Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Síða 33
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982. Fólk Fólk 33 Fólk Fólk Akstursmeist arar ársins íslandsmeistaraverðlaun voru afhent að Hótel Loftleiðum nýlega í öllum þeim greinum bíla- og vélhjóla- íþrótta, sem keppt var í á undanförnu ári. Landssamband íslenzkra aksturs- íþróttafélaga sá um afhendinguna, sem fór fram með tilheyrandi við- höfn. Á myndinni hér til hliðar getur að líta verðlaunahafa þessa árs, en þeir eru t.f.v. Þorvarður Björgúlfsson, annar sigurvegaranna er’ keppti t ntoto-kross p.kstri; Benedikt Eyjólfs- son, einn sigurvegaranna i kvart- míluakstri; Ari Jóhannsson er sigraði í flokki vélhjóla; Bergþór Guðjóns- son sem sigraði i torfæruakstri; Ómar Ragnarsson sigurvegari í ralli; Reynir Jónsson, annar sigurveg- aranna í moto-kross akstri vélhjóla; Jón R. Ragnarsson, sigurvegari i rallakstri, en þeir bræður, hann og Ómar, unnu það afrek að sigra i öllum þeim fjórunt röllum, sem gáfu stig til íslandsmeistaratitilsins og voru því eðlilega með fullt hús stiga. Valur Vifilsson var einn sigurvegar- anna í kvartmílunni og lengst til hægri á myndinni má sjá Guðmund Gunnarsson frá Akureyri sem sigraði á heimavelli í keppninni í sandspyrnu er haldin var á þessu ári. Á myndina vantar Guðmund Kjartansson, en hann var einn sigurvegaranna í kvart- míluakstri. -SER. Úr afmælishófi Sigurðar Þór- arinssonar jarðf ræðings Sigurður Þórarinsson, kemur úsamt eiginkonu sinni, Ingu Þórarinsson, til Sigurður tekur við gjöf úr hendi Elsu Vilmundardóttur, sem jarðfrœðingar hjá Orkustofnun stóðu i bak við. veizlunnar. D V-myndir Einar Ölason. „að þetta væri mikið eldfjall — guði sé lof að einhver getur bjargað því.” Margar og merkar ræður vorur fluttar í hófinu. í máli gestgjafans, Halldórs Eliassonar stærðfræðings, kom m.a. fram að í Sigurði væri að finna „dæmi um það hvað hægt er að gera þegar vilji og þrek eru að baki verkanna. Auk jtess er hann gæddur frábærum gáfum og þegar þetta þrennt leggst saman á eitt verður útkoman undantekningarlaust góð.” Sigurður Steinþórsson færði af- mælisbarninu að gjöf fyrsta eintak bókarinnar „Galdrað í gjósku”, sem geymir 47 greinar 49 höfunda um jarðfræðileg efni, en bókin er tileinkuð Sigurði Þórarinssyni. I stuttu spjalli sem Sigurður Stein- þórsson flutti er hann.afhenti nafna sinum bókina sagði hann „að þvi miður hefði ekki verið unnt að gefa bókina út á afmælisdegi Sigurðar, eins og áætlað var í fyrstu. Það er ekki svo ýkja auðvelt að toga 47 greinar út úr 49 höfundum,” sagði Sigurður. ,,Þvi hefði verið afráðið að færa Sigurði bókina án allra prentaðra orða, en í réttri stærð og í réttu bandi.” Afmælisbarnið þakkaði fyrir sig með eftirfarandi orðum: „Það fer greinilega vel á orðlausri ræðu hér í kvöld. En ég ætla að vona að þessi bók verði á endanum eins góð og hún er núna. Eins og þessi bók birtist mér í kvöld minnir hún mig á Kröfluvirkjun í allri sinni gerð. Ég ætla síðan að helga næstu mínútur með því að þegja sjálfur,” sagði Sigurður Þórarinsson að lokum. -SER. Afmœlisbamið á tali við nokkra gamlaftlaga. Meðal annarra a mynainm má greina þá Guðmund Jónasson bllstjóra og Egil Kristjánsson fulltrúa. Sigurður sker fyrstu sneiðina úr „eldffallinu”, en það voru sænskir nemendur Sigurðar sem gáfit tertuna. Afþvl tilefni sagði Sigurður að „alltaf vœru það hinir fátœku sem vœru að gefa hinum riku. ” Sem kunnugt er, er mjög Utið um virk eld- Böinsviþjóð. Siðan var „eldffallið”snœtt oggreinilegt er aðþað bragðast ágœtlega. Þorieifur Einarsson jarðfrœðingur fylgist með. Hann hafði á orði við afmœlisbarnið, að hann œtti að gœða sérá hrauninu sem rynni niður hllðar ffallsins. Sigurður svaraði þvi til aðþað vœri verndað útfrá náttúrulegum sjónarmiðum. „Það er bara heilmikið af fjalla- mönnum héma,” var jafnan viðkvæðið þegar menn heilsuðust í hófi því er Raunvisindastofnun Há- skólans hélt Sigurði Þórarinssyni jarðfræðingi síðastliðið föstudags- kvöld er hann átti sjötugsafmæli. Afmælishófið var haldið i Skólabæ við Suðurgötu, sem er eign Háskóla íslands. Margt manna var saman komið í veizlunni og var Sigurður heiðraður með miklu lófaklappi, þegar hann sté í salinn skömmu eftir að hófið byrjaði. Dýrindisveigar voru á boðstólum og ágætis meðlæti sem menn sporðrenndu með tilþrifum. Einnig lá frammi nokkuð nýstárleg afmælis- terta sem bar svip af eldfjalli í allri sinni gerð. Sigurður tók að sjálf- sögðu fyrstu skóflustunguna aö tertunni og sagði við það tækifæri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.