Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1982, Side 4
20
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 1982.
Hvað er á seyði um helgina Hvaðeráseyði um helgina Hvað er á seyði un
Bók vikunnar—Bráðum kemur betri tíð...
Ljóð Laxness í sér-
stakrí afmælisúlgáfu
— bókin myndskreytt af Ragnheiði
Jónsdóttur myndlistarmanni
Bók vikunnar að þessu sinni er án
efa bókin Bráðum kemur betri tíð. . .
sem út kemur í dag í tilefni af
áttræðisafmæli Halldórs Laxness. í
bókinni er úrval af ljóðum eftir
skáldið sem Kristján Karlsson bók-
menntafræðingur hefur valið „að
eigin sérvizku”, eins og hann sjálfur
orðaði það. Nafn bókarinnar er
dregið af upphafi fyrsta ljóðsins í
Kvæöakveri Halldórs Laxness sem út
kom árið 1930.
Það er bókaútgáfan Helgafell sem
gefur bókina út en útgáfan minnist
afmælis Laxness með þessum hætti
þar sem bókaútgáfan hefur gefið út
flestar bækur hans.
f bókinni eru tuttugu og fimm Ijóð
og er hún fagurlega myndskreytt af
Ragnheiði Jónsdóttur myndlistar-
manni. Ekki er algengt að mynd-
listarmenn skreyti bækur rithöfunda,
þvi miður, en Ragnheiður Jónsdóttir
sagði, er bókin var kynnt blaða-
mönnum, að hér hefði hún fengið
mjög skemmtilegt viðfangsefni. „Ég
hefði getað haldið áfram endalaust,”
sagði hún.
,,Þó að Halldór hafi að sjálfsögðu
lagt meiri stund á aðrar greinar bók-
mennta en ljóðlist leyfir Helgafell sér
að minna á þýðingu hans sem ljóð-
skálds með þessari vönduðu afmælis-
útgáfu,” sagði Erna Ragnarsdóttir er
hún kynnti bókina fyrir hönd Helga-
fells.
í bókinni eru ljóð úr Kvæðakveri
Laxness í meirihluta en einnig ljóðið
Glugginn úr Sjömeistarasögu. Til
myndskreytingar á bókinni valdi
Ragnheiður sér Glugga og túlkaði
hún hann sem glugga á vinnustofu
skáldsins og þaö sem hann sér út um
hann.
Væntanlega láta ljóðaunnendur
bók þessa ekki fram hjá sér fara en
hún er gefin út í mjög takmörkuðu
upplagi eða um eitt þúsund ein-
tökum. Bókin kostar 580 krónur.
-ELA.
Frá blaðamannafundi þar sem búkin var kynnt en hún kemur út í dag, á afmælis-
degi skáldsins.
DV-mynd Einar Ólason.
og miskunnarlcysi, ástir, kynlif og mannúö.
Höfundur bókaflokksins, MARGIT SANDEMO,
cr þekkt og mikils metin af öllum þeim sem lesa
vikublöð, enda hefur hún skrifað rúmlega fimmtíu
framhaldssögur. Söguna um ísfólkiö skrifaöi hún
hins vegar samkvæmt sérstakri beiðni norska út-
gáfufyrirtækisins Bladkompaniet. Prenthúsið hefur
samiö um útgáfurétt á þessum bókum á íslenzku.
Morgan
Fréttatilkynning
Út er komin 32«bókin i bókaflokkunum um Morgan
Kane og heitir hún JAFNOKI KANES.
Eigendur tveggja gamalla óöalssetra áttu í deilum
um olíusvæðiö mitt á milli þeirra.
„Silver Oaks” haföi leigt sér byssymann, sem
kallaði sig „Neches”. Að baki þessa dulnefnis var
fyrrverandi logregluforingi, hinn fordrukkni Morg-
an Kane....
„Lexington Twenty” hafði leigt sér haltan, ljós-
hærðan byssumann sem var blíðmæltur og bláeygð-
ur — með byssu við mjöðm, derringer í jakkaerm-
inni og hagla-byssu í hendinni.
Þetta voru tveir hættulegustu mennirnir fyrir vest-
an. Aðeins annar þeirra gat lifað af fundinn — en
hvor?
Róttur til róttinda
„Réttur til réttinda! Hvaða réttindi höfum við og
hvaða réttindi höfum við ekki? Hvaða umbætur
viljum við?” Svo nefnist umræöudagskrá á fundi
Samtakanna ’78, félags lesbía og homma á íslandi,
er verðu haldinn á Hótel Loftleiðum á laugardaginn
kl. 17.
Rætt verður um misrétti, sem lesbíur og hommar
verða fyrir og kynnt stefna erlendra samstarfsfélaga
gagnvart slíku, sem og aðgcrðir og árangur.
Fundurinn er opin öllum lesbíum og hommum,
félagsmönnum og öðrum.
Tilkynning
Dregið hefur verið í leikfangahappdrætti systrafé-
lags Innri-Njarðvikurkirkju.
Vinningsnúmer: 66, 435, 1968, 315, 1757, 1559,
937, 229, 935, 286, 354, 188, 69, 1831, 67, 2333,
2125, 1981, 61, 60, 2175, 748, 1818, 1241, 1113,
1558, 1424, 282, 129, 1141,816, 855,283,888,2316,
918, 1268, 1344, 1336, 1118,2431,44,427,398, 432,
1297, 2384, 1992, 1617, 268, 1055, 54, 1140, 612,
633. Uppl. eru gefnar í síma 6031 og 6067.
Afmæli
Fókur 60 óra
Félagar í hestamannafélaginu Fáki munu fara í
mikla hóprsiö upp í Mosfellssveit á 60 ára afmælis-
degi félagsins, 24. apríl. Farið verður frá Fáks-
svæðinu og aö Hlégarði í Mosfellssveit. Söngur og
lúörablástur munu lífga upp á feröalagiö. Um
kvöldið verður dansleikur í Hlégarði.
íþróttir
fþróttir um helgina:
Föstudagur
Knattspyrna:
Melavöllur: KR-Víkingur í Reykjavikurmótinu —
kvenna kl. 18.30 ogkl. 19.45 Fram og Fylkir.
Laugardagur:
Knattspyrna
Melavöllur: Fram og KR í Reykjavíkurmótinu kl.
14.
Hafnarfjörður: FH-Akranes á Kaplakrikavelli í
litlu-bikarkeppninni kl. 14 og strax á eftir Haukar-
Keflavik.
Sunnudagur:
Knattspyrna:
Melavöllur: Ármann-Þróttur kl. 14 í Reykjavíkur-
mótinu í knáttspyrnu.
Knattspyrnumót
Föstudagur 23. april
Melav. — Rm.mfl.kv.—KR:Vík. kl. 18.30
Melavöllur — Rm. mfi. kv. — Fram: Fylkirkl. 19.45
Háskólav.—-Rm. 1. fl. —-Léttir:Þróttur kl. 19.00
Víkingsv.—Rm. 1. fl.—Vík.:Armann kl. 19.00
Breiðholtsv.—Rm. 2. fl. A—ÍR:Leiknir kl. 19.00
Árbæjarvöllur — Rm. 3. fi. A — Fylkir: ÍR kl. 19.00
KR-völlur — Rm. 3. fl. A — KR: Valur kl. 18.45
KR-völlur — Rm. 3. fl. B — KR: Valur kl. 20.00
Þróttarv.—Rm. 3. fi. A.—Þróttur:Vík. kl. 18.45
Þróttarv.—Rm. 3. fi. B—Þróttur:Vík. kl. 20.00
Laugardagur 24. april
Melavöllur — Rm. mfl. —KR: Fram kl. 14.00
Fellavöllur — Rm. 4. fl A — Leiknir: Fram kl. 13.30
Breiðholtsv.—Rm. 4. fl. A—ÍR:Fylkir kl. 13.30
„Lengst inni í frumskóginum, á trúboðsstöð hjá þrcmur nunnum, fann ég gamla
enska orðabók...”
Nýlistarsýning helgarinnar
— Vatnsstíg3b:
Málar myndirnar
meðan á sýn-
ingunni stendur
—Olle Tallinger f rá Svíþjóð
Nýlistasafnið við Vatnsstíg er að frumskóginum, á trúboðsstöð hjá
verða æ vinsælli sýningarstaður. þremur nunnum, rakst ég á enska
Þetta eru fyrrverandi húsaky.ini orðabók og fór að grufla í henni.
Rydens-kaffibrennslunnar, há og
þröng, hvitkölkuð herbergi. Ólíkustu Smátt og smátt varð ég heUlaður af
listaverk njóta sín þarna vel, sama þeim mörgu merkingum sem búið
hvort eru risastórar járnmyndir Árna geta í einu orði. Og ég fékk ótal hug-
Páls og Magnúsar eða tauteppi Tótu. dettur. Eins og til dæmis
Á föstudag kl. 20 opnar Olle Tall- „avalanche”. Það þýðir snjóskriða.
ingar, ungur Svíi, búsettur í Kaup- Jafnframt þýðir það skyndileg eyði-
mannahöfn, nýstárlega sýningu á iegging. Eða eitthvað sem hvolfist
þessum stað. Hann setur upp 15 hvít- yfir mann, af saklausara tagi, eins og
málaða striga og 15 skilti sem á eru óvenjumikill póstur.
letruð orð. Siðan byrjar hann að Á sýningunni mála ég eina mynd út
mála myndirnar og ætlar að reyna að frá hverju orði. Þær eru allar metra
verða búinn á tíu dögum. Sýningar- háar, en fyrsta orðið er einn bók-
gestir fá sumsé að sjá listamann stafur og myndin 16 cm breið, næsta
vinna! En það mun fyrir suma lang- orð tveir bókstafir og myndin 32 cm
þráðsjón. breið, síðasta orðið 15 bókstafir og
,,Ég fékk hugmyndina í Afríku, myndin2,40m breið.”
Zambíu, þangað sem ég fór í fyrra að Sýningin verður opin alla daga frá
heimsækja móður mína. sem er 23. apríl til 2. maí frákl. 14—22.
hjúkrunarkona þar. Lengst inni í
Austfirðingafélagið í Reykjavík:
EFNIR TIL SAMK0MU HL KYNNINGAR
Á BYGGÐARLÖGUM Á AUSTURLANDI
Austfirðingafélagið í Reykjavík
efnir um þessar mundir til nokkurrar
nýjungar í sarfsemi sinni. Er þar urn
að ræða kynningarsamkomur, til-
einkaðar ákveðnum byggðarlögum á
Austurlandi hverju sinni. Fyrsta sam-
koman af þessu tagi verður haldin í
veitingahúsinu Glæsibæ sunnu-
daginn 25. apríl og hefst kl. 14.
Samkoman verður helguð þrem
syðstu hreppum Suður-Múlasýslu,
þ.e. Geithellnahreppi, Búlandshreppi
og Beruneshreppi.
Eysteinn Jónsson, fyrrum ráð-
herra, ræðir um svæðið frá Lóns-
heiði að Streiti og sýnir litskyggnur.
Sjálfur er Eysteinn uppalinn á Djúpa-
vogi og þekkir því þessi byggðarlög
mjög vel.
Doktor Jakob Jónsson les eigin
óprentuð ljóð, Ásdís Ríkharðsdóttir
tónlistarkennari les kvæði eftir föður
sinn, Rikharð Jónsson myndhöggv.
iara, og Birgir Stefánsson kennari les
ljóð eftir Eirík Sigurðsson skóla-
stjóra og rithöfund. Þá mun Grímur
M. Helgason handritavörður flytja
ýmsan fróðleik úr gömlum sóknar-
lýsingum.
Samkoma þessi er öllum opin. Gert
er ráð fyrir að góður tími gefist til
samræðna á milli atriða. Veitingar er
hægt að fá á staðnum.
-ELA.
Eysteinn Jónsson, fyrrum alþingis-
maður og ráðherra, ræðir við gesti á
Austfirðingahátið á sunnudag.