Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Side 2
DAGBLAÐIÐ& VfSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982.
TEOFANI-SAMEPPNIN1930;
VISIR AÐ FYRSTU FEGURD-
ARSAMKEPM Á ÍSLANU
Fegurðarsamkeppni. Nú til dags
þykir fegurðarsamkeppni af öllu tagi
ekkert tiltökumál og svo að segja dag-
legt brauð. En öldin var önnur 1930
þegar fyrsta fegurðarsamkeppni á ís-
landi fór fram. Var það vindlingafyrir-
tækið Teofani sem stóð fyrir keppn-
inni. Á sama tíma fór fram önnur
keppni svipaðs eðlis og var það vindl-
ingafyrirtækið Commander sem stóð
fyrir henni. reyndar voru sams konar
keppnir í gangi hjá fleiri fyrirtækjum.
Þetta var þegar einkasala á tóbaki
var ekki komin til sögunnar. Þá gilti
samkeppni á þessum markaði sem og
öðrum og þá mátti auglýsa sígarettur
eins og hver vildi.
Það var Tóbaksverzlun íslands, eins
og hún hét þá, sem flutti inn Command-
er-sígaretturnar en Teofani-sígaretturn-
ar flutti Þórður Sveinsson og Company
inn. Fyrirtækin bæði gengust fyrir
söluherferð. Hið fyrrnefnda setti inn í
pakkana landslagsmyndir frá Islandi,
hið síðarnefnda myndir af íslenzku
kvenfólki. í báðum tilvikum var um að
ræða fimmtíu mismunandi myndir og
hjá báðum voru góð verðlaun í boði
fyrir þá sem gátu safnað öllum mynd-
unum, frítt flugfar yfir Reykjavík í
fimmtán mínútur.
Teofani-sígaretturnar voru þó öllu
vinsælli og ég hef það fyrir satt að í
Skagafirðinum þótti enginn maður
með mönnum nema hann reykti Teo-
fani, það var stillinn. Ástæðan? Teo-
fani voru með gylltu munstykki úr
pappír og gferði það gæfumuninn.
Teofani voru egypzkar sígarettur,
flatar að lögun og jafnvel til í mörgum
litum og þá kallaðar „selskapssígarett-
ur”. Hægt var að kaupa pakka með
tuttugu sígarettum á krónu eða pakka
af Teofani Fine, sem kostaði eina
krónu og tuttugu og fimm aura. Þá var
einnig hægt að kaupa þær í stykkjatali.
En lítum nánar á tilhögun Teofani-
keppninnar.
-KÞ
Sjá bls.4og5
Texti: Krisbn Þorsteinsdóttir
i
í
Hifdur Grímsdóttír. Hún fékk fyrxtu vertHaun aö upphæð S00
krónum.
Stgurbjörg Lárusdóttír hrappti annað smtíö og fókk 200
krónur.
ÞESSAR FENGU VERDIAUNBÍ
\
I