Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982. ^ EITT AF FALLEGRIUONUM HEIMS BYRIHAFNARFIRÐI segja erlendir dýragarðasérfræðingar KytkMangan t rólega daga i búH sJnu. Hún er ekki ertruð en er hkta vegar nokkuð sterk og getur bUÖ hraustiega. VeOráttan hóriendis hentar isbjörnunum veI. í dýragörðum I suðlægari löndum hefur það viljað bragða við að feldur ísbjarnanna hefur akki haldið glæsdedc sinum. ma Pifuglinn brekUr úr fjaðrakórónu sinnl jtegar harm vHt gera hosur sinar grænar Tynr Kvenruglinum. GalUnn er bara sá að kvenfuglinn tló i fyrra. Þrátt fyrir það gerir karifugUnn slg breiðan enda er hann að reyna við kalkúnshænur sem hafðar eru isama búri. Reyndar aru tveirkátfarþarlíka. DV-myndir GVA. „Það er hugsanlegt að ~málin skýrist eftir einn eða tvo mánuði. Menn eru að velta því fyrir sér hvort vert sé að setja safnið í gang á ný. Það er verið að vinna að áætlun um safnið,” sagði Jón Kr. Gunnarsson, forstjóri Sædýrasfnsins í samtali við DV. Þann 1. febrúar næstkomandi verður eitt ár liðið frá því Sædýra- safnið var lokað almenningi. Síðan þá hafa málefni safnsins verið í biðstöðu. Flest dýrin eru enn í safninu og virðast hafa það gott. Fiskasafninu var þö fargað í fyrra, enda húsakynni þess gengin sér til húðar, að sögn Jóns. „Við þyrftum að hafa aðgang að fjármagni til að gera varanlega hluti. Margt af því sem gert hefur verið hér hefur verið gert af vanefnum. Tjaldað hefur verið til einnar nætur. Það sem safnið þarf fyrst og fremst er nýtt hús undir fiskasafnið. Gamal húsið er úr sér gengið og viðhaldið á því dýrt. Við vorum t.d. alltaf í vandræðum með sjóinn,” sagði Jón Gunnarsson. Hann kvaðst ekkert sérstaklega bjartsýnn á framtíð Sædýrasafnsins. En meðan ráðamenn sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi, en þau hafa styrkt rekstur safnsins, velta því fyrir sér hve miklu fjármagni eigi að ráðstafa til þess, þarf að fæða dýrin. „Fóðrið er ekki dýrasti liðurinn í rekstrinum. Það er tiltölulega ódýrt. Rafmagnið er stærri kostnaðarliður,” sagði Jón. Hann sagði tekjur af háhyrninga- veiðum safnsins hafa fjármagnað reksturinn að undanförnu en sem kunnugt er hefur safnið veitt hvalina og selt til sýninga í söfnum vest- anhafs. Enn sem komið er hefur ekki verið farið út í það að selja þau dýr sem eru i safninu nú. Ljónin, apana, ísbirnina, kengúrurnar og kyrkislönguna þyrfti öll að selja til útlanda. Ef það yrði gert yrði dýrt að fá þau dýr aftur til landsins. Vissulega væri synd að missa t.d. ljónin úr landi þvi erlendir dýra- garðsmenn, sem hingað hafa komið, hafa sagt að karlljónið í Sædýra- safninu sé með fallegri ljónum, sem fyrirfinnast í dýragörðum. Undir þá skoðun geta blm. DV, sem röltu um safnið á dögunum, tekið. Og reyndar bætt því við að ljónynjan er lítið síðri. -KMU. Konungur dýranna hefurþað ágætt I Sœdýrasafninu. Leó heitir karlljónið en jjónynjan heitir Elsa. Menn frá eriendum dýragörðum, sem heimsótt hafa Sædýrasafnið, hafa sagtað Leó sá með fallegustu Ijónum sem fyrir- finnast í dýragörðum. Hnýtingarblöð, 40 tegundir Hnýtigarn í miklu úrvali. V/RKA Klapparstíg 25—27, sími 24747. DVífullumgangi Isuzu Gemini dreginn “ út í lok mánaðarins Áskrifendagetraun Dagblaðsins og Vísis er nú í fullum gangi. í lok þessa mánaðar, nánar tiltekið þann 27. janúar, verður dreginn út fyrsti vinningurinn. Er þaö bifreið af gerðinni Isuzu Gemini. Þessir bilar eru þekktir fyrir sparneytni og góða aksturseiginleika, sem sagt kjörnir fjölskyldubilar. Þann 28. april næstkomandi verður svo dreginn út Zuzuki jeppabifreið og Opel Kadett 28. júli. Heildarverðmæti vinninganna í getraunir.ni nemur 319.000 krónum. Fjórir getraunaseðlar hafa nú verið birtir vegna Isuzu bílsins. Birtist hinn siðasti i blaðinu á mánudag. Nýir á- Isuzu Gcminl blfrelðln, scm dregin verður út 27. janúar. skrifendur eiga þess kost að taka þátt í leiknum. Aðeins verður dregið úr svar- seðlum skuldlausra áskrifenda. Þeir sem ætla að taka þátt í áskrif- endagetraun Dagblaðsins og Vísis, fylla út seðilinn með réttu svari og senda hann síðan i umslagi merktu: Dagblaðið og Vísir, DV-getraunin, Þverholti 11, 105 Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.