Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1982, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1982, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1982 17 ár sem sufíar mórauð tfíhafs.' i — Og hvemig er að standa uppi sem | einstæður faðir? „Það er vissulega mikil breyting frá því sem áður var. Þó er ég langt frá því að vera óvanur að umgangast barnið. j En áður var það þannig að einhver þriðji aðili kom til móts við uppeldið. I Álagið er þvi meira en áður var. í Þegar ég tók alfarið við uppeldi Bjarma þá þurfti ég mikið að breyta minni vinnutilhögun. Ritstörfín voru í minum huga númer eitt áður en Bjarmi kom en hafa nú þurft að víkja úr því j sæti fyrir uppeldinu. Það fer enda j gifurlega mikiU timi í að ala upp bam. Það finnur hver bezt þegar hann vinnur heima við og er þvi meira með barninu , en ella. En þetta gengur samt sem áður allt Ijómandi vel hjá okkur. Ég get heldur ekki hugsað mér betri persónu til að búa með en hann Bjarma. Hann er ákaflega góður og þægilegur í sambúð — og svo sannar- lega vona ég að hann verði það áfram þegarhann feraðbúameð kvenfólki.” — Telurðu að einhver grundvallar- munur sé á uppeldisaðferðum konu og karls? ,,í rauninni held ég að það skipti engu máli, hvort uppalandinn er karl eða kona. Ég er að visu í öðrum spomm til að dæma þessa hluti en margur annar þar eð ég á þess kost að stunda mina vinnu heima við. Það er ólikt betra fyr- ir barnið í stað þess að foreldrið sé að rassskellast úti i bæ. í megjndráttum held ég að spuming- in um uppeldi sé ekki um kyn heldur mikiu fremur um eðli einstaklingsins. Til að mynda ættu margar konur ekln að hafa nokkurn rétt á þvi að ala upp börn, þó svo að þessi skritni móðurrétt- ur skyldi þær næstum því til þess. Það kemur oft upp sú leiðinlega staða þegar foreldrarnir skilja að báðir em jafnfærir að ala barnið upp. Ég kynntist þessu i minni baráttu. Þegar svona stendur á er það alltaf konan sem öllu ræður og það er bara ekki rétt- látt. Karlinn á ekki að þurfa að sætta sig við þá staðreynd að sjá eftir barni sinu af þeirri einu ástæðu að hann er með tippi. Það er varla hægt að komast lengra frá jafnréttinu.” JÞaOþarfað vökva meðsa/tsýru" — Þú ert sem sagt heimavinnandi húsfaðir. Segðu mér eitthvað af heima- vinnunni? Ég vinn helzt á hverjum degi. Hef verk strax á morgnana þegar ég drulla mér á lappir og held svo áfram eitthvað fram eftir degi, eða þangað til Bjarmi kemur heim úr skólanum klukkan fjögur. Þá taka heimilisstörfin við, búðarráp, matseld, uppþvottur og svo vökva ég blómið mitt. — Nei, þú skalt ekki hiæja svo dátt að þvi. Þetta eina blóm mitt er nefnilega ætublóm og það þarf að vökva með saltsýru. Því lýg ég náttúrlega, en óneitanlega er það gaman til afspurnar. Annars liða dagarnir minir óskap- lega tilbreytingasnauðir. Ritstörfín eru ekki eftirsóknarverð. Þó maður sé að vissu leyti sinn eigin húsbóndi þá er þetta samt sem áður alltaf sama rútínan. Rithöfundurinn er dálitið ein- mana og hittir ekki marga. Vissulega getur hann leyft sér að taka sér frí á vanhelgu dögunum í stað sunnudags, en það er sjaldan sem tækifæri gefst til þess. Og þó ég vinni ekki eftir stimpil- klukku þá hef ég samt ríka tilhneig- ingu til að vinna markvisst. Ég lít enda á mitt starf sem hverja aðra vinnu og geng að því með því hugarfari. Rit- störfín eru mikið púl, allavega fyrir mig. Ég þarf að leggja mig allan fram til að sýna einhver afköst, ekki koma þau af sjálfu sér. Það geta eflaust fáir imyndað sér að sá rithöfundur sem sendir ekki frá sér bók nema á tveggja til þriggja ára fresti muni púla mikið. Þeir halda efíaust að hann liggi upp í loftið og góni á milli þess sem hann hraðskrifi eina og eina bók á fáeinum mánuðum fyrir jólin, allt sitt æviskeið. Og þegar fólk kaupir bækur rithöfundar og les á einu kvöldi á aðventunni getur það skiljanlega ekki ímyndað sér að samningin hafi tekið langan tíma. Miklu fremur hafi þetta stokkið alskapað út úr höfði manns eina nóttina. Nei, rithöfundurinn púlir og pælir og situr alla daga I sveita síns andlits greyptur ofan í skrifborðið. Það er náttúrlega breytilegt eftir mönnum hvernig þeir stunda sína vinnu. Ég þarf mikinn tíma og seint gæti ég skrifað eina sögu á ári eða skemur og gefið út með hreinni samvizku. Sumir geta það eflaust, en þá er bara spurning hvort hægt er að lesa verk þeirra.” — Hefurðu gaman af ritstörfunum? „Ég hef gaman af þeim þegar vel gengur, en það er andskoti sjaldan. Ég er að vísu á sex mánaða ritlaunum og þarf því vart að kvarta peningalega. En ef þau laun væru ekki til taks þá held ég að ég væri varla að þessu. Þá væri ég fyrir löngu komin á vertíð. En svo vikið sé frá árans peninga- hliðinni þá er því ekki að neita að það er alltaf gaman þegar upp er staðið og maður er sæmilega ánægður með árangurinn. En hvað spurningu þinni viðvíkur þá held ég að ekki sé hægt að flokka ritstörfin undir skemmtun. Þetta er viss sálarfróun að sitja og skapa og tjá sig, en það þarf samt sem áður ekki að vera skemmtilegt. Ég sezt alla vega ekki við skrifborðið að morgni skælbrosandi og segi: Ha ha, mikið er gaman að fara að skrifa. Ritstörfin eru kannski skemmtileg að tíu prósentum, en hin níutíu prósentin eru sem sagt þessi sálarfróun, þessi léttir að geta setzt niður og tjáð sig. Þetta er einhver nauðsynleg útrás. Þörfin fyrir að skapa er andlegs eðlis og svipar að vissu marki til líkamlegu þarfarinnar að éta. Sálin hefur alltaf þörf fyrir útrás eins og líkaminn fyrir mat. Mér líður bölvanlega ef ég get ekki tjáð mig lengi að sama skapi og mér líður djöfullega ef ég hef ekki étið lengi.” — Þeir sem hafa lesið verk þín hafa óneitanlega orðið varir við sjómanninn i rithöfundinum. Hversvegna þetta þörungabragð af bókunum? „Ég hef fengizt við sjólífið hingað til eingöngu vegna þess að það hefur til þessa staðið mér næst. En ég fæst ekki bara við sjóinn. Taktu eftir því að allar sögur mínar gerast úti á landi. Ég er nefnilega svo mikill dreifbýlissinni í mér. Fólk úti á landi er svo afskekkt. Því er ekki eins mikið sinnt og þess vegna leita ég fremur fanga þar en suðvesturfrá. Það er líka yfrið nóg til að rithöfundum sem einblina á Reykja- vík og það sem þar gerist. Mér yrði ofaukið. Reykjavík er heldur ekki minn staður.” Hefurðu skrifað öll þín verk með sama hugarfarinu? „Fyrsta bókin — Vindur vindur vinur minn — er ólik þeim sem á eftir koma. Ég get heldur ekki ímyndað mér að nokkur rithöfundur skrifi fyrstu bók sína með sama hugarfarinu og næstu bækur sínar. Þegar ég var að skrifa Vindinn var ég mikið að hugsa um spurninguna, hvort ég ætti að gerast rithöfundur eða ekki. Dalvískir vinir mínir hugsuðu á þeim árum hvað Gulli væri að drallastinni í húsi: Af hverju drullar mannauming- inn sé ekki á sjóinn? Það var sem sagt spurningin um það hvort yrði ofan á, sjómaðurinn eða rithöfundurinn. Hún angraði mig mikið. Feðgamir Guðiaugur Arason rithöfundur og Bjarmi Guðiaugsson nemi. Ég hafði lengi gengið með þá grillu að fara í stýrimannaskóla, gerast skip- stjóri og svo hefði einbýlishúsið og Benzinn komið á eftir. Ég reyndi mikið að forðast hugsanir mínar um að gerast rithöfundur á þessum árum. Það var enda svo fjarlægt þá. Á timabili reyndi ég að komast hjá því að skrifa með því að álíta það allt eins gott fyrir mig að svala sköpunarþránni í málaralistinni. Lengi ætlaði ég í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Að loknum þessum alvöruárum komst ég loks að þeirri niðurstöðu að ef ég ætlaði að láta mér líða vel í lífinu. þá þyrfti ég að helga mig alfarið ein- hverju af þessu þrennu. Málaralistin stóð alltaf tæpt í huganum, ritstörfin og sjómennskan börðust sín í milli, en þegar hægri sveiflan leit dagsins ljós árið sjötiu og fjögur hvarf ég til Kaup- mannahafnar eins og áður segir. Eftir nokkrar vikur fór lífsstarfið að skýrast. Sjórinn hætti smátt og smátt að toga í mig — og penninn var gripinn traustataki.” — Og hvað eiga sögur þínar að segja okkur? Hvert ertu að fara með bókum þínum, eins og jafnan þykir hæfa að spyrja rithöfunda? „Eger svo sem ekkert að fara, annað en það að ég er að sinna þeim áhuga- málum mínum sem ég hef hverju sinni.” — En er ekki óhætt að líta aðeins yfir farinn veg og tæpa lítillega á innihaldi bókanna? „Vindurinn er sprottinn upp úr æskuhugleiðingum um utangarðs mann í þjóðfélaginu. Þegar ég skrifaði Vikursamfélagið hafði ég mikinn áhuga á Samvinnu- hreyfingunni og kaupfélagsvaldinu. Mér fannst og finnst hún vera komin alllangt frá sínum upprunalegu mark- miðum. Frumhugmyndin að stofnun kaupfélaga er svo langt frá því sem nú þekkist að með ólíkindum má telja. Sambandið við fólkið er horfið og þessar litlu og vinalegu búðarholur eru orðnar að bákni og hrikalegu auðvaldi sem er kló á þjóðfélaginu. Vegna þessa varð Víkursamfélagið til. „Áhugiminn ákvenfóiki" Eldhúsmellur spretta upp úr áhuga mínum á jafnréttismálum og sjálfsagt líka meðfæddum áhuga mínum á kven- fólki. Sérstaklega þó hlutverki sjó- mannskonunnar í því sambandi. Ég er að ígrunda spurninguna hvar hún standi í hugarheimi þeirra kvenna sem froðusnakkast um jafnréttið og þykjast allar lausnir finna svo því verði við komið. Pelastikk er loks allt annars eðlis en fyrri bækurnar, þó óneitanlega finnist seltubragð af henni. Ástæðan fyrir því að ég skrifaði þá bók var sú að ég hafði mikla löngun í mér til að upplifa liðna tíma sem sjálfsagt aldrei verða endur- fengnir nema í huganum einum. Og þar eð hann fer að kalka innan fárra ára þótti mér tilhlýðilegt að festa þessar minningar á blað. Með bókinni er ég líka að leitast við að gera hlut islenzkra sjómanna aðeins meiri í bók- menntunum okkar en hann hefur verið til þessa.” — Hvað ertu að fást við um þessar mundir? „Ég á kannski svolítið erfitt með að talaumþað en ég er að reyna að brjóta nokkur gömul og ný fyrirbæri til mergjar. Þetta er verk sem ég hef á undanförnum tíu árum verið að grípa í og aldrei getað einbeitt mér af alvöru að fyrr en nú. Þetta er ekki bein sjó- mannasaga og fjailar að mörgu leyti meira um ólíka hluti en mínar fyrri sögur. Að uppbyggingu er hún kannski ekkert ósvipuð þeim samt sem áður. Annars er of snemmt að segja meira af þessari en hún kemur vonandi út fyrir næstu jól.” Þú hlýtur nú eitthvað að yrkja, svona rétt til þess að hvíla þig á skriftunum? „Ég yrki stundum mér til hugðar- hægðar níðvísur og orðljótar klám- vísur. En ég mun seint taka mig alvar- legan sem ljóðskáld. Ég hef langsamlega mest gaman af þvi að yrkja eitthvað sem hægt er að hlæja að. Það má kannski segja að ljóðagerðin sé svolítil hvíld frá ritstörf- unum, að því leyti að hægt er að hlæja að henni. Ég get éndalaust hlegið að svona bullljóðum, sem alls ekki má taka alvarlega. Þau finnast mér bezt. Mér dettur í hug þegar ég sit hérna og naga á mér neglurnar, að fyrir nokkru framdi ég á mér þrjú kraftaverk. Það fyrsta var að ég hætti að naga á mér neglurnar sem ég hafði gert frá því ég tók tennur. í öðru lagi fór ég í bindindi á áfenga drykki og í þriðja lagi lagði ég af um rúm tíu kió. Ég var orðinn and- skoti feitur og sem sagt mjókkaði um heil ósköp svona allt i einu upp úr þurru. Þetta fannst mér svo mikilfenglegt að ég varð að búa til um þetta ódauð- legt ljóð sem myndi lifa um ókomna framtið á vörum þjóðarinnar; Það er svona ef ég man rétt: Nú cr éf; hœttur aö nafta nef;lur rnínar tiu. Frjálst fiærflesta duf’a fá aó vaxa að nýju. Unclan þeim skitinn skeféfi i'ið skröpun hverfii slóra hóna ofi hið til drottins í hakkann þeim síóan klóra. l.uf;t hef ép vín op veipar á væna timhurhillu. Vei þeim scm tárió teypar of; treöur svo jörö i villu. í árin þau tíu aö tölu tiemt hef éy ámu stóra nófi hef éfi náó aö drekka nú er ép hættur aó þjöra. Foröum mér þóttifýsió aó fitna daya lanaa. A'ú lekur afmér lýsiö svo larjarnir á mér hanaa. Kilóin tíu eru töpuö éa tippiö mitt sá í vetur éa erarannur meö aóöar nealur peri þeir aörir betur! En auðvitað ferðu ekki að birta þetta bull mitt. Maður verður að eiga sitt lýríska stolt sem rithöfundur!” — Nei, nei, þetta verður ekki birt, segi ég annars hugar — og spjallinu lýkur — við tökum að horfa út um blessaðan stofugluggann og eyðum ekki frekari orðum hvor áannan. -SER.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.