Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 15
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982. 15 makræði hinna almennu launþega, sem bjargar verkalýðsforystunni við aöstæður sem nu hafa skapázt. Verkalýðsforustan getur óhrædd gengið niðurlút eins og henni ber með réttu, umbjóðendur hennar, launþeg- arnir, láta sem þeir sjái það ekki. Hættulegir mánuðir „En sex mánuðir eru þó sex mánuðir staðviðris óg stöðugleika á vinnumarkaðinum,” munu nú margir segja. Það er þó fjarri lagi að svo muni verða, því miður. Ekki þarf þó að óttast að launþeg- ar almennt efni til upphlaupa, svo eftirminnileg ráðning hefur vandar- högg ríkisstjórnarinnar með aðstoð dyggra verkalýðsforkólfa orðið laun- þegum. Nú mun það verða ríkisstjórnin sjálf, eða réttara sagt einstakir ráðherrar hennar, sem brátt fara að safnast saman á pólitískum tilrauna- stofum og glugga i þær formúlur sem tiltækar eru til að réttlæta brotthlaup úr stjórnarstólum. Ráðherrar Alþýðubandalagsins munu t.d. ekki þurfa að hugsa sig tvisvar um að hverfa úr stólunum, áður en verulega kemur til kasta í samningaviðræðum "við launþega- samtökin sem eiga að hefjast i marz nk. En það er fleira en launamál sem Alþýðubandalagsráðherrar þurfa að gera úttekt á fyrir hið nýbyrjaða ár. Þeir verða einnig að hafa „tilbúna” afstöðu til flugstöðvarinnar á Kefla- vikurflugvelli, olíugeymslunnar fyrir varnarliðið — og síðast en ekki sízt afstöðu til þess hvort semja eigi við erlenda aðila um orkufrekan iðnað í landinu, samfara auknum vatns- virkjunum. Þessi mál, ásamt öðrum, svo sem hinni landlægu deilu um varnar- og öryggismál myndu, við nokkurn veginn venjulegar aðstæður, gera Alþýðubandalagsmönnum auðvelt að velja milli áframhaldandi setu í ríkisstjórn og hins, að geta leikið áals oddi í þeirra orða fyllstu merkingu, — i stjórnarandstöðu. En forystuhlutverk í stjórnarand- stöðu, sem þeir myndu án efa hafa ef núverandi stjórnarsamstarf rofnar, er þó að þeirra mati ekki nándar nærri svo aðlaðandi sem á- framhaldandi seta í ríkisstjórn er, hafandi í hendi sér auðsveipa verka- lýðsforkólfa, makráða og marklausa. Sú ríkisstjórn sem nú situr mun þurfa að taka þá örlagaríku en sjálf- sögðu ákvörðun að leita til erlendra stórfyrirtækja um framkvæmdir hér- lendis og veita atvinnu þeim laun- þegum, sem nú þegar er fyrirsjáan- legt að hana muni missa. Við þær aðstæður sem nú eru og með þau tök sem Alj>ýðubandalagið hefur á obbanum af verkalýðsleið- togum, munu ráðherrar þess einfald- lega taka þá afstöðu að eiga aðild að ríkisstjórn sem fær það hlutverk, fyrst íslenzkra ríkisstjórna, að ganga milli bols og höfuðs á yfírvofandi at- vinnuleysi og kreppu — þótt það verði með því að hleypa erlendu fjár- magni inn í landið í ríkari mæli en nokkurn hefði órað fyrir. Þeir mánuðir, sem í hönd fara geta verið hættulegir sjálfstæði þjóðarinnar, ef illa tekst til, en þeir geta líka fært þjóðina nær því takmarki að hafa fast land undir fótum í efnahags- og atvinnulegu tilliti. Þessir þættir þjóðlífsins hafa verið helzta viðfangsefni hverrar ríkisstjórnarinnar eftir aðra, allt frá lýðveldisstofnun. Verkföll, vinnudeilur, auk yfirþyrmandi vanhæfni stjórnmálamanna, en ekki síður ragmennska þeirra við að taka ákvarðanir, hefur komið í veg fyrir árangur. Launþegar sem eru uppistaðan i þjóðlífinu eiga sinn þátt í þessum ófarnaði. Ef til vill hafa einhverjir þeirra komizt nær þeim sannleika eftir síðustu „kjarasamninga”, að slagorðin „bolla, bolla” eigi lítinn rétt á sér í þjóðfélagi, sem enn hefur ekki hleypt heimdraganum í þeirri tækni- og efnahagslegu uppbyggingu sem vestrænar iðnaðarþjóðir njóta nú. Gagiikvæm vandarhögg ríkis- tjórua og launþega undir forystu verkalýðsleiðtoga duga einfaldlega ekki lengur til þess að ná fram á við, í baráttunni um nútíma lífsgæði „Eru slíkir skammtímasamningar, sem nú hafa verid geröir, kannski framtíöar- mynstriö í samningum á íslenzkum vinnumark- aði? — Raunhæft er að álykta svo í einu mesta verðbólguþjóðfélagi Vestur-Evrópu,” segir Geir R. Andersen meðal annars í grein sinni. The Rolfíng Stones / hl/ám/eikahö/fínni i Kenses dty. sem voru uppistandandi á boðflennuna og náðu að handtaka ruddamcnnið. Á meðan þetta gerðist reyndi einn miðalaus að nota tækifærið og var næstum horfinn i þvöguna þegar Sheerer lögreglumaður kom auga á hann. Sá lúmski fékk að eyða kvöldinu án Rollinganna. Þegar upp var staðið lá einn lögreglumaður i valnum. Sá úlpu- klæddi hafði hrint honum afturábak niður í gólfið — höfuðið á undan. Lögreglumaðurinn lá í roti í nokkrar mínútur og var síðan færður í hjóla- stól upp i sjúkrabíl. En þeir sem höfðu verið svo heppnir að fá miða voru ekki sviknir. Hvað eft- ir annað ætluðu áhorfendur að ærast af fögnuði við undirleik Rolling Stones. Stelpur sem strákar dilluðu sér eftir tónlistinni, hoppuðu í sætunum, lágu hálfgrenjandi á gólfinu, og döns- uðu i salnum eftir dynjandi takti rokks- ins. Mick Jagger, söngvari Steinanna, var í topp-formi.38 ára gamall hljóp hann hálf-nakinn um þvert og endi- langt sviðið, sem ekki var þó af minni gerðinni. Einu sinni hætti hann sér jafnvel út af sviðinu, inn i iðandi mannfjöldann, sem sennilega hefði étið hann í sig hefðu öryggisverðir ekki skýlt honum. Hljómsveitin spilaði bæði lög af nýju plötunni og gömul rokklög sem mörg hafa skipað sér öruggan sess í æsku- minningum fólks á þrítugs- og fertugs- aldrinum. Gömlu lögin voru greinilega vinsælli meðal áheyrenda enda luku Steinarnir hljómleikunum með hressi- legu eintaki af „Satisfaction.” Mitt í laginu svifu niður á áhorf- endur mörg þúsund blöðrur sem hang- ið höðu á þakinu í stórum plastpok- um. Meðan blöðrurnar dönsuðu allt i kringum hann, stóð Mick Jagger á ntiðju sviðinu, sveipaður skikkju sem samanstóð af breska og bandariska fánanum samansaumuðum, og söng „Satisfaction” af öllum sínum lifs- og sálarkröftum. Þeir kraftar geta þó. varla hafa verið mjög miklir. Nær fertugur unglingurinn var þá búinn að sprikla fyrir framan áhorfendur í nær tvo og hálfan klukkutima. Þegar fólk fór með eftirsjá út í kuld- ann var ekki hægt annað að velta því fyrir sér hvort Steinarnir myndu nú ekki brátt hætta að rúlla. Þórir Guðmundsson, Kansas City. Bflamarkaður CHEVROLET GMC TRUCKS International Öldsm. Cutlass Opcl Rekord 4d. L .. Volvo 244 GL Ch. Blazer m/6 cyl. Ford Cortina sjálfsk. Mazda 929 st. vökvast. Ch. Pick-up Cheyenne, ’74 110.000 Oldsm. Cutlass Opel Rekord 4d L ’75 ’77 85.000 75.000 ’78 80.000 Toyota Corolla ’78 70.000 ’76 135.000 Oldsm. Cutlass disel... ’80 185.000 ’79 230.000 Ch. Blazer Chyanne ... ’73 75.000 ’79 ’77 90.000 140.000 Ch. Nova Concours, 2ja dyra '11 105.000 ’78 95.000 M. Benz 280 S ’73 140.000 ’81 65.000 Oldsm. Delta 88 dis il. . ’80 200.000 ’81 90.000 AMC Eagle 4X4 .... ’80 210.000 ’78 65.000 GMC vörub. 9t ’74 160.000 '19 140.000 195.000 Ch. Malibu Classic ’79 150.000 ’82 Ford Fairmont sjálfsk.. .’78 90.000 '19 175 Oflfl Volvo 343 DL Ch. Impala '11 .'11 70.000 110.000 ’80 ’79 70.000 80.000 Mazda 929 hardtop... . ’76 65.000 VW Golf 2d . ’76 58.000 '11 R5 flflfl G.M.C. Rally Wagon m/sætum, f. 12 m ’78 170.000 ’81 '16 90.000 60.000 130.000 40.000 130.000 160.000 M. Benz 680 D 3,5 t. . '11 150.000 Ch. Blazer Chyaenne.. ’78 200.000 ’76 ’74 ’81 ’80 Ford Bronco Sport ... ’74 85.000 Vauxhall Del Van .... .’78 40.000 Daihatsu Charade XTE ’80 70.000 Lada Sport ’78 78.000 Plymouth Volare ’76 85.000 ’81 ’78 235.000 95.000 Datsun dísil 220 c .’73 45.000 M. Comet Custom .... . ’74 42.000 Samband Véladeild ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38900 Síaukin saia sannar öryggi þ/ónustunnar Opið a/ia virka daga frá kl. 10—7. Honda Accord '81 m/öllu, ekinn 6 bús. km. Datsun 1500 pick-up '78, ek. 36 þús. km. Galant 1600 GL '78, bfllinn er sem nýr. Datsun Cherry '81, ekinn 7 þús. km. Range Rover '80. Bronco '74, toppbfll. Subaru station '78, 10—15 þús. kr. útborgun. Toyota Carina '80. ekinn 23 þús. km. Fallegur bfll. Wagoneer '75. Útborgun aðeins 15—20 þús. Toyota Cressida station '78, toppbíll. Audi 100 LS '76, mjög góður bfll. Saab 99 '75, gott vcrð. Óskum eftir öllum tegundum af vörubflum á söluskrá. Óskum eftir öiium tegundum af nýlegum bílum Góð aðstaða, öruggur staður r0= bíiasciia SUÐMUNDAP W\Z/ Bergþórugötu 3 — Símar 19032 - 20070 riAMC /anEsr Fiat Ritmo 60 CL koparsanseraður 1980 75.000 Fiat 132 GLS 2000, glæsivagn 1980 110.000 Polonezekinn 14 þús. 1980 70.000 Fiat 131 Super sjálfsk., grænsans. 1978 70.000 Honda Prelude 1979 100.000 Audi 100 LS, rauður 1979 115.000 Fiat 132 GLS silfurgrár 1979 90.000 LadaSport 1979 80.000 Fiat 128GL 1978 45.000 Fiat 127 1980 60.000 Fiat 127 CL blásans. 1978 48.000 Lada station 1200 gulur 1979 43.000 Fiat 131 CL blásans. 1979 75.000 Ford F150 Ranger m/öllu 1977 135.000 Saab 99 GL 1980 130.000 Dodge Aspen station SE 1977 98.000 Wagoneer m/öllu 1978 180.000 Toyota HiLuxe, langur 1981 130.000 Vegna mikillar sölu vantar okkur skrá. nýlega bíla á sölu- EGILL VILHJÁLMSSON HF. BÍLASALAN SMIÐJUVEGI4, KÓPAVOGI SÍMAR 77720 - 77200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.