Dagur - Tíminn - 24.12.1996, Síða 4
24 - Þriðjudagur 24. desember 1996
íDagur-'Sínrtrm
%
Óskum Húsvíkingum
svo og landsmönnum öllum
m
jála
ogfarsœls nýs árs.
Þökkum samstaifið á árinu.
Bæjarstjórn Húsavíkur
sendir félagsmönnum sínum,
staifsfólki, svo og öðrum viðskiptavinum
bestu óskir um
gleðilegjál
&
ogfarsœld á komandi ári.
SAUDÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHLlD - KETILÁSI
4
Sendi öllum vinuní og
vandamönnum mínar
bestu óskir um
gleðilegjál
og gott nftt ár.
Með kíirri kveðjn,
Herdís
á Búvöllum í Aðaldal
Hann kom að austan
snemma á Þorláks-
messu. Á miðri heiði
bilaði rútan, á meðan
beðið var eftir aðstoð
rölti hann spölkorn út á holtið,
en samferðamenn hans sátu
kyrrir í bílnum.
Kyrrlát morgunstund í ljósa-
skiptunum. Himinninn var
stjörnubjartur og máninn hékk á
himninum fyrir ofan Vestmanna-
eyjarnar. Það var næsta snjólaust
á heiðinni og rautt lyngið þakið
hrími. Hann horfði á ljósin í þótt-
býliskjarnanum við rætur heiðar-
innar víkja fyrir dagsbirtunni.
Hann naut þess að vera frjáls,
en fyiltist ekki þeirri gleði sem
félagar hans höfðu sagt honum
frá að kæmi þegar menn losn-
uðu. Hann var ekki búinn að
standa þarna lengi í frostköldum
morgninum þegar beygurinn
kom, byrjaði með ónotum undir
bringspölunum og læddist fram í
brjóstið. Honum varð hugsað til
þess að þegar hann fór síðast yflr
heiðina, hafði lögreglubíllinn,
sem ílutti hann austur, bilað rétt
hjá þessum sama stað. Það var
fyrir liðlega tveimur árum. Hann
hafði verið einn í bíl með þremur
einkennisklæddum mönnum og
handjárnaður. Veðrið hafði verið
svipað þá og nú, iogn og frost og
snjólítið.
Þegar bflstjórinn hafði opnað
vélarhlífina og lokað henni aftur
án tilætlaðs árangurs, snaraðist
hann inn og greip til hljóðnem-
ans á talstöðinni. Það leið nokkur
stund þar til stynjandi rúta kom
upp Kambana og staðnæmdist
hjá þeirri biluðu. Farþegarnir
ruddust inn, eins og þeir væru
hræddir um að verða skildir eftir.
Hann rak lestina, settist í miðjan
bflinn.
Á leiðinni heyrði hann í tveim-
ur konum sem sátu fyrir aftan
hann, tal þeirra snérist um menn
sem lentu á glapstigum. „Ósann-
gjarnt að hrúga öllum misindis-
mönnum austur í sveit.“ Hækk-
uðu róminn, voru sammála um
að Reykvíkingar ættu sjálfir að
byggja yfir sína vandræðamenn
innan borgarmarkanna. Hann
fann andardrátt og munnvatns-
yrjung frá þeim aftan á beran
hálsinn, tók þann kost að látast
ekki taka eftir því.
Enginn kom til að taka á móti
honum við BSÍ. Hann hafði held-
ur ekki átt von á því. Konan skil-
in við hann fyrir ári síðan og
börnin hafði hann ekki séð frá
því að hann fór austur. Vitanlega
gafst konan upp, ekkert nema
skuldir sem hann skildi eftir, og
til að kóróna allt hafði hann ver-
ið settur inn rétt fyrir jólin, til að
sitja af sér gamlan dóm.
Kannski var hann ekki sá
verst setti sem losnaði út, hann
hafði þó herbergi til að vera í um
mánaðar tíma og ef til vill lengur
á meðan hann var að koma undir
sig fótunum, eins og fangelsis-
Smásaga
eftir
fieyju
Jónsdóttur
stjórinn hafði sagt við hann.
Hann tók leigubfl niður í mið-
bæ, honum fannst umhverfið lítið
hafa breyst á meðan hann var í
burtu. Það höfðu líka verið jóla-
ljós um alla borg og skreytingar í
gluggum, þegar þeir sóttu hann á
vinnuslað og stungu honum í lög-
reglubflinn. Hann sem hafði ætl-
að þann dag að fara í búðir eftir
vinnu og kaupa jólagjafir handa
börmmum og frúnni.
Komu bara svona allt í einu og
sviptu hann jólunum og Ijölskyld-
unni. Konan hafði ekkert vitað
fyrr en um kvöldið hvar hann var
niðurkominn.
í nokkur skipti kom hún til
hans í fangelsið, en aldrei með
börnin.
Herbergið sem hann fékk á
kristilega hótelinu var kalt og
hvítmálað, yfir rúmið var breitt
röndótt teppi. Við höfðagafl
rúmsins hékk mynd af Kristi á
krossinum. Borðið undir glugg-
anum mátti muna fífil sinn fegrj,
hringir undan drykkjarflátum
voru um alla borðplötuna og
einnig í gluggakistunni. Það var
gengið niður úr h'noleumdúknum
fyrir framan borðið. Klæðaskáp-
ur sem samsvaraði öðrum hús-
gögnum í herberginu var við
vegginn á móti borðinu. Inn í
hann hengdi hann brúnteinótta
jakkann utan yfir gula skyrtu og
setti köflótt hálstau yfir snagann.
Lagði buxur úr sama efni og
jakkinn yfir rúmið. Fann fyrir óá-
nægju með hvað þær voru illa
pressaðar. Annan fatnað setti
hann inn í hillur án þess að
vanda sig. Hann var svangur,
enda komið að hádegi, en þó að
hann vissi að hann ætti að iá mat
bæði kvölds og morgna í þessu
kristilega skjóli, þá kom hann sér
ekki að því að fara niður í mat-
salinn. Hann fór út og ranglaði
um bæinn, keypti sér eina pylsu
hjá „Bæjarins bestu“.
Um kaffileytið á aðfangadag
stóð hann á Hlemmi og horfði á
fólkið fiýta sér framhjá. Hann
hafði ranglað þetta í einhverju
sinnuleysi eftir að hafa gert ít-
rekaðar tilraunir til að hitta kon-
una og börnin. Farið og bankað á
kjallaradyrnar á timburhúsinu í
Þingholtunum som konan leigði
íbúð í, en það kom enginn til
dyra. Þó að hann væri búinn að
skrifa undir skilnaðarpappírana,
kallaði hann hana í huganum
alltaf konuna sína. Hann hafði
heldur ekki misst alla von um að
með tíð og tíma tæki hún hann í
sátt. Kannski í kvöld? Hann ætl-
aði að fara heim til hennar aftur
seinna um kvöldið og fá að sjá
krakkana, þó ekki væri annað.
Það var verst að hann hafði
ekki getað keypt neitt handa
dótturinni, hann var með jóla-
gjöfina handa drengnum í hvít-
um plastpoka sem hann hélt á í
annarri hendinni, pokinn var
merktur einum af stórmörkuðun-
um. Hann hafði sjálfur smíðað
gjöfina handa drengnum, stóran
vörubfl úr spýtu, og var dálítið
stoltur af.
Bara ef liann hefði ekki hitt
Bogga í gær, nokkru eftir að
hann var á Bæjarins bestu og
farið með honum í hús og tekið
þátt í að ijármagna áfengiskaup
á svörtu. Þar fóru peningarnir
sem hann hafði ætlað í jólagjöf
handa dótturinni. Eiginlega hafði
hann komið hingað á Hlemminn í
þeirri von að hann hitti einhvern
af gömlu félögunum, sem myndu
lána honum nokkur hundruð
krónur, svo hann gæti keypt ein-
hverja smágjöf handa stelpunni.
En það kom ekki neinn sem hann
þekkti, fyrir utan tvo róna sem
reyndu að slá hann um pening,
en vitanlega án árangurs. Eigin-
lega fannst honum að hann gæti
ekki farið í heimsókn án þess að
hafa meðferðis gjöf handa henni
eins og bróður hennar. Rétt áður
en búðum var lokað um hádegið
hafði hann verið að hugsa um að
hnupla einhverju ódýru, en hafði
ekki haft kjark í sér til þess. Og
nú stóð hann þarna á aðfanga-
dag og ekki nema klukkustund
þar til yrði heilagt. Það byrjaði
að snjóa, stórar flygsur féllu lóð-
rétt á gangstéttina fyrir framan
hann. Hann stóð þurrum fótum
inni undir skyggninu á húsinu.
Það komu krapahljóð frá bflun-
um sem óku framhjá. Um morg-
uninn þegar hann hafði vaknað
var rigning og menn töluðu um
rauð jól.
Smám saman hljóðnaði um-
ferðin og hann stóð einn eftir.
Snjónum kyngdi niður, allt var
hvítt og hljótt. Tvær dúfur sem
setið höfðu í þakrennunni fiugu
upp og settust rétt við fætur
hans. Honum fannst þær horfa
krefjandi á sig. Líklega svangar,
hugsaði hann. Var feginn að hafa
stungið hálfri samloku í vasann,
sem hann hafði ekki haft lyst á
fyrr um daginn. Nú kom sá vani
hans sér vel að henda engu. Dúf-
urnar réðust á brauðið og hættu
að taka eftir honum.
í þann mund sem klukkurnar
í Hallgrímskirkju hringdu inn jól-
in, lagði hann af stað niður
Laugaveginn í átt að kristilega
hótelinu. Hann hafði lofað um-
sjónarmanninum að vera við
guðsþjónustu sem byrjaði klukk-
an sex, síðan átti að vera sameig-
inlegt borðhald með gestum og
starfsfólki.
Hann fann til svengdar. en