Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Blaðsíða 1
I HELGARÚTGÁFA Atvinnuleysi Sex þúsund manns á atvinnuleysisskrá .. .. = I yflrliti vinnumálaskrifstofu Atvinnuleysi karla 2,8% en 5,6% hjá konum Ilok sl. mánaðar voru 6.006 manns á atvinnuleysisskrá, eða 483 fleiri en í lok október- mánaðar. Skráðir atvinnuleysis- dagar í nóvember voru 112 þúsund og hafði fjölgað um 5 þúsund frá fyrra mánuði. Þetta jafngildir 4% atvinnuleysi, eða 2,8% hjá körlum og 5,6% hjá konum. Búist er við að atvinnu- fausið aukist í jólamánuðiniun og verði 4,2%-4,6%. yfirliti félagsmálaráðuneytisins um at- vinnuástandið kemur m.a. fram að það versnaði á öllum at- vinnusvæðum frá fyrra mánuði nema á Suðurnesjum. Af ein- stökum landsvæðum jókst at- vinnuleysið einna mest á Norð- urlandi eystra, eða um 20%, úr 3,1% í október í 3,8% í nóvem- ber. Sem fyrr er hlutfallslegt at- vinnuleysi minnst á Vestfjörð- um en mest á höfuðborgar- svæðinu. Að meðaltali er um 67% atvinnulausra á höfuð- borgarsvæðinu en 33% á fands- byggðinni. -grh Hagstofan 15.009 Akureyringar Hagstofan hefur gefið út bráðabirgðatölur um mannQölda á landinu 1. des. sl. Skv. þeim voru landsmenn 269.735, karlar rúmlega sex hundruð fleiri en konur. íbúum landsins Qölgaði um 1929 á ár- inu eða 0,72%. Fólksíjölgunin er mun meiri en í fyrra, en meðaltal síðustu 10 ára er 1,01% og nemur heildarfjölgunin 25.726 manns. Af einstökum byggðarlögum má nefna að mannfjöldi óx um 1,7% á höfuðborgarsvæðinu en á öllum öðrum Iandssvæðum fækkaði fólki nema á Suður- nesjum. Minnst fækkaði á Norð- urlandi eystra og skriðu Akur- eyringar yflr 15 þús. múrinn, þeir voru 15.009 1. des. sl. en 14.920 fyrir ári. Fækkun í strjálbýfi hefur orðið um 9% á Iiðnum áratug, mest í Norður- Þingeyjarsýslu, eða 16%. BÞ Suðuriand Ölfusá vökt- uð af björg- unarsveitar- mönnum Félagar úr björgunarsveit- inni Tryggva á Selfossi stóðu vakt við Ölfusá í fyrri- nótt. Skólayfirvöld Fjöl- brautaskólans báðu um það að áin yrði vöktuð, en á fimmtudagskvöld var dans- leikur á vegum skólans í Hótel Selfossi, sem stendur rétt við ána. „Við erum hér í nótt til þess að vera til taks ef ein- hver fer í ána. Það gerðist hér í sumar að einn fleygði sér í ána og lögreglan bjargaði honum uppúr,“ sagði einn björgunarsveitarmanna, sem Dagur-Tíminn ræddi við að- faranótt föstudags. Björgun- arsveitarmenn voru á tveimur bflum, hvor sínum megin við Ölfusárbrú. Ekkert bar til tíð- inda á vakt þeirra. -hþ Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Útskrift var í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í gær. 166 nemendur fengu afhent lokaprófsskírteini, þar af fengu 75 skírteini sem veita starfsréttindi. Þetta er í 41. skipti sem nemendur útskrifast frá skólanum. Um 136 starfsmenn eru við skólann, þar af 121 kennari. Skólameistari, Kristín Arnalds, flutti yfirlitsræðu og gerði grein fyrir starfi og prófum í dag- og kvöldskóla. BÞMynawimam Fjölmiðlar Tímamótadómur inri ærumeiðingar ið beint að manni sem er eða starfsmönnum færi á að fela Lög sem vernda opin- bera starfsmenn sér- staklega standast ekki stjórnarskrá. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá máli Rík- issaksóknara gegn Hrafni Jökulsssyni ritstjóra vegna orða hans um Harald Jo- hannessen fangelsismálastjóra. Dómurinn er tímamótadómur að því leyti að hann túlkar breytt ákvæði stjórnarskrárinnar um jafnræði, þar sem segir að „allir skuli vera jafnir fyrir lögum án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ Guðjón Steinar Marteinsson dómari telur að B-liður 242. greinar almennra hegningar- laga standist ekki stjórnarskrá. í greininni segir: „Hafi ærumeið- andi móðgun eða aðdróttun ver- verið hefur opinber starfsmaður, og móðgunin eða aðdróttunin varðar að einhverju leyti það starf hans, þá skal slíkt brot sæta opinberri ákæru eftir kröfu hans.“ Það var fangelsismála- stjóri sem vís- _______________ aði í þessa grein þegar hann óskaði eftir því við Rfldssaksókn- ara að hann sækti mál gegn Hrafni Jökuls- syni ritstjóra vegna ummæla hans í Alþýðu- blaðinu: „Haraldur Johannessen ...er glæpamannaframleiðandi rfldsins". 1995 var felld niður umdeild 108. grein almennra hegningar- laga þar sem æra opinberra starfsmanna hafði sérstaka vernd. Með B-lið 242. greinar var hins vegar haldið inni ákvæði sem gaf opinberum Dómurinn telur að opinberir starfsmenn verði að sækja rétt sinn á sama hátt og fólk í öðrum starfsstéttum. ákæruvaldinu málssókn vegna ummæla í sinn garð. „Dómurinn telur mismunun fólgna í þessari lagagrein vegna þess, að allir aðrir en opinberir starfsmenn þurfa að höfða slík mál sjálfir, _____________ þótt ærumeið- andi móðgun eða aðdróttun hafí verið beint til viðkomandi undir sömu kringumstæðum og lýst er í þess- ari lagagrein, þ.e. vegna starfs —- viðkomandi, að því undanskildu að viðkomandi er ekki opinber starfsmaður." Dómurinn telur ekkert réttlæta sérstaka réttar- vernd opinberra starfsmanna sem felst m.a. í því að fjárhags- leg áhætta þeirra af málssókn er engin. Niðurstaða dómsins er að réttur opinberra starfsmanna sé hvorki meiri né minni en ann- arra. Lífið í landinu Gunnar Dal um lífsgátuna - þar sem tryggingar snúast um FÓLK

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.