Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1982, Síða 5
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 23. APRÍL 1982.
21
i heigina Hva&^er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina
Valsvöllur — Rm. 4. fl. A — Valur: KR kl. 13.00
Valsvöllur — Rm. 4. fl. B — Valur: KR kl. 14.15
Víkingsvöllur — Rm. 4. fl. A — Víkingur:Þrótturkl.
Víkingsv.—Rm. 4fl. A—Vík.:Þróttur kl. 13.00
Víkingsvl—Rm. 4. fl.B—Vik.:Þróttur kl. 14.15
Framv.—Rm. 5. fl. A—Fram:Leiknir kl. 13.00
Framv.—Rm 5. fl. B—Fram:Leiknir kl. 14.00
Árbæjarvöllur — Rm. 5. fl. A — Fylkir: ÍR kl. 13.00
Árbæjarvöllur — Rm. 5. fl. B — Fylkir: ÍR kl. 14.00
KR-völlur — Rm. 5. fl. A — KR: Valur kl. 13.00
KR-völlur — Rm. 5. fl. B — KR: Valur kl. 14.00
Þróttarv.—Rm. 5. fl. A—Þróttur:Vík. kl. 13.00
Þróttarv.—Rm. 5. fl. A—Þróttur:Vík. kl. 13.00
Þróttarv.—Rm. 5. fl. B—Þróttur—Vík. kl. 14.00.
Sunnudagur 25. apríl
Melavöllur — Rm, mfl. — Ármann: Þróttur.
Tapað -fundið
HJálp
300 krónur í fundarlaun
Hafið þið séð eða orðið vör við köttinn okkar,
Tiswin, sem hvarf frá Lindargötu 61? Hann er stór
og loðinn, svartur með hvíta bringu og hefur rautt
hálsband. Vinsamlegast látið vita i síma 84436. Sá
sem getur afhent okkur Tiswin fær 300 krónur.
Þessi f ríðieiksköttur
er týndur
Hann er auðþekkjanlegur því að hann er af angóra-
kyni með óvenjuloðið skott og stóran hvitan smekk
á bringunni. Kisi hvarf eiganda sínum við Réttar-
holtsveg en á annars heima i Skipasundi. Síminn þar
er 33938 og væri heimilisfólkið fegið ef einhver gæti
upplýst hvar kisi er. Hann hefur verið týndur síðan á
föstudaginn.
Gönguferðir
Frá Ferðafólagi
íslands
Dagsferðir sunnudaginn 25. april.
1. Kl. 10: Hengill (767 m). Fararstjóri: Hjalti Krist-
geirsson. Verð kr. 60.
2. Kl. 13: Jósepsdalur — ólafsskarð — Lambafell.
Fararstjóri: Sigurður Kristinsson. Verð kr. 60.
Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far-
miðar viðbil.
Miðvikudaginn 28. apríl kl. 20.30 efnir Ferða-
félagið til kvöldvöku að Hótel Heklu. Árni Bjöms-
son þjóðháttafræðingur segir frá byggð
útilegumanna víðsvegar um landið og þá einkum
Fjalla-Eyvindar. Frásögn Árna verður í máli og
myndum. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Kvikmyndir
Kvikmyndir gerðar eftir
skáldsögum
Jacks London sýndar (MÍR
Tvo næstu sunnudaga verða sýndar gamlar sové/kar
kvikmyndir gerðar eftir skáldsögum Jacks London i
MÍR-salnum, Lindargötu 48. „Úlfhundurinn” verö-
ur sýndur sunnudaginn 25. april og „Mexikaninn”
2. maí, báða dagana kl. 16.
„Úlfhundurinn” er svart-hvít mynd, gerð 1946
undir stjóm sové/ka kvikmyndagerðarmannsins
Alexanders Zguridi, sem var kunnur á árum áður
fyrir náttúru- og dýralífsmyndir sínar. í skáldsögu
Londons og kvikmyndinni er lýst lifinu i skógi á
norðurslóðum. Allur fyrri hluti myndarinnar fjallar
um úlfa, lífið i úlfabæli og uppvöxt hvolpanna. í
siðari hlutanum er svo sagt frá samskiptum úlf-
hundsins Hvítings og manna. Með aðalhlutverk i
myndihni fara Oleg Shakov, Lév Sverdlin og Orip
Abúlov. Skýringatextar á ensku. Skáldsagan „Úlf-
hundurinn” kom út hjá forlagi ísafoldar 1967.
Aögangur að MÍR-salnum er ókeypis og öllum
heimill.
Listasöfn
Ustasafn Alþýðu
Grensásvegi16
öm Þorsteinsson heldur sýningu á málverkum,
teikningum, lágmyndum og skúlptúr.
örn er fæddur i Reykjavík árið 1948, hann
stundaði nám i Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1966—’71 og framhaldsnám viö listaskólann í
Stokkhólmi.
Sýningin verður opin daglega frá klukkan 14—22
og stendur yfir til 9. maí.
KJARVALSSTAÐIR MIKLATÚNI: Nýlega opnaði
Höskuldur Björnsson málverkasýningu. Á sýn-
ingunni eru náttúrulifs- og landslagsmyndir. Sýning-
in verður opin daglega frá klukkan 14.00—22.00.
Henni lýkur2. mai.
ASMUNDARSALUR, Freyjugötu: Engin sýning
fyrr en 26. apríl.
ÁRBÆJARSAFN: Opið samkvæmt umtali i sima
84412 á milli klukkan 9 og 10.
ÁSMUNDARSALUR Freyjugötu, sími 14055:-
Engin sýning fyrr en 24. apríl.
LISTASAFN Lsland v/Suðurgötu: Yfirlitssýning
Brynjólfs Þórðarsonar 1896—1938. Sýningin mun
standa yfir til 2. maí og er opin þriðjudaga og
fimmtudaga frá klukkan 13.30—16 og laugardaga
og sunnudaga frá klukkan 13.30—22.
MOKKA—KAFFI, Skólavörðustíg 3a, sími 21174:
Kristinn Guðbrandur Harðason og Helgi Þorgils
Friðjónsson sýna samvinnuverk með pastillitum.
Gallerí Kirkjumunir, KirkjustræU 10. Sigrún Jóns-
dóttir sýnir batik og kirkjuskreytingar. Opið virka
daga frá kl. 9.00—18.00 og um helgar frá kl. 9.00—
16.00.
Gallerí Langbrók, Amtmannsstíg 1: Sýning á verk-
um einnar Langbrókarinnar.
Listmunahúsið Lækjargötu 2: Vignir Jóhannsson
myndlistarmaður sýnir verk sín í Listmunahúsinu.
Sýningin mun standa yfir til 25. apríl og er opin alla
virka daga nema mánudaga frá kl. 10—18. Um helg-
ar verður sýningin opin frá kl. 14—20.
HÖGGMYNDASAFN Ásmundar Sveinssonar: sími
32155: Opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga
frákl. 14—16.
ÁSGRÍMSSAFN.Bergstaðastræti 74, simi 13644:
Opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
13.30—16. Vetrarsýning.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ: Safnið er opið þriöjudaga,
fimmtudaga og um helgar, frá kl. 13.30. Síminn er
22220.
Leiklist
Þjóðleikhúsifl
um helgina
Síðasta sýningin á Húsi skáldsins eftir Halldór
Laxness verður á föstudagskvöldið, 23. apríl, á af-
mæli skáldsins. Leikgerðin er eftir Svein Einarsson
leikstjóri er Eyvindur Erlendsson og Sigurjón
Jóhannsson gerir leikmynd og búninga, en tónlistin
er eftir Jón Ásgeirsson og er hún flutt af
leikhópnum við harmóníkuundirleik Grettis
Björnssonar. Meðal leikenda eru Hjalti Rögnvalds-
son, Bríet Héðinsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Björn Karlsson, Kristján
Viggósson, Rúrik Haraldsson, Helga Bachmann og
Þórhallur Sigurðsson.
Meyjaskemman eftir Schubert verður frumsýnd á
Enska
knatt-
spyman
Glenn Hoddle —
átti mjög góöan
leik.
Man. Utd. fær
Tottenham
í heimsókn
Leikmenn Manchester United
verða enn einu sinni í sviðsljósinu í
þættinum um ensku knattspyrnuna í
sjónvarpinu kl. 18.55 á laugardaginn.
Þeir mæta þá bikarmeisturum
Tottenham á Old Trafford, sem er nú
byrjaður að láta á sjá, eins og mun
sjást í sjónvarpinu. 50.724 áhorf-
endur sáu leikinn, sem var fjörugur á
köflum.
Steve Coppell, miðvallarspilari
Upited, átti góðan leik og þá var
Arthur Albiston, bakvörður liðsins í
sviðsljósinu og ungur sóknarleik-
maður — Scott McGarvey, sem var
19 ára á laugardaginn, þegar leikur-
inn fór fram.
Glenn Hoddle hjá Tottenham átti
mjög góðan leik og var hann valinn
maður leiksins, eftir leikinn. Ray
Clemence, landsliðsmarkvörðurinn
snjalli hjá Tottenham, var bókaður í
leiknum, en það er ekki á hverjum
degi sem Clemence er áminntur af
dómurum.
Þeir leikmenn, sem léku á Old
Trafford, voru:
Macnhester United: — Bailey,
Gidman, Albiston, McQueen,
Moran, B. Robson, Wilkins, Grimes,
Stapleton, Steve Coppell, McGarvey.
Tottenham: Clemence, Houghton,
Miller (Paul Price), Perryman,
Roberts, Villa, Glavin, Hoddle,
Archibald og Crooks.
Markhæstu menn:
Eftirtaldir leikmenn eru nú mark-
hæstir iEnglandi:
1. DEILD
Keegan (Southampton) 27
Rush (Liverpool) 27
Brazil (Ipswich) 23
Regis (WBA) 22
2. DEILD
Stainrod (QPR) 21
Bannister (Sheffield W) 19
Houchen (Orient) 19
Moore (Rotherham) 19
3. DEILD
Davies (Fulham) 22
Kellow (Exeter) 21
Thomas (Oxford) 18
4. DEILD
Madden (Bury) 36
Cooke (Peterborough) 28
Edwards (Sheffield U) 28
laugardagskvöldið og önnur sýning verður á
sunnudagskvöldið. Margir islenzkir leikhúsgestir
minnast þessa ljúfa sðngleiks því sex sinnum áður
hefur hann verið sviðsettur hér á landi, 'fyrst í Iðnó
1934 og aftur 1939, þá í Austurbæjarbíói, á ísafirði
Akurcyri og í Vestmannaeyjum. — Siguröui
Björnsson fer með hlutverk Schuberts, Július Vífill
Ingvarsson er í hlutverki Schobers, Katrín Sigurðar-
dóttir er Hanna og mikill fjöldi annarra söngvara og
leikara kemur fram í sýningunni — alls um fimmtiu
manns. Hljómsveitarstjóri er Páll P. Pálsson og
Sinfóniuhljómsveit Islands leikur. Leikstjóri er
Wilfried Steincr frá Austurriki, aðstoðarleikstjóri er
Sigmundur örn Arngrimsson, leikmynd og búninga
gerir Sigurjón Jóhannsson og lýsinguna annast Páll
Ragnarsson. íslenzk þýðing Meyjaskemmunnar er
eftir Bjöm Franzson.
Á sunnudaginn kl. 14 verður dagskrá um Halldór
Laxness i leikhúsinu og ber hún yfirskriftina Ég er
vinur farfuglanna — dagskrá um Halldór Laxness
og Tao. Umsjón hefur Baldvin Halldórsson, að dag-
skránni standa Rithöfundasamband íslands, Banda-
lag islenzkra listamanna og Þjóðleikhúsið. Fram
koma rithöfundar, leikarar og söngvarar. Aðgangur
er ókeypis.
Á sunnudaginn kl. 16 verður aukasýning á
Uppgjörinu, en miðar á siðustu sýningu á verkinu sl.
miðvikudag seldust upp á skömmum tima. Ekki er
gert ráð fyrir fleiri sýningum á verkinu. Þau Edda
Þórarinsdóttir og Guðmundur Magnússon fara með
hlutverkin í þessari sýningu sem sett var upp í tilefni
af alþjóðaári fatlaðra.
Ég er vinur farfuglanna —
dagskrá um Halldór Laxness
ogTao
Sunnudaginn 25. apríl nk. kl. 14 verður flutt í Þjóð-
leikhúsinu dagskrá í tilefni af áttræðisafmæli Hall-
dórs Laxness og ber hún yfirskriftina. Ég er vinur
farfuglann.. g *gskrá um Halldór Laxncss og Tao.
Flytjendur efnisins eru rithöfundar, leikarar og tón-
listarmenn, en að þessari dagskrá standa Rithöf-
undasamband Íslands, Bandalag íslenzkra lista-
manna og Þjóðleikhúsið. Eru allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir en aðgangur er ókeypis. Gefst hér ein-
stakt tækifæri til þess að heiðra skáldið. Umsjón-
með dagskránni hefur Baldvin Halldórsson.
Norrœna húsifl
Ó, hve lótt er þitt skóhljóð
Vegna mikillar aðsóknar verður dagskráin úr
Ijóðum Halldórs Laxness, Ó, Ine létt er þitt
skóhljóð, sem nemendur 3. bekkjar Leiklistarskóla
íslands frumfluttu sl. sunnudag, endurtekin í þriöja
sinn föstudagskvöldiö 23. apríl kl. 20.30 i
Norræna húsinu.
Halldór Laxness og frú Auður voru viðstödd
dagskrána á sunnudaginn og færðu leiklistamemar
skáldinu blóm og hann ávarpaði n mana og þakkaði
þeim góða sýningu.
Fyrirhuguð er fjórða sýning í Norræna húsinu
laugardaginn 1. mai kl. 17.00.
Aðgöngumiðar á dagskrána eru seldir í Norræna
húsinu og kosta kr. 50.
Norrænahúsið v/Hringbraut simi 17030. í anddyri
er sýning á bókaskreytingum við ljóðabók eftir
Ragnheiði Jónsdóttur í tilefni afmælis Halldórs Lax-
ness.
Steinþór Marinó Gunnarsson og Sigrún Steinþórs-
dóttir Eggen sýna myndverk og veggteppi. Sýningin
er opin daglega frá klukkan 14.—22 og stendur yfir
til 9. maí.
Jazz-inn — Háskólabíói
Ákveðið hefur verið að halda aukasýningu á Jazz-
inum vegna mikillar aðsóknar á sunnudaginn kl. 21.
Aöalieikarar eru: Guðbergur Garðarsson, Sigrún
Waage og Pálmi Gunnarsson. Hljómsveit Áma
Scheving leikur og verkið er eftir Báru Magnús-
dóttur.
Við erum ekki stærstir, en
þú getur treysl okkar íerðum
FERÐASKRIFSTOEA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstígl. Símar 28388 og28580