Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Síða 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982.
5
Milligöngumaður milli
vamariiðsins og stjómvalda
— rætt við Hermann Sigurðsson fulltrúa Landhelgisgæzlunnar hjá varnarliðinu
Hermann Sigurðsson stýrímaður og fulltrái LandMgisgæzlunnar hjá varnarliðinu.
Nykomið!
Sœnsku
speglasettin
HÚSGAGNA-
VERSLUNIN
SÍÐUMÚLA 4
SÍMI31900
Trimm-
gallar
Stærð 2—4—S—M kr. 121
Staarð 10-12-14 kr. 138
Vcrzlunin
VAL
Strandgötu 34 Hafnarfirði
Simi 52070
Sendum í póstkröfu.
HREINLÆTISTÆKI
Sænsk gæðavara á góðu vcrði.
10 litir — scndum um land allt.
Grciðsluskilmálar
20% út — cftirst. 6 mán.
í skýrslu Ólafs Jóhannessonar utan-
ríkisráðherra til Alþingis segir, að það
nýmæli hafi orðið á síðasta ári að sér-
stakur fulltrúi frá Landhelgisgæzlunni
hóf störf hjá varnarliðinu. Fulltrúa-
staða þessi er samkvæmt samkomulagi
milli Islands og Bandaríkjanna frá því i
október 1974, þar sem segir að báðar
ríkisstjórnirnar muni athuga leiðir til
að efla samvinnuna milli varnarliðsins
annars vegar og Landhelgisgæzlunnar,
Almannavarna og Flugmálastjórnar
hins vegar.
Hermann Sigurðsson stýrimaður og
þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæzl-
unni hefur gengt þessu fulltrúastarfi frá
því í desember sl. er fyrst var skipað í
það.
DV leitaði til hans og spurðist fyrir
um í hverju starf hans væri fólgið.
„Samkvæmt verklýsingu sem gerð
var fyrir þetta starf er mér ætlað að
vera milligöngumaður um gagnkvæm-
ar upplýsingar milli varnarliðsins og
Landhelgisgæzlunnar. í því felst m.a.
aðstoð við sameiginleg björgunarstörf,
milliganga milli islenzkra stjórnvalda
og hersins og aðstoða við samhæfingu
á sviði almannavarna og milligöngu
op'ö fd*&* á&
181,8 Mair
Ob ygginga vörur hf.
Re ykja vtkurveg 64. Hafnarfírði, sími53140.
milli varnarliðsins og íslenzkra aðila á
því sviði. Einnig er ætlazt til að ég sjái
um að upplýsingar berist milli varnar-
liðsins og Landhelgisgæzlunnar um
ferðir erlenda skipa við landið.
Annars er lítil reynsla komin á þetta
starf. Ég hef aðeins komið suður á
Keflavíkurflugvöll nokkra daga í mán-
uði, en sinni annars margháttuðum
störfum á stjórnstöð Landhelgis-
gæzlunnar hér í Reykjavík.
Ég vinn með starfsmönnum á skrif-
stofu yfirmanns varnarliðsins og þeir
hafa tekið mér mjög vel. Ég held að
þeir séu ekki á móti því að fá íslendinga
meira inn í myndina.”
— Fylgistu í gegnum starf þitt að
einhverju leyti með varnarbúnaði á
Keflavíkurflugvelli og hvernig hann er
starfræktur?
„Þetta er að vísu trúnaðarstarf,en ég
fæ engar upplýsingar um bandarísk
trúnaðarmál. Það er heldur ei gert ráð
fyrir því að ég skipti mér af hefðbund-
inni starfsemi hersins. Ég vildi að vísu
sinna þessum þætti meir og fylgjast
ineð á því sviði, en þetta er aðeins
aukastarf sem ekki gefur tilefni til þess.
Auk þess er það eiginlega hlutverk
öryggismálanefndar og varnarmála-
deildar að sinna þessu.
Ég veit ekki hvað mikinn þátt Íslend-
ingar vilja taka í eigin vörnum eða hver
hlutdeild okkar verður í þeim í framtíð-
inni. En mér fyndist ekki óeðlilegt að
Landhelgisgæzlan sinnti þeim þætti
meir og fylgdist betur með á því sviði.
Þar á ég við að vitað væri hvað gæti
gerzt hér við land á stríðstímum og
hvað væri hægt að gera. Þetta er nú á
verksviði Almannavarna og ef til vill að
einhverju leyti líka öryggismálanefnd-
ar.”
— Hvaða undirbúning hefur þú und-
ir þetta starf?
„Ég hef starfað hjá Landhelgisgæzl-
unni frá árinu 1965, lengst af sem stýri-
maður og þyrluflugmaður. En árið
1980 var ég sendur á skóla bandaríska
sjóhersins, US Navy War College á
Rhode Island og var þar í sex mánuði.
Námið var einkum fólgið í herstjórnun
og stjórnun á starfsliði sjóliðsforingja.
Einnig var kennt nokkuð um herfræði.
Nú er annar starfsmaður Landhelgis-
gæzlunnar kominn á þennan skóla.”
Hermann sagði að lokum að starf
fulltrúans væri að mestu ómótað og
það myndi koma í Ijós hvernig það
myndi þróast, — hvort herfræðilegi
þátturinn myndi aukast eða hvort hlut-
verkið yrði að leysa einstök samskipta-
vandamál sem upp kæmu. ÓEF
Selfoss:
FJÖLBREYTT
STARF MED
ÖLDRUÐUM
Undanfarin fjögur ár hefur starf
Styrktarfélags aldraðra á Selfossi
sífellt færzt í aukana, eða allt frá
stofnun félagsins, og er nú orðið
mjög fjölbreytt og gott. Njóta aldr-
aðir Selfossbúar þess í ríkum mæli
bæði vetur og sumar.
Fastur liður i starfsemi félagsins er
opið hús í Tryggvaskála hvern
fimmtudag yfir vetrarmánuðina. Þar
stjórnar Inga Bjarnadóttir spila-
mennsku, söng og dansi frá klukkan
eitt til fimm. En á sumrin er farið í
ferðalög bæði utanlands og innan.
í fyrrasumar var farið í 12 daga
ferð um Austfirðina og kostaði fyrir
manninn 1.500 krónur. Lofuðu eldri
bæjarbúar góðar móttökur og mikla
rausn Austfirðinga, en fæstir höfðu
komið austur áður.
Þá hélt Styrktarfélagið síðasta
þorrablót vetrarins hér á Selfossi og
bauð öldruðum bæjarbúum þangað.
Þetta var 27. febrúar. Formaður
félagsins, Einar Sigurjónsson, setti
samkomuna, sem fór mjög vel fram,
enda allir í sólskinsskapi yfir góðum
og ómenguðum þorramatnum.
Skemmtiatriði voru fjölbreytt. Árni
Valsson söng mjög skemmtilegar
gamanvísur, kór Gagnfræðaskólans
söng og var klappaður upp. Þorlákur
Jónsson flutti minni þorra og kvenna
og var góður rómur gerður að máli
hans.
Lesin var ferðasaga eftir Jóhann
Guðmundsson, 73 ára gamlan, um
ferð aldraðra út í hinn stóra heim, og
það gerði Inga Bjarnadóttir mjög
skörulega. Svo var almennur söngur
undir stjórn hins áhrifamikla manns,
Hafsteins Þorvaldssonar, en undir-
leik annaðist Regína Guðmundsdótt-
ir.
Aldraðir Selfossbúar, sem komizt
hafa upp á lag með að njóta þess sem
Styrktarfélagið býður þeim, eru ákaf-
lega þakklátir því góða fólki, sem að
starfinu stendur. Er það til fyrir-
myndar hve mikið og margt er gert
hér á Sefossi í málefnum bæði gam-
alla og ungra.
Regina.
FERMINGARGJÖFIIM
Ódýra
skáktölvan
kr. 1.796,,-
• 8 kunnáttustig
• Innan við 1 mínútu að hugsa
• Ódýrust á markaðnum
• Gott kennslu- og æfingatæki
• íslcnzkur leiðarvísir
• Fæst í hclztu bóka- og
frímerkjavcrzlunum landsins
HEILDSÖLUBIRGÐIR
FESTI
FRAKKASTÍG 13
SÍMAR 10590 10550