Dagur - Tíminn - 21.12.1996, Page 3
Ælagur-íEmmiu
Laugardagur 21. desember 1996 - 3
F R É T T I R
Samgöngur
Frestun framkvæmda
bitnar á umferðaröryggi
Sveitarfélög mót-
mæla frestun vega-
framkvæmda. Hægt
að spara umtalsverða
fjármuni vegna slysa
og óhappa með því
að ráðast í fyrirhug-
aðar vegabætur.
Guðrún Ágústdóttir, forseti
borgarstjórnar og for-
maður skipulags- og um-
ferðarnefndar, telur ástæðu til
að óttast um öryggið í umferð-
inni í framhaldi af frestun þjóð-
vegaframkvæmda á höfuðborg-
arsvæðinu. Hún átelur stjórn-
völd fyrir að nota svonefnda
þensluboða sem afsökun fyrir
niðurskurði til brýnna úrbóta í
vegamálum.
Talið er að fyrirhugaðar
vegaframkvæmdir á höfuðborg-
arsvæðinu á næstu fjórum ár-
um geti sparað 2,8 milljarða kr.
í slysa- og óhappakostnaði á
næstu 25 árum, eða 250 millj-
ónir á ári. í nýlegri skýrslu
Hagfræðistofnunar Háskóla ís-
lands er áætlað að heildar-
kostnaður vegna slysa og
óhappa í umferðinni á höfuð-
borgarsvæðinu nemi árlega á
annan tug milljarða króna.
Forsvarsmenn sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu hafa
mótmælt þessum áætlunum rík-
isstjórnar og skora á hana að
halda áfram framkvæmdum við
þjóðvegi á svæðinu. í bréfl
þeirra til stjórnvalda kemur
fram að áform þeirra muni
hafa þær afleiðingar að á næsta
ári verði frestað framkvæmdum
við Vesturlandsveg í Mosfells-
bæ, við Reykjanesbraut og við
Vesturlandsveg í Reykjavík.
„Allt eru þetta mjög nauð-
synlegar framkvæmdir, sem
bæði eru arðsamar
út frá þjóðhagslegu
sjónarhorni, nauð-
synlegar af skipu-
lagsástæðum og
munu draga úr
slysatíðni í umferð-
inni,“ segir í mót-
mælum sveitarfé-
laganna. Far er
einnig lögð áhersla
á mikilvægi þess
að á yfirstandandi
þingi verði samþykkt fjögurra
ára vegaáætlun, sem taki mið
af raunverulegri þörf.
í bréfi sveitarstjórnanna er
Guðrún Ágústsdóttir
forseti borgarstjórnar
„Ég átel stjórnvöld fyrir að
nota svonefnda þensluboða
sem afsökun fyrir niðurskurði
til brýnna úrbóta í
vegamálunu “
Húsbréf
Fjölgaði um fiórðung
Samþykkt skuldabréfaskipti
hjá Húsbréfadeild, vegna
kaupa á notuðum íbúðum,
voru rúmlega fjórðungi fleiri
fyrstu 11 mánuði þessa árs en í
fyrra. Heildarlánsupphæðin
hækkaði hins vegar nokkru
minna. Nærri 70% allra hús-
bréfalána tilheyra þessinn
flokki. Fjölgun lána hefur verið
minni í öðrum lánaflokkum.
Heildarupphæð samþykktra
húsbréfalána er rúmlega 20%
hærri en á sama tíma í fyrra.
Heilaríjárhæð lána var komin í
14 milljarða í nóvemberlok.
ennfremur minnt á að breikkun eru tilbúin til útboðs, hefðu átt byrjað verði á nýjum stórverk-
Vesturlandsvegar og gerð brúar að vinnast á næsta ári. Sveitar- efnum á þeim tíma, eða á fyrstu
yfir Sæbraut, sem hvort veggja félögin telja afar ólíklegt að níu mánuðum komandi árs.-grh
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri voru útskrifaðir í Gryfjunni í gær. Ásókn hefur aldrei verið meiri en
nú, í dagskóla hafa undanfarið um 1100 nemendur stundað nám á Akureyri og Dalvík og á þriðja hundrað stund-
uðu nám í öldungadeild og í fjarkennslu. Skólameistari, Bernharð Haraldsson, kom víða við í hátíðarræðu sinni,
m.a. benti hann á að 21. öldin væri rétt handan við hornið og tækni, vísindi og verklag breyttust nú hraðar en
nokkru sinni fyrr. BÞ/Mynd jhf
Menntamál
Ný upplýsingalög taka gildi
Um áramót taka ný upp-
lýsingalög gildi í
menntamálum sem
kveða á um itartegri upplýs-
ingar um frammistöðu ein-
stakra skóla f samræmdum
prófum á landsvísu.
Hingað til hafa skólar aðeins
fengið yfirlit um frammistöðu
nemenda og meðaltöl bekkja í
árgöngum en nú verða breyt-
ingar á. „Við höfum gefið upp-
lýsingar um frammistöðu ein-
stakra landshluta en ekki ein-
stakra skóla. Eftir áramót verð-
ur hægt að fá uppgefna
frammistöðu einstakra skóla á
ítarlegri hátt en nú er, en þetta
krefst nánari undirbúnings,“
segir Einar Guðmundsson,
deildarstjóri hjá Rannsókna-
stofnun upplýsinga og mennta-
mála.
„Pað er mikilvægt að um-
gengni við samræmdar ein-
kunnir sé skýr,“ segir Einar.
„Mér finnst annað gilda í 10.
bekk en í könnnarprófum 4. og
7. bekk. Þar er fyrst og fremst
verið að veita upplýsingar, ein-
kunnirnar hafa ekki áhrif á
skólagöngu nemenda en í 10.
bekk eru einkunnir grundvöllur
til inntöku í framhaldsskóla.
Þar er mikilvægt að nemendur,
foreldrar og kennarar átti sig
skýrt á hvers konar skilaboð
koma úr þessum prófum.“
Einar segir varðandi
samræmd próf Qórða og
sjöunda bekkjar að normal-
kúrfa hafi verið notuð til að fá
sambærilegan árangur yfir allt
landið. RÞ
í
SUNNUDAG FRÁ KL. 15 -17
Pétur ^órarinsson og
Ingibjörg Siglaugsdóttir
ÁRITA BÓK SÍNA "LÍFSKRAFTUR"
TIL ICL. 22.00
ALLA DAGA
BOKVAL
Kirkjmór Akureyrar
SYNGUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI BÓKVALS
GEISLADISKAR
í ÞÚSUNDA TALI
JÓLADISKAR FRÁ KR. 399.
Allt að
30%
afsláttur af bókum