Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Page 9
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Götuvlgi Palestfnumanna á vesturbakkanum en þar er barizt af aukinni hörku. Aukin harka á vesturbakkanum Harðsnúnar ísraelskar bardagasveit- ir hafa verið sendar til þess að halda uppi eftirliti á hernámssvæðunum á vesturbakka árinnar Jordan og i Gaza en þar hefur ríkt mikil ólga að undan- förnu. ísrealskur hermaður var drepinn þar í gær í fyrirsát. En Palestínuarabar á þessum slóðum eru æfir vegna þess að tveim borgarstjórum þeirra var vikið frá störfum í gær af hernámsyfirvöld- um. Brynvagnar og hermenn með mund- aðar byssur eru á ferli um götur helztu bæja þessara landsvæða. Var þeim fjölgað eftir fyrirsátina í gær þar sem handsprengju var varpað að herbíl skammt frá Gaza-bæ. Einn liðþjálfi fórst í sprengingunni en þrír arabar særðust í annarri sprengingu er þeir óku bifreið á eftir hermönnunum. Sjö arabar hafa látið lífið í árekstr- um sem orðið hafa þarna síðustu vik- uná eftir að borgarstjórn bæjarins El Bireh var vikið frá. Fimm voru skotnir af ísraelsmönnum. El Salvador: SKÆRUUÐAR TAKA SKIL- RÍKIN AF VEGFARENDUM Skæruhernaður vinstrisinna í El Salvador, sem ráðnir eru í því að spilla fyrir kosningunum þar um helgina hefur nú færzt inn í höfuðborgina. Þar var í gær ráðizt á aðalskrifstofur raf- magnsveimanna og ýmsa almennings- vagna. Raunar höfðu skæruliðar ráðizt á rafmagnsveiturnar í fyrrinótt en í gær- kvöldi var vélbyssuskothriðin lálin dynja á húsbyggingunni í annað sinn. — Engan sakaði þó og skæruliðarnir komust undan. Fyrr í gær voru fjórir tómir strætis- vagnar og einn vörubíll sprengdir i loft upp með dínamiti. Er það liður í sér- stökum aðgerðum skæruliða til þess að hleypa kosningunum upp, ef svo mætti segja. Vinstrisinnar segja að kosning- arnar séu ekkert annað en sjónarspil en enginn vinstri maður er þar i framboði. Frétzt hefur af bardögum skæruliða og stjórnarhermanna i borginni Usulutan í austurhluta landsins en mis- jafnar sögur fara af því hvorum vegni betur. Segjast skæruliðar hafa aðliggj- andi vegi á valdi sínu en stjórnar- hermenn segja að skæruliðar hafi aðeins eitt þorp í Morazan-héraði á valdi sinu. Lögreglan segir að skæruliðar séu á kreiki í úthverfum höfuðborgarinnar og stöðvi vegfarendur til þess að lúrða af þeim og eyðileggja persónuskilrikin. Skilríkjanna þurfa menn með við kosn- ingarnar á sunnudaginn. Mikill öryggisviðbúnaður er vegna kosninganna og hefur herinn kvatl til höfuðborgarinnar úrvalssveitir sinar til þess að auka eftirlitið. Bilun ífjar- skiptum skutlunnar Fjarskiptasambandið við geimskutl- una Kóluntbíu hefur nú farið úr skorð- um vegna bilunar i öðrum tveggja senda sem um borð í henni eru. Kvíða ntenn þvi, ef bilunin ágerist, að stytta verði geimflug skutlunnar sem upphaflega var ætlað sjö daga langt. Annar sendirinn, sent samræður geimfaranna við stjórnstöðina i Houston fara unt, bilaði i gær og Itefur satnbandið við þá verið lélegl síðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.