komin bók sem enginn unnandi Laxár í Þing- eyjarsýslu getur látið framhjá sér fara. Hún er ekki „veiðibók" í eiginlegum skilningi, og satt að segja eru veiðisögurnar'fáar og næsta litlausar miðað við annað sem borist hefur frá bökkum Laxár. Hins vegar er þakklátt að sitja við bakka þessarar fegurstu (?) ár í heimi með manni sem ólst upp við seið hennar og lifir sem hluta af sjálfum sér. Líklegt þykir þeim sem hefur verið svo lánsamur að fá áð kynnast ánni að Björn hafi orðið skyggnari á marmh'f og dulheima við það að lifa með ánni. Rennt í hylinn er ævisaga Björns, margt hefur á dagana drifið sem í sjálfu sér er frá- sagnarvert, einkum kannski heima í héraði, en verður mátt- laust gagnvart þeim sem horfir á í ijarska. Iimansveitarmál og bakkusarmál eru keimlík öðru sem frá er greint í ævisögum. Þótt þau mál skipti höfund miklu er erindið við okkur hin minna, sérstaklega þar sem honum er gjarnt að halda sig nokkuð til hlés þegar ef til vill hefði mátt reiða til höggs. Stóra erindið í þessari bók er Laxá, náttúran, dulheimar og maimssálin í samskiptum við þessi öfl. „Draugasögur" Björns eru magnaðar, en sagðar í slík- um hlutleysisstíl að þær standa eftir mun trúlegri en ella. Margur maður hefur gert meira drama úr bílaviðgerðum en Björn gerir úr glímu sinni við útsendara hins illa. Öll er frá- sögnin reyndar látlaus og hóg- vær. Maður á ekki að dæma bók fyrir að vera ekki sú bók sem maður hefði viljað, en sem frá- sögn hefði hún styrkst við að halda til skila færri æviatriðum, en kafa dýpra í reynslubruim Björns. Opnar áin skilningarvit okkar? Dýpar hún skilning okk- ar? Já, það gerir hún og það kemst til skila með skýrum hætti hjá Birni. Jr Einstakt jóíatilboð hjá Amaro á Akureyri Gerið jólainnkaupin hjá Amaro og fáið hangikjöt eða bayonneskinku í kaugbæti. miðstöð jólaviðskip>tanna Það læra börnin sem fyrir þeim er haft Kristín Árnadóttir og Friðrik Vagn Guðjónsson Pannig segir í gömlu, góðu máltæki sem skaut upp í huga okkar þegar við lás- um tilvitnun í kynningarbréf það sem nýráðinn íjölmiðlafull- trúi Menntaskólans á Akureyri sendi fjölmiölum á Akureyri varðandi árshátíð skólans 30. nóvember sl. og hefur orðið til- efni til nokkurra blaðaskrifa að undanförnu. Eins og lesendum blaðsins mun eflaust kunnugt var til- gangur bréfsins sá að vekja at- hygli viðkomandi fjölmiðla á þeirri staðreynd að í Mennta- skólanum á Akureyri væri ár- lega haldin glæsileg árshátíð þar sem nemendur skólans mættu prúðbúnir, héldu uppi menningarlegum, heimafengn- um skemmtiatriðum og döns- uðu síðan fram á rauða nótt, áfengislausir. Um sanngildi þeirrar fullyrðingar getum við borið vitxú sem gestir nýliðinnar hátíðar sem var aðstandendum sínum öllum til sóma, og fóru þar nemendur fremstir meðal jafningja. Því skýtur skökku við að yfir- völd Menntaskólans skuli telja sig þurfa að uppheija eigin nemendur með því að níða nið- ur nemendur annarra fram- haldsskóla og ala þannig á menntahroka og ríg, í fullri óþökk þeirra fyrrnefndu. Menntaskólinn á Akureyri er góður skóli og nemendur hans eru góðir nemendur sem eru fyllilega færir um að upphefjast af eigin verðleikum, enda stendur m.a. í menntamark- miðum skólans að hlutverk hans sé „- að veita nemendum þekkingu og þjálfun sem auð- veldar þeim að taka sjálfstæða afstöðu til manna og málefna og þjálfa þá í að vinna með öðr- um og taka tillit til annarra og að leitast við að kenna nemend- um að njóta menningarlegra verðmæta -“. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft, og því vonum við, sem gamlir nemendur skólans, velunnarar og foreldrar þar nokkur undangengin ár, að í framtíðinni verði leitast við að innræta nemendum Mennta- skólans á Akureyri þá víðsýni, virðingu fyrir sjónarmiðum annarra og sjálfstæðu hugsun sem góð menntun á að fela í sér og jafnframt er undirstaða allr- ar menningar.

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.