Dagur - Tíminn - 24.12.1996, Blaðsíða 3

Dagur - Tíminn - 24.12.1996, Blaðsíða 3
 JOagur-®mrám Þriðjudagur 24. desember 1996 - 23 Merkileg dýr Heimur dýranna er íjölbreyttur og innan hans rúmast margar merkilegar tegundir. Margt af afrekum þeirra hefur verið skráð í Heimsmetabók Guinness eins og afrek mann- anna. Elstu gullfiskar Staðfest hefur verið í Kína að gullfískar (Ca- rassius auratus) verða meira en 40 ára gamlir. Einnig er vitað um gullfísk sem drapst á Bret- landi 41 árs árið 1980. Lengstu flóastökk Methafi í langstökki flóa er mannaflóin (Pulex irritans) og auðvelt að fá þátttakendur af þeirri tegund til keppni. Við tilraunir í Bandaríkjunum árið 1910 stökk óáreitt mannafló 33 cm í lang- stökki og 19,7 cm í hástökki eða 130-falda hæð sína. í lendingu verður verður hún fyrir 200-föld- um þyngdarkrafti. Að sögn flóafræðinga eru til 1830 tegundir og afbrigði flóa. Lengstu margfætlur Lengstu margfætlur í heimi eru stór afbrigði beltamargfætlunnar (Scolopendra morsitans) sem lifa á Andaman-eyjum í Bengalílóa. Lengd þeirra getur orðið að 33 cm og breiddin 3,8 cm. Flestir fætur Sú margfætla sem, sem er fótprúðust allra margfætla, er tegundin (Himantarum gabrielis) í Suður-Evrópu. Fullorðnar margfætlur hafa 171 177 fótapör. Stærsta nagdýrið Stærsta nagdýr heims er flóðsvínið (Hydrochoerus hydrochaeris), einnig nefnt vatn svín. Pað lifír í hitabelti Suður-Ameríku. Fullva? in alidýr geta orðið allt að 140 cm að lengd og 113 kíló að þyngd. Smæsta nagdýrið Smæsta þekkta nagdýrið er dvergmús (Bai- omys taylori) frá miðhluta Mexíkó og suðurhlut Arizona og Texas. Hún getur orðið 10,9 cm og vegur 7-8 grömm. Elsti hestur Elsti hestur, sem vitað er um, var Old Billy (kastað 1760 í Lancashire á Englandi). Hann va upphaflega í eigu Edwards Robinsons á Wild Grave búgarðinum í Woolston en hann seldi Bif árið 1762 eða 1763 til fljótabátaútgerðar. Hann mátti draga fljótabáta allt til ársins 1819 (þá va hann 49 ára) að hann hlaut lausn frá störfum o dró sig í hlé á búgarði nálægt Warrington þar sem hann andaðist 27. nóvember árið 1822, þá 62 vetra gamall. Auðugasti köttur Frú Grace Alma Patterson í Joplin í Missouri í Bandaríkjunum dó í janúar 1978 og ánafnaði Myndin er af flóðsvíni og dvergmús. Þetta er rétt stærð og sýnir vel muninn. nun pa 8 Kg pungum, nvitum tiæKmgsketti, Charlie Chan að nafni, allar eigur sínar. Eign- irnar námu rúmlega 18 milljónum króna. Inni í þessu eru 3ja herbergja íbúð, 3 ha gæludýragraf- reitur og safn verðmætra fornmuna. Þegar kött- urinn deyr renna eignirnar til mannúðarmála. Lí- Dragðu óbrotna línu á milli talnanna í réttri röð. Þá færðu að sjá al- gengt íslenskt húsdýr. Að lokum getur þú lit- að myndina í þínum uppáhaldslitum. qmei :juas Það er allt á rúi og stúi hjá Sólu og Bigga. Getur þú fundið einn hlut, sem er á báðum myndun- um? •uuqSnfij :juas Litaðu reitina nr. 3-5-7-9-15- 17-19-21-22-25- 26-27-30-42 og sjáðu hvaða dýr er falið í myndinni. Bitarnir eru hluti af púslu- spili. Tveir þeirra eiga sam- an og nú átt þú að finna þá sem ganga inn í hvorn annan. Ct>0 59* C • 58\U S7 55 .4,2 4.3 •54, 6>H Z Zl « 21 <ós y 20, 2H '18 17 [2_4> Z1 43 51

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.