Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Síða 30
30
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Skáru Iðnlánasjóð-
inn niður við trog
—framlög ríkisins til hans iækka um 88% á meðan höfuð-
sjóðir landbúnaðar og sjávarútvegs hækka um 40%
Við afgreiðslu fjárlaga á Alþingi
fyrir áramót var Iðnlánasjóður skorinn
niður við trog. Ákveðið var að framlag
til sjóðsins yrði aðeins 0,5 milljónir
króna á þessu ári. í fyrra var það 4,2
milljónir króna.
Nemur þetta 88% lækkun hlutfalls-
lega í krónum talið og er þá ekki tekið
tillit til verðbólgunnar. Mun iðn-
rekendum þykja þessi afgreiðsla
Alþingis heldur kuldaleg ef miðað er
við afgreiðslu framlaga ríkissjóðs til
sjóða landbúnaðan og sjávarútvegs.
Samkvæmt fjárlögum á framlag til
Stofnlánadeildar landbúnaðarins að
hækka úr 10,8 millj. í 15,1 milijón. Er
þar um 40% aukningu að ræða.
Framlag ríkissjóðs til
Fiskveiðasjóðs á einnig að hækka um
40% eða úr 18,5 millj. í 25,9 millj.
króna.
Þær 0,5 milljónir króna sem ríkis-
sjóður mun leggja Iðnlánasjóði til á
þessu ári er lágmarksupphæð sam-
kvæmt lögum. Auk þess er lagt 1,5%
gjald á aðstöðugjaldsstofn iðnfyrir-
tækja sem gengur til sjóðsins. Verður
það nú nær eini tekjustofn Iðnlána-
sjóðs, en talið er að iðnaðargjald muni
í ár nema frá 15 til 20 milljónum króna
samtals.
Fulltrúar iðnrekenda munu hafa lýst
þeirri skoðun að þar sem fjárfestinga-
sjóðir væru i stórum dráttum orðnir
verðtryggðir, væri eðlilegt að fjár-
stuðningi ríkissjóðs við þá yrði hætt.
Það yrði hins vegar að gerast gagnvart
öllum, en ekki eingöngu gagnvart iðn-
aði eins og raunin varð á.
Fjör í veitinga-
húsarekstrinum;
FjórdiTomma-
borgarinná
Lækjartorgi
Enn er mikið fjör í veitinga-/
húsa„bransanum”og ekki annað að
sjá en bjartsýni riki þar á bæ. Eig-
endur Tommaborgara ætla að bæta
enn einum hamborgarastaðnum við
sig og brátt verða þeir því orðnir
fjórir með þessu nafni. Sá nýjasti
verður í nýbyggingunni við Lækjar-
torg í sömu húsakynnum og
veitingastaðurinn Borgarinn var lil
skamms tíma. Tommaborgara IV.
á að opna eftir breytingar og endur-
bætur ! febrúar nk. Hinir fjórir
vpitingastaðirnir eru á Grensásvegi,
Laugavegi 26 og í Keflavik.
...ogjass-
búlla í Djúpinu
Og aðeins í nokkurra tuga
metra fjarlægð frá hinum nýja
Tommaborgara er annar veitinga-
staður að breyta og endurbæta.
Það cru eigendur Hornsins i
Hafnarstræti, þeir Guðni og Jakob
semeruáferðinni.
Ætlunin er að auka rýmið í
kjallaranum þar sem hefur verið
galleríið Djúpið . I staðinn kemur
ekta gamaldags jassbúlla. Hún
verður aðskilin frá veitingasalnum
uppi enda gengið inn í hana frá
portinuTryggvagötumegin. Hornið
mun sjá um veitingar i kjallaranum,
en félagsskapurinn Jassvakning
mun að öðru leyti sjá um rekstur
hans.
Eignamarkað-
urinn leigður
Fasteignasalan Eignamarkaðurinn
sf. hefur skipt um stjórnendur í það
minnsta um sinn. Eigandi fyrirtækis-
ins, Kristján Knútsson, hefur íeigt hana
Daníel Árnasyni, en sá síðarnefndi hef-
ur starfað lengi hjá Eignamarkaðinum.
Kristján mun áfram vera með nokkur
verkefni á vegum fyrirtækisins þó dag-
legur rekstur hvili nú á Daníel.
F.l.l. - 08,01,198?
UTLAN INNLANSSTOFNANA TIL IÐNAÐAR
VlSITOLUR JAN.-OKT. 1981
200 -
150
100
ENDURKAUP (178)
HEILDARÚTLÁN Tlt
IÐNABAR (170)
JAN, FEB, MARS APR, MAl JÚNl JÚlI ÁG. SEPT. OKT,
Fá banka-
lán fyrír
tapinu
íslenzk iðnfyrirtæki hafa almennt verið rekin með tapi a.m.k. síðast-
liðin tvö ár. Jókst tapið mjög á fyrri hluta siðasta árs, en vonir standa
til þess að nokkuð haft dregið úr þvi á síðustu mánuðum ársins. Ekki
er óeðlilegt að spurt sé hvernig svo megi vera að fyrirtæki geti ár eftir
ár staðið undir taprekstri. Ein skýringanna á þessu er sú að bankarnir
hafa aukið útlán sín til iðnaðar í það minnsta á liðnu ári. Sést þetta á
línuritinu hér að ofan. Að nokkru leyti má segja að rekstrartap
iðnaðarins sé fjármagnað með lántökum. Á línuritinu sést að heildar-
útlán til iðnaðar hafa aukizt um 70% frá jan. til okt. 1981 á meðan
verðbólgan hefur að líkindum stigið ca 35%. Línuritið er gert hjá
Félagi ísl. iðnrekenda.
Auramir eru að
verða safngrípir
—fleiri og fleiri hugleiða að f eta f f ótspor ríkisins
og hafa útreikninga aðeins í krónum
Ljóst virðist að aurunum sem tekn-
ir voru í notkun jafnhliða nýkrón-
unni fyrir réttu ári er ekki ætlað langl
líf. Fimmeyringurinn er i raun alveg
að hverfa.
Annars var það ríkisvaldið, sem
skauzt fyrst undan merkjum með
notkun auranna. Þegar, áður en ný-
krónan gekk í gildi í fyrra, var búið
að skjóta undanþágulögum í gegnum
hið háa Alþingi. Þar var kveðið á um
að ríki og bæjarfélög þyrftu ekki að
breyta tækjum sinum og útreikning-
um til samræmis við nýkrónur og
aura.
Þar með sparaði ríkið sér kostnað-
arsamar breytingar við reiknivélar,
tövlubúnað o.fl. sem hinsvegar var
gert að lagaskyldu fyrir aðra.
Reiknistofa bankanna mun nú
ekki reiknavíxilnólurog annað nema
upp á tíu aura. Ríkið hefur aldrei tek-
ið við reikningum né sent þá frá sér
nema í heilum krónum.
Aðrir aðilar munu nú hugsa sér
til hreyfingsí þessum efnum. Má þar
nefna ýmsa þá sem nota tölvur við
bókhald og reikningagerð. Þeir sem
virðast halda einna fastast í aurana
eru þeir sem vega vörur á sjálfvirk-
um vogum til smásölu. Þeirra verð er
enn jafnvel upp á einn eyri.
Mistök og skekkjur vegna þess að
ekki gilda orðið sömu reglur um
notkun aura í öllu kerfinu hafa
orðið.
MIDVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982L
Kristinn Bjöms-
son til NóafSínus
ogHreinshf.
Kristinn Björnsson lögmaður
tók við forstjórastarfi hjá Nóa,
Si'rius og Hreini hf. hinn 1. jan.
sl. Hann lauk lögfræðiprófi við
Háskóla íslands vorið 1975.
Starfaði síðan til loka þess árs hjá
borgarverkfræðingi. Síðan hefur
hann stundað lögfræðistörf og
rekið skrifstofu i félagi við Gest
Jónsson og Hallgrím Geirsson.
Nói & Síríus er stærsta sælgætis-
verksmiðja hér á landi og hefur
siðustu 27 ár verið undir stjórn
Hallgríms Björnssonar sem lætur
nú af störfum fyrir aldurs sakir.
SigurðurR.
Helgasontil
Björgunarhf.
Sigurður R. Helgason rekstr-
arhagfræðingur tók fyrir nokkru
við starfi framkvæmdastjóra hjá
Björgun hf. Hann lauk viðskipta-
fræðiprófi frá Háskóla íslands
árið 1966 og síðan MBA prófi í
rekstrarhagfræði frá háskólanum
í Chicago árið 1969 eftir nám þar
og i Vínarborg. Sigurður starfaði
eitt ár í Iðnaðarráðuneytinu, en
varð síðan framkvæmdastjóri
Hagvangs hf., þar til árið 1980.
Þá var hann við nám og störf i
Bandarikjunum til síðastliðins
hausts er hann tók við starfi sínu
hjá Björgun. Kona Sigurðar er
Cathy Helgason læknir.
BjarniThors
tilFreyju hf.á
Súgandafirði
Bjarni Thors viðskipta-
fræðingur tók i byrjun desember
við framkvæmdastjórastarfi hjá
Fiskiðjunni Freyju hf. á
Suðureyri í Súgandafirði. Aðilar í
samvinnuhreyfingunni keyptu
þar nýverið meirihluta hlutafjár.
Bjarni lauk prófi í viðskiptafræði
frá Háskóla íslands 1974 og
starfaði síðan hjá Vinnuveitenda-
sambandi íslands í tvö ár, þá
hjá Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna 1976 til 1978.
Hann var framkvæmdastjóri út-
gerðarfyrirtækisins Samherja hf.
í Grindavík hálft þriðja ár þar til
hann tók við hinu nýja starfi á
Suðureyri. Bjarni er kvæntur
Hildi Bjarnadóttur.