Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1981, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1981.
Sjónvarp
■t
LESIÐ ÚR NÝJUM BARNABÓKUM - útvarp kl. 16.20:
Nú er lesið úr nýjum barna-
bókum tvisvar í viku og nýjum
f ullorðinsbókum sex sinnum
Héðan í frá og til jóla verður lesið
úr nýjum barnabókum á
þriðjudögum og föstudögum kl.
16.20. Það er Gunnvör Braga sem
annast þennan þátt en kynnir verður
Sigrún Sigurðardóttir. Vonast þær til
að geta gefið hlustendum tækifæri til
að heyra kafla úr velflestum nýjum
íslenzkum barnabókum sem út koma
fyrir þessi jól. Einnig verður lesið úr
nokkrum þýddum bókum. Oftast
lesa höfundar eða þýðendur sjálfir.
í þættinum 1 dag verður lesið úr
einni bók sem nú kemur 1 endurút-
gáfu. Það er Dóra og Kári eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. Svo verður
lesið úr tveimur nýjum: Geira
glerhaus eftir Indriða Úlfsson og
Sólarblíðu eftir Véstein Lúðvíksson.
Lestina reka þrjár þýðingar: Hús
handa okkur öllum, eftir Thöger
Birkeland (þýð. Sigurður Helgason),
Ronja ræningjadóttir, eftir Astrid
Lindgren (þýð. Þorleifur Hauksson)
og Otto nashyrningur eftir Ole Lund
Kierkegaard (þýd. Valdís Óskars-
dóttir).
Á föstudaginn kemur verður
haldið áfram á fullu og lesið úr bók
Andrésar Indriðasonar, Polli er
ekkert blávatn, bók Herdísar Egils-
dóttur, Gegnum holt og hæðir, bók
Eðvarðs Ingólfssonar, Hnefaréttur
og loks úr bókinni Himnaríki fauk
ekki um koll eftir Ármann Kr.
Einarsson.
f þessu sambandi má nefna að
þátturinn Á bókamarkaðnum, í
umsjá Andrésar Björnssonar út-
varpsstjóra, sem hingað til hefur
aðeins verið á sunnudagskvöldum kl.
19.25, verður nú einnig alla virka
daga nema laugardaga kl. 15.10.
Kemur hann þannig I staðinn fyrir
miðdegissöguna.
Ekki veitir af. I fyrra var lesið úr
73 bókum fyrir fullorðna fyrir jólin
og ekki er búizt við, að þær verði
færri í ár.
-ihh.
í MÁNASKÍMU — útvarp kl. 20.35:
Smásaga eftir Stefan Zweig
f kvöld les Þórarinn Guðnason
læknir fyrri hluta smásögu eftir
Stefan Zweig. Seinni hlutinn verður á
dagskráá fimmtudaginn kl. 20.05.
Þórarinn hefur sjálfur þýtt söguna
og birtist hún ásamt fleiri smásögum
eftir Zweig í bókinni Manntafl, sem
útkomárið 1951.
Sagan hefst á því að maður nokkur
kemur með skipi i franskan hafnar-
bæ. Hann ætlar rakleitt áfram með
hraðlest til Þýzkalands, en skipinu
hefur seinkað og lestin er farin.
Næsta lest fer eftir sólarhring.
Maðurinn sér fram á ömurlegt
kvöld, þar sem ekki er annað við að
vera en „vellulegan hljóðfæraslátt í
hafnarkrám og fábreytilegar sam-
ræður við bláókunna ferðafélaga.”
Það fer á annan veg en við rekjum
sögurþáðinn ekki frekar.
Stefan Zweig var gyðingur. Hann
fæddist í Vínarborg fyrir réttum
hundrað árum. Á þroskaárum hans
var Vín höfuðborg heimsveldis,
kjarni Evrópu, og menningin sem þar
ríkti var gamalgróin og traust. En
tvær heimsstyrjaldir áttu eftir að
breyta þvi og þar með var allt sem
Zweig trúði á lagt í rúst.
Til að lifa slikt umrót af þarf mikla
aðlögunarhæfileika. Zweig hafði
nokkra en ekki nóga. Þegar veldi nas-
ista stóð sem hæst, 1942,þoldi hann
ekki meira. Hann framdi sjálfsmorð
ásamt eiginkonu sinni.
Árið síðar kom ævisaga hans út.
Hún hefur verið þýdd á íslenzku og
heitir Veröld sem var. Undirtitillinn
er Minningar Evrópumanns, eins og
höfundur væri einn af fáum eftirlif-
andi sem bjargazt hefðu af landi sem
nú væri með öllu horfið.
Sumt af því sem Zweig skrifaði
hefur illa þolað tímans tönn en smá-
sögur hans eru oft skínandi vel ritað-
ar.
ihh
Þannig var sú vcröld sem Zweig ólst upp 1: hallir sem virtust mundu standa um aldur og ævi, hestvagnar, kyrrð og friður. Sú
veröld hrundi til grunna 1 heimsstyrjöldum 20. aldar.
Víkingarnir
halda til
Grænlands
Áttundi þáttur myndaflokksins um
vikingana hefst 1 kvöld kl. 20.45. Í
seinasta þætti fóru víkingar til Færeyja
og tslands. Nú höldum við ásamt Eiriki
rauða og Magnúsi Magnússyni enn
lengraí vesturátt.
REFSKÁK
—sjönvarpí
kvöldkl. 21.25:
Morð eða
sjálfsmorð?
Þeir Cragoe og Wigglesworth, starfs-
menn í brezku leyniþjónustunni, eru
þungbúnir á svip. Það er ekki nema eðli-
legt. Dularfullur maður, Frank Állen,
sem ætlaði að taka hjá þeim hæfnispróf
sem njósnari, hefur fundizt hcngdur f
ibúð sinni. Hcfur hann sjálfur stytt sér
aldur? Ef ekki, hver þá?
39
Veðrið
Veðurspá
dagsins
Gert er ráð fyrir hvassri norðan-
átt með brunakulda. Snjókomu
með éljagangi fyrir norðan, létt-
skýjaðá Suðurlandi.
Veðrið
hér
ogþar
Kl. 6 í morgun: Akureyri snjó-
koma —11, Bergen léttskýjað —12,
Helsinki snjókoma —1, Kaup-
mannahöfn léttskýjað —11, Osló
heiðskirt —13, Reykjavík létt-
skýjað —9, Stokkhólmur —5,
Þórshöfn snjóél — 1.
Kl. 18 í gær: Aþena skýjað 17,
Bergen skýjað 1, Chicago skýjað 9,
Feneyjar þokumóða 2, Frankfurt
alskýjað +4, Nuuk hálfskýjað —4,
London rigning +5, Luxemborg
rigning og súld +2, Las Palmas
hálfskýjað 20, Mallorka léttskýjað
12, New York skýjað + 8, Montreal
léttskýjað —3, París alskýjað +8
Róm skýjað 14, Malaga heiðskirt
14, Vín hálfskýjað +2, Winnipeg
alskýjað —4.
Gengið
.
er örlaga saga tveggja einstaklinga, en hún er
ekki síður þjóðlífssaga, skrifuð til að sýna,
hversu ríkur þáttur ástin var í lífi þjóðarinn-
ar í fábreytni og fásinni fyrri tíma eða eins og
segir á einum stað í bókinni:
Hvert gat fólkið flúið í þennan tíma undan
ástinni? Ekki í ferðalög, skemmtanir, aðra
atvinnu né hugsjónir. Það bjó með ástinni og
ÞJÓÐSAGA
hafði engin ráð til að eyða henni, ef hún var
sár, stundum vildi það ekki eyða henni, þó
hún væri sár, hún var það eina sem það átti.
Ef hún á hinn bóginn var lukkuð, þá varð hún
lífsfylling í basiinu og fyllti kotið unaði.
Hinn sæli morgun, er ekki hefðbundin ástar-
saga, hún er annað og meira.
Verð kr. 197,60
ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510
GENGISSKRANING Nr.234-
08. desember 1981 kl. 09.1S. Ferfla
n Einirtg kl. 12.00 Keup Sale gjeldeyrír
1 Bandarik|adoJLar 8,156 8,180 8,998
1 Sterlingspund 15,851 15,898 17,487
1 KanadadoHar 6,896 6,916 7,607
1 Dönsk króna 1,1269 1,1303 1,2433
1 Norskkróna 1,4274 1,4316 1,5747
1 Sssnsk króna 1,4874 1,4917 1,6408
1 Rnnskt mark 1,8814 1,8870 2,0757
1 Franskur f ranki 1,4437 1,4479 1.5926
1 Balg.franki 0,2140 0,2148 0,2360
1 Svissn. franki 4,5217 4,5350 4,9885
! 1 Hokanzk florina 3,3334 3,3432 3,6775
1 V.-þýzkt mark 3,6433 3,6541 4,0195
1 ilölekllra 0,00679 0,00681 0,00749
.1 Austurr. Sch. 0,5192 0,5207 0,5727
! 1 Portug. Escudo 0,1268 0,1272 0,1399
1 Spánskur peseti 0,0852 0,0854 0,0939
1 Japanskt yen 0,03763 0,03774 0.04151
1 IrsktDund 12,931 12,967 14,265
, 8DR (sérstðk 9,5719 9,6000
j dráttarréttindl)
! 01/oa
S&msvari vegna gengksskréninger 22190.