Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1982, Page 36
Togarinn Ingólfur Arnarson í erfiðleikum vegna vélarbilunar: MIKILL SJÓR VAR A MILUMLFARI Dettifoss fylgir skipinu til Reykjavíkur Slysavarnafélaginu barst um kl. 23.45 í gærkvöldi tilkynning frá tog- aranum Ingólfi Amarsyni en aðalvél skipsins hafði þá verið stopp frá því kl. 21.15. Sjór var mikill á milliþilfari og jókst hann eftir því sem á leið. Var skipið farið að halla töluvert mikið. Ingólfur var staddur u.þ.b. 80 mílur suðaustur af Ingólfshöfða er bilunin varð. Nærstödd skip voru Dettifoss sem var staddur 50 mílur norðvestur af Ingólfi og varðskip sem statt var á Austfjörðum. Bæði skipin héldu strax til hjálpar. Um kl. 00.35 til- kynnti Ingóifur að alvarleg bilun væri í aðalvélinni en dælur voru að komast í gang. Höfðu þær við að dæla sjó og hafði hallinn því aðeins minnkað. Aftur tilkynnti Ingólfur sig um kl. 01.37 en þá hafði tekizt að dæla öll- um sjó af milliþilfari en beðið um að- stoð varðskips. Um þrjúleytið í nótt komst vél skipsins í gang en þá voru 13 sjómílur milli Ingólfs og Dettifoss. Var ákveðið að Dettifoss kæmi að skipinu og yrði í samfloti til Reykja- víkur. 1 morgun var ekki vitað nema allt væri í lagi og skipin á leið til hafnar. Fór því betur en á horfðist í fystu. -ELA I sjómannaverkfallinu gefst sjómönnum tœkifœri til leikja með börn- um sínum. Sjómenn á Vopnafjarðartogaranum Brettingi brugðu sér á skíði með börnunum í brekkunum fyrir ofan kauptúnið og höfðu bœði ungir og gamlir gaman af. Togarinn Brettingur liggur bundinn við bryggju í baksýn. DV-myndGVA. Rólegt i gjaldeyrisdeildunum Allt að 20% álag á það sem af greitt er ,,Það er lítið afgreitt. Aðeins það sem bráðnauðsynlegt telst eins og lyf og ýmis varahlutir auk ferðagjaldeyris,” sagði Jóhann Ágúslsson hjá Lands- bankanum i gær, um ástandið i gjald- eyrisdeildum eftir tiu daga stöðvun gengisskráningar. Hann kvað ásókn ekki vera mikla i gjaldeyri þessa dagana, þar sem 15— 20% álag I'gðist á allt það sem af- greiti væri. Mismunur, ef einhver verður, endurgreiðist síðan þegar ákvörðun er komin um hversu ntikið krónan skuli falla. Á þetta jafnt við um almennan gjaldeyri og ferðagjaldeyri. „Ástandið versnar og ásóknin eykst eftir þvi sem lengra liður, en ennþá er þetta í lagi,” sagði Jóhann. -JB. Skákferð þingmanna: Vilmundur og Friðjón unnu Aftur fór íslenzka þingmannasveitin með sigur af hólmi í skákkeppni við hollenzka starfsbræður i gær. íslenzka sveitin vann 3—2 eins og i fyrradag. Að þessu sinni voru það Vilmundur Gylfason og Friðjón Sigurðsson, skrif- stofustjóri Alþingis, sem fóru með sig- ur af hólmi. Guðmundur G. Þórarins- son og Halldór Blöndal gerðu jafntefli en Garðar Sigurðsson tapaði. í fyrradag voru það Friðjón og Garðar sem unnu, Halldór og Guð- mundur gerðu þá jafntefli en Vilmund- ur tapaði. Friðjón skrifstofustjóri var því sá eini úr íslenzku sveitinni sem vann báðar skákir sínar. Aðrir voru með50% vinningshlutfall. Skáksveitin kemur heim á morgun. -KMU. Sjálfstæðis menná Akureyri: Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fundaði á mánudagskvöld- ið um leiðir við val frambjóðenda á lista flokksins við bæjarstjórnar- kosningarnar i vor. Niðurstaðan i at- kvæðagreiðslu varð sú að 15 völdu „opið” prófkjör, eins og viðhaft hef-- ur verið hjá Sjálfstæðisflokknum á Ungliðar og konur vilja lokað prófkjör Akureyri við 3 undangengnar bæjar stjórnarkosningar, en jafnmargir vildi hafa „lokað” prófkjör, þar sem eingöngu flokksbundnir hefðu kosn- ingarétt. Það voru einkum ungliðar og kon- ur sem vildu snúa til lokaðs próf- kjörs. Töldu konurnar það vænlegri leið fyrir konur til að ná árangri í prófkjörinu. Bæjarfulltrúarnir Sigurður J. Sigurðsson og Gísli Jóns- son, ásamt Gunnari Ragnars og Sverri Leóssyni, voru helztu talsmenn þess að prófkjörið yrði „opið” öllum stuðningsmönnum flokksins, því margir þeirra væru ekki og vildu ekki vera flokksbundnir. Þar sem atkvæði féllu jöfn á fund- inum og hann var auk þess fámenn- ur, miðað við að í fulltrúaráðinu eru um 130 manns, þá var ákveðið að efna til annars fundar um sama mál- efni á mánudaginn kemur. GS/Akureyri frfáJst, áháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 13. JAN. 1982. Steindór: Ekkert að- hafzt enn „Við höfum sent báðum þeim aðil- um sem heimild hafa til löggildingar gjaldmæla bréf með þeim tilmælum að bílstjórum hjá Steindóri verði ekki veitt þjónusta þar. Þetta byggjum við á þvi að í lögum um þjónustu þessa er talað um leigubílstjóra, en þessir menn hafa ekki atvinnuleyfi til aksturs,” sagði Brynjólfur Ingólfsson i samgönguráðu- neytinu í morgun. Ekkert hefur verið aðhafzt ílokunar- aðgerðum gagnvart Steindórsstöðinni. Lögreglustjóri er enn að kynna sér málið frá báðum hliðum en ráðuneytið hefur farið þess á leit við hann að rekst- urinn verði stöðvaður. Að sögn Brynjófls hefur fjármála- ráðuneytinu verið sent bréf um málið með það fyrir augum, að ekki verði af- greiddar bifreiðir með tollaundan- þágum til Steindórs. __________________ -JB. Reykingar ollu brunanum á Akureyri AUt bendir til þess að eldurinn sem eyðilagði innbú og innréttingar í einni íbúðinni í fjölbýlishúsinu við Furulund 10 á sunnudagskvöldið hafi kviknað út frá glóð af völdum reykinga, sam- kvæmt upplýsingum rannsóknar- lögreglunnar á Akureyri. Tveir bræður voru sofandi í íbúð- inni, en annar þeirra vaknaði við eld- inn. Stóð þá bólstraður stóll í stofunni i Ijósum logum og mikill hiti og^éykur hafði myndazt i íbúðinnk Vakti dreng- urinn bróður sinn og hljóp i næstu íbúð til að hringja á slökkvilið. Við það fékk eldurinn góðan trekk þannig að eld- tungur stóðu út um suðurglugga ibúð- arinnar þegar slökkviliðið kom'á vett- vang. Greiðlega gekk að ráða niður- lögum eldsins, en eftir stendur ibúðin eins og fokheld. Einnig urðu iítilsháttar skemmdir á næstu ibúðum af völdum hita og reyks. -GS/Akureyri. LOKI Það er gott að þingmenn- irnir skuii einhvers staðar standa sig vel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.