Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 11
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982. 11 Lögreglan íArnessýslu: Frásagnir um harð - ræði lög reglunn- ar rangar Vegna frétta i sjónvarpi sl. sunnu- dagskvöld og viðtals við Sigmund Stefánsson, formann Ungmennafé- lags Selfoss, óskar lögreglan að eftir- farandi komi fram: Þegar að kvöldi þréttándans varð ljóst að einhverjir ætluðu að efna til óspekta á Selfossi um kvöldið og nóttina. Varð lögreglan að skerast i, leikinn þegar verulegt hættuástand hafði skapazt, sem leitt gat af sér cignatjón og slys á fólki, ef ekkert yrði að gert, svo sem raun hefur orð- ið á mörg undanfarin ár. Það er rangt að lögreglan hafi beitt kylfum á unglingana umrætt sinn. Brynleifur H. Steingrimsson, vakt- hafandi læknir á þessum tíma, kann- ast ekki við að læknis haf verið leit- að vegna meiðsla af völdum lögregl- unnar. Aðeins tvær mæður hafa spurzt fyrir um ástæður fyrir hand- töku á sonum sínum en þeir voru fluttir á iögreglustöðina og látnir dvelja þar um tíma. Frásögn for- manns Ungmennafélags Selfoss um harðræði lögreglunnar þetta kvöld eru því rangar. Lögreglunni finnst fátt um einhliða fréttaflutning sjónvarps af atburði þessum. (Fréttatilkynning frá lögreglunni i Árncssýlsu). Enn halda innbrotin áfram Innbrotafaraldur hélt áfram um síðustu helgi og var brotizt inn á sex stöðum eftir því sem rannsóknarlög- reglan vissi um. Á laugardag var brotizt inn í Bílatún og þaðan stolið bil. Fannst hann skömmu síöar. Þá var brotizt inn i kaupfélagið i Garðabæ á laugardag en ekki var vit- að hve miklu var stolið þaðan. Að- faranótt sunnudagsins var fariö inn um þakglugga á Kaupgarði i Kópa- vogi. Skiptimyntapoki fannst á þaki hússins en ekki var vitað hvort þjóf- arnir hefðu haft citthvað með sér burt. Þá var brotizt inn í Alaska í Breið- holti, Steypustöðina á Ártúnshöfða og Björnsbakari í Vallarstræti. Ókunnugt var um hve miklu hefði verið stolið á þeim stöðum. -ELA Athugasemd I grein eftir Ásgeir H. Eiríksson verzlunarmann í Dagblaðinu og Vísi 7. janúar 1982 er fullyrt að formenn allra málefnanefnda Sjálfstæðisflokksins séu opinberir starfsmenn. Þessi fullyrðinga er fjarri lagi og hefði grein- arhöfundi verið í lófa lagið að afla sér réttra upplýsinga um þetta efni. En í leiðréttingarskyni skal þess getið að málefnanefndir Sjálfstæðisllokksins eru nú 17 talsins og eiga í þeim sæti tæplega 200 menn úr öllum stéttum og víðs vegar að af landinu. Formenn málefnanefndanna 17 eru einnig úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Af þéim eru 8 opinberir starfsmenn, þar með taldir 2 prófessorar, 1 læknir, 1 bæjarstjóri og 1 aðstoðarbankastjóri. Þeir 9 málefnanefndarformenn sem þá eru ótaldir eru allir annaðhvort sjálf- stæðir atvinnurekendur eða starfsmenn sjálfstæðra atvinnurekenda. Framvegis vona ég að þeir sem skrifa hér í blaðið eða annars staðar uni nefndir og ráð Sjálfstæðisflokksins afli sér réttra upplýsinga um jafneinfalda og auðupplýsta hluti og Ásgeir H. Eiríksson fór rangt með hér í blaðinu þann 7. þ.m. Kcykjavik, 8. janúar 1982, Kjarlan Gunnarsson, framkvæmdastjóri. VIÐTAUÐ: Vita Andersen: Ég átti nöturlega bemsku „Finnst þér ekki líka, að lífið geti verið hræðilegt,” sagði danska skáld- konan Vita Andersen þegar blaða- maður DV spuröi hana hvers vegna sögurnar i „Haltu kjafti og vertu sæt” væru jafn ömurlegar og raun ber vitni. Þar lýsir hún af mikilli samúð börnum sem alast upp hjá drykk- felldum og einstæðum drusluniæðr- um eða á stofnunum og læra að herða sig upp. Og ógeðugum karl- mönnum, sem nauðga konum beint ogóbeint. „Þetta fólk er svo illa farið, að það getur ekki gefið ást,” segir hún. Hún vill ekki viðurkenna, að þetta séu beinlínis endurminningar, en samt segir hún: ,,Ég átti nöturlega bernsku og var mjög viðkvæmt barn.” Pabbi giftist fimm sinnum Vita Andersen er fædd 1944 í gamla bænum i Kaupmannahöfn, við Borgergade (rétt neðan við Jóns Sig- urðssonarhúsið), í byggingum, sem nú hafa verið jafnaðar við jörðu. Móðir hennar var þunglynd, og gerði sjálfsmorðstilraunir. „Hún þoldi ekki líftð,” segir Vita. Föður sinn þekkir hún varla. „Hann var kvennamaður mikill og giftist fimm sinnum. Ekki von, að hann gæti sinnt mér. ” Frá fimm ára aldri var Vita ýmist á fósturheimilum eða munaðarleys- ingjahælum. „Ég þekkti engan fullorðinn sem þótti vænt um mig, ég var bara númer á opinberum skýrslum,” segir hún. „Og þegar ég kom út í lífið hafði ég enga menntun, enga fast- mótaða lífsskoðun eða hegðunar- reglur.” Kannske eru ljóð hennar og sögur einmitt svona vinsælar, af því hún gengur í berhögg við bókmenntalegar 'forskriftir. „Annars þorði ég ekki að vona að ég gæti skrifað fyrr en ég eignaðist kærasta, sem var rithöfundur og hann sagðist þekkja marga slíka, sem væru miklu vitlausari en ég.” 48 dónaleg tilboð „í mörg mörg ár hafði ég hræði- lega minnimáttarkennd og fannst ég til einskis nýt. Það var alltaf verið segja mér upp vinnunni, enda var ég lélegur starfskraftur. Bæði hafði ég iitla menntun og lítinn áhuga. Ég sat og páraði ljóð aftan á fylgiskjöl og reikninga.” Eitt sinn auglýsti hún: „Ung stúlka óskar eftir áhugaverðu og lifandi starfi”. Fimmtíu karlmenn svöruðu, tveir buðu störf, fjörutíu og átta vildu sofa hjá henni. Annað skipti réð hún sig til tveggja ára á Grænlandi. En þar varð hún yfirkomin af þunglyndi og hraðaði sér heim aftur, með stuttri viðkomu á íslandi og óráðna framtið. En nú er hún sumsé komin hingað aftur sem einn af metsölu-höfundum Norðurlanda. Þegar fyrsta bók hennar „í klóm öryggisins” kom út 1977, seldist hún upp á hálftima. Enda hafði útgefand- inn ekki prentað nema sex hundruð eintök, sem hann bjóst við að selja á nokkrum árum. En nú eru um hundr- að þúsund eintök seld á Norðurlönd- um. Mjög sjaldgæft um ljóð. „Ég varð alveg steinhissa,” segir Vita. „Ég bjóst eins við að þurfa að borga prentunina sjálf!” Lesendurnir ekki eins einmana Útgefendur bíða nú með óþreyju eftir hverju nýju verki frá henni. Dagblaðið Politiken sendi hana til Suður-Ameríku að yrkja. Árangur- inn varð ljóðabókin „Det er bare ærgerligt”, sem út kom fyrir síðustu jól. Nú er hún að skrifa leikrit fyrir Árósaleikhúsið um móður og tvö börn. Annað er eiturlyfjaneytandi, hitt einnig andlega sjúkt. Síðan er hún að spá í kvikmyndahandrit fyrir Svía og einhvers staðar á hún drög að skáldsögu. Það er varla hún hafi áttað sig á vinsældum sínum enn. „Ég nýt for- réttinda nú,” segir hún hvað eftir annað. „En kannski eru bækurnar tómt bull. Ég er fegin að ýmsir hafa skrifað mér að þeir séu ekki eins ein- mana, hafi ekki eins mikla minni- máttarkennd eftir að hafa lesið þær og uppgötvað, að þeir eru ekki einir um tilfinningar sínar.” -IHH. Samband fiskvinnslustöðva um uppsögn verkafólks f fiskvinnu: „Fær jafnvel meiri greiðsl- ur eftir uppsagnir” „Uppsagnir kauptryggingarsamn- inga meðan hráefnisskortur varir hefur . . . ekki í för með sér skaða fyrir fasta- fólk í fiskvinnu og fá þeir sem hafa börn á framfæri jafnvel meiri greiðslu en verið hefði ef ekki hefði verið gripið til uppsagna,” segir meðal annars í til- kynningu frá Sambandi fiskvinnslu- stöðva, en þar eru skýrðar ástæður úppsagnanna. Segiraðíraun færist launagreiðslur úr verkefnalausum fyrirtækjum til aðila, sem samið hafi verið um að mæti áföll- um sem þessum, atvinnuleysistrygg- ingasjóðs. Þeir sem unnið hafi fulla vinnu fái 253.50 kr á dag úr sjóðnum og svari það til 8. launaflokks eftir 4 ár, sem gildi um almenna fiskvinnu, en þar að auki fái fólk 1Ó—15 krónur fyrir hvert barn á framfæri. Gerð er grein fyrir því að uppsagnir fiskvinnufólksins séu með sama hætti og væri hjá verkafólki í öðrum at- vinnugreinum. Væri fólkið á launum hjá fyrirtækjunum fengi það aðeins greidd dagvinnulaun en bónusgreiðslur féllu að sjálfsögðu niður. Þær hafi þýtt 30—50% álag á tímakaup og að með- töldu eftir- og næturvinnukaupi hafi greidd laun verið allt að 55% hærri en taxtakaup. Því séu raunveruleg laun verkafólks í fiskvinnu verulega betri en kauptaxtar einir segi til um, þegar verk- efni séu fyrir hendi. HERB VERÐLÆKKUN VERÐLÆKKUN 2S25 : grátt og rústrautt leflurlakk fiir: 28-38 B kr. 264,- - 281.- Teg: 1866 Utur: rústrautt og kakigront gerfiefnl Stœrðir: 31—38 Verð kr. 193.- Teg: 2632 Litur: grátt rúskinn Staarfiir: 28-38 Verð kr: 221.- - 235. KVENSKÓR, STÖK PÖR Á SÉRSTÖKU TILBOÐSVERÐI PÓSTSENDUM Opið laugardaga kl. 10—12 STJÖRNUSKÓBÚDIN Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.