Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1982, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982. Dýr in mín 1 bl láogi m lai rin r — 1 heimsókn á Dýraspítala Watsons í Víðida il Konudagurinn er á morgun Lítið inn í nœstu blómabúð *■ W ^Blóma fiamleiðendur „Nei, hrikalega er þetta loðið kvik- indi — og sjáðu þennan, sá er nú væru- kær,” voru orð Gunnnars ljósmyndara við blaðamann þegar þeir stigu fæti inn á Dýraspítala Watsons í Víðidal við Reykjavík skömmu eftir nón einn sól- rikan vetrardaginn í mánuðinum. Frískir voru þeir Hann átti við stóran og fagran angórakött og annan álíka mikinn, sem lágu heimakærir í anddyri spítalans. Greinilegt var að hvorugur þeirra var að koma eða fara í aðgerð, því að frísk- ir vo. u þeir og vel á sig komnir: „Sennilega heimiliskettir”, hugsaði blaðamaður meðsér. Brátt bar ofurstóran og stæltan hund að og tók hann komumönnum fálega, lagðist á gólfið og sofnaði. Leið svo um stund, unz dýralæknir- inn á staðnum, Ragnar Ragnarsson lét sjá sig. Andstætt hundkvikindinu tók hann aðkomumönnum vel og bauð þeim til sætis á skrifstofu sinni. Sagði hann að brátt hæfist heimsóknartími og mætti því fara að búast við fólki með heimilisdýr sin til rannsóknar. Ekki leið á löngu, þangað til fyrstu viðskiptavinirnir luku upp hurðinni og voru þar á ferðinni Baldvin Þórarins- son og Ingunn Ingvadóttir ásamt ríf- lega stórum pappakassa. Innihald hans reyndist vera dáfalleg læða auk kettlingsræfils, sem eitthvað illa virtist kunna við sig í henni veröld. Hvæsti hann ákaft á viðstadda og lét öllum ill- um látum þegar hann var tekinn úr kassanum. Var hann þó ekki mikill á velli, þegar til kom. Má vera að hann Hvuttinn Ferró ásamt eigendum sinum, Svölu Guðjónsdóttur og Ólafi Haukssyni. Verið er að taka þráðinn úr kviðnum á Ferró, en sá hinn sami var geltur á dögunum. háðslega. „Slíkar vangaveltur eru nú ekki til umræðu hérna,” segir Ragnar annars hugar og lýkur við sjúkraskýrsluna. Þessu næst tekur hann Rósu og af- kvæmið i fang sér og heldur áleiðis inn á legudeildina, sent er inn af sjúkrastof- unni. Þar fá „ntæðgurnar” sérklefa með flestum nútíma kattaþægindum — og bíða síns tíma; Rósa þessi að verða ófrjövguð og kettlingurinn þess að fara til kattahiminsins. „Ætli ég sinni þeim ekki á morgun,” segir Ragnar um leið og hann lokar klefanum. Líffræðilegar vangavettur Hvernig eru þessar aðgerðir frarn- kvæmdar? spyr ég eftir að vera búinn að jafna mig á þessum döpru örlögum sem bíða kattargreyjanna. ,,Ja, kettlingurinn fær fyrst svo- nefnda deyfilyfssprautu, sern hann sofnar út frá. Þar á eftir er vægu svefnlyfi sprautað í æð á honum. Þetta er sem sagt algjörlega sársaukalaus meðferð sent greyið fær. Læðan fær hinsvegar deyfingu fyrst, unz hún er skorin upp og legið fjarlægt úr henni. Nokkrum tímum síðar er hún vöknuð og lætur sem ekkert hafi í skor- ízt. Saumurinn er svo tekinn úr henni ca 10 dögum síðar,” segir læknirinn eins og ekkert sé auðveldara í veröld- inni. Eftir þessar líffræðilegu vangaveltur er knúiðdyra á skrifstofu Dýraspítalans hann í fang sér og heldur inn á sjúkra- stofuna. ,,Þú hefur nú eitthvað verið að naga í sauminn, vinurinn, það er greinilegt. En okkur er ekki til setunnar boðið. Þú verður að halda honum,” segir læknirinn og bendir á Svölu. Hún tekur til óspilltra málanna á meðan Ragnar sækir töngina og nteð einu handtaki er saumurinn horfinn úr kviðnum. En mikið óskaplega fann blaðamaður til með hundkrílinu á meðan aðfarirnar stóðu sent hæst. En allt tekur enda og þegar hvuttinn er bú- inn að jafna sig hverfa eigendur hans á burt með geldinginn undir hendinni. ,,Þá er þessu verkefni lokið,” segir Ragnar, ,,en ætli það sé ekki bezt að ég fjarlægi umbúðirnar af honum Trú- fast. Hann skar sig illa á dögunum, greyið, en er nú allur að ná sér.” Við höldum á eftir Ragnari inn á hundalegudeildina, þarsem hundurinn Trúfastur er fyrir. Hann er af collie- kyni og því nokkuð stór, en Ragnar lætur það ekki aftra sér við að lyfta honunt upp í fangið og halda á honunt fram á sjúkrastofu. „Sættede sig" „Það er Dani sem á hann þennan og þessvegna heitir hundurinn þessu skondna nafni,” segir Ragnar um leið og hann skipar þeim danska að setjast. Það gengur eitthvað ógreiðlega, en þeg- ar Ragnar grípur til dönskukunnáttu sinnar þá sezt hundurinn umsvifalaust. ,,Þeim gengur alltaf illa að skilja ís- og inn koma hjónin Ölafur Hauksson og Svala Guðjónsdóttir, ásamt dóttur- inni Helenu og litlu hvítkrulluðu hund- kríli sem ber það höfðinglega nafn, Ferró. hafi haft hugboð um það sem beið hans — og skal þá engan undra fár hans — því að sögn Ingunnar hafði hún hug á að láta farga honum: ,,Ég vil helzt ekki gefa hann. Það er svo misjafnlega farið með þessa vesa- linga og ég vil ekki taka neina áhættu.” Úrsambandi Hvaðá að gera við læðuna? „Hana Rósu mína? Það á að taka greyið úr sambandi. Hún er búin að gjóta tvisvar og mér finnst það alveg nóg. . . ” Nú grípur Baldvin inn i umræðurnar og spyr hvort þetta verði mikil aðgerð á henni Rósu. „Nei, þetta er ósköp lítil og saklaus aðgerð og veldur henni engum sársauka,” segir Ragnar hughreystandi og tekur til við að útfylla sjúkraskýrslu kattanna. „Þetta er þá kannski eitthvað í lík- ingu við kjallaraaðgerðirnar á konunt, eða hvað,” bætir Baldvin við og glottir Ingunn Ingvadóttir með heimilislæðuna Rósu, sem átti að taka úr sambandi. Kettlingnum hennar átti hins vegar að fargz Gekfíngurínn Ferró litli var geltur á dögunum og skyldi saumurinn verða fjarlægður úr honum. „Þú ert væntanlega bráðhress, Ferró minn,” segir Ragnar þegar hann tekur Texti: Sigmundur Ernir Rúnarsson Myndir: GunnarV. Andrésson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.