Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1982, Qupperneq 20
20
DAGBLAÐIÐ&VÍSIR. LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1982.
Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð — Sérstæð sakamál
Lana i fyrsta hlutvarkinu, skólastalpa á peysu. Þaðan fókk hún viðurnofnið
„peysu-skvísan
O
Harmleikir í Hollywood
Lík Stampanatos í svefnherbergi Lönu.
sagði hún eitt sinn í blaðaviðtali: „Mér
finnast karlmenn æðislega æsandi og
hver sú kona sem er ekki sammála mér
hlýtur að vera skrælnuð piparjúnka,
hóra eða dýrðlingur.”
Sambandið
víð Johnny
Leit Lönu að æsingi í lífinu tók á sig
örvæntingarsvip eftir að hún varð þrí-
tug. Og Johnny fullnægði þörfum
hennar. Þrátt fyrir rysjótta sambúð
sendi hún honum jafnan flugmiða
nokkrum dögum eftir að hún hafði
kvatt hann. í bréfum sínum til hans
skrifaði hún um þennan „lostasæta
sársauka” sem hann gæfi henni.
Og Johnny gekk á lagið. Hann naut
þess að hafa hana i hendi sér og átti til
að klípa hana fast i nefið og segja:
„Þegar ég segi hopp, þá hoppar hún.
Þegar ég segi hlaup, þá hleypur hún.”
Hann hótaði líka að merkja sér hana:
„Ég skal lemja þig til óbóta þangað til
þú verður svo Ijót að þú verður að vera
í felum það sem eftir er ævinnar.” Eitt
sinn, er Lana var að vinna að kvik-
mynd með Sean Connery í Englandi,
brauzt Johnny inn í búningsherbergi
Connerys, veifaði skammbyssu og
sagði honum aö halda sér frá Lönu.
Kvikmyndaverið lét lögregluna senda
hann heim til Hollywood.
Þó saknaði Lana hans einatt. Bréf
hennar til hans, eftir atvikið í Englandi
segjasína sögu:
„Ég þrái atlot þín, þennan ofsa sem
brennir mig. Þau eru svo falleg en samt
svo hræðileg. Ég er þín og ég þarf þig,
þig, þig.” Þau hittust aftur í Mexikó,
þar sem útiatriði myndarinnar voru
tekin.
Hótelgestir kvörtuðu undan
hávaðanum í þeim. Að kvikmyndatök-
unni lokinni flugu þau heim til Holly-
wood. Cheryl, 14 ára gömul dóttir
Lönu, tók á móti þeim á flugvellinum.
Cheryl var taugaveikluð og brjóstum-
kennanlegur táningur. Hún bjó með
móður sinni og neyddist til að horfa
upp á líferni hennar og elskhugans.
Nóttín
langa
Skömmu eftir heimkomuna rifusl
þau ofsalega. Lana hafði neitað að
greiða spilaskuldir Johnnys og hann
hótaði henni með líkamsmeiðingum.
Hann hótaði líka að hefna sin á fjöl-
skyldu Lönu, ekki sízt dótturinni.
Cheryl stóð við dyrnar og hlustaði.
Hún sagði síðar frá því í réttarhöldun-
um: „Ég skal skera þig í parta og ég
skal skera mömmu þina og stelpuna
líka. . . ég kann tökin á svona lög-
uðu.”
Cheryl hljóp fram í eldhús, greip
fyrsta vopnið sem hún rak augun í, 15
cm langan búrhníf, og hljóp með hann
inn til mömmu sinnar.
Lana sagði fyrir réttinum: „Þetta
gerðist allt svo fljótt að ég sá ekki einu
iinni hnífinn í höndum Cheryl. Fyrst
hélt ég að hún he'fði lamið hann í mag-
ann með hnefunum. Stampanato féll
og hrundi einhvern veginn niður á bak-
ið, hóstaði og tók höndum um hálsinn.
Ég fór til hans og lyfti peysunni. Þá sá
ég blóðið. Svo komu hryglukennd
hljóð út úr honum.”
Kvikmyndaleikkonan grét mikið fyr-
ir réttinum og þegar hún sagði frá þessu
augnabliki lá við að hún félli í ómegin.
Blöðin hrósa
leiknum
Dagblöðin létu ekkert fram hjá sér
fara. Þeim kom öllum saman um að
leikur Lönu hefði verið stórkostlegur!
En kviðdómurinn sýndi meiri misk-
unn, álit hans var að hér væri um
„réttlætanlegt manndráp” að ræða.
Peysu-skvísan
Þegar Johnny hringdi fyrst í Lönu var
hún, eins og hann hafði grunað, ein-
inana og þyrst eftir félagsskap. Ferill
hennar í kvikmyndunum var að því er
virtist á niðurleið. Hún varð stjarna á
einni nóttu árið 1937. Kvikmyndin hét
They Won’t Forget, Þeir gleyma ekki,
og titillinn varð orð að sönnu. Hlutverk
Lönu var ekki stórt — hún kom fram í
fyrsta atriði myndarinnar. Ung skóla-
stúlka gengur yfir torg, hittir þar mann
sem nauðgar henni og myrðir síðan. En
brjóst Lönu urðu áhorfendum ógleym-
anleg — og þeir vildu fá meira að sjá.
Árið 1946 var Lana Turner orðin ein af
eftirsóttustu kvikmyndaleikkonum
Bandaríkjanna og ein af þeim 10 rík-
ustu. Hún var drottning MGM-kvik-
mýndaversins. Og hún var drottning
samkvæmanna og safnaði karlmönn-
um eins og aðrar konur kaktusum.
Frank Sinatra, Howard Huges, Tyrone
Power o.s.frv. o.s.frv. og slúðurdálk-
arnir fylgdust náið með gangi mála eins
og þeirra er vani. Hún giftist nokkrum
sinnum, fyrst hljómsveitarstjóranum
Atrie Smith, þá Steve Crane (faðir
Cheryl), Bob Topping milljónamær-
ingi og síðast Lex Barker. Hún þráði að
eignast barn rrieð Barker en það tókst
ekki, hún missti fóstrin. Hún á aðeins
að hafa elskað einn allra þessara
manna, Tyrone Power. En eigingirni
og afbrýðisemi Lönu gerði út af við
samband þeirra. Og árið 1957 setti
MGM hana út af samningi, fefill henn-
ar virtist á enda.
Ekki ókunn
ofbeldi
Hún þekkti ofbeldi, bæði úr hjóna-
böndum sínum og ástarsamböndum.
Einn eiginmanna hennar hafði fleygt
henni niður stiga, annar slegið hana ut-
an undir opinberlega og sá þriðji jós yf-
ir hjjna kampavíni á Ciro — aðalstaðn-
um í skemmtanalífi stjarnanna. Hún
hafði hlaupið út grátandi. Iðulega gekk
hún með sólgleraugu til að fela glóðar-
auga. Hún virtist gera sér far um að
krækja í ofstopafulla karlmenn. Sjálf
Hollywood, föstudaginn langa 1958.
Síminn hringdi hjá Jerry Geisler, dýr-
asta og fínastalögfræðingi kvikmynda-
borgarinnar. Kunnugleg rödd sagði í
símann: „Þetta er Lana Turner. Það
hefur dálítið voðalegt komið fyrir. Get-
urðu komiðstrax.”
Jerry Geisler lét ekki bíða eftir sér.
Hann fór strax beinustu leið heim til
Lönu í Beverly Hills-villuna hennar.-
Lana beið hans útgrátin, dóttir hennar,
Cheryl, var í móðursýkiskasti.
Ástæðan kom fljótt í Ijós — i bleikj
blúndóttu svefnherbergi kvikmynda-
stjörnunnar lá blóðugt lík Johnny
Stampanato, fýrrverandi lífvarðar
gangstersins Mickey Cohen. Stamp-
anato, alræmdur kvennabósi — elsk-
hugi Lönu Turner hafði verið stunginn
til bana.
Eftirsóttur
efstjörnunum
Johnny þessi Stampanato var frægur
gæi — honum hafi verið úthlutaður
óopinber óskar fyrir frammistöðu sína
i svefnherbergissenum. Árið 1957
hafði Johnny upp á leyninúmeri Lönu
og sló á þráðinn til hennar. Hann vissi
vel — eins og reyndar öll bandaríska
•þjóðin vissi líka — að Lana var nýskilin
við Lex Barker, Tarzan-hetjuna sjálfa.
Og Johnny þóttist vita að Lana væri
einmana og til í tuskið. Hann bauð
henni út, lét falla nöfn nokkurra sam-
eiginlegra kunningja, minntist á óskar-
inn og Lana lét tilleiðast að hitta hann.
Johnny átti og rak gjafavöruverzlun
í Hollywood um þetta ieyti. En verzlun-
in var meira það sem kallað er grima,
afsökun. Hann skipti sér lítið af rekstri
hennar. Þess í stað einbeitti hann sér að
ríku kvenfólki. Lana komst ekki að því
fyrr en eftir dauða Johnnys að hann
hafði verið giftur þrisvar sinnum og
átti 10 ára gamlan son. Hún vissi þó að
hann var í nánum samböndum við
glæpaheima Kaliforníu, en það skipti
hana litlu máli. Þvert á móti virtist það
verka eggjandi og æsandi á hana að
hafa alvöru-glæpon fyrir fylgdarsvein
og elskhuga. Hann gekk jafnvel með
byssu í beltinu!
Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð