Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1981, Page 21
DV — HELGARBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1981. 21 Ferðamál Ferðamál Ferðamál Eru skemmtihótelin það sem koma skal? Fjölmörg hótel víða um lönd, sér- staklega þó á hinum suðlægari slóðum, hafa á undanförnum árum breytt verulega starfsemi sinni. Hið gamla formfasta kerFi hefur orðið að víkja fyrir öðru gjörólíku. Þetta nýja kerfi, eða nýi þjónustumáti virðist vera að vinna á, enda fellur hann vel að nútíma hugsunarhætti. íslendingar hafa ekki kynnst þessum „skemmtihótelum” eins og sumir kalla þau, enda falla flest hótelin sem íslenskar ferðaskrifstofur versla við í hinum suðlægra löndum, undir þessi gömlu og fallegu og rót- grónu hótel. Nokkrir hafa þó lítillega kynnst þessu á sólarströnd Spánar, nánar tiltekið í Marbella. Er það hótel í eigu hótelsamsteypu, sem er þýsk að uppruna og ber nafnið „Robinson Clubhotel”. Hótelið sem þar er um að ræða heitir Aalay Park og það er dæmigert fyrir þetta nýja form í hótelbransanum. Hótelstjórinn sem er þýskur og heitir Klaus Uwe út- skýrir þetta nú aðeins nánar fyrir okkur. Aðalmáliö að láta fólkið kynnast „Við tókum við þessu hóteli fyrir tveim árúm, en þá var þetta eitt af gömlu og formföstu hótelunum hér á ströndinni og gekk ekki allt of vel. Við gerðum litlar breytingar á hótelinu sjálfu, aðeins rekstrinum. Útkoman er sú, að í ár höfum við verið með fullbókað hjá okkur frá apríl til loka nóvember. Nýtingin aðra mánuði ársins er einnig mjöggóð. Við erum með 448 tveggja manna herbergi svo hér eru á milli 800 og 900 manns á dag, 8 til 9 mánuði ársins og svolitið færra hina mánuðina. Robinson Clubhotel á eða sér nú um rekstur á 11 hótelum á Spáni, Ítalíu, Grikklandi, Afríku og viðar. Tvö hótel bætast við á næsta ári, í Austurríki og í Sri Lanka. Öll þessi hótel ganga vel og sýnir að fólk nú til dags kann að meta þetta nýja form.” Altt er gert til aö halda fólkinu sem mest á hóteknu. ÞaO er stanslaust veriO aO búa tk leiki og reynt er aO hafa hlutina þannig, aO föikiO þurfí nánast ekkert aO fara fráþvítiiaO finna eitthvaO viðsitthæfí. plastkúlur við komuna á hótelið. Rauðu kúlurnar eru andvirði 100 peseta, þær gulu 25 og grænu 5 peseta. Með kúlunum borgar þú allt á hótelinu. Þar með eru úr sögunni áhyggjur um að vera rændur eða tína peningum. Þeir eru í öruggri geymslu hótelsins úr því. Einnig eru úr sögunni áhyggjurnar af hversu mikið eigi að gefa í þjórfé. Starfsfólkið á hótelinu, en það er um 300 manns, má ekki nota þessar kúlur og því borgar enginn þjórfé á hótelinu. Fyrir hótelið er þettá helmingi hagkvæmara því pening- arnir koma aðeins frá einum stað — þar sem kúlurnar eru seldar — en ekki frá mörgum börum og sölum á hótelinu eins og áður var. Strax eftir morgunmat eru æfing- ar og leikir fyrir þá sem vilja slíkt. Eftir morgunmatinn eru leikir í garðinum og við laugina. Þeir miðast allir að því að fólk kynnist og geti skemmt sér. Kvenfólkið getur farið í jogaæfingar, jassleikfimi, lært batik og margt fleira. Þeir sem vilja íþróttir geta farið í tennis, en 16 tennisvellir eru á eða við hótelið, menn geta farið í knattspyrnu, golf, blak og að sjálf- sögðu í sund, en 3 stórar laugar eru á hótelinu, þar af ein innilaug. Auk þess einkabaðströnd. í eftirmiðdaginn getur fólk valið um stereokonserta, tungumála- kennslu, kennslu á seglbrettum á sjónum og hvað eina. Sérgarður er fyrir börnin og þar eru 4 útlærðar fóstrur ásamt aðstoðarfólki. Þar hafa börnin hesta og leikföng og leiktæki auk eigin sundlaugar. Það er engin hættaáað þeim leiðist þar. A kvöldin eru svo allskonar skemmtiþættir, oft með þátttöku gestanna, leikþættir, bingó og fleira. Fyrir þá sem eitthvert úthald eiga þá eftir er svo diskótekið í gangi fram á nótt. Klaus U'vc sagði okkur að það tæki tima að hreyta gömlum form- fóstumhótelum i svona skemmtihótel eins og Atalaya Park. Það tekur lengstan tíma að breyta starfsfólkinu og fá það til að vera með í leiknum. „EKKIENDALAUSTHÆGTAÐ SELJA SÓUNA’’ Kjartan L Pálsson blaðamaðurræðir við hótelstjóra á einu afhinum nýju skemmtihótelum, sem nú eruvíðaaðryðjasér til rúms í heiminum Maturinn á skemmtihótelum er bæOi mikiii og góOur. Gest- irnir sjá sjálfír um aO skammta á diskana og hella í giösin. Hvrtvín og rauOvín eins og hver getur í sig látiO er svo inni- faiiö í verðinu, eins og sjá má á þessum matseðli frá Atalaya Park. LQQJQ Oot&'o/Vé- CO.</ /'f<S(//VÆ.e£S' CoA/£0fl!,r)/r rftfy /.£<S(/rVe.3 í?tc/.s'c/n/sf u//r/Z í//6ém/&/£ Co/Ufon/v/- /Z/r ££/ni/,s't ^CA/Sc/Céo "/"o'/y?— /S'o/r •'/W/eýT'' ácrjt/A/'eé- "/Vt/eýr" 7&í>a/cc /fr cr/í/o -fs.4 /uí/£/>/t//ý. - ?bec -f /'c/tyA/ffé- F6///' /a/ c/iý/Zá'/' /?//////- éfc//u//r///rr/r/s'c// /*/ o4f/Sc&’ófecé' Sbc/r/it- (?/ýc£ y/ á'ÆfA/J-/??/?//£-& /orcece^ ,?<////£ u//r//<SéfA/í>-//7//efi//e-*. /A f/SO///Z í rZ/r c/s/ý//z<- /'//>///,£/" — Hvaðersvo þetta nýja fórmP „Við vissum eins og aðrir að það er ekki endalaust hægt að selja sólina Fólk vill fá eitthvað meira fyrir aurana en bara sólböð og hvíld. Á þessu hóteli hérna erum við til dæmis með 16 manna starfslið, sem gerir ekkert annað en að hafa ofan af fyrir gestunum með allskonar leikjum og skemmtunum frá morgni og fram á nótt. Aðalmálið hjá okkur er að láta fólk hittast og kynnast. Við tökum sem dæmi kvöldmatinn. Það er venjulega fjórréttað þá og frítt vín með matnum, hvítvín eða rauðvín eins og hver getur í sig látið. Við erum með 8 manns við hvert borð, og það er ekki byrjað að borða fyrr en öll sæti eru tekin. Þjónarnir bera fram matinn en gestirnir við borðið skiptast síðan á um að servera. Bara með þessu opnast leið fyrir fólk til að heilsast og ræða saman. Eftir nokkra daga á hótelinu þekkir þú orðið fjölda manns — þar á meðal alla borðfélagana — og þú eða þið verðið aldrei ein eða leiðist í fríinu. Engir peningar ígangi á hótelinu Annað er við gerum og er mjög vinsælt er að það eru engir peningar í gangi á hótelinu. Þú kaupir litlar Það eru ýmis hótel bæði á Spáni og víðar að taka upp þetta form eða eitthvað annað áþekkt. Aðrir halda gamla forminu afram og það er vel. Þvi það eru margir sem vilja njóta þeirrar hvildar ug kyrrðar sem gömlu hótelunum fylgir. Það er markaður fyrir allt í hótel- bransanum. Þetta form sem við höfum tekið upp á okkar hótelum hefur gefist vel, og þetta er trúlega það sem koma skal. Fólkið á ekki að þurfa að fara út af hótelinu til að fá þá tilbreytingu sem það sækist eftir i fríinu. Hótelin eiga að koma með þaí til fólksins sem eru gestir þeirra hverju sinni. . . -ktp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.