Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1982, Side 16
16
íþróttir
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982.
Þrír þeir beztu
neita að keppa á
Wimbledon
— ogeinnigfranska
meistaramótinu ítennis
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, Lundi.
Sænska útvarpiA skýrði frá því í gaer að þrír beztu
tennisleikarar heims, Björn Borg, John McEnroe og
Ivan I.endl, mundu ekki taka þátt í franska meist-
aramótinu I vor eða Wimbledon-keppninni I sumar.
Svíinn Borg sem hefur hvilt sig frá keppni siðustu
fjóra mánuðina neitaði að taka þált i grand prix
mótum alþjóða-lennissambandsins. Það var til þess
að sambandíð ákvað að Borg yrði að taka þátt í for-
keppninni á Wimbledon. Vrði ekki raðað eins og
áður, sem gæti þýtt að hann mætti einhverjum stór-
meistara þegar í fyrstu umferð. Þó sigraði Borg i
Wimbiedon-keppninni fimm ár í röð og lék i fyrra til
úrslita við McEnroe. Tapaði þeim leik. Þá var
McEnroe bezti tennisleikari heims en siðan hefur
Tékkinn I.endl náð frábærum árangri. Hann er nú
talinnsá bezli.
Þeir McEnroe og I.endl hafa ákveðið eins og Borg
að taka ekki þátt i þeim tveimur stórmótum sem
framundan eru að óbreyttum ástæðum. Vilja með
því sýna samstöðu með Birni Borg og telja fram-
komu stjórnar alþjóðasambandsins hreint furðu-
lega. Tennisleikarar megi ekki taka sér hvíld frá
keppni nema verða refsað fyrir.
GAJ/hsím.
24 keppendur í
landsflokkaglímu
— verðurá laugardagað Varmá
Mikil þáttlaka er i landsflokkaglímunni 1982 sem
háð vcrður i íþróttahúsinu að Varmá á laugardag
eða 24 keppendur. Gliman hefst kl. 15.00. Keppt í
fimm flokkum og þálttakendur eru:
Yfirþyngd: yfir 85 kg.
Arni Þór Bjarnason KR
Ingi Þór Ingvarsson HSÞ
Pétur lngvarsson HSÞ
Milllþyngd:
75—85 kg.
Eyþór Pétursson HSÞ
Guðm. Freyr Halldórss. Árm.
Halldór Konráðsson UV
Kristján Ingvarsson HSÞ
Ólafur Haukur Ólafsson KR
Léttþyngd: að 75 kg.
Auðunn Gunnarsson UIA
Árni Unnsteinsson UV
Ásgeir Víglundsson KR
Geir Gunnlaugsson UV
Helgi Bjarnason KR
Karl Karlsson UV
Steinar Bjarnason KR
Unglingafl.: 18—19ára:
Brynjar Stefánsson UÍA
Einar Stefánsson UÍA
Erlingur Ragnarsson HSÞ
Hans Ke- nlf UÍA
Hjörtur Þráinsson HSÞ
Jón Keri .f UÍA
Ólafur Þór Aðalsteinsson KR
Syeinafl: 15 ára.
Agnar Arnþórsson UÍA
Gauti Marinósson UÍA
Erika Hess varð
sigurvegari
— íheimsmeistarakeppni kvenna
Maria Epple, V-Þýzkalandi, sigraði i stórsvigi
heimsbikarsins kvenna í San Sicario á italíu i gær,
siðasta móti keppninnar á þessu keppnistímabili.
Heimsmeistarinn Erika Hess, Sviss, varð sigurvegari
samanlagt hlaut 297 stig. Irene Epple, V-Þýzka-
landi, hlaut 278 stig og i þriðja sæti varð Christin
Cooper, USA, með 183 stig. Siðan komu Cindy
Nelson, USA, og Maric Epple með 158 og 14óstig.
Maria Epple fékk timann 2:23,97 min.í stórsviginu
í gær. Þriðji sigur hennar í vetur. Erika Hell varð
önnur á 2:24.33 mín. og Christin Cooper þriðja á
2:24.70 mín.
í stórsviginu samanlagt varð Irene Epple sigur-
vegari. Hlaut 120stig. Maria Epple varð önnur með
110 stig og Erika Hess þriðja með 105 stig.
-hsím
íþróttir
fþróttir
íþróttir
íþróttir
>$turmn~
i^turnn.
0 Körfuknattleiksmennirnir snjöllu úr Fram sem urðu bikarmeistarar i gærkvöldi.
DV-mynd: Gunnar.
KR-ingar réðu ekkert
við óskabyrjun Fram
— Framarar náðu 21 stigs forskoti (35:14) í byrjun leiksins en undir lokin hékk sigur
þeirra 68:66 á bláþræði
— Ég er í sjöunda himni yfir þessum
sigri, en óneitanlega var ég orðinn
hræddur undir lokin þegar KR-ingar
voru að saxa á forskot okkar, sagði Kol-
beinn Kristinsson, þjálfari Fram, eftir
að Framarar höfðu tryggt sér bikar-
meistaratitilinn í körfuknattleik í
gærkvöldi, með því að leggja KR-inga
að velli í geysilega fjörugum og
skemmtilegum leik í Laugardalshöll-
inni.
Framarar byrjuðu leikinn af miklum
krafti og léku þeir við hvern sinn fing-
ur. KR-ingar áttu ekkert svar við stór-
leik þeirra og eftir 10. min. voru þeir
búnir að ná 11 stiga forskoti (21:10),
síðan 27:10og þegar 3.40 min. voru til
leikhlés var munurinn orðinn 21 stig
fyrir Fram — 35:14. — Ég átti von á
þessari byrjun en ég var alltaf hræddur
við að það kæmi bakslag hjá okkur,
sagði Kolbeinn Kristinsson.
Framarar fengu svo sannarlega bak-
slag því að KR-ingar náðu að minnka
Þorgrímur f rá
keppni íþrjá
mánuði
Þorgrimur Þráinsson, landsliðsbak-
vörður úr Val í knattspyrnu, var skor-
inn upp í gær við rifnum liðþófa. Þor-
grímur mun því verða frá æfingum og
keppni í 2—3 mánuði. -SOS
muninn í 38:26 fyrir leikhlé og þegar 7
mín voru búnar af seinni hálfleiknum
var munurinn aðeins 3 stig — 46:43.
Framarar héldu sinu striki — gáfust
ekki upp og voru lokamínúturnar
geysilega spennandi. Þegar 4,30 mín
voru til leiksloka var staðan 60:57 og
allt komið á suðumark í Laugardals-
höllinni. Framarar komust síðan yfir
64:67, en þá tóku KR-ingar mikinn
fjörkipp og þegar 37 sek. voru til leiks-
loka brunaði hinn efnilegi Páll Kol-
beinsson fram völlinn og skoraði 64:63
og fékk þar að auki vítakast. Þessum
óreynda unglingi brást bogalistin á ör-
lagastundu og Brazy skoraði síðan
66:63. Framarar gáfust ekki upp og sig-
urinn varð þeirra 68:66.
Leikmenn Fram léku mjög vel i
upphafi leiksins og fór Brazy þá á kost-
um. Hirti hvert frákastið á fætur öðru
og skoraði mörg glæsileg stig — tróð
knettinum t.d. tvisvar sinnum fallega
ofan í körfuna já KR. Simon Ólafsson
var einnig sterkur — i varnar- og
sóknarfráköstum. Baráttan var
mikil hjá Fram, en þeir fóru að slaka á
þegar forskotið var orðið 21 stig.
KR-ingar komu aftur inn í myndina
og um tíma leit út fyrir að þeir myndu
ná að jafna metin og komast yftr —
Við misstum Framara of langt frá okk-
ur í byrjun. Það reið baggamuninn,
sagði Jón Sigurðsson, fyrirliði KR, eft-
ir leikinn. — Ég átti ekki von á að við
myndum vinna upp forskot þeirra en
þó gerði ég mér vonir um það undir lok
leiksins. Okkur skorti aðeins herzlu-
muninn — og úthald til þess, sagði Jón.
Alsírbúi æfir með
Skgagamönnum
Skagamenn hafa fengið góðan
liðsstyrk í knattspyrnu, þar sem er
fyrrum unglingalandsliðsmaður frá
Alsír, sem byrjaður er að æfa með
þeim á fullum krafti — og er hann
mjög lipur með knöttinn. Alsírbú-
inn heitir Mustafa og hefur hann
verið búsettur hér á landi í fjóra
mánuði, þannig að hann á að geta
byrjað að leika með Skagamönnum
i íslandsmótinu, þar sem erlendir
leikmenn verða að hafa verið bú-
settir hér á landi í sex mánuði til að
þeir séu löglegir. -SOS
Brazy, Símon og Þorvaldur Geirsson
voru beztu leikmenn Fram og átti Viðar
Þorkelsson góða spretti. Annars var
það barátta og liðsheild Fram sem réð
úrslitum.
Stu Johnson hitti illa í leiknum og
munaði um minna fyrir KR. í byrjun
leiksins skoraði hann ekki fyrr en i sjöttu
skottilraun. Ungu strákarnir hjá KR,
þeir Guðjón M. og Páll Kolbeinsson
komu skemmtilega á óvart — gerðu
marga fallega hluti.
Þeir sem skoruðu stigin i leiknum,
voru:
Fram: Brazy 24/2, Símon 16/2,
Þorvaldur 10, Viðar 8/4, Ómar 6, Guð-
steinn 2, og Björn M. 2.
KR: Stu Johnson 25/3, Jón S. 13/3,
Birgir M. 12/4, Páll 6, Garðar 6 og
Kristján 0.4. gQS
KR-stúlkumar
bikarmeistarar
KR-stúlkurnar urðu bikarmeislarar í
kröfuknattleik kvenna i gærkvöldi,
þegar þær lögðu ÍS að velli 58:51 i
Laugardalshöllinni. KR-stúlkurnar
unnu einnig íslandsmeistaratitilinn.
Emilia Sigurðardóttir skoraði flest stig
KR — 25, en Linda Jónsdóttir 17.
Guðrún Ólafsdóttir skoraði mest fyrir
ÍS — 17 stig. -SOS
„Fram er lið
vetrarins”
____I__
—segir Ðnar Bollason landsliðsþ jálfari
— Framarar eru með lið vetrarins.
Þeir eru Reykjavikur- og bikarmeistar-
ar og þeir fengu silfur i úrvalsdeildinni.
Ég er viss um að íslandsmeistaratitill-
inn hefði orðið þeirra ef Guðsteinn
Ingimarsson hefði ekki farið utan á
miðju keppnistimabili, sagði Einar
Bollason, landsliðsþjálfari i körfu-
knattleik, eftir úrslitaleik Fram og KR í
gærkvöldi.
sagði Kolbeinn Kristinsson, þjálfari
Fram.
Símon Ólafsson, landsliðsmaðurinn
snjalli hjá Fram, var í sjöunda himni
eftir leikinn í gærkvöldi. — Þetta var
sætur sigur. Það var gifurleg spenna
undir lok leiksins þegar KR-ingar voru
að rakna við eftir rothöggið sem við
greiddum þeim, sagði Símon. -SOS
— Ég er mjög ánægður með árang-
ur liðsins í vetur. Get ekki verið annað,
Trausti var
skorinn upp
Trausti Haraldsson, landsliðsbak-
vörður úr Fram i knattspyrnu, verður
frá keppni i 1—2 mánuði þar sem hann
gekkst undir uppskurð á hné í gær.
-SOS
Eyjamenn í
blak-úrslit
Lið ÍBV kom hcldur betur á óvart i
gær i Eyjum í undanúrslitum bikar-
keppninnar í blakinu. Sigraði Bjarma
3—1 nokkuð örugglega og leikur til úr-
slita í keppninni við Þrótt. Bjarmi sigr-
aði í fyrstu hrinunni 15—3. Síðan tóku
Vestmannaeyingar við, unnu 15—8,
15—1 og 15—9 og Haraldur Geir Hlöð-
versson var aðalmaður ÍBV.
FÓV.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1982.
Íþróttí
25
íþróttir
íþróttir
ir
íþróttir
örvænting hjá Ingemar Stenmark:
Veit ekki hvað égá að
gera — kann ekkert
—sagði skíðakóngurinn í gær í viðtali á forsíðu sænska dagblaðsins Kvállsposten
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV i Sviþjóð.
„Það er greinilega farið að halla
undan fæti hjá mér en ég veit ekki hvað
ég á að gera i framtíðinni. Kann ekkert
nema að renna mér á skíðum,” sagði
sænski skíðakóngurinn Ingemar Sten-
mark í viðtali í gær i sænska dag-
blaðinu Kvallsposten. Viðtalinu var
slegið mjög upp á forsíðu blaðsins og
þar kemur greinilega fram, að Ingemar
Stenmark er farinn að hafa áhyggjur af
„Ég reyni að hugsa ekki um þá stað-
reynd að þær eru allar kínverskar,”
sagði Lena Köppen, Danmörku, eftir
að hún vann sér rétt í átta kvenna úrslit
All England mótsins í badminton á
Wembley í gær. Hún sigraði kínverska
stúlku, Xu Rong i 3. umferð i gær 11—
8 og 11—7 en hinar sjö, sem komust
framtíðinni. Allt hans lif undanfarin ár
hefur snúizt um skíði og aftur skiði.
„Ég held ekki að þjálfarastörf henti
mér, held þau falli mér ekki. Veit ekki
hvað ég á að gera, það er ekki mikill
framtíð að lifa á þeim peningum, sem
ég hef aflað og minningum um afrekin
á skíðunum,” sagði Stenmark enn-
fremur í viðtalinu.
Ingemar Stenmark, sem nú er 25 ára,
varð fljótt mikill afreksmaður í alpa-
áfram í gær ásamt Köppen eru allar
kinverskar. „Það eru átta stúlkur eftir
og hver þeirra sem er getur sigrað,”
sagði Köppen.
í þriðju umferð í einliðaleik karla
sigraði Morten Frost Danmörku Dhany
Sartika, Indónesíu, 15—9 og 15—3.
Landi hans Flemming Delfs tapaði hins
greinum á skíðum. Kornungur var
hann kominn í fremstu röð í Svíþjóð og
frá þvi hann var 17 ára hefur hann
verið einn fremsti, ef ekki fremsti
skíðamaður heims á sínu sviði. Það var
því lítið um skólagöngu hjá kappanum,
allt snerist um skíðin og afrekin á þeim
og nú er Ingemar farinn að hafa
áhyggjur af öllu saman, þekkingar-
skorti sínum en framtíðinni þarf hann
ekki að kvíða fjárhagslega. Hann er
augðugur maður á veraldlega vísu.
vegar fyrir Chen Tianlung, Kína, 3—
15, 15—2 og 15—2 en fimm Kínverjar
eru meðal þeirra átta, sem komust
áfram.
Sigurvegarinn frá í fyrra, Liem Swie
King, Indónesíu, komst í fjórðu
umferð með því að sigra Misbun Sidek,
Malasíu, 15—3 og 15—9. Það gerði
einnig Indverjinn Prakash Padukone,
sem sigraði Tian Bingyi, Kína, 15—6
og 15—1. í öðrum leikjum voru kín-
verskir sigrar. Luan Jin sigraði Andy
Goode, Englandi, 15—12 og 15—8,
Han Jian sigraði Hastomo Srbi, lndó-
nesíu, 15—10, 12—15 og 15—10, He
Shangquan sigraði Thomas Kilhström,
Svíþjóð, 15—5 og 15—7. Chen Chang
Jie sigraði Syed Modi Indlandi, 15—5
og 15—3.
Enn von hjá
Týrurum
— eftir sigur á Þór í gær
Týr heldur enn í vonina að halda
sæti sínu í 2. deild íslandsmótsins i
handknattleik. í gærkvöld sigraöi Týr
Þór 21—18 í innbyrðisviðureign Vest-
mannaeyjaliðanna i íþróttahúsinu í
Eyjum. Staðan 12—10 i hálfleik.
Leikurinn var jafn og harður en Týr
hafði yfirleitt forustu. Miklu munaði
að Jón Bragi Arnarsson, markvörður
Týs, varði þrjú vítaköst snemma í
leiknum. Hann var bezti maður liðsins
ásamt Sigurlás Þorleifssyni. Týr hefur
lokið leikjum sínum. Hlotið 11 stig eins
og Afturelding, sem á eftir einn leik við
efsta liðið ÍR. Tapi Afturelding þeim
leik fellur liðið í 3. deild.
Flest mörk Týs í gær skoraði Sigurlás
7. Stefán Halldórsson 5/2, Benedikt
og Gylfi 3 hvor. Karl Jónsson var
markhæstur Þórara með 5/2. Herbert
Þorleifsson 4, Böðvar og Ingólfur 3
hvor.
Staðan í 2. deild er nú þannig.
ÍR 13 10 0 3 234- -217 20
Stjarnan 12 8 1 3 267- -240 17
Breiðablik 14 6 3 5 277- -260 15
Haukar 13 6 2 5 274- -252 14
Þór, Vest. 14 6 1 7 274- -272 13
Afturelding 13 4 3 6 276- -279 II
Týr 14 5 1 8 308- -317 II
Fylkir 13 1 3 9 258- -302 5
-FÓV/hsím.
Síðasti
möguleikinn
Ingemar Stenmark hefur ekki náð
sama árangri f vetur og undanfarin ár.
Hann var þó heimsmeistari i svigi og
annar í stórsvigi en í keppni heims-
bikarsins hefur Bandaríkjamaðurinn
Phil Mahre þegar sigrað samanlagt
annað árið í röð. Bandaríkjamaðurinn
hefur einnig sigrað samanlagt í stór-
svigi. Varð þar fjórum stigum á undan
Stenmark, 105stiggegn 101.
í dag verður keppt í svigi 1 San
Sicario á Ítalíu.
Stenmark verður að sigra þar til að
komast upp fyrir Phil Mahre í stiga-
keppnninni i sviginu, ekkert nema sigur
dugar. „Ég held ég hafi góða mögu-
leika á því að sigra, svigið er mín bezta
grein,” sagði Ingemar Stenmark í
viðtalinu í Kvallsposten. Spennan
verður vissulega mikil á honum. Hann
hefur síðustu sjö árin sigrað samanlagt
í svigi heimsbikarsins og stóra
spurningin hvort honum tekst í dag að
sigra áttunda árið í röð. En þó það
verði ekki á árangur Ingemar Sten-
marks sér enga hliðstæðu i skíðasög-
unni. Hann hefur verið bezti skíða-
maður heims að minnsta kosti fimm
Frá Guðmundi Svanssyni, Akureyri:
Akureyrarmót í svigi 12 ára og yngri
fór fram sl. laugardag í steikjandi hita,
sól og blíöu, i Hlíðarfjalli. Foreldrar og
aðrir aðstandendur barnanna fylgdust
með og mátti vart á milli sjá hverjir voru
spenntari, keppendur eða áhorfendur. Á
stuttum fundi eftir keppnina, sem að
sjálfsögðu var haidin úti i veðurbliðunni
og foreldraráð og SRA hélt með foreldr-
um barnanna, kom fram að hvergi í
heiminum væru haldin jafn mörg skíða-
mót fyrir 12 ára og yngri en á Akureyri.
Úrslit í mótinu urðu þcssi.
11-12 ára drengir
1. Valdímaf VaMimansw KA 38.10 38.07 » 76.77
2. Jón Harðarson KA 39.18 U.89 - 80.07
3. Jðn M. Ragnamon Þór 39.1« <1.35 ■ 80.49
11—12 ára stúlkur
1. Kristin M. Jótiannsdótln Þðt 39.73 42.70 . 82.48
2. Sólveig Gisladóllir Þór 40.79 42.71 . 83.46
3. Lautey Þorstemsd. KA 42,20 43.04 . 80.24
10 ára drengir
1. Sverrir Ragnarssnn Þór 36.27 36J1 - 73.08
2. VHhelm Þnrsteinsson KA 37.43 37Z4 = 74,67
3. Vióar Eaiatsson KA 40Z0 40.74 = 80.94
10 ára stúlkur
1. Ása S. Þrastard. Þór 40,21 40,58 = 80,79
2. Ema Káradóttir KA 43,08 42,09 = 85.17
3. Rakel Reynisdóttir KA 45,45 44,29 = 89,74
Afturelding
sigraði Þór
Afturelding tryggði sér rélt í 8-liða
úrslit bikarkeppni HSÍ með öruggum
sigri á Þór á Akureyri í gærkvöld, 26—
19 eftir 12—8 í hálfleik.
Ingemar Stenmark
siðustu árin, þegar keppnistímabilið nú
er frátalið.
Ingemar Stenmark er nú kominn á
þann aldur þegar fer að halla undan
fæti. Vissulega má búast við því að
hann keppi áfram og verði í fremstu
röð 2—3 ár í viðbót. En dirfska æsku-
áranna er að baki. -GAJ/hsím.
1. Magnús H. Kartsson KA 38,63 36,74 = 73,37
2. Sævar Guómundss. Þór 36,94 37,84 = 74,78
3. AmarM.Arngrimss.KA 39,48 39,10 = 78.58
9 ára stúlkur
1. María Magnúsd. KA 36,93 38,52 = 75.45
2. Mundina Kristinsd. KA 40,73 41,92 = 82.65
3. Harpa örtygsd. KA 44,75 44,14 = 88,89
8 ára drengir
1. Gunnlaugur Magnúss. KA 36,40 36,98 = 73,38
2. Stefán Þ. Jónsson KA 39,42 41,14 = 80,56
3. Ingóttur Guðmundss. Þór 41,65 41,32 = 82,97
8 ára stúlkur
1. Harpa Hauksdóttir KA 38,43 39,71 = 78,14
2. Linda Pálsdóttir KA 40,21 42,21 = 82.42
3. Harpa Haösdóttir Þór 46,81 46,88 = 93,67
7 ára og yngri drengir
1. Þórteifur K. Kartss. KA 40,10 42,12 = 82,22
2. Róbert Guðmundss. Þór 45,31 45,03 = 90,34
3. Amar Frióriksson 49,37 47,70 = 97,07
7 ára og yngri stúikur
1. Sisi Matmquist Þór 42.44 45,90 = 88.34
2. Erta H. Siguröard. Þór 46,13 47,42 = 93,55
3. H8dur ö. Þorstoinsd. KA 47,69 47,13 = 94,82
Magnús Karlsson sigurvegari i 9 ára
Bokki drengja. DV-m.vnd G.Sv.
Fimm reknir af velli rétt
fyrir leikslok
—þegar ÍR sigraði Breiðablik
Það sauð heldur betur upp úr í
íþróttahúsinu að Varmá í gærkvöld í
leik Breiðabliks og ÍR í 2. deild karla í
handknattleiknum. Dómararnir, Helgi
Gunnarsson og Einar Sveinsson, véku
fimm leikmönnum af velli rétt undir
lokin, fjórum úr Breiðabliki og einum
úr ÍR. Staðan var þá 16—15 fyrir ÍR og
breyttist ekki þrátt fyrir brottrekstrana,
ÍR sigraöi 16—15.
ÍR komst í 4—1 í byrjun og hafði
alltaf yfir í leiknum, 9—8 í hálfleik.
Það var ekki gæða-handbolti, sem liðin
léku. Heldur rólegur.
Mörk ÍR skoruðu Sigurður Svavars-
son, 4, Sighvatur Bjarnas. 3, Björn
Björnsson 3, Einar Björnsson, Brynjar
Stefánsson og Einar Valdimarsson 2
hver. Flest mörk Breiðabliks skoraði
Björn Jónsson eða 6. Ólafur Björnsson
þrjú. ÍR leikur við Aftureldingu að
Varmá á mánudag og þarf að sigra í
þeim leik til að tryggja sér efsta sætið í
deildinni. Guðmundur Þórðarson og
Ársæll Kjartansson léku ekki með ÍR í
gær, eru í Austurríki, en koma heim á
morgun.
Bikarkeppni HSÍ:
Stórleikur Þróttar
og Víkings í kvöld
Það verður stórlcikur i Laugardalshöllinni 1 kvöld I bikarkeppni handknatt-
lcikssambandsins. Þá leika bikarmeistarar Þróttar við Islandsmeistara
Víkings í 16-iiða úrslitum um réttinn að komast í 8-liða úrslit. Leikurinn hefst
kl. 20.00 og er siðasti leikurinn í 16-liða úrslitum. í bikarkcppninni í fyrra
léku Þróttur og Víkingur til úrslita. Það var hörkuleikur og Þróttur sigraði
mcð eins marks mun, 21—20. V arð því bikarmeistari. ,
Það má búast við hörkuleik milli liðanna í kvöld. Liðin með sína beztu leik-
menn nema Ólafur Benediktsson leikur ekki í marki Þróttar. Um siðustu
helgi vann Þróttur stórsigur á bikarmeisturum Ítalíu og á laugardag varð Vík-
ingur Íslandsmeistari þriðja árið í röð. Liðin hafa því verið heldur betur í |
sviðsljósinu að undanförnu og ekkert verður gefið eftir í kvöld.
All England badmintonkeppnin:
Tólf Kínverjar eftir af
16 í einliðaleik!
SÓLSKINSMÓT í
HUÐARFJALU
9 ára drengir
TOMMA
HAMBORGARAR
TOMMA-RALLY
27.-28. MARS ’82
Fyrsta rallí ársins vcrður haldið um hdgina
Ræst verður frá Fáksheimilinu kl. 10 luugardag og sunnudag.
Endað við Tommaborgara v/Grensásveg báða dagana kl. 18:00.