Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐ1Ð& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981.
23
íþróttir íþróttir 0 íþróttir íþrótti
íþrótti
íþróttir
íþróttir
íþrótt
íþrótti
Var passi nýja heims-
meistarans falsaður?
einareftirá
botninum
— íl. deild kvenna
íhandknattleik
Úrvalsdeildin íkörfu:
Ná Stúdentar
ísínfyrstu
stigíkvöld?
Slúdentar fá eitt sitt bezta tækifæri
til að vinna sér inn fyrstu stigin sín í
úrvalsdeildinni í körfuknattleiknum á
þessu keppnistímabili í kvöld.
Þá mæta þeir KR-ingum í íþrótta-
húsi Hagaskólans og hefst leikurinn kl.
20. Stúdentar eru eina liðið i dtjildinni
sem ekki hefur enn fengið stig. KR og
ÍR eru á „næstu hæð” fyrir ofan þá —
með fjögur stig hvort — og gegn þeim
ættu því mestu möguleikar ÍS að vera.
Staðan í deildinni fyrir leikinn er
annars þessi:
Fram
Njarðvík
Valur
KR
ÍR
ÍS
9 8 1 768—681 16
9 8 1 748—669 16
8 4 4 627—613 8
7 2 5 505—559 4
8 3 6 587—645 4
7 0 7 524—592 0
KÁRISÝNDI
GAMLA TAKTA
—þegar Tindastóll sigraði ísafjörð
íkörfuboltanum
Gamli landsliðsmaðurinn í körfu-
knattleik úr Njarðvík, Kári Marísson,
tryggði liði sínu, Tindastól frá Sauðár-
krók, sigur á móti ísfirðingum í 2.
deildinni í körfuboltanum á Akurcyri á
sunnudaginn.
Kári, sem nú er bóndi í Skagafirðin-
um, var aðalmaðurinn í leiknum en
eftirminnilegastur var hann þó áhorf-
endum á síðustu sekúndum leiksins.
Tindastóll fékk boltann er aðeins 6
sekúndur voru eftir. Innkast var þá
tekið og boltinn gefinn á Kára, sem
þurfti ekki meiri tíma til að skora.
Staðan var 52:52 þegar Kári tók
skotið og skoraði svo Tindastóll sigraði
í leiknum 54:52. ísfirðingar léku einnig
við Þór á Akureyri um helgina. Þeim
leik töpuðu þeir 69:51.
Þór er í efsta sæti i þessuni riðli i 2.
deild með 4 stig, Tindastóll er með 2
stig og ísafjörður ekkert stig. í hinum
riðlunum tveim eru Breiðablik og
Vestmannaeyjar efst þessa stundina.
-klp-
Kári Marísson.
Franz Klammer, Austurríki, senni-
lega mesti brunkappi allra tíma, geyst-
ist niður brekkurnar á 98 km meðal-
hraða í Val D’Isere á sunnudag og sigr-
aði í fyrstu brunkeppni heimsbikarsins
á þessu keppnistímabili. Fyrsti sigur
þessa mikla afreksmanns í þrjú ár,
manns sem fjórum sinnum liefur sigrað
samanlagt í brunkeppni heimsbikarsins
og varð ólympíumeistari í bruni í Inns-
bruck 1976.
Franz Klammer er nú „gamli maður-
inn” í keppni afreksfólksins á skíðum,
28 ára að aldri. Sigurinn í Val D’lsere
var þó ekki fyrirhafnarlaus, siður en
svo. Svisslendingurinn Peter MUller
hafði betri tíma en Klammer á báðum
brautarstöðunum, þar sem tími var gef-
inn upp. I lokakafla brautarinnar náði
Klammer hins vegar mun betri tíma og
sýndi þá mikið áræði og úthald. Kepp-
endur í bruninu voru 96. Keppnin átti
upphaflega að vera á Iaugardag. Var þá
frestað vegna þoku. Sigurinn hjá
Klammer var hinn fyrsti síðan i marz
1978. Þá var keppt í Laax í Sviss. Úrslit
urðu þessi.
1. Franz Klammer, Aust. 2:05.22
2. Peter Múller, Sviss, 2:05.48
3. Toni Búrgler, Sviss, 2:05.63
4. Steve Podgorski, Kan. 2:05.70
5. Ken Reed, Kanada, 2:06.09
6. Peter Winrnsberger, A. 2:06.29
Handhafi heimsbikarsins, Peter
Mahre, Bandaríkjunum, varð í 20. sæti
á2:08.47 mín.
Keppnin í heimsbikarnum hófst á
föstudag með stórsvigi kvenna. Irene
Epple, 24ra ára, náði beztum brautar-
tíma í báðum ferðum og sigraði á
2:30.24 min. Erika Hess, Sviss, varð
önnur á 2:30.91 mín. Hún varð önnur
samanlagt í keppni heimsbikarasins í
vor á eftir Maríu-Theresu Nadig, Sviss,
sem nú hefur hæft keppni. í þriðja sæti
í stórsviginu á föstudag varð Tamara
McKinney, USA. Fjórða Perrine
Pelen, Frakklandi, og í fimmta sæti
varð Marie Epple, yngri systir Kene
Epple.
-hsim.
Enn eitt leiðindamálið er nú komið
upp í sambandi við heimsmeistara-
keppnina í fimleikum. Tortryggni og
öfund hefur verið þar allsráðandi i ára-
raðir, en nú virðist þó hafa keyrt um
þverbak.
Það er heimsmeistarinn nýi í fim-
leikum kvenna, Olga Bitjerova, sem
kostað hefur öll lætin að þessu sinni, en
þvi er haldið fram að Sovétmenn hafi
falsað aldur hennar svo hún gæti verið
með.
Fyrr á þessu ári ákvað Alþjóða fim-
leikasambandið að setja aldurstakmörk
— neðri mörk — á þátttöku kvenna á
heimsmeistaramótum og öðrum stór-
mótum. Aldurstakmarkið álti að vera
16 ár, en eftir mikil fundahöld og
undirróðursstarfsemi, aðallega frá
Sovétmönnum, var samþykkt að hafa
þau 15 ár.
Strax á þessu heimsmeistaramóti var
farið að efast um aldur Olgu litlu, sem
er aðeins 1,38 m á hæð og 29 kg á
þyngd. Austur-þýzkur blaðamaður á
mótinu sagði að á móti í Minsk i Sovét-
ríkjunum í fyrra hefði staðið fyrir aftan
nafn Olgu að hún væri fædd árið 1967
og væri hún því ekki nema 14 ára.
Þær fréttir komu strax á eftir frá
Sviss að Olga hefði tekið þar þátt
í unglingamóti árið 1979 og þá sögð 12
ára gömul og fædd 1967. Fleiri hafa
verið að glugga i keppnisskrár og
skýrslur hjá sér og komizt að sömu
niðurstöðu.
Sovétmenn segja að þetta séu mistök
— og þjálfari hennar var alveg æfur á
blaðamannafundi í Moskvu þar sem
erlendir fréttamenn „saumuðu” að
honum um þetta mál. Rauk hann út af
fundinum og ncitaði að svara
spurningum þeirra.
Ellen Berger frá Austur-Þýzkalandi,
sem er formaður tækninefndar
Alþjóða fimleikasambandsins, hafði
Einn leikur var í 1. deild kvenna á
íslandsmótinu í handknattleik á föstu-
daginn. Þá mættust neðstu liðin i deild-
inni, Akranes og Þróttur, í íþrótta-
húsinu á Akranesi og sigruðu
dömurnar af Skipaskaga með 15
mörkum gegn 12.
Þetta var fyrsti sigur þcirra í deild-
inni í ár og sitja Þróttardömurnar nú
einar eftir á botninum með ekkcrt stig.
Markhæstar í leiknum á föstudaginn
voru þær Kristín Reynisdóttir hjá ÍA
með 5 mörk og Guðrún Kristjánsdóttir
hjá Þrótti — líka með 5 mörk.
Staðan í deildinni eftir þennan leik er
þessi:
FH 6 5 10 106:83 11
Valur 5 4 10 87:57 9
Fram 4 3 0 1 79:59 6
Vikingur 6 3 0 3 105:86 6
KR 5 2 0 3 85:76 4
ÍR 4 10 3 62:75 2
Akranes 5 10 4 57:100 2
Þrótlur 5 0 0 5 63:108 0
Krislinn Atlason
Þróttardömur
Eðvarð Þ. Eðvarösson — sundkappinn
ungi úr Njarðvík. Setti fjölmörg
íslandsmet á Norðurlandamólinu i
Danmörku um helgina.
Nýi heimsmeistarinn i fimleikum kvenna, Olga Bitjerova, er ekki nema
1,38 sm á hæð og 29 kg á þyngd. En spurninginn er, hvað rr hún gömul?
þetta um málið að segja er blaðamenn
spurðu hana. ,,Ég skoðaði alla passa
keppenda á þessu heimsmeistaramóti
og sá ekkert athugavert við þá. I passa
Olgu Bitjerovu, sem var að vísu alveg
nýútgefinn, stóö að hún væri fædd
1966 og þvi var hún löglegur kepp-
andi.”
-klp-
Kuwait íúrslit
HM ífyrsta sinn
Sigraði SaudhArabíu ígær
Kuwait varð í gær 23ja þjóðin, sem tryggir sér
rétt í úrslit heimsmeislarakeppninnar i knattspyrnu á
Spáni næsta sumar. Sigraöi þá Saudi-Arabíu2—0 i
Kuwait. Þátttökuþjóðir á Spáni verða 24 og nú er
aðeins óvissa um eitt sæti, sem annaðhvort Kína eða
Nýja-Sjáland hljóla.
læikur Kuwait og Saudi-Arabíu var i úrslitariðli
Asíu og Oceeaniu. Kuwait vann þar sinn fjórða sigur
i fimm leikjum og var allan timann betra liðið.
Faisál Al-Dakheel skoraði bæð mörkin á 36. og 56.
mín. Staðan i úrslitariðlinum er nú þannig:
Kuwaít 5 4 0 1 6—4 8
Kina 6 3 1 2 9-4 7
Nýja-Sjáland 4 12 1 4—4 4
Saudi-Arabía 5 0 1 4 4—11 1
Tvær efstu þjóðirnar leika á Spáni. Tveir leikir
eru eftir í riðlinum. Nýja-Sjáland á eftir að leika
báða útileiki sína i Arabalöndunum. í Kuwait 14.
desember og 19. desember í Saudi-Arabíu. Með
sigrum í báðum leikjunum komast Ný-Sjálendingar
uppfyrir Kínverja. Á því virðast þó litlar líkur og
mun meiri likur á. að Kinverjar leikí i fyrsta sinn i
úrslitum heimsmeistarakeppninnar eins og Kuwaít.
Miðherji Villa í
3ja leikja bann
—ogmeirilíkuráad
GeorgeBestgeristleik-
maður hjá Middlesbrough
Miðherji Englandsmeislara Aston Villa, Peter
Withc, var i gær dæmdur í þriggja leikja bann af
aganefnd enska knattspyrnusambandsins. Var
kominn með 28 refsistig. í viðtali við BBC i gær
sagöist Pétur ekki vera grófur leikmaöur en legöi sig
hins vegar allan fram i leikjunum. Sagðist sjaldan
hafa verið settur í leikbann á löngum leikferli. Þá
var Derek Satham, West Bromwich Albion, settur i
Iveggja leikja bann. Aston Villa á hcimaleik á laug-
ardag í Birmingham við West Bromwich, úlborg
Birmingham, og þá gela þessir kappar ekki leikiö.
Í gær fékk George Best sig lausan frá bandariska
knatlspyrnufélaginu San Jose og eru nú mun meiri
líkur á, að hann gerist leikmaður hjá Middles-
brough. Best er væntanlegur til Englands í miðri
vikunni og heldur þá til samninga við Bobby
Murdoch, stjóra Boro. Jafnvcl möguleiki á að hann
leiki með liðinu á laugardag.
-hsim.
Stjóri allt
árið hjá GR
Golfklúbbur Reykjavikur hefur ráðið Guðmund
S. Guðmundsson framkvæmdastjóra fyrir klúbb-
inn.
Mikil drift og uppgangur hefur verið hjá GR á
undanförnum árum og var ekki lengur talið annað
færl en að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf allt
árið.
Þetta er í fyrsta skipti sem íþróttafélag hér á
landi, eitt sér, ræður framkvæmdastjóra í fullt starf
allt árið. Öll stærri sérsamhöndin, svo og ÍSÍ og
önnur bákn í íþrótlunum, eru með stjóra allt árið, en
GR er fyrsta sjálfstæða iþrótlafélagið sem leggur út í
það.
Barcelona efst
Barcelona sigraði Osasuna örugglega 2—0 á
heimavelli sínum í 1. deildinni spönsku á sunnudag.
Hefur eins stigs forustu á meistara Real Sociedad.
Real Madrid er komið í þriðja sætið. Úrslil á
sunnudag.
Cadiz-Valladolid 0—0
Las Palmas-Betis 3—1
Gijon-Real Madrid 0—1
Casteilon-Bilbao 1—1
Barcelona-Osasuna 2—0
Racing-Espanol 2—1
Sociedad-Valencia 4—1
All. Madrid-Zaragoza 1—0
Sevilla-Hercules 0—1
Slaða efstu liða er nú þannig:
Barcelona 14 10 2 2 42-12 22
Sociedad 14 9 3 2 29—14 21
Real Madrid 14 9 2 3 23—13 20
'Zaragoza 14 7 4 3 21—16 18
Betis 14 7 0 7 20—17 14
Bilbao 14 7 0 7 22-19 14
Í 1. deildinni i Porlúgal tapaði Sporling Lissa-
bon, lið Malcolm Allison óvænl stigi á heimavelli
gegn Guimaraes 2—2. Hefur þó eins stlgs forustu
eftir 11 umferðir eða 18 stig. Oporto, sem sigraði
Estoril 1—0 á heimavelli, hefur 17 stig. Benfica er i
þriðja sæli með 15 stig. Vann Braga á sunnudag 1—
3 á útivelli.
ikíöt
Úrvals
JOTBUBIN MR<
LAUGAVEGI 78 REYKJAVlK SlMI 11636 ( 4 lInUR)
KRISTINN ATLASON
FER TIL K0PERVIK
—ogleikur þvíínorsku2.deildiimi íknattspymu ísumar
Kristinn Atlason knattspyrnu- og
handknattleikskappi úr Fram hefur
ákveðið að flytja til Noregs og leika þar
með 2. deildarliðinu Kopervík i norsku
knattspyrnunni í sumar.
Kristinn æfði með Kopervík í síðustu
viku og sáum við smáfrétt um það í
norsku blaði. Hann kom heim aftur um
helgina og er við töluðum við hann í
gær sagðist hann ætla að leika með
Kopervík í sumar.
Kristinn sagðist ekki vita hvenær
hann færi. Hann leikur eins og
kunnugt er í markinu hjá 1. deildarliði
Fram i handknattleik, og vill vera sem
mest með þar í vetur.
Með Kopervík, sem er félag rétt hjá
Haugasundi, leikur annar íslendingur.
Það er Sigurkarl Aðalsteinsson, sem
áður var með Völsungi og Þrótti
Reykjavík. Hann flutti út sl. vor og lék
með liðinu í sumar.
-klp-
• • kristinn atlason
som spiller pá det _ islandske
1 divisionslaget Fram Reykjavi ,
Fljótir að sjá út efnin á íslandi:
Svíar bjóða Eðvarð að
koma ogæfa með þeim!
Sundkappanum unga úr Njarðvík,
Eðvarð Þ. Eðvarðssyni, hefur verið
boðið að koma til Svíþjóöar og vera
þar í æfingabúðum í þrjá mánuði.
Það var unglingalandsliðsþjálfari
Svía sem bauö Eðvarð þetta á Norður-
landamóti unglinga sem haldið var í
Tysted í Danmörku um helgina. Var
hann einn þeirra mörgu sem hreifst af
íslendingnum unga á þessu móti, en
þar setti Eðvarð 10 íslandsmet.
,,Ég veit ekki hvað ég geri,” sagði
Bjami skoraði átta
Akurnesingar sigruðu Dalvikinga í
miklum markaleik, 33—25, í 3. deild
karla á Akranesi fyrir helgi. Bjarni
Sigurösson, landsliðskappinn i
markinu í knattspyrnunni, vakti mikla
athygli og skoraði átta af mörkum ÍA.
Það gerði Pétur Ingólfsson einnig.
Ólafur Jóhannesson og Hlynur
Sigurbjörnsson voru með fimm mörk
hvor.
Flest -mörk Dalvíkur skoruðu Stefán
Georgsson 8, Magnús Guðmundsson 6
og Björn Friðþjófsson 5.
-hsím.
Eðvarð þegar við náðum tali af honum
í gærkvöldi, en þá var hann mættur á
æfingu í sundlauginni í Njarðvík. ,,Það
getur líka verið að ég fari til Guðmund-
ar Harðarsonar hjá Neptun i Dan-
mörku og verði hjá honum. Ég er í
skóla núna, en ef af annaðhvort Sví-
þjóðar eða Danmerkurferðinni verður
gerist þaðekki fyrr en næsta sumar.”
— Nú tókst þú metið af Inga Þór
Jónssyni í 100 metra baksundi á
Norðurlandarnótinu. Er ekki mögu-
leiki á að þið mætist í keppni nú á
næstunni?
„Það er ekkert mót á skrá hjá okkur
báðum fyrr en í febrúar. Það getur þó
vel verið að það verði sett upp keppni á
milli okkar i 100 og 200 metra baksundi
fyrir þann tíma. Það gæti orðið gaman
að því,” sagði sundkappinn ungi og
virtist hvergi banginn við að mæta
stóru stjörnunni í sundinu, sem býr
hinum megin við Faxafióann.
-klp-
íþróttir
íþróttir
Franz Klammer i brunkeppni heimsbikarsins í Lauberhorn i Sviss.
FYRSTISIGUR FRANZ
KLAMMER í ÞRJÚ ÁR!
—Sigraði ífyrstu brunkeppni heimsbikarsins á Ítalíu á sunnudag