Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Side 7
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
AGFA 1 > FUJI KODAK SAKURA Munur á hæsta og lægsta verói
110/12 mynda, 100 ASA 32,- (1) 25,- (1) 36,70 (4) 46,8%
110/24 mynda, 100 ASA 31,50 (1) 36,15 (7) 51,70 (7) 41,- (1) 64,1%
126/12 mynda, 100 ASA 34,- (1) 27,50 (2) 38,35 (3) 39,5%
126/24 mynda, 100 ASA 38,- (4) 52,75 (4) 38,8%
135/12 mynda, 100 ASA 30,- (1) 30,75 (2) 41 ,- (5) 36,7%
135/24 mynda, 100 ASA 39,40 (5) 38,85 (7) 53,25 (8) 43,- (1) 37,1%
135/36 mynda, 100 ASA 58 ,- (2) 51,- (5) 68,85 (6) 54,- (1) 35,0%
135/24 mynda, 400 ASA 67,35 (3) 44,60 (5) 63,55 (7) 51,0%
135/36 mynda, 400 ASA 90,- (4) 58,15 (3) 80,45 (5) 54,8%
Tölur í sviga sýna í hve mörgum verslunum hver f ilma fannst .
1) Agfa filmur eru 80 ASA, í staö 100 ASA
'iöurstööur könnunarinnar sýna aO vorutogur munur er á veröi einstakra Htfílmuvörumorkja. 10 sérverzlanir með Ijósmyndavörur á Stór-Reykjavikursvæðimi voru heimsóttar.
■ ■ r *~1 Mismunur á hæsta og lægsta verði
ogframköiiunar hvericir tgIitiu að meðaltali 45,1 %
hiAniicTii' 7
Verðkönnuná
Ijósmyndafilmum
ogframköllunar
þjónustu:
Hörð samkeppnisbarátta hefur verið
að undanförnu á milli þeirra aðila sem
selja ljósmyndafilmur og bjóða fram-
köllunarþjónustu. Sérstök „tilboð”,
hafa flætt yfir og kærur og klögumál
gengið á vízl. Fyrirtækið Glögg mynd
bauð „ókeypis litfilmu í jólagjöf” en
sá böggull fylgdi skammrifi að kaup-
andi þurfti um leið og hann tók á móti
„jólagjöfinni” að kaupa framköllun
og kópíeringu fyrirfram.
Umboðsmaður Kodak hér á landi,
Hans Petersen hf„ hefur auglýst sér-
stakt „afmælistilboð” sem standa á út
þetta ár. Felur það í sér afslátt á stækk-
un einnar myndar fyrir hverja Kodak
litfilmu sem framköUuð er og kópieruð
á ljósmyndastofu Hans Petersen hf.
Þriðji aðilinn, umboðsmaður Fuji
filma, auglýsti í blöðum sérstakan
verðsamanburð á Kodak og Fuji,
litfilmum. í auglýsingunni var því hald-
ið fram að verulegur verðmunur væri
á þessum tveimur merkjum og væru
Fuji litfilmur mun ódýrari. Var þeim
tilmælum beint til neytenda að gera
verðsamanburð en „láta ekki plata
sig” á þeim tilboðum, sem voru á
markaðnum.
Starfsmenn Verðlagsstofnunar fóru
á stúfana þann 28. desember sl. til þess
að auðvelda neytendum verðsaman-
burð á ljósmyndafilmum og framköll-
unarþjónustu. Heimsóttar voru 10 sér-
verzlanir með ljósmyndavörur á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Verð var kannað
á 9 algengustu tegundum litfilma,
framköllunarþjónustu og hvort boðið
væri upp á svokallað „sértilboð” á
filmuverði eða framköllunarþjónustu.
Niðurstöður könnunarinnar eru birtar í
Verðkynningu frá Verðlagsstofnun
(1/2/1982) og fylgja hér með greininni.
Filmur
Kannnað var verð á litfilmum og er
hér birt meðalverð þeirra 9 tegunda
sem könnunin náði til. Tölur í sviga
segja til um í hve mörgum verzlunum
hver filmutegund fannst. Fram kemur
verulegur munur á verði einstakra
vörumerkja. í sjö tilvikum eru Kodak
filmur dýrasta en Agfa filmur f
tveimur. Fuji filmur eru í sjö tilvikum
FILMLJR OG VÉLAR B.F.
SKÓLAVÖROUSTÍG 41 - SÍMI20235.
ódýrastar en Agfa filmur í tveimur.
Ef borið er saman hæsta og lægsta
verð hverrar filmu er mismunurinn að
meðaltali 45,1 %. Ef hins vegar er borið
saman verð á þeim átta tegundum
Agfa, Fuji og Kodak filma sem til voru
í sömu stærðum hefðu þær kostað
samtals:
Fuji litfilmur 312.00 krónur
Agfa litfilmur 382.25 krónur
Kodak litfilmur 433.85 krónur.
Áherzia er lögð á að hér er ekki lagt
mat á gæði filma frá einstökum fram-
leiðendum heldur er eingöngu gerður
einfaldur samanburður á verði.
Framköllun og kópíering
Fram kom í könnuninni að framköll-
un og kópíering litmynda hérlendis er í
höndum þriggja fyrirtækja, Hans Pet-
ersen hf„ Agfamynda hf. og Glögg
myndar. Einnig kom i ljós að fram að
áramótum var verð fyrir þessa þjón-
ustu það sama hjá öllum aðilunum
þremur, eða 14.00 kr. fyrir framköllun
og 3,50 kr. fyrir hverja kópíeringu. Þó
kostaði 4,00 kr. hver kópíering hjá
Agfamyndum fyrir eftirtökur.
Hans Petersen hf. og Agfamyndir
hf. hækkuðu hins vegar verðið um ára-
mótin og kostar framköllun nú 18,00
kr. og hver kópíering 4,50 kr. og gildir
sama verð um eftirtökur hjá báðum
aðilum. Glögg mynd hefur hins vegar
ekki hækkað verðið og framköllun eða
kópiering því 22,2% ódýrari hjá því
fyrirtæki í dag en hjá hinum tveimur.
Að auki býður Glögg mynd stærri lit-
myndir á sama verði. Allir ofangreindir
seljendur framkalla öll merki og allar
tegundir litfilma.
Sórtilboð
Kannað var sérstaklega hvort þær 10
verzlanir, sem í könnuninni eru, byðu
upp á svokallað „sértilboð” á filmu-
verði, framköllun eða kópíeringu.
í ljós kom að enginn býður „sértil-
boð” á filmum. Hins vegar bjóða allir
þrír aðilar sem selja framköllun „sértil-
boð”. Glögg mynd býður, ef pantaðar
eru þrjár stækkanir af sömu mynd,
eina mynd ókeypis. Hans Petersen hf.
býður sérstak „afmæUstilboð” eins og
greint var frá í upphafi. Agfamyndir
hf. bjóða upp á sambærilegt „tilboð”
og Hans Petersen hf. en þó heldur
meiri afslátt. „AfmæUstilboð” Hans
Petersen hf. er bundið við að notuð sé
Kodak litfilma. „Tilboð” Agfamynda
er hins vegar óháð því hvaða filmu-
merki notað er.
-ÞG/Verðkynning
Fyrir 30 kr. á mánuði áttu kost á
ríflegum glaðningi sem getur
gerbreyttfjárhagsstöðu þinni.
Hafðu þessar staðreyndir í huga:
Allar þær 136 milljónir sem HHf
greiðirí vinninga íáreru
skattfrjálsar.
Milljónin sem getur lentá
trompmiðanum er það líka.
Ekkert annað happdrætti
hefur hærra vinnigshlutfall.
Vinningaskrá:
9 @ 200.000- 1.800.000,-
9 ' 50.000,- 450.000-
9 — 30.000- 270.000,-
198 — 20.000- 3.960.000 -
1.053 — 7.500- 7.897.500,-
27.198 — 1.500- 40.797.000,-
106.074 — 750- 79.555.500,-
134.550 134.730.000-
450 — 3.000,- 1.350.000-
135.000 136.080.000-
Vinningar eru 135 þúsund talsins.
Allt í þeinhörðum peningum.
Þú þarft ekki að hafa fjármálavittil að
reikna út að það er svo sannarlega
tilvinnandi að spila með
Freistaðu gæfunnar!
r
■■•■■■■■ ■■■
■ ••• • ■•■
■ •■■ • ■•■
• •■■i !■■■■■ ■ ■■■
•atsasaa ses • ••■•
••■■ ■•■■ ■■■■■ ■••■■■
• eei L !••■• ■■•■ J
HAPPDRÆTTI
HÁSKÖLA ÍSLANDS
hefur vinninginn