Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981.
9
Útlönd
Útlönd
KGB BRAUZTINN
HJÁ SJÓBSTJÓRA
SOLZHENITSYNS
Tekinn listi með nöfnum 700 styrkþega
Útlegðarskáldið Alexander
Solzhenitsyn sagði í gær að hann hefði
fregnað að sovézka leynilögreglan
hefði brotizt inn á heimili í Moskvu og
lagt hald á lista yfir 700 pólitíska
fanga sem hann hefur veitt fjárhags-
aðstoð.
Solzhenitsyn sagði blaðamönnum
að KGB-lögreglan hefði í síðasta
mánuði brotizt inn hjá Sergei
Khodorovich, sem hafði haft
milligöngu um að útbýta peningunum,
og tekið frá honum ítarlega lista yfir
fangana og börn þeirra.
Það var í apríl 1974, tveim
mánuðum eftir að hann var gerður út-
Jægur frá Sovétríkjunum, sem nóbels-
skáldið stofnaði hjálparsjóð sinn fyrir
ofsótta Rússa. í hann renna ailar
tekjur skáldsins af metsölubók hans
„Gulag-eyjaklasinn, sem er frásögn af
fangahúðavist í sovézkum þræla-
búðum.
Khodorovich hefur tvívegis skýrt
frá þvi á síðasta einu og hálfu ári að
honum hafi verið hótað dauða og bjóst
hann á hverri stundu við að verða
handtekinn.
Solzhenitsyn, sem býr á óðali í
Cavendish í Vermon, segir að innbrotið
hafi átt sér stað 24. nóvember, eftir því
sem hann hefur frétt. En það var sama
daginn og Brezhnev forseti Sovét-
rikjanna fór í heimsóknina til Vestur-
Þýzkalands.
Ekki er vitað hvort annar listi var til
yfir 'styrkþegana úr sjóðnum en þó
gengið út frá því sem vísu.
Solzhenitsyn: Hann er viss um að hér
haB KGB verið að verki.
Byggingavörur
H Timbur
• Flísar
• Hreinlætistæki
• Blöndunartæki
• Gólfdúkar
• Málningarvörur
• Verkfæri
• Baöteppi
• Baðhengi og mottur
• Harðviður
• Spónn
• Spónaplötur
• Viðarþiljur
• Einangrun
• Þakjárn
• Saumur
• Fittings
Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar
allt niður í
20%
útborgun og eftirstöðvar allt að
níu
mánuðum
Við höfum flutt okkur um set, að
Hringbraut 119,
aðkeyrsla frá Framnesvegi
eða inngangur úr Fatadeild JL-hússins
* Opið fimmtudaga til kl. 20, föstudaga
tií kl. 22 og laugardaga kl. 9 til 12
ATH.: Við opnum kl. 8 á morgnana
— nema laugardaga kl. 9 —
Wm BYGGlWGMÖRURl
Danskur morðingi
á f lótta f Guyana
— myrti vinstúlku sína og 12 ára gamlan bróðir hennar
O!
aukum ORW'.
I \/PTRAPAKSTRj,
notum ökuuósin
allan
CLiSi ARHRINGINN.
FEBB.
Finn Robert Mortensen, sem danska
lögreglan hefur leitað mest að — og
reynt að fá framseldan frá Guyana,
hefur tapað málþófi sínu fyrir dómstól-
um Guyana.
Hann hafði sloppið úr fangelsi þar
sem hann afplánaði lífstíðardóm fyrir
morð á vinstúlku sinni sem neitað hafði
að giftast honum. Hann var einnig
dæmdur fyrir að myrða 12 ára gamlan
bróður hennar, sem var sjónarvottur
að morðinu.
Mortensen komst til Guyana, þar
sem danska lögreglan hafði þó uppi á
honum. Var hann þá genginn í hjóna-
band með þarlendri stúlku, sem slaðið
hefur fyrir málarekstrinum er tafið
hefur framsal hans. Hún krafðist þess
að honum yrði sleppt úr gæzlu því að
handtaka hans væri ólögleg.
Rændu þrem
flugvélum
íeinu
Þrjár Venezúela-farþegaþotur með
160 farþega innanborðs eru nú lentar í
Honduras og Guatemala. Lentu tvær í
Honduras.
Þeim var öllum þrem rænt í flugi yfir
Venezúela í gær en ræningjarnir, sem
eru tólf talsins og allir vopnaðir hríð-
skotabyssum og handsprengjum, hafa
ekki enn sett fram neinar kröfur eða
látið uppi hvað fyrir þeim vakir.
Neyddu þeir flugstjórana til þess að
lenda fyrst i Kólombíu þar sem þeir
leyfðu 90 af farþegunum að fara frá
borði. Höfðu þeir 9 stunda viðkomu
þar og voru eldsneytisgeymar vélanna
fylltir og býtibúrin fyllt að nýju.
Ekki er vitað hverrar þjóðar flug-
ræningjarnir eru.
Dómstólar hafa nú úrskurðað að
handtakan hafi verið lögmæt. Morten-
sen komst inn í landið á fölsku vega-
bréfi. Var talið eðlilegt að Mortensen
yrði hafður í haldi þar til honum yrði
vísað úr landi.
GOÐAR ^UPPSKRIFTIRo
Súkkulaðidrykkir Krem fyrir tertur og kökur
°MEÐ MÓNU
TERTCl
HJCÍP
1
1.
I líter mjólk
100 |r. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað saman, gott að láta aðeins sjóða,
einnig má drýgja mjólkina með vatni, salt
eftir smekk.
2.
I líter mjólk
150 gr. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað á sama hátt og no. 1, en þeyttur rjómi
borinn með, eða látinn í hvern bolla.
Bræðið TERTU HJÚP við vægan hita og
hrærið stöðugt í á meðan. (Ekki er nauðsyn-
legt að nota vatnsbað).
SÚKKULÍKI
1.
100 gr. smjör
100 gr. tertu-hjúpur brætt og kælt.
4 eggjarauður hrærðar út í, ein í einu og
60 gr. flórsykur, hrært vel, má þeyta.
2.
I00.gr tertu-hjúpur
2 eggjarauður
2 matsk. rjómi
2 matsk. flórsykur
Eggjarauður og flórsykur þeytt saman,
bráðnum tertuhjúpi og rjóma bætt út í.
Súkkulaðibráð.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt varlega, hrært
stöðugt í, síðan er I matskeið af smjöri
(mjúku) hrært saman við (má vera meira),
látið volgt á kökuna.
Skreytikrem.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt við vægan hita,
síðan er 1/4 teskeið af vatni hrært vel
saman við. Síðan er þetta látið í sprautu
eða sprautupoka, og er þá tilbúið til skreyt-
inga, látið ekki bíða.
mona
SÆLGÆTISGERO
STAKKAHRAUNI 1 HAFNARFIRÐI
SfMI 50300 - 50302