Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Blaðsíða 19
19 DAGBLADIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982. Hvers vegna Tónabær? Á æfingu í vikunni var Saga spurð hvers vegna þau kæmu með leiksýning- una inn í Reykjavík — þetta er þó Leik- félag Garðabæjar sem er að verki? — Það er ekkert hús sem hentar leiklistar- starfsemi þar syðra. Nú er verið að byggja félagsmiðslöð þar og þá fáum við aðstöðu „heima”. En þangað til verðum við að vera annars staðar. — Aðstaðan hér í Tónabæ er auð- vitað alls ekki eins og bezt yrði á kosið — en þeir hafa verið afskaplega viljugir hér við að bæta það sem hægt er — verið er að ganga frá búningsher- bergjum og sturtu baksviðs, það kemur sviðstjald og svo þarf að byrgja fyrir gluggana. En við þurfum enn sem komið er að notast við sjálfan salinn til að sminka okkur og klæða og allt þarf að taka með sér heim á milli æfinga — ganga frá sviðsmyndinni o.s.frv. Góði andinn Daginn sem ég leit inn á sýningu var óveðursdagur í Reykjavík, leikurunum seinkaði vegna ófærðar, einn þurfti að fara alla leið i Kópavog eftir andlitinu á sér, ef svo má segja. Þetta var fyrsta rennsli i búningum og mörg handtök nauðsynleg áður en allt væri um kring komið. En svo rúllaði allt nokkurn veginn hnökralaust og skemmtilega. Það er þessi góði andi sem einatt er hjá fólki sem er að ryðja nýjar brautir, byrja eitthvað nýtt. Leikararnir allir í vinnu annars staðar og allar æfingar á kvöld- og næturvöktum. Og margir viljugir hjálparkokkar reiðubúnir til að gera við sauntsprettu hér eða setja rúllur í hárkollu þar. Allar myndirnar voru teknar á æfingu af Gunnari Andróssyni. Steindór Gostsson: Fknmtardómarinn „Svo sem enginn Shakespeare Þegar Leikfélag Reykjavíkur setti upp karlinn úr kassanum fyrir mörgum árum komu fram margir leikarar sem gert höfðu garðinn frægan eða áttu eftir að gera það, svo sem Arndfs Björnsdóttir, Brynjólfur Jóhannesson, Haraldur Á Sigurðsson, Marta Indriðadóttir, Valur Gíslason o.fl. Garðaleikhúsið teflir fram liði með mismunandi reynslu og nokkrum ný- liðum en ekki var annað að sjá en allir léku sína rullu af þeim mætti sem til þarf. Alls koma 12 fram í sýningunni. Magnús Ólafsson, Sigurveig Jónsdóttir, Þórir Steingrímsson, Guðrún Þórðar- dóttir, Aðalsteinn Bergdal, Guðrún Alfreðsdóttir, Valdimar Lárusson, Steindór Gestsson, Thelma Tómasson, Hreiðar Ingi Júlíussoon, Helga Kristjánsdóttir og Friðrik Steingíms- son. Saga er leikstjóri, Hallmundur sviðsmeistari og Ingvar Björnsson sér um lýsingu. Þau kviðu engu en var þó nokkuð í mun að segja blm. DV að þetta væri svo sem enginn Shakespeare í dulitlum afsökunartón. Einn hafði m.a.s. á orði að þetta væri næstum því nýlist í því aðsvona sýning „brýtur upp þennan hámenningarsvip sem reyk- vísku leikhúsin setja svo gjarnan upp.” Og hvað með það? — Allir hafa þörf fyrir léttlynt gaman og Karlinn i kassanum sýndist heldur betur geta boðið upp á þannig kvöldstund. Ms. Þórir Stobtgrimsson: BM Guðrún Atfroðsdóttir: Vinnukona Aðalsteinn Borgdok Friðmundur Magnús Otafsson: Pótur Möriend Friðar LeBcstfórinn, Soga Jónsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.