Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Blaðsíða 9
jDagur-®mTOttt ÞJÓÐMÁL Laugardagur 21. desember 1996 - 9 Stefán Jón Hafstein ritstjóri skrifar Jólakóklestin hlykkjaðist með lúðraþyt og söng niður Laugaveg um síðustu helgi. Einn af ritstjórnarforkólfum Dags-Tímans stóð og fylgdist með fagnaðarerindinu: haltu kjafti karamellum var dreift yíir jólainnkaupalýðinn, sem var eins og fjöldi himneskra her- skara - að elta uppi gotteríið í slabbinu. Miðaldra frakka- klæddur maður skreið eins og snuðrandi hundur í götunni á ijórum fótum og tróð karamell- um í alla vasa. Gleðin var mikil. Að vera í sambandi Á æskuheimili mínu var einn af hápunktum undirbúnings jól- anna að pabbi setti upp ljósa- seríuna í stigagluggann. Þetta hafði alltaf mikinn aðdraganda. Það var talað drjúgt um hvenær ætti að „fara í seríuna" og skipulagt með tilliti til allra er- inda og innkaupa. Alltaf voru teiknibólur og smánaglar af skornum skammti, fela þurfti leiðsluna undir teppinu, sem kallaði á yfirlegu, hagræðing ljósanna bak við gluggatjöldin var útpælt atriði. Þetta var mik- il seremóma. Hún fyllti húsið af hátíðaskapi. Serían var mikið mál. Þegar hún loksins var sett Að draga djúpt andann í samband var komið á sam- band við jólin. Þangaði til Hannes litli bróðir varð 12 ára. Þegar átti að „fara í seríuna" á Þorláksmessu og við hin eldri systkinin vorum smátt og smátt að finna jólin ganga í bæinn þurfti pabbi að bregða sér í blómabúðina. 5 mínútna ferð. Á meðan setti litli bróðir upp ser- íuna og kveikti á eins og ekkert væri. Ekkert mál. Síðan hefur serían aldrei haft það vægi sem hún áður hafði í jólahaldinu. Jólastúss og jólastress. Þessi áróður sem heyrist um að einfalda jólaundirbúninginn er mikill misskilningur. Það á að gera miklar seremómur úr öllu þessu litla sem samanlagt gerir jólin hátíðleg. Endurlifa gamlar stundir og upplifa á ný það sem áður gerði gleðileg jól gleðileg. En til þess þarf auðvitað að gæta þess að bægja frá öllum þessum ónauðsynlegu og at- hygliskreíjandi leiðindaverkum sem nógur er tími fyrir seinna. Eins og að skúra í botn. Taka til í kryddhillunni. Og til þess að gefa þessum spöku orðum vægi í sjálfu ritstjórnarspjalli dagsins fór ég í eina af þessum andlegu sjálfsbetrunarbókum sem við eigum að lesa um jólin. Fyrsta lögmál: „Þegar okkur skilst að hinir hreinu möguleikar eru hið sanna sjálf okkar þá finnum við til skyldleika við það vald sem staðsetur veruna í tómi og skapar þannig alheim okkar.“ Yfirfært á jólastressið myndi ég ætla að þetta þýddi að maður ætti ekki að skríða í krapinu eftir haltu kjafti karamellum. Við pabbi myndum segja að maður ætti að gera seremóníu úr hlutunum. Áreynsluleysi Eitt af lögmálum velgengninnar er að vera óháður. „Við felum okkur hinum skapandi anda sem leikur af fingrum fram fyr- ir dansi alheimsins.“ í mínu húsi er þessi speki útfærð í pip- arkökubakstri. Þegar minnsta hætta er á stressi dregur maður djúpt andann. Venjulega dugar það. Ef ekki, þá aftur. Þeir vissu þetta gömlu mennirnir sem fylgdu jólastjörnunni alla leið til Betlehem, því þeir voru vitring- ar frá Austurlöndum. Og þar segja menn: „Hinn eini andaði án þess að anda vegna eigin máttar. Ekkert annað var til.“ Og hvað sagði ekki engillinn? „Verið óhræddir." Nákvæmlega. Jólin eru ekki um það þegar himinn og jörð farast. „Vitið sem er í náttúrunni starfar án áreynslu,“ segir í sjálfsbetrun- arbókinni. Lao Tze skrifaði í Bókinni um veginn: „Hinn vitri lætur hlutina gerast án þess að gera neitt.“ Yfirfærð á helgina er spekin þessi: Jóhn koma. Maður þarf ekki að gera neitt til þess. „Hinn vitri maður veit án þess að ferðast, hann sér án þess að horfa, lætur hlutina gerast án þess að gera neitt.“ Sem þýðir á mínu heimili að maður bakar, „fer í seríuna“, horfir á ljósin og lætur allar haltu kjafti karamellur jóla- kjólahraðlestarinnar fara í slabbið án þess að gera neitt. Fréttamat og félagslíf Guðmundur Birkir Þorkelsson skólameistari á Húsavík skrifar eir Tryggvi Gíslason skólameistari og Arnar Páll Hauksson deildar- stjóri hafa skipst á skoðunum á síðum Dags-Tímans síðustu daga um fréttamat, og skyldi engan undra að upp komi um- ræða af því tagi, svo sjálfsögð sem hún er. Ekki ætla ég mér að blanda mér nema óbeint í þá umræðu, en gríp fegins hendi tækifæri til að koma á framfæri upplýsingum um félagslíf, sem fram fer í framhaldsskólum landsins. Það félagslíf er, trúi ég, ótrúlega keimlíkt hvort sem um er að ræða gamla og rót- gróna menntaskóla þar sem hefðirnar ættu að gagnast nem- endum vel, eða unga og minna mótaða framhaldsskóla þar sem nemendur byggja starf sitt meira á frumkvæði og djörfung við að móta félagslíf og hefðir, oft með góðri aðstoð kennara sinna. Félagsstarf í nokkrum vanda Helstu þættir, sem mér sýnist hafa afgerandi neikvæð áhrif á félagslíf framhaldsskólanna, eru í fyrsta lagi geysilegt fram- boð af hvers konar óvirkri af- þreyingu sem kostar fé. Að skemmta sjálfum sér og öðrum uni leið víkur fyrir því sem hægt er að kaupa. Þar má nefna skemmtikrafta, sjónvarpsefni, myndbönd, spilasali, kvik- myndahús, iþróttakappleiki, sjoppur og krár af ýmsu tagi. í öðru lagi hefur vinna nem- enda með námi margfaldast á síðari árum, m.a. til að greiða fyrir afþreyinguna sem fyrr var nefnd, en einnig vegna þess að sífellt sígur á ógæfuhliðina í ljármálum heimilanna og margir nemendur í framhalds- skóla geta ekki treyst á nægi- legan ljárhagslegan stuðning foreldra sinna. Þessi vinna kemur niður á námi nemenda, aukinheldur sem félagslíf hlýtur að sitja á hakanum, þó ekki væri nema vegna þess að hér er oftast um að ræða kvöld- og helgarvinnu. I þriðja lagi er áfengisnotkun ungs fólks á framhaldsskóla- aldri orðin svo algeng, tækifær- in svo mörg utan skólanna og ásókn og gylliboð þeirra, sem grætt geta á unga fólkinu, svo sterk að eitthvað verður undan að láta. Skólarnir spyrna enn við fótum og þó dæmi séu um, og þau of mörg, að ölvun sé al- menn á svokölluðum skólaböll- um, þá hafa allir framhalds- skólarnir strangar reglur sem banna áfengisnotkun jafnt inn- an veggja þeirra sem utan. Skilaboðin frá skólunum eru skýr og oft geta nemendur ekki sætt sig við þau og þá skilja leiðir, því nemendur hafa önnur úrræði. Fjölmiðlarnir hafa áhrif En ekki er þar með sagt að fé- lagslíf í framhaldsskólum sé af- lagt eða á horriminni. Þrátt fyr- ir allt eru nemendur enn býsna duglegir að hafa ofan af fyrir sér og sínum með öflugu starfi í klúbbum og nefndum sem höfða til áhugasviðs þeirra. Mestur er þó áhuginn fyrir því sem Ijölmiðlar landsins taka upp á arma sína, svo sem spurningakeppni, ræðukeppni og söngkeppni framhaldsskól- anna og leiksýningum, sem gjarnan eru settar upp í tengsl- um við árshátíðir. Það dregur töluvert að hafa íjölmiðlana með sér í þessum verkefnum. Því eru það eðlileg vinnu- Klaufaskap MA- manna við gerð fréttatilkynninga er best að gleyma sem fyrst. Hann minnir okkur á að sjálfs- hólið er vandmeð- farið, þó það eigi stundum fyllsta rétt á sér. Við höfum meðtekið óopinbera afsökunarbeiðni og fyrirgefið. brögð að vekja athygli fjölmiðla á því sem vel er gert í skólun- um á þessum vettvangi og þó ekki taki allir við sér, þarf það ekki að vera móðgunarefni; er jafnvel skiljanlegt eftir eðli fjöl- miðilsins. Menntaskólanum á Akureyri hefur tekist fádæma vel að halda árshátíð sinni áfengislausri; satt að segja er það afrek út af fyrir sig og mór býður í grun að þeir séu ekki margir framhaldsskólarnir sem náð hafa sátt um að allir skemmti sér til morguns án áfengis. Áfenginu úthýst í Framhaldsskólanum á Húsa- vík er það hreint og klárt að ekki er undir neinum kringum- stæðum leyft að hafa áfengi um hönd þar sem skólinn hefur einhverja ábyrgð. Gildir það um samkomur innan og utan skól- ans, svo og ferðalög í nafni skólans. Þessi stefna veldur því að á árshátíð skólans er ekki dansað fram á rauðan morgun. Þrátt íyrir það er hún glæsileg samkoma, sem hefst með borð- haldi kl. 18:00 og síðan taka við ávörp, fjölbreytt gamanmál flutt af nemendum og kennurum, og tvö síðustu árin hafa nemendur frumsýnt stutta söngleiki sem samdir voru af heimamönnum. Þeir hafa svo gefið tilefni til sjálfstæðra sýninga í kjölfarið. Þessar ágætu árshátíðarsam- komur hafa staðið til klukkan 22-23 og víst er það satt að margir hafa öfundað MA þegar fer að nálgast miðnættið, en fyrr ekki. Fleira er matur en feitt kjöt Það er ástæða til að upplýsa lesendur um það að nemendur og kennarar FSII halda á hverri önn kvöldsamkomu um helgi, sem hefst kl. 21 og stendur vel frant yfir miðnætti. Á samkom- um þessum ríkir kaffihúsast- emmning, íjölbreytt skemmtiat- riði eru í boði, líka af hálfu kennara, og síðan er stiginn dans og þá eru gömlu dansarn- ir töluvert vinsælli en aðrar dansmeimtir. Þá hefur Jafningja- fræðsla FSH staðið fyrir þremur áfengislausum kaffikvöldum með rólegri og notalegri stemmningu á þessari önn í fé- lagsmiðstöðinni Keldunni á laugardagskvöldum. Allar þessar samkomur eru beinlínis hugsaðar sem valkost- ur fyrir nemendur, sem komið gæti í stað annars félagslífs ut- an skólans, sem þeir eiga kost á, þar sem áfengið er fylgifisk- ur. Þær hafa allar verið mjög vel sóttar og hvetja þá, sem að þeim standa, til þess að halda áfram á sömu braut. Fingurbrjótar og fyrirgefning Klaufaskap MA-manna við gerð fréttatilkynninga er best að gleyma sem fyrst. Hann minnir okkur á að sjálfshólið er vand- meðfarið, þó það eigi stundum fyllsta rétt á sér. Við höfum meðtekið óopinbera afsökunar- beiðni og fyrirgefið. Að lokum skal tekið undir það með Tryggva og Arnari Páli að unga fólkið okkar er stórefnilegt. En skilaboðin, sem þetta unga fólk fær frá íjölmörgum mótunarað- ilum, þurfa að vera samræmd og í anda þeirra kosta, sem við viljum að prýði hvern góðan mann. Skólarnir hafa skýra stefnu um meðferð áfengis, hvað með aðra mótunaraðila?

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.