Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Síða 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982.
5
„Þorði ekki að vera viðstödd
þegar úrslit vorukynnt”
—segir Unnur Stefánsdóttir, einn þátttakenda í
Teofani-fegurðarsamkeppninni
Unnur Stefánsdóttir bókbindari tók
þátt i Teofani-fegurðarsamkeppninni,
þáung stúlka, 17—18 ára gömul.
„Hvernig á því stóð að ég tók þátt í
þessu? Ja, ég veit það eiginlega ekki og
þó... Ég og Hjördís, systir mín, höfð-
um farið til Loftsljósmvndara, sem þá
var til húsa í Nýja bíói, til að láta
mynda okkur, sem hann gerði. Þetta
var að því að mig minnir síðsumars
1929. Sðan gerðist það nokkru siðar að
við fengum bréf þar sem við vorum
spurðar hvort mætti setja myndir af
okkur í Teofani-sígarettupakkana.
Þannig var það nú.
— Myndirnar hafa þá ekki verið
teknar gagngert til að nota í keppninni?
„Nei, nei, ekki var það.”
— Tók það ykkur langan tíma að
ákveða hvort þið vilduð vera með?
„Já, ég var svo feimin á þessum ár-
um. Það tók mig langan tíma að
ákveða þetta.”
— Veiztu til þess að leitað hafi verið
til einhverra stúlkna um þáttföku, sem
ekki vildu?
„Nei, ég held að allar sem leitað var
til hafi slegið til.”
— Voru þetta laglegustu stúlkurnar í
bænum, sem tóku þátt í keppninni?
,,Ég veit það ekki. reyndar voru
þetta ekki bara stúlkur úr bænum, þær
voru alls staðar að af landinu og á öll-
um aldri. Sumar giftar og margra
■barna mæður.”
— Fenguð þið eitthvað fyrir ykkar
snúð?
„Nei, það voru aðeins veitt fyrstu,
Unnur Stefánsdóttír. ÞessJ mynd
birtíst mf henni i Teofani — pökkun-
um.
önnur og þriðju verðlaun. Hinar fengu
ekkert.”
— Hverjir sáu um framkvæmdina á
keppninni?
,,Það var fyrirtækið Þórður Sveins-
son og Company og svo ljósmyndarar
bæjarins, allflestir.”
— Var mikið talað um þessa keppni í
bænum?
,,Ja, fólki þótti alla vega gaman að
Ég held að þetta hafi verið gert fyrst
og fremst til að auka söluna. Þetta
þótti spennandi og svo voru góð verð-
laun í boði,” sagði Erlendur Þorbergs-
son, sem í kringum 1930 vann við
afgreiðslustörf í London — Tóbaks-
verzlun á horni Austurstrætis og Póst-
hússtrætis — þá ungur maður, er við
báðum hann að rifja up söguna í kring-
um Teofani- og Commander- keppniin-
ar.
„Það voru landslagsmyndir frá
íslandi í Commander-pökkunum,
nmmtiu að tölu, en í Teofani-pökkun-
um voru jafnmargar myndir af ungum
íslenzkum stúlkum. Stúlkurnar gáfu sig
sjálfar fram að mig minnir, og það
voru flestir ljósmyndarar bæjarins,
sem tóku þátt í þessu. Ég veit ekki hver
átti upptökin en ég geri ráð fyrir að það
hafi verið fyrirtæki erlendis, sem þar
átti stærstan hlut að máli. Tóbaksverzl-
un íslands flutti inn Commander sígar-
etturnar og Þórður Sveinsson & Co
Teofani.
Svo voru verðlaun í boði, fyrir þá er
gátu safnað öllum fimmtíu myndunum
í hvorri keppni fyrir sig saman, anzi
hreint góð verðlaun meira að segja.
Ég man að ég safnaði öllum lands-
þessu. Þetta var alveg nýtt, eitthvað
spennandi. Svo voru margir sem reyktu
Teofani-sígaretturnar og söfnuðu
myndunum.”
— Reyktir þú sjálf á þessum árum?
„Nei, ertu alveg frá þér? Það gerði
ég ekki. Ég byrjaði ekki á því fyrr en
löngu seinna. Ég var ung stúlka í
heimahúsum þegar þetta var.”
— Voruð þið stúlkurnar þekktar i
bænum vegna þátttöku ykkar?
„Ekki man ég eftir þvi.”
— Var mikið sagt frá þessu í blöðun-
um?
,,Nei, það var eitthvað lítið, minnir
mig.”
— Fórstu i þetta vegna verðlaun-
anna, sem voru í boði?
„Nei, langt frá því.”
— Hvernig og hvenær voru svo úrslit
kynnt?
„Úrslitin voru tilkynnt á alþingishá-
tíðinni á Þingvöllum í júní 1930. Ég var
á Þingvöllum þennan dag en þorði ekki
að vera viðstödd þegar þau voru til-
kynnt. Þannig var að menn töluðu um
að ég mundi sigra, svo ég þorði ekki
fyrir mitt litla líf að vera viðstödd.”
— Ef þú værir komin aftur til ársins1
1929 með þá reynslu sem þú hefur nú,
tækirðu þátt í svona keppni?
,,Já, hvers vegna ekki? Þetta gerði
engum mein,” sagði Unnur Stefáns-
dóttir.
„... þótt þær hékfu sjátfar að þær
vearu þetta Htía sjarmerandi.",
LMvig Hjálmtýsson.
„Þetta var aíveg stórkostlegt en
þessu fylgdi bæði grín og alvara hjá
almenningi þótt stelpurnar litu þetta al-
varlegum augum,” sagði Lúðvíg
Hjálmtýsson i samtali við DV.
Lúðvíg var 15—16 ára unglingur
1930 og vann þá i vegavinnu.
„Ég man það að allir strákar söfn-
uðu þessu en auðvitað kærði maður sig
ekki um allar myndirnar heldur valdi
„Þetta voru
aðalpríma-
donnuraar
íbænum—
og sumar
komnar und-
ir sjötugt”
— segirLúðvíg
Hjáimtýsson
úr. Sumar sem þátt tóku voru gamtar
kerlingar komnar undir sjötugt og féllu
ekki alveg inn i myndina hjá almenn-
ingi, þótt þær héldu sjálfar að þær
væru þetta litla sjarmerandi. samt sem
áður voru þetta aðalprimadonnurnar i
bænum.”
— Voru Teofani góðar sigarettur?
„Nei, þær voru ósköp vondar og ég
held að menn hafi ekki enzt til að
reykja þær en sumir byrjuðu þó að
reykja vegna keppninnar eða fengu að
minnsta kosti foreidra sína til að
reykjaTeofani.”
— Hvernig var talað um fegurðar-
samkeppnina i bænum?
,,Það var upp og ofan. Voru það
einkum gömlu kerlingarnar, sem voru
jhafðar að skotspæni almcnnings. Svo
voru samdar fjölmargar gamanvísur
um þetta og keppnin tekin fyrir í revi-
um með Halla Á. i broddi fylkingar,”
sagði Lúðvíg Hjálmtýsson.
„Aldeilis ekkert slor
að fá f rítt f lugfar”
—segir Erlendur Þorbergsson, einn
þeirra sem náði að safna saman
myndunum fimmtíu
LIMINGAR-
lagsmyndunum í Commander-keppn-
inni, öllum fimmtíu, og fyrir það fékk
ég frítt flugfar yfir Reykjavík og það
þótti aldeilis ekki neitt slor. Þá voru
aðeins tvær flugvélar hérna. Það var
Veiðibjallan og Súlan. Þær voru báðar
sjóflugvélar. Ég man nú ekki með
hvorri ég fékk far en alla vega var þetta
hreinasta ævintýri.
Ég hafði aldrei komið upp í flugvél
áður enda kostaði farið með vélunum
15 krónur, sem var hreint ekki svo litið.
Þetta var kortérsflug og flogið var yfir
Reykjavík og suður yfir Hafnarfjörð.
Ég hafði keypt flugfar handa konunni í
sömu ferð svo hún gæti komið með. Og
vinur minn einn, sem langaði þessi
ósköp með, keypti sér lika far. Við
fórum sex í vélinni. Það var bjart yfir
og vítt til allra átta, svo skyggnið var
eins og bezt varð á kosið. Alveg
ógleymanleg ferð.”
— Var mikil þátttaka í þessu?
,,Já, þetta var afar vinsælt og menn
lögðu sig alla fram um að safna þessum
myndum. Kannski hefur vonin uni
flugfar gefið mönnum byr undir báða
vængi, því menn fóru ekki í flugferðir á
hverjum degi þá eins og nú,” sagði
Erlendur Þorbergsson.
TILBOÐ
NU geta allir farið að mála
ér kemur tilboð sem erfitt erað hafna
•J Efþú kaupir málningu fyrir500kr.
eöa meir færöu 5% afsiótt
£ Ef þú kaupir málningu fyrir 1000
kr. aða mair færðu 10% afslátt
£ Ef þú kaupir málningu í hailum
tunnum, þ.a. 100 Htra, borgaröu
VERKSMIDJUVERÐ og /
kaupbæti færðu frían heimakstur
hvar sem er á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
HVER BYÐUR BETUR!
Aukþess ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar.
OPIÐ: mánud.-fimmtud. kl. 8—18 föstud. kl. 8—22 laugard. kl. 9—12
ffTll BYGGlNGflVÚRURl
ImÍBHF HRIIMGBRAUT 119. S. 10600/28600 frt
Munið
aðkeyrsluna
frá Framnesvegi