Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1982, Page 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 23. APRlL 1982.
19
Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina
Frá æfingu á Meyjaskemmunni en æfingar hafa staöiö undanfarin kvöld. DV-mynd Bjarnleifur.
Frumsýning helgarinnar—Þjóðleikhúsið:
Gamalkunnur söngleikur á
f jölum Þjóðleikhússins
—f rumsýning á Meyjaskemmunni annað kvöld
Tilkynningar
Handbók verkalýðsfólaga
Ot er komin hjá Menningar- og frœöslusambandi al-
þýöu önnur útgáfa Handbókar verkalýösfélaga.-
Fyrsta bókarinnar kom út áriö 1976 og seldist þá
fljótlega upp.
Þessi önnur útgáfa Handbókarinnar er mikið auk-
in og endurbætt frá þeirri fyrri. í henni er að fmna
margháttaðar upplýsingar sem snerta verkafólk og
verkalýösfélög. Bókin skiptist i 11 kafla. í 1. kaflaer
fjallaö um ASÍ og stofnanir tengdar þvi. í 2. kafla er
fjallað um orlofsmál og i 3. kafla eru ýmis lög sem
snerta réttindi verkafólks auk þess sem birtir eru all-
margir dómar um málefni þess. í 4.-6. kafla eru
upplýsingar um heilbrigðis- og öryggismál vinnu-
staða, almanna- og atvinnuleysistryggingar og lif-
eyrissjóði. I 7.—8. kafla er fjallaö um húsnæðis- og
neytendamál og í 9.—11. kafla eru ýmsar upplýsing-
ar um alþjóöleg samskipti verkalýðssamtaka, félags-
og fundarstörf, vísitölur svo eitthvað sé nefnt.
Að ofangrcindri upptalningu má sjá að bókin ætti
aö geta verið þeim mjög handhægt uppsláttarrit sem
láta sig málefni verkafólks og verkalýösfélaga eitt-
hvað varða.
í formála annarrar útgáfu Handbókar verkalýðs-
félaga segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
m.a.:
,,Í nafni Alþýöusambands íslands fagna ég þvi að
útgáfa handbókar skuli nú orðin fastur liöur i
fræðslustarfi samtakanna. Af reynslunni veit ég, að
Handbókin mun koma aö drjúgum notum, jafnt i
Félagsmálaskólanum og trúnaðarmannanámskeið-
um, sem í daglegu starfl trúnaöarmanna og allra
virkra félagsmanna.” Handbók verkalýðsfélaga er
555 bls. að stærð og hana er hægt að fá hjá Menn-
ingar- og fræðslusambandi alþýðu, Grensásvegi 16
Reykjavik. Bókina er auk þess hægt að fá senda í
póstkröfu og er tekiö viö pöntunum hjá MFA i sima
84233.
Afturalding
Nýlega kom út Afturelding, 1. tbl. 49. árg. 1982.
Neðal efnis i blaðinu er að fjallað er um hvernig spá-
dómur biblíunnar og atburðir nútímans fara saman.
Nokkrir einstaklingar spurðir: Væntir þú endur-
komuKrist, hvenær? Hvernig? Erlendar fréttir. í leit
að sannleikanum, Þórarinn Hafberg segir frá og
margt fleira fróðlegt.
Minningarspjöld
Minningarspjöld
Landssamtakanna
Þroskahjálp
eru til sölu á skrifstofu samtakanna Nóatúni 17, simi
29901.
Gamalkunnur og vinsæll söng-
leikur, Meyjaskemman, verður frum-
sýndur í Þjóðleikhúsinu á laugar-
dagskvöld með alþekktri tónlist eftir
Franz Schubert. Meyjaskemman er
saga af ástum og ástarraunum
Schuberts en að vísu ekki byggð á
raunverulegum atvikum gagnstætt
því sem nokkuð almennt er álitið.
Texti óperettunnar er eftir A.M.
Willner og Heinz Reinhert en ung-
verskættaða tónskáldið Heinrich
Berté bjó tónlist Schuberts til sviðs-
flutnings. Berté hafði upphaflega
samið sjálfur tónlist við verkið en
henni var hafnað á þeirri forsendu að
hún stæðist engan samanburð við
tónlist Schuberts sjálfs.
Leikstjóri sýningarinnar er frá
Austurríki og heitir Wilfried Steiner.
Hann á langan feril að baki sem leik-
stjóri og leikari og hefur starfað í
flestum borgum Austurrikis og V-
Þýzkalands.
Sinfóníuhljómsveit íslands leikur
undir stjórn Páls P. Pálssonar en
mikill fjöldi söngvara og leikara
kemur fram í sýningunni — eða um
fimmtíu manns.
Þýðing söngleiksins er eftir Björn
Franzson, Sigurjón Jóhannsson gerir
leikmynd og búninga og Páll
Ragnarsson sér um lýsingu.
Sigurður Björnsson fer með hlut-
verk Schuberts sjálfs, Júlíus Vífill
Ingvarsson með hlutverk Schober.
Systurnar þrjár í Meyjaskemmunni
eru Katrín Sigurðardóttir, Kristín
Sædal Sigtryggsdóttir og Elísabet F.
Eiriksdóttir. Þetta er frumraun
Katrinar í Þjóðleikhúsinu, en hún
hefur verið við söngnám í Svíþjóð.
Guðmundur Jónsson og Þuríður
Pálsdóttir eru foreldrar stúiknanna í
sýningunni, þeir Kristinn Hallsson,
Halldór Vilhelmsson og Bergþór
Pálsson eru félagar þeirra Schuberts
og Schobers. Anna Júlíana Sveins-
dóttir er í hlutverki Guidittu Grisi
óperusöngkonu. Fjöldi leikara kemur
einnig fram i sýningunni, eins og
áður sagði, og með stærstu leikara-
hlutverkin fara Jón S. Gunnarsson,
Kristján Viggósson, Árni
Tryggvason, Erlingur Gíslason og
Herdís Þorvaldsdóttir.
Meyjaskemman var fyrst sýnd hér
á landi í Iðnó á vegum Hljómsveitar
Reykjavíkur árið 1934 og var dr.
Franz Mixa hljómsveitarstjóri. Leik-
stjóri þá var Ragnar E. Kvaran.
Sömu aðilar stóðu að annarri sýningu
á sama stað árið 1939. Útdráttur úr
óperettunni var fluttur í Austur-
bæjarbíói og síðan í útvarpinu.
Meyjaskemman hefur einnig verið
sviðsett víða um landið og notið
mikilla vinsælda.
-ELA.
Ýmislegt
o
Ægir, rit, fiskifólags íslands,
75. árg., 3. tbl. 1982
er nýkomið út. Meðal efnis í blaðinu eru greinar um
laxeldistilraunir í Lóni i Kelduhverfi 1980—82, at-
hugun á veiðiskýrslum úr nokkrum laxveiðiám norö-
austan- og austanlands 1969—1981. Einnig er sagt
frá algengum kvillum i isl. laxeldisstöðvum
könnun á ástandi laxastofnsins i EUiöaám og hag-
kvæmustu nýtingu hans og margt fleira.
^|^!Targií•
Sandemo
álagafjötpar
Prenthúsið hefur gefið út fyrstu bókina i bóka-
flokknum SAGAN UM ÍSFÓLKIÐ og heitir hún
ÁLAGAFJÖTRAR.
Sagan um ísfólkið er ættarsagaen sú bölvun hvllir
yfir ættinni, aö forfaöir hennar, Þengill hinn illi,
gerði samning við paura sjálfan og verður einn af
hverri kynslóð að ganga honum á hönd.
Á bókakápu segir: Silja Arngrímsdóttir var aðeins
sautján ára þegar ættingjar hcnnar létust i plágunni
árið 1581. Hún gekk aöframkomin af hungri og
kulda að líkbrennunum fyrir utan Þrándheim með
tvö börn í sinni umsjá til að orna sér ögn. Það var
aöeins einn sem hjálpaöi Silju á neyöarstundu
maður af ættbálki isfólksins, sem Silju fannst bæði
dýrslegt og ógnvekjandi — og óendanlega aðlaðandi
samtimis.
Í sögunni fléttast saman fordæðuskapur, hjátrú
Fundir
Fundaskrá
AA-samtakanna á
Íslandí
Föstudagur
REYKJAVÍK
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsið kl. 14.00
Tjarnargata 5. Græna húsið Enska. kl. 19.00
Graham, simi 20129
Tjarnargata 5 (91-12010). Græna húsiö, opinn fjöl;
skyldufundur kl. 21.00
Tjarnargata 5 (91-12010). lokaöur uppi kl. 21.00
Tjarnargata 3 Rauöa húsið, Hádegisfundurkl. 12.00
Tjarnargata 3 (91-16373). Rauöa húsiö kl.'2l .00
Hallgrimskirkja, Byrjendafundir kl. 18.00
Ingólfsstræti 1 á 3h kl. 21.00
Neskirkja, 2. deild kl. 18.00
Neskirkja kl. 21.00
LANDIÐ
Akureyri, Sporafundur kl. 21.00
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39 kl. 12.00
Hellissandur, Hellisbraut 18 kl. 21.00
Húsavík, Höfðabrckka 11 kl. 20.30
Neskaupsstaöur, Egilsbúð kl. 20.00
Selfoss, (99-1787). Sigt. 1, Sporafundur kl. 20.00
Kirkjustarf
Kvenfólag
Óháða safnaöarins
Næstkomandi laugardag, klukkan 14, verður
föndurkennsla i blómum úr næloni, kaffiveitingar á
eftir.
Komdu og
láttu Dröfn sýna þér
byltingu í
matreiöslu 1
laugardaginn 24. apríl kl. 10-12.
Sjáðu hvernig bakað er á 1 mínútu, matur hitaöur á
örskammri stund, hvernig krakkarnir geta poppað án þess
að brenna sig éða eyðileggja pottana þína. Og sunnudags-
læriö stiknar á 20—30 mínútum.
TOSHIBA-örbylgjuofnarnir bjóða upp á stórkostlega mögu
leika fyrir fjölskyldur, sem borða á mismunandi tima, borða
mismunandi fæði (megrun, magasjúklingar). Toshiba
ofnamir eru svo einfaldir og öruggir í notkun, að böm geta
matreitt i þeim.
Til Drafnar H. Farestvcit.
hússtjórnarkennara
Einar Farestveit & Co. hf.
Bergstaðastræti 10A.
Toshiba ER669
Verð frá 5.560,
Vinsamlega póstsendið
frekari upplýsingar
Ffladelffukirkjanl
Safnaðarguðsþjónusta verður á sunnudag kl. 14.
Almenn guðsþjónusta klukkan 17. Ræðumaður Eric
Dando frá Englandi.
Toshiba örbylgjuofn er meira en bara venjulegur örbylgju-
ofn, þú getur matreitt og bakað i honum flestar uppskrift-
irnar þínar.
Nafn........
Heimilisfang
Kirkja Óháða
safnaðarins
Messa klukkan 14 sunnudag. Safnaðarpresturinn,
séra Emil Ðjörnsson, er komin til starfa að loknu
veikindafríi.
Og siðast en ekki síst, svo þú fáir fullkomið gagn af
Toshiba ofninum þínum, býður Dröfn þér á matreiðslu-
námskeið án endurgjalds.
Stærstir 1 gerð örbylgjuofna
Safnaöarstjórnin.