Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1982, Page 17
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR10. MAl 1982.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
„Þad er engin furða að karlmenn taki ekki fæðingarorlof — þar sem úthlutaðarj
bætur til þeirra eru mun lægri en hinar föstu mánaðartekjur,” segir J.S.
lUm fæðingarorlof:
Kynjunum mismunað?
\ J.S. hringdi:
Það er engin furða að karlmenn
I taki ekki fæðingarorlof þar sem út-
hlutaðar bætur til þeirra eru mun
I lægri en hinar föstu mánaðartekjur.
Konan mín fær tekjur frá Trygginga-
1 stofnun ríkisins eftir því hvað hún
hafði miklar tekjur síðasta ár. Taki
[ hún tveggja mánaða fæðingarorlof
en ég þriðja mánuðinn þá fæ ég þær
sömu tekjur og hún heföi fengið.
Miðast þar upphæðin ekki við mín j
laun.
Nú vill þannig til að konan hefur
unnið aukavinnu, t.d. við að rukka
félagsgjöld. Þar af leiðandi hefur hún
hærri tekjur en hin föstu mánaðar-
laun segja til um. Hún hefur kvittanir
-frá vinnuveitanda en það er ekki tek-
ið til greina.
Lesendabréf þetta birtist 29. apríl sl. Deildarstjóri félagsmála- og upp-
lýsingadeildar Tryggingastofnunar ríkisins telur aö þar komi fram tölu-
verður misskilningur, varðandi rétt feðra til f æðingarorlofs.
Frá Tryggingastofnun ríkisins:
Réttur feöra tíl fæð-
ingaroriofs almanna-
trygginga rýmkaður
—sérstök lagatúlkun tók gildi 24. f ebrúar á þessu árí
Margrét Thoroddsen, deildarstjóri
Félagsmála- og upplýsingadeildar
Tryggingastofnunar rikisins, skrifar:
Réttur feðra til fæðingarorlofs
almannatrygginga var rýmkaður
nokkuð með sérstakri lagatúlkun er
gildir frá 24. febrúar 1982. Hin nýja
lagatúlkun felur það í sér, að sú upp-
hæð, sem faðir á rétt á, miðast viö
vinnuframlag hans sjálfs, en áöur
miðaðist fæðingarorlofsgreiðsla föður
við vinnuframlag móður. Aðrar reglur
eru óbreyttar og eru i meginatriðum
eftirfarandi:
Faðir getur tekið síöasta mánuö
fæðingarorlofs i stað móður og fellur
þá greiðsla til móður niður. Réttur föð-
ur felur þannig ekki í sér rétt til við-
bótarmánaðar, heldur er hér einungis
um að ræða rétt á að fá greiddan þriöja
mánuö fæðingarorlofsins í staöinn fyr-
ir konu. Skiiyröið er að móðir samþykki
skriflega að faðir taki siöasta mánuö
fæðingarorlofsins í staðinn fýrir hana.
Upphæð sú sem faðlr á rétt á miðast
við þann vlnnustundafjölda sem hann
hefur unnið siðustu 12 mánuði og gilda
hér sömu reglur um föður og móður.
Fæðingarorlofsgreiðslur skiptast í
þrjá flokka og greiðist 1. flokkur þeim
sem unniö hafa 1032 dagvinnustundir
siðastliðna 12 mánuöi. Upphæðin erpr.
1. mars 1982 kr. 8.073 á mánuöL Undir
2. flokk heyra þeir umsækjendur, sem
unnið hafa 516—1031 dagvinnustund
siðustu 12 mánuöi, og er upphæðin
þann 1. mars 1982 kr. 5.382 á mánuöi.
Rétt samkvæmt 3. flokki eiga þeir sem
unnið hafa 515 vinnustundir eða minna
síöustu 12 mánuði, og er upphæðin nú
kr. 2.691 ámánuði.
Faðir sem hyggst neyta réttar sins'
til fæðingaroriofs almannatrygginga
skal tilkynna það atvinnurekanda með
21 dags fyrirvara og jafnframt hve
lengi hann verður frá störfum. Þegar
móðir hefur fengiö sína fyrstu
greiðslu, getur faðir lagt inn umsókn
um þriðja mánuö fæðingarorlofs. Með
umsókninni fylgi vottorð vinnuveit-
anda, sem staðfesti vinnustundafjölda
siöustu 12 mánuöi, og einnig skal vott-
orð vinnuveitanda fela i sér staðfest-
ingu þess aö umsækjandi leggi niður
launuö störf i einn mánuð.
\BÍL
BÍLASKOÐUN
&STILLING
Ss 0-10 0
Hátúni 2 A.
Smiðshöfða 1
Sími30945
4
Sparið
: þúsundir króna
með mótor- og
hjólastillingu
einu sinni á ári
SPARIÐ
tugþúsundir
Endurryðvörn
á 2ja ára f resti
KOSTA BODA
Stúdentagjöfin í ár
GÁFNALJÓSIÐ
Nýr kristalkertastjaki eftir
Bertil Vallien
Verö kr. 139.-
Opið laugardaga til hádegis.
Bankastræti 10 - Sími 13122
Tþróttafélog
og
félagasamtöl
CvjvS'JSP'i-j
fflNOJJd
Nýjar leiðir til aö fjármagna
félagsstarfið •
Hið geysivinsæla 21. Bandit.
Lukku 7 lukkunúmer, Golden Goal,
Bingó bréfspjöld og margt fleira
Biðjið um myndbækling og
sýnisnorn
Einkaumboð á Islandi
KRISTJÁN L. MÖLLER
SiglufirAi — Simi 94-71133 -
•
Söluaðili í Reykjavlk og nágrenni
KARL HARRY SIGURÐSSON
Sfmar: 40S4S
RYÐVÖRN SF.