Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Page 1
BAEBIABIÐmmm
71. TBL. - 72. og 8. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982.
frjálst, óháð dagblað
Flutningaskipsð Suðuríand sökk ísiæmu veðri við Færeyjar.
Tíu af 11 manna áhöfn var bjargað úr björgunarbát íþyriur:
„Það kom stór alda
og lagði skipið”
—segir HalídórAlmarsson skipstjóri. Skipverjar væntanlegirheim í dag
„Við erum allir komnir á ról. Það
er áætlað að senda flugvél úr Reykja-
vík klukkan níu til að sækja okkur.
En ég efast um að hún komist, það er
það slæmt veður hér,” sagði Halidór
Almarsson, skipstjóri á Suðurland-
inu, á sjúkrahúsinu í Þórshöfn í Fær-
eyjum í morgun. Hann var beðinn að
lýsa atburðum:
„Það var búið að vera hér
leiðindarok, suðvestan rok, nóttina
áður þegar við vorum hér í Þórshöfn
að lesta. Á sjónum voru suðvestan
sjö vindstig og mikill sjór.
</ið förum fyrst hér innan eyja og er-
um komnir út úr þeim um áttaleytið
um morguninn. Tökum svo stefnuna
á Þórshöfn á Langanesi.
Ég fer niður að borða í hádeginu
og kem upp í brú þegar klukkuna
vantar 5— 10 mínútur í eitt. Þá kemur
ansi stór alda og leggur skipið. Það
náði ekki að rétta sig eftir það.
Síðan hélt skipið áfram að halla og
lagðist. Við sendum strax út neyðar-
kall. Þetta gerðist rétt fyrir klukkan
eitt. Við misstum svo manninn út
kortéri seinna.
Við settum út gúmbátana en misst-
um þá báða. Þá höfðum við ekkert
annað að hlaupa upp á en tvo stóra
björgunarbáta sem eru fastir um
borð. Það var driftð í að sjósetja
þann stjórnborðsmegin. Það tókst en
með miklum barningi því davíðurnar
lömdust ofan á hann, fylltu hann af
sjó og beygluðu hann. En við náðum
honum.
Þegar við slökuðum honum í sjó-
inn voru allir komnir um borð í hann
nema ég og 1. stýrimaður. Við bund-
um hann fastan við skipið, náðum í
aukabirgðir af flugeldum og sendum
út kall að við værum farnir. Síðan
syntum við út í bátinn, ég og stýri-
maðurinn.
Við rerum svo uppi annan gúmbát-
inn sem við höfðum áður misst og
fórum allir yfir í hann. Hann var rif-
inn en okkur fannst samt meira
öryggi í því að vera í honum en stóra
lífbátnum.
Við hreiðruðum um okkur í gúm-
bátnum. Skömmu siðar kom dönsk
'þyrla af Hvítabirninum og bjargaði
tveimur. Þeir bentu okkur á að
Hvítabjörninn væri á leiðinni.
Veðrið fór heldur versnandi,
skyggnið að minnka. Við hinir vorum
áfram í bátnum. Svo fórum við að
heyra í flugvélum og rétt á eftir birtist
Nimrod-þota frá brezka hernum. Við
kveiktum á neyðarblysum og þeir
fundu okkur fljótlega. Neyðarsendir
HaMór Ahnirsson skipstjóri.
var í bátnum og ég verð að halda að
hann hafi hjálpað til.
Þeir hentu til okkar gúmbát úr þot-
unni, hann lenti um tuttugu metrum
frá okkur. Okkur tókst að ná honum
en um svipað leyti sáum við hvar
Hvítabjörninn kom siglandi. Han
kom alveg upp að okkur en í þvi kom
þyrla frá Bretunum og tók okkur sem
eftir vorum upp. Hún flaug svo með
okkur alla leið á sjúkrahúsið i Þórs-
höfn. Þar lentum við um fimmleyt-
ið,” sagði Halldór Almarsson skip-
stjóri. KMU.
Stjörnumessa DV1982:
JÓHANN HELGASON SÓPAÐIAÐ SÉR VERÐLAUNUM
Eins og undanfarin ár var það einn
maður sem sló i gegn í vinsældavali
DV. Að þessu sinni Jóhann Helgason.
Hann tók við þremur verðlaunastyttum
á Stjörnumessu DV í gærkvöldi.
Úrslitin komu engum á óvart, enda
Jóhann afkastamikili í tónlistarlífinu á
síðasta ári. Jóhann Heigason var
kosinn söngvari ársins, lagahöfundur
ársins og hljómplata hans Tass var
kosin hljómplata ársins. Það má því
með sanni segja að Jóhann Helgason
hafi átt kvöldið í gær.
Tónlistarmaður ársins var kosinn
Gunnar Þórðarson og er þetta í þriðja
skipti sem hann hlýtur það hnoss, eða
frá því sá titill var tekinn upp á
Stjörnumessu. Konur hafa nokkuð
látið að sér kveða að undanförnu enda
var Ragnhildi Gísladóttur ákaft fagnað
er hún hlaut titilinn söngkona ársins.
Textahöfundur var enginn annar en
Bubbi Morthens sem flutti gesturh
Messunnar ljóð er hann tók við verð-
launagripnum. Eins og mörgum er í
fersku minni voru Bubbi og Utangarðs-
menn stjörnur síðustu Stjörnumessu.
Hljómsveit ársins að þessu sinni var
Mezzoforte, Stjörnubandið sjálft sem
þótti standa sig með afbrigðum vel i
gærkvöld.
Lag ársins átti hljómsveitin Start,
Sekur og metsöluplata síðasta árs var
Himinn og Jörð, hljómplata Gunnars
Þórðarsonar. Þá var i fyrsta skipti
valinn skemmtikraftur ársins og var
það enginn annar en Þórhallur Sigurðs-
son (Laddi) sem tók við verðlaunagrip
þeim. Heiðursgestur Stjörnumessunnar
að þessu sinni var Þuríður Sigurðar-
dóttir söngkona.
Stjörnumessa DV ’82 þótti takast
mjög vel og komust færri að en vildu.
Hendrik Berndsen hafði skreytt salinn
með japönskum kirsitrjám og var hann
verðlaunaður engu siður en tónlistar-
mennirnir fyrir frammistöðu sína
undanfarnar Messur. Kynnar kvöldsins
vBW þeir Þorgeir Ástvaldsson og
Magnús Ólafsson. -ELA.
Enda álviðræöur með stórtíðindum?—baksíða
—var kjörinn söngvari ársins, lagahöfundur og átti vinsælustu hl jómplötuna
Verðlaunahafar ú sviði Broadway ú hinni veiheppnuðu StjðmumessuDVigœrkvöldi. (DV-myndRagnar Th.)