Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Síða 31
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn SSÍB Vitfirringarnir þrír úr Austurbænum Stefán Jónsson, alþingis- maður, á það til að berja RtnMn ■■Au.Umafh.i , JtMíMOfi, sipcngismaaur. saman ágætis kveðskap ef sá gállinn er á honum. Eftirfar- ’andi rákumst við á cftir hann í búnaðarblaöinu Frey: Heim til Gunnars að Viöimel 27 í dimmu / veðri en kyrru seint á aðfangadag / komu ■ vitfirringarnir þrír úr austur- bænum með / bull, crgclsi og firru. / Og þeir tóku að sér að klppa öllu í lag / -- það var nú það. / Og síðan hef ég spurl mig að því annað slagið / hvort þetta sé nú allt í lagi fyrir Aiþýðubandaiagið. Fleiri líta Sel- foss-embættið hýru auga Áður hefur verið greint frá þvi hér í Sandkorni að margir iíti sýslumannsembættið á Selfossi hýru auga. Nú hafa tvö ný nöfn bætzt við á list- ann og vekja bæði athygli. Sagt er að Sigurður Gizurarson, sýslumaður á Húsavík hafi mikinn áhuga á embættinu, enda þykir þaö með „feitari” sýslumanns- embættum landsins. Hinn, sem nefndur hefur verið er 'Ólafur W. Stefánsson, skrif- stofustjóri dómsmálaráðu- neytisins. Það er með Selfoss- embættið eins og flest önnur; margir kailaðir, en aðeins einn útvaiinn. Z-leysið getur verið bagalegt Vísl er að zetan var mörg- um þyrnir í augum á meðan hún var og hét í íslenzku rit- máli. Eftir sviptingar á Al- þingi þar sem mönnum var á endanum ekki til zetunnar boðið var þetta umdeilda rit- tákn fellt úr málinu. málinu getur verið ákaflega jbagalegt. Jafnvel eðlilegustu' jorð geta hljómaö hjákátlega án zetunnar. Þriðji bekkur Þroskaþjálfaskóla íslands efndi til námsfararhappdrætt- is fyrir jólin. Á meöal vinn- inga voru margir eigulegir hlutir. í miðri vinninga- skránni mátti hins vegar lesa „Rafmagnspissupanna”. Hér var eðlilega átt við apparal til þess að auðvelda fólki pízzugcrð. Af nafninu, sem upp var gefið á happ- drættismiðanum hefði hins vegar mátt ætla að hér væri |Um einhvers konar þvag- prufuapparat að ræða. jSkondnar augtýs- ingar að austan , Smáattglýsingar síðdegis- blaðanna vöktu oft mikla at- hygU á sínum tíma. Auglýs- ingar í DV hafa sumar hverjar verið kostuiegar, en líkast til kemst engin þeirra i hálfkvisti við þá, sem við rákumst á i Austra, framsóknarmagasini ’þeirra aðaustan. „Við erum 3ja og 4ra ára gamlir strákar og vantar jgóðan mann lil að syngja fyrir ökkur og scgja okkur sögur frá 10—12 þrjá daga í viku. Hafið samband við mömmu cða pabba eftir kl. 18 í síma 1585.” Undir þetta skrifa þeir bræður, Simon og Óðinn. Það er óhælt að segja að hugtnynduflugið hjá lands- byggðarfólkinu sé öllu gæfu- jlegra en hjá okkur malarbú- Junum. Snöggir að um- reikna í Hafnar- Ifirðinum Þeir i Hafnarfírði eru ;nreint ekki svo galnir ef vel er [að gáð. Tveir þeirra tóku tal isaman við Sparisjóðinn í Strandgötunni. Var þeim tíð- rætt—um óvenjulega fólks- fjölgun á Akureyri. — Mikið helvíti hefur þeim fjölgað þarna á Akureyri. — Já, er það? | — Mikil ósköp. . íbúa- talan þar er knmin i 15.000. Við þessar upplýsingar setti hinn hljóðan. Hann þagði lengi vel en sagði svo: — 15.000 íbúar! Hver skrambinn. Það er eín óg hálf milljón gamlar, erþað ekki? Stoppaðir í tollinum I Og annar frá Hafnarfirðí, ,sem vinkona Sandkorns læddi að okkur. — Viliði af hverju Hafn- firöingar fara alltaf í Igötóttum sokkunt til útlandu? — Neibb, ekki hugmynd! — Þeir vita nefnilega að þeir eru alltaf stoppaðír i toll- inum‘ .Sigurður Sverrisson Ný hljómsveit skýtur upp kollinum—Mogo Homo: Bilaðar rafhlöður, ruglaður köttur, Vffilfells-lúnonaði og nýrómmitík — DV ræðir við Mogo Homo í góðu yfirlæti á Leifsgötunni „Upphaflega ætlaði japönsk stelpa að vera með okkur í hljómsveitinni. Henni gekk hins vegar illa að fá vinnu hérna svo hún sneri á heimaslóðir á nýjan leik. Við reyndum fjölda hljóðfæraleikara i haust eftir að hún var farin. Ýmist fund- um við menn sem voru á okkar lfnu en kunnu lítið að spila eða þá að við gátum fengið ágæta spilara, sem ekki höfðu áhuga á þvi sem við ætluðum okkur að fara að gera. Við ákváðum því að vera aðeins tveir í hljómsveitinni og hafa segulband okkur til aðstoðar.” Það eru drengirnir í Mogo Homo, þeir Óskar Þórisson og Óðinn Guðbrands- son, fyrrum söngvari og gítarleikari úr Taugadeildinni sálugu, sem hér eru að opna hug sinn varðandi nýja hljómsveit, sem þeir hafa sett á laggirnar. Flokk er ekki með réttu hægt að nefna þá félaga, en sé segulbandið tekið með í reikning- inn má alltént nefna þetta tríó. Það verð- ur þó ekki gert hér. Nýrómantík Það lá beinast við að spyrja þá félaga hvað hafi valdið því að Taugadeildin splundraðist upphaflega. Kváðu þeir venjulegar skýringar hafa verið á því. Menn hafi ekki verið á eitt sáttir um tón- listarstefnu, laga- og textaval og því hafi leiðir eðlilega skilið. Þeir Óskar og Óðinn hafa greinilega hrifizt af nýrómatikinni ensku. Undirrit- aður spurði eðlilega hverju þeirra tónlist líktist einna helzt. „Sennilega eru fyrir- myndirnar skýrastar í Orchestral Manouvres In The Dark og svo Depeche Mode,” svaraði Óskar. Upp- stillingin hjá þeim félögum minnir þó nokkuð á Deutsch Amerikansche Freundschaft, en tónlistin óneitanlega nokkuð ólík því sem þar er. Á meðan undirritaður teygaði dökkt limonaði úr Vjfilsfells-fleyg snaraði góð- vinur sér út í bíl til að handsama þar segulbandstæki til að spila prufukassettu með efni dúettsins. Ekki reyndist það langt sýnishorn því rafhlöðurnar buguð- ust þegar í miðri annarri tónsmíði svo erfitt var að dæma það sem á ferðinni var. Þó er ekki hægt að komast hjá því að flokka það sem drengir eru að gera undir „athyglisvert”. A.m.k. hefur und- irritaður ekki heyrt neitt svipað hérlend- is. „Auðvitað erum við ekki neitt 100% original,” sagði Óskar. „Hver er það svo sem,” bætti hann síðan við. Aöoins loikið oinu sinni opinborlcga Mogo Homo hefur aðeins komið einu sinni fram, með Grýlunum á Óðali. „Við fengum alveg glimrandi móttökur og vorum sannast sagna mjög undrandi því við héldum að fólk myndi e.t.v. ekki kunna að meta þetta. Almenningur virð- ist þó greinilega vera móttækilegur fyrir svona tónlist.” Óðinn leikur á tónleikum á bassa og Óskar sér eftir sem áður um sönghliðina. Trommuheili, gítar og synthesizer er á segulbandi, en auk þess á Óskar það til að taka á síðastnefnda apparatinu á tónleikum. Þeir félagar verða einmitt á ferðinni í Hollywood i kvöldogþá ætti að gefast prýðis tækifæri til að sjá og heyra það sem er á ferðinni. — Hvað kom til að þið skiptuð svona gersamlega um stefnu frá því i Tauga- deildinni? „Við höfðum alltaf haft áhuga fyrir þessari tegund tónlistar og vorum farnir að íhuga stofnun hljómsveitar áður en Taugadeildin söng sitt siðasta. Hins veg- ar áttum við ekki von á því að við yrðum bara tveir i henni. — Nafnið? „Ja, nafnið. Við reyndum að hafa það eitthvað japanskt hljómandi, en það er hægt að túlka það á marga vegu.” Aðcins 6 lög fullunnin — Hversu langt prógramm eruð þið með? „Það er nú ekki mjög langt enn sem komið er. Við höfum aðeins náð að full- vinna 6 lög á þeim tveim mánuðum sem við höfum verið i þessum pælingum. Við höfum aðgang að fjögurra rása segul- bandi, sem félagi okkar á með öðrum. Okkar stundir við tækið eru því fremur takmarkaðar. Líkast til verðum við að fara ráða bót á þeim vanda ef við eigum að ná að afkasta einhverju.” — Hver semur lögin? „Við gerum það báðir nokkurn veg- inn til jafns. Ef annar okkar fær góða hugdettu er hún sett fram og síðan smá- vinnum við lagið upp, það gengur hægt.” — En hvað um textana „Já, við semjum þá ekki. Þeir eru teknir frá erlendum skáldum. Við hrein- lega treystum okkur ekki til að gera góða texta á íslenzku og höfum þvi þennan háttinn á. T.d. er einn eftir Thomas Hardy.” Tölvupopp á upplcið — Finnst ykkur þessi stíll, tveir menn ogsegulband, ekki vera ópersónulegt? „Nei, ekki svo mjög. Nei, alls ekki. Þetta er i lagi á meðan segulbandið er ekki eitt á sviðinu. Þetta er algengt er- lendis og því skyldi ekki mega reyna það hér. Ég er þess fullviss að fjöldinn allur af tölvuhljómsveitum á eftir að spretta hér upp.” Það er Óskar, sem hefur að mestu haft orð fyrir þeim félögum allan tímann. Óðinn má enda hafa sig allan við að halda aftur af kettlingi, sem skýzt fram og aftur um gólfið, rétt eins og hann væri með „speed” i blóðinu. Kannski er hann það. Hver veit? Áfram cf vd gengur — Hvað kemur til að þið troðið upp i Hollywood? „Við erum sennilega bara svona dug- legir að koma okkur á framfæri,” segir Óskar og brosir. Bætir síðan við: „Nei, við bara athuguðum möguleikann á þvi og var vel tekið. Takist vel til fáum við að leika þar næstu kvöld á eftir.” — Hvað verðið þið rrieð langt prógramm i Hotlywood? „Það verður nú sennilega ekki nema 15 mínútur. Hitt er enn ekki alveg fín- pússað. Þaðer eins gott að vita fyrir víst hvað er á bandinu þvi það rúllar áfram þótt okkur verði á einhver mistök. Það er því mikilvægara en ella að hafa efnið fullkomlega á hreinu. Mistökin verða ekki falin.” — Hvað gerið þið þá, ef þið verðið klappaðir upp? „Þá verðum við bara að spóla band- inu til baka,” segir Óskar og brosir breitt. Þar með sláum við botn í spjallið. Kött- urinn hnusar enn eina ferðina af sokk- unum mínum um leið og ég stend upp, klára Vífilsfells-límonaðið og geng til dyranna. •SSv. INNHVERF IHUGUN TRANSCENDENTAL MEDITATION Tækni, sem tryggir árangur. Almennur kynn- ingarfyrirlestur miðvikudaginn 13. janúar kl. 20.30 aö Hverfisgötu 18 (gengt Þjóðleikhús- inu). Allir velkomnir. íslenzka íhugunarfélagid Húsnæði óskast 2ja — 3ja herbergja íbúð óskast sem allra fyrst, helzt í miðborg Reykjavíkur, þó ekki skilyrði. Reglusemi, góðri umgengni og skilvísi heitið. Einhver fyrirframgreiðsla. Vinsamlega hringið í síma 26457 eða 50339 eftir kl. 18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.