Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1982, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1982.
EigendurBifreiðastöðvarSteimlórs sinna ekki afturköllun atvinnuleyfanna:
„Þeir halda áfram að keyra”
„Það gerist ekki annað en það, að
mennirnir halda áfram að keyra,”
sagði Viðar Matthíasson, lögmaður
kaupenda Bifreiðastöðvar Steindórs
er DV spurði hann í gær um viðbrögð
þeirra við afturköllun atvinnuleyf-
segir Viðar Matthíasson lögmaöur kaupenda
Tímamörk afturköllunarinnar eru
kl. 14 í dag. Seljendum stöðvarinnar
hafði verið tilkynnt að þeir gætu sótt
aftur um leyfin fram til laugardags-
kvölds, gegn því að kaupin gengju til
baka.
„Það hafa engin þau leyfi verið
afturkölluð sem stöðin hefur verið
rekin eftir,” sagði Viðar. „Leyfin frá
1973 hafa aldrei verið í gildi, heldur
þau sem voru útgefin 1956. Mennirn-
ir munu auðvitað aka á þeim Ieyfum
eftir sem áður, alveg óháð því hvort
leyfin frá 1973, sem eru hvort eð er
ógild, verða afturkölluð. Enda er slík
afturköllun alger markleysa.
Seljendum var gefinn frestur til að
endursækja um leyfin. En þeir eru
bundnir af kaupsamningi, svo þeir
munu ekkert sækja um það.
Ég get ekki séð að lögreglan sjái sér
fært að stöðva starfsemina sem bygg-
ist á leyfum sem eru í gildi,” sagði
Viðar.
—JSS
„Þrautariending að stöðva
þá með lögregluvaldi”
— segir Brynjólf ur
Ingólfsson
deildarstjóri í
samgönguráðuneytinu
„Þrautalendingin verður sú, að
stöðva þá með lögregluvaldi. Við get-
um ekki staðið í þjarki við mennina.
En við treystum þvi að þetta geti
gengið friðsamlega fyrir sig,” sagði
Brynjólfur Ingólfsson deildarstjóri í
samgönguráðuneytinu er DV spurði
hann hver yrðu viðbrögð þess, yrði
afturköllun leyfanna ekki sinnt.
.,, Brynjólfur sagði, að afturköilun
atvinnuleyfanna væri gerð að til-
mælum ráðuneytisins. Árið 1973
hefðu verið gefin út 45 leyfi, sem
skipzt hefðu jafnt á 5 erfingja Stein-
dórs. Reglugerð, þar að lútandi,
hefði verið birt með ábyrgðarbréfi og
væri því fyllilega lögleg. Eftir henni
hefði verið starfað sl. 9 ár.
„Það er búið að taka ákvörðun af
okkar hálfu um þetta mál. Henni
verður ekki breytt,” sagði Brynjólf-
ur. „Málið er afgreitt af hálfu ráðu-
neytisins.”
—JSS
Óspektirnar á Selfossi:
„Ekki nýtt
að skella
skuldinni á
lögregluna”
—segir Sigurður Jónsson varðst jóri og
segir ásakanir tæpast eiga við rök
að styðjast
JUHrari af fyriHtuguOum raOhútum wn mætt hafm mMKI mndwpymu Mkm í h vmrfínu
íbúar mótmæla frekari byggingum í Laugarásnum:
BJÓÐAFRAM
„Við áttum von á óspektum og
bjuggum okkur undir þær,” sagði
Sigurður Jónsson varðstjóri á Selfossi
er DV ræddi við hann um óspektirnar,
sem urðu í bænum á þrettándadags-
kvöld. Hefur mikil óánægja risið upp
með framkomu lögreglunnar og harð-
orð mótmæli verið borin fram.
„Það er ekkert nýtt að skuldinni sé
skellt á lögregluna,” sagði Sigurður.
„En hvað á hún að gera þegar tekið er
til við að grýta hana með flöskum og
öðru lauslegu, rusli dreift um götur og
kveikt í því?”
Hvað um þær ásakanir á hendur lög-
reglunni að jafnt sekir sem saklausir
hafi veríð handteknir?
„Það er alltaf erfitt að gera upp á
milli sekra og saklausra í ólátum sem
þessum. Það er hugsanlegt að einhverj-
ir hafi verið handteknir, sem ekki
komu við sögu í óspektunum sjálfum.”
Ykkur lögreglumönnum var einnig
gefið að sök að hafa komið ólátunum
af stað með frumhlaupi. Hvað viltu
segja um þær ásakanir?
„Við hreyfðum hvorki legg né lið
gegn fjöldanum fyrr en farið var að
grýta okkur svo þær ásakanir eiga
tæpast við rök að styðjast. Að öðru
leyti vil ég ekkert tjá mig um þetta
mál,” sagði Sigurður. -SSv.
SJALFBODAVINNU
— ef það mætti verða til þess að fegra útivistarsvæðið
Á níunda tug ibúa við Austur- og
Vesturbrún hafa undirritað mót-
mælaskjal þar sem þeir fara fram á
að opna svæðið á milli gatnanna á
háhæð Laugarássins fái að gegna
upphaflegu hlutverki sínu.
Benda þeir á að þegar núverandi
Bókabúð
Braga
Arnarbakka 2,
Breiðholti
Frá og meö 1. janúar 1982 munum viö leggja niöur
nafniö Arnarval á bókaverslun okkar aö Arnarbakka 2 í
Breiöholti. Framvegis mun hún heita Bókabúð Braga og
veröur rekin undir því nafni ásamt Bókabúð Braga,
Lækjargötu 2 og Bókabúð Braga, blaðsölu, Hlemm-
torgi.
Ragnhildur Bender
Guömundur H. Sigmundsson
Bökabúð
Braga
Arnarbakka 2,
Breiöholti
Bókabúð
Braga
Blaöasala,
Hlemmtorgi
Bðkabúð
Braga
Lækjargötu 2
hverfi í Laugarásnum var reist fyrir
um 25—30 árum hafi þvi verið haldið
fram að ekki yrði um frekari byggð
að ræða. Þurftu því íbúar við
Austurbrún að borga sjálfir vatns- og
skolpleiðslur niður á Kambsveg.
Vilja þeir halda því fram að með
þeirri kvöð, sem á þá var lögð þá.hafi
þeir um leið verið að borga fyrir að
halda holtinu óbyggðu.
Undir mótmælaskjalið til borgar-
ráðs skrifa 86 íbúar, en tekið er fram
að ekki hafi náðst til nærri allra enda
ekki lögð ríkuleg áherzla á það. Rétt
er að vekja athygli á því að talsverður
hluti hópsins lýsti sig reiðubúinn til
að leggja fram sjálfboðaliðsvinnu við
framkvæmdir á holtinu ef það mætti
verða til þess að fegra holtið og gera
þar útivistarsvæði eins og ætlunin
hefur verið um langt skeið.
—SSv.
METSOLURI
V-ÞÝZKALANDI
0G ENGLANDI
— þegar Ögri og Sigluvík seldu þar
Togarinn Sigluvík frá Siglufirði fékk
eitthvert bezta meðalverð sem íslenzkur
togari hefur fengið á fiskmörkuðum á
Englandi þegar hann landaði i Hull í
fyrradag.
Sigluvíkin landaði þar 66,9 tonnum
og fékk fyrir það 907, 9 þús. kr. og var
meðalverðir þar með 13,58 krónur.
Þá fékk ögri frá Reykjavik hæsta
meðalverð sem íslenzkur togari hefur
fengið á markaðinum í Vestur-Þýzka-
landi þegar hann seldi 186,6 lestir í
Cuxhaven á 1.779,3 þús. kr. og var
meðalverðið þar 9,52 krónur á kílóið.
Þrír aðrir togarar seldu ytra í gær og
fyrradag, Ingólfur Arnason í Bremen-
haven 148,7 lestir á 1.354 þús. kr. —
meðalverð 9,10 krónur — og Otur í
Grimsby 89 tonn sem hann fékk 933
þús. kr. fyrir og var meðalverðið hjá
honum því 10,48 kr. Stálvík seldi líka í
Grimsby í gær. Hún var með 96,3 lestir
og fékk fyrir þann afla liðlega eina
milljón krónaog meðalverðið var 10,63
kr. ákílóið.
Þrír togararar selja ytra í næstu viku
og eru það síðustu sölur íslenzkra
togara á erlendum fiskmörkuðum á
næstunni.
-klp-