Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR10. MAl 1982. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur OPINNDÁLKUR—OPINNDÁLKUR— OPINNDÁLKUR—OPINN DÁLKUR Fyrir þremur vikum lögðum við fram tillögu fyrir les- endur og neytendur. Tillaga sú fól í sér að fólk léti frá sér heyra um hvernig það færi að því að spara í þeim tilgangi að gefa öðrum góð ráð. Þetta var einn liðurinn í tillögunni, annar var sá, að fólk léti okkur vita hvar hægt væri að fá góðar vörur á „gamla verðinu”, sem sagt hvar væri hægt að gera góð kaup. Þá fannst okkur ekki saka að fólk léti okkur vita hvar það yrði góðrar þjónustu aðnjótandi í við- skiptalífinu. Þá má líka benda á misbrestina. ' Tillaga okkar hefur greinilega verið samþykkt af lesend- um, því margir hafa haft samband við okkur, og hafa sitt- hvað til málanna að leggja, góðar ábendingar og þarfar. Höfum við ákveðið að skipa opna dálkinum fastan sess á mánudögum. -ÞG ILLA FARH) MEÐ MATVÆU OG SÍDAN KVARTAÐ OG KVEINAÐ I mörg ár hef ég haft frystihólf á leigu. Ekki er það í frásögur færandi, en mér blöskrar að s já allan þann mat, sem þama er hent á hverju árí. Fólk hefur annaðhvort ekki borgað leigu- gjaldið af geymslum sínum og þær þá tæmdar eða þá maturinn hefur veríð geymdur of lengi og skemmzt. Þama hef ég séð svínslæri, laxa, kjúklinga, sláturkeppi nosturslega vafða í álpappír, gæs, ýsuflök og margt fleira í pokum og kössum, sem ég veit dtki hvað er. Þessu er safnað í hrúgu og síðan keyrt á hauga. Þessi matur kostaði bæði peninga og vinnu sem þama fer til spillis bara á þessum eina stað. Sumir þeirra, sem þama eiga hlut að máli hafa kannski látið eftir sér að kvarta um að þeir þurfi að vinna nær allan sólarhringinn alla daga vikunnar til aö hafa í sig og á til að „láta enda ná saman”. Til hvers í ósköpunum er fólk að fylla frystihólf af mat, sem það nennir svo aldrei að ná í? Það verður litill gróði af kaupunum á haustin, þegar meirihluta matarins er hent ónýtum vegna trassaskapar. Hvemig væri að við settumst niður og strikuðum út óþarfa kostnaö í heimilishaldinu t.d. aö kaupa mat ein- göngu tU aö henda honum og emjuðum svolítið minna yfir öllum heimatilbúnu vandamálunum okkar. Og hættuna að gera kröfur til annarra þegar við viljumsjálf vera stikkfrí. Því miður ganga opinberir aðilar á undan i alls konar bmöli og óráðsíu á öllum sviðum. Það hefur fleira farið á öskuhaug en matvæli úr fyrrnefndum frystigeymslum. Voru ekki einu sinni myndir af litfógrum breiöum í blöðum, voru það ekki tómatar? Sigrún Bergþórsdóttir Hafnarfirði Bréfritarí talar um litfagrar breiðtir af tómötum. Þó ekki sé þetta litmynd þá birtnm hér mynd af tómötum ó haug- unum. Vert að geta þess sem vel er gert Kristján Vilhelmsson i Garðabæ hafði samband vlð okkur nýlega og vildi koma þakklæti til tveggja aðila á framfæri. Þannig er mál meö vexti að Kristinn ætlaði aö leggja hellur i garðinn sina Hringir hann í Björgun hf. og pantar hjá þeim sand, sem nota átti sem undirlag fyrir hellumar. Tekið er á móti pöntuninni og síðan hríngir hann á Vörubilastöð Hafnarfjarðar og biöur um að sandurinn verði sóttur i Sævarhöföa, þar sem Björgun hf. er til húsa. Bílstjóri af vörubilastööinmni tekur aö sér verkiö, sækir sandinn og ekur honum í hlað, heim til Kristins. Búiö er að afhlaða og sandurinn um 70 tunnur við djmar hjá Kristni þegar hann svo síðar um daginn kemur úr vinnu. Kemur þá i ljós aö ekki hafði veriö afgreiddur sá sandur sem beðið haföi veríö um. Nú voru góð ráö dýr. Haföi Krístinn samband viö fyrirtækið Björgun hf. strax og tjáði þeim þessi mistök með sandinn. Þar var brugðið skjótt viðognæsta dag sendu þeir vöru- bil með réttu sandtegundina og tóku hina hrúguna til baka honum að kostnaðarlausu. Þetta er i stuttu máli frásögn Krístins Vilhelmssonar í Garðabæ. Hann vill gjaman geta þess sem vel er gert, „bæöi forsvarsmenn fyrirtækis- ins Björgunar hf. og eins vömbUstjóri á Vömbílastöð Hafnarfjarðar eiga þakklæti skilið fyrir góða”, eins og Kristinn komst að orðL -ÞG Ceyfaraveit) fviir Við bjóðum 3ja vikna ferðir til Florida á hreint ótrúlegu verði frá kr. 9.960 í tengslum við leiguflugið til Toronto efnum við til hópferða til Florida á verði sem slær flest annað út. Flogið er til Toronto og þaðan beint áfram til Tampa á Florida. Dvalist er í 20 nætur við ströndina í St. Petersburg og einnar nætur gisting er síðan í Toronto áður en haldið er heim til íslands á ný. Ströndin í St. Petersburg er einn vinsælasti baðstaður Florida og auðvelt er síðan bregða sér til til- breytingar í heimsóknir til Walt Disney’s landsins, Kennedy-höfða o.fl.o.fl. Gisting í íbúðum á Sun-dial Rúmgóð „studio” eða íbúðir með einu svefnherbergi. Öll herbergi loftkæld, búin sjónvarpi, kapalkerfi, síma og baðherbergi. Sundlaug í hótelgarðinum og örstutt á ströndina. Brottf arardagar: Júní: 3, 14, 24. Júlí: 5, 15, 26. Ágúst: 5, 16, Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆET112 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.