Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Qupperneq 7
„King of the island"
Hér kemur enn ein gömul mynd frá
Akureyri. sennilega verður að breyta
um nafn á þessari opnu og kalla hana
„mannlif fyrir norðan áður fyrr á ár-
unum”. En gamanlaust; hafa ekki
allir gaman af að rifja upp liðna daga
af og til?
Þessi mynd er tekin á Akureyrar-
flugvelli við komu „Five keys” til
Akureyrar, sennilega 1957—8. Með
Bandaríkjamönnunum eru Kristján
Magnússon, pianóleikari, Jón
Sigurðsson og Guðmundur Stein-
grímsson, trommuleikari. Lengst til
hægri er Leifur Tómasson og Björg-
vin Júníusson er lengt til vinstri. Þeir
tvímenningarnir voru í móttöku-
nefndinni fyrir hönd Knattspyrnufé-
lags Akureyrar, en hljómleikarnir
með Five keys, sem haldnir voru í
Nýja bíói, gerðu stormandi lukku,og
voru haldnir til fjáröflunar fyrir KA.
Björgvin Júníusson og Leifur
sögðu okkur skemmtilega sögu frá
þessari heinsókn. Þegar hljómleikun-
um var lokið var haldið á Hótel
KEA. Á meðan kvöldverður var
snæddur gekk í salinn virðulegur
maður, klæddur í kjól og hvítt. Var
það Þorsteinn Valdimarsson, „kon-
ungur” í Hrísey, sem þá var að koma
af frímúrarafundi. Svertingjarnir
spurðu strax hver þessi virðulegi
maður væri. Þorsteinn er látinn fyrir
nokkrum árum. Gestgjöfunum vafð-
ist eitthvað tunga um tönn, þegar þeir
ætluðu að titla Þorstein; gátu
ómögulega áttað sig á hvernig „odd-
viti” ætti að útleggjast á ensku. En
þeir voru fljótir að bjarga sér kapp-
arnir og kynntu gestinn; Þorsteinn
Valdimarsson, „king of the island”.
Hinir söngglöðu svertingjar kunnu
að meta svona tiginn gest. sungu þeir
fyrir hann sérstaklega á dansleiknum
og að honum loknum bauð Þorsteinn
þeim upp á herbergi sitt. Þar sungu
svertingjarnir fyrir „kónginn” frá
Hrísey fram undir morgun. Svona á
að umgangast kóngafólk.
-GS/Akureyri.
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981.
KRÍTARKVÖLDi
Stígkin var grtskur dans með o/egans.
Dpnað \mi
500
FYRSTU
VIÐSKIPT
VINIRNIR
FÁ
SPIL
Nesti
Bildshðfða L. ZA:
ogVesturlandsveg
Hannað
sérstaklega
í tilefni þess
að við
opnum í dag
nýtt NESTI
við Bfldshöfða
qdidas ^
TOÞ TEN - UNiVERSAL -
STDCKHOLM - DUBljlN -
KÖ LN - TRX COMPETITION -
TR ( TRAINING - INÖOOR
SPECIAL
YFIR 15 GERÐIR
AF TÖSKUM
PÓSTSENDUM
BIKARINN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 14 - SÍMI 24520