Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Qupperneq 33
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIDJUDAGUR 8. DESEMBER 1981. 37 FIÖLDAMORD OG PYNDINGAR ERU ENN DAGLEGT BRAUD í EL SALVADOR — þótt hljótt sé orðið um slíkt í f réttum segir Patricio Fuentes, sem nú er staddur hér á landi, ásamt Svíanum Birni Tunbáck, til að kynna starfsemi mannréttindanef ndar El Salvador Hér á landi er nú staddir tveir fulltrú- ar mannréttindanefndar EI Salvador, Svíinn Björn Tunbáck og Patricio Fuentes frá E1 Salvador, til að kynna starfsemi samtaka sinna. — Við viljum leggja mikla áherzlu á að samtökin eru algjörlega ópólitísk, sagði Bjöm er blaðamaður DV hitti þá félaga að máli. — Það má segja að aðalmarkmiðin séu þrjú. í fyrsta lagi berjumst við fyrir almennum mannréttindum í landinu á sama grundvelli og mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna gerir á alþjóða- vettvangi. í byrjun reyndum við að hjálpa póiitískum föngum og fjölskyld- um þeirra en það er nú þýðingarlaust. Júntan komst nefnilega fljótlega að þeirri niðurstöiu að það er mun ódýr- ara að drepa fólk en taka það til fanga. Afleiðingin er sú að nú sitja aðeins 212 pólitískir fangar í fangelsum í E1 Salva- dor, allir aðrir hafa veriðdrepnir. — í öðru lagi leggjum við áherslu á að dreifa upplýsingum um hið sanna ástand í landinu. Stjórnarandstaðan þar á sér ekki lengur neitt málgagn eftir herferð júntunnar á hendur blaði henn- ar, E1 Independiente, en þá voru blaða- menn myrtir og ritstjóranum vísað úr landi. Og alþjóða fréttastofur gefa yfir- leitt mjög litaða mynd af ástandinu eða þá að þær blátt áfram þegja um það. 60—65 venjulegir borgarar eru myrtir á sólarhring í El Salvador — í E1 Salvador eru 60—65 manns myrtir á sólarhring og mannréttinda- nefndin veitir alla þá hjálp sem hún get- ur til að bera kennsl á líkin og koma þeim til grafar. Það er mjög mikilvægt að bera kennsl á líkin því með því móti getum við sannað að hér er ekki um neina andófsmenn að ræða eins og stjórnin vill halda fram heldur ósköp venjulega borgara, menn, konur og börn. Enda er allt gert til að koma í veg fyrir að hægt sé að þekkja líkin. Um tíma var sýru skvett á þau til að gera þau óþek kjanleg. Eftir að mannréttindanefndin skarst í leikinn var hætt að nota sýruna en höfuð og hendur höggvin af líkunum í staðinn. — Okkur hefur lika tekizt að finna sannanir fyrir því að Bandaríkin hafa sent herstjórninni eiturefni til notkunar því við höfum fundið dósir undan slíku með bandarískum fram- leiðslumerkjum. Og eiturefni eru notuð í stórum stíl, eins og t.d. napalm og hvítur fosfór. Það stðarnefnda er hæg- drepandi eitur og fyrstu einkennin þau að fólk fær áköf uppköst. Ofbeldisþriliyrningur — í þriðja lagi er það svo flótta- mannahjálpin en í október stofnuðum við til sérstakrar herferðar henni til framdráttar og stendur hún yfir til 15. marz 1982. — Rúmlega hálf milljón manna hef- ur flúið landið undan morðum og pyndingum. Hafa þeir aðallega safnazt saman í Mexico, Honduras, Nicaragua, Costa Rica, Guatemala og Belice. Verst er ástandið i Guatemala og Honduras en þessi tvö ríki hafa komizt að hernaðar- legu samkomulagi við E1 Salvador sem leyfir her E1 Salvador að ráðast að vild á flóttamannabúðirnar og myrða og pynda. Við köllum þessi þrjú lönd of- beldisþríhyrninginn. — Flóttamennirnir búa við hræðileg skilyrði en kannski eru það börnin sem líða mest við aðstæður sem einkennast af næringarskorti, sjúkdómum auk annarra hörmunga. Og við viljum hjálpa þessu fólki eftir beztu getu, m.a. með fjársöfnun. — Mannréttindanefndinni var kom- ið á laggirnar árið 1978 og gátu fulltrú- ar hennar 'í fyrstu starfað opinberlega í E1 Salvador. En eftir að skrifstofan í San Salvador var sprengd í loft upp og tveir meðlimir samtakanna drepnir höfum við orðið að vinna neðanjarðar þar í landi. En við reynum að vekja sem mesta athygli á starfsemi okkar á al- þjóðavettvangi og höfum m.a. komið upp eigin fréttaþjónustu, AlS-Press. Var viðstaddur morðið á Romero erkibiskupi — Ég byrjaði að starfa fyrir mannrétt- indanefndina árið ’79 of ferðaðist þá um land mitt með einum Svía, sagði Patricio Fuentes, er við spurðum hann um persónulega reynslu hans af ástand- inu i San Salvador. — Og við urðum vitni bæði að fjöldamorðum og pynd- ingum sem yrði alltof langt mál að „Svona leit kennslukonan út er ég kom að henni i likhúsinu en á meðan við skruppum eftir bil var búið að misþyrma andlitinu svo likið yrði óþekkjanlegL” „Á meoan herlögreglan notaði sýruna var þetta algeng sjón á gótum San Salvador á morgnana.” ræða um í einu viðtali. Mér er þó kannski minnisstæðast er ég var sendur í líkhús til að sækja þar lík ungrar kennslukonu sem ég hafði setið fundi með skömmu áður en herlögreglan réðst inn í skólann sem hún kenndi við og myrti hana og hálfan bekkinn. Við fundum hana auðveldlega á meðal at.n- arra líka, en á meðan við skruppum frá til að sækja bíl hafði andliti hennar verið misþyrmt svo að hún var orðin óþekkjanleg. — Ég var einnig viðstaddur morðið á Romero erkibiskupi 24. marz 1980. Það var framið í lítilli kapellu rétt hjá heimili hans en ekki 1 dómkrikjunni eins og fréttir sögðu. Hann var að halda minningarathöfn um móður góðs vinar síns er hann var skotinn við altar- ið. Kirkjan var troðfull af fólki og þetta gerðist svo snöggt að enginn fékk áttað sig fyrr en morðinginn var slopp- in út. — Það var þá þegar búið að vísa mér úr landi, mér var gefið 70 tíma landvist- arleyfi í Nicaragua en þurfti svo aftur að skipta um flugvél í San Salvador á leið minni til Madrid. Ég notaði bið- tímann eftir vél til að snæða hádegis- verð með erkibiskupnum og var síðan viðstaddur minningaratholnma. Frjálsar kosningar eru bara blekking — En er engan endi að sjá á of- beldisverkunum í E1 Salvador. Samtök alþýðu, FDR (demókratíska byltingar- hreyfingin), hefur boðið júntunni upp á samningaviðræður en júntan setur slík skilyrði fyrir þeim að ólíklegl er að úr þeim verði. M.a. heimta þeir að Frelsissamtök Farabundo Martí, FMLN, sem standa fyrir skæruhern- aði, leggi niður vopn á meðan og það þora þeir ekki að gera af ótta við svik. Patricio Fuentes og Björn Tunbáck Og Bandaríkin hafa engan áhuga á að leysa málið. Þeim er mikið í mun að eiga ítök i E1 Salvador vegna legu landsins í Mið-Ameríku og júntan er þeim hliðholl. — Að vísu hefur verið boðað til (Mynd: F.inar). kosninga í landinu 4. marz 1982 en þær kosningar eru aðeins yfirskin. Júntan hefur meira að segja gengið svo langt að stofna til 10 nýrra „flokka” nú síð- asta mánuðinn til að láta líta svo út sem kosningarséu frjálsar. JÞ HÚSGÖGN FYRIR BÖRN 0G FULL0RÐNA eftir okkar f yrirmynd eða ykkar LYSTADÚNVERKSMKUAN Dugguvogi 8—10 sími 84655

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.