Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1982, Side 19
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR29. MAl 1982.
19
sem stendur í Bella Center allt árið.
Þaö var samdóma álit flestra sem
sýninguna sóttu bæði íslenzkra og er-
lendra, að í ár væri heldur lítið um nýj-
ungar frá árinu áður fyrir utan nokkr-
ar undantekningar. Þar á meðal voru
íslenzku fyrirtækin en þau voru öll að
sýna hluti sem ekki hafa sézt á Bella
Center áður.
Árfell sýndi Árfellsskilrúmin sem
eigandinn Árni Guðjónsson hefur
hannað og haft á markaöi hér á Islandi
í 5 ár. Árfellsskilrúmin er bæði hægt að
setja upp sem vegghillur og sem frí-
standandi skilveggi á mismunandi
vegu. Skilrúmin sem Árfell var með á
sýningunni voru úr bæsaðrí eik og
vöktu mikla athygli. Beiðni um við-
skiptasambönd komu frá 10 aðilum þar
af 4 mjög áhugasömúm
Ingvar og Gylfi sýndu nýja gerð af
hjónarúmum og snyrtiborðum sem
þeir eru nýbúnir að setja á markað hér
heima úr bæsaðri eik. Þessi rúm og
borð eru hönnuð af starfsmönnum
Ingvars og Gylfa. Ásamt fjölda fyrir-
spuma voru þeir m.a. beðnir um að
gera tilboð í 45 sett til E vrópu.
Trésmiðjan Víðir hf. mætti á S.F.F.
með nýju Víðislínuna sem búin er að
vera í þróun hjá fyrirtækinu í rúmt ár,
þó var ekki sýnt nema hluti þeirra hús-
gagna þ.e. borðstofuhúsgögn, vegg-
samstæður og sófasett úr beyki, en í
nýju línu Víðis eru jafnframt unglinga-
húsgögn úr beyki og hvitlökkuö og
stofu- og borðstofuhúsgögnin verða
einnig fáanleg bæsuö og hvítlökkuð.
Nýja Víðis-línan var hönnuð af próf.
Ahti Taskinen og starfsmönnum Víðis,
og eru fyrstu settin að koma úr fram-
leiöslu þessa dagana. Það var álit
margra, bæði blaðamanna og fulltrúa
erl. fyrirtækja að Víðis-básinn hefði
verið til fyrirmyndar bæði varðandi út-
lit og gæði vörunnar, uppsetningu á
básnum, myndalista og video kynn-
ingu, en í vetur lét fyrirtækið gera
kynningarmynd um það hvemig hús-
gögn verða til á Islandi og vakti mynd-
in mikla athygli á sýningunni eins og
áður sagði. Um hundrað fyrirtæki
gerðu fyrirspurnir um Víðis-Iínuna og
af þeim báðu 34 um verðtilboð í ákveðið
magn. Víðir seldi einnig tilraunasend-
ingu til Svíþjóðar. Fyrir utan bein sölu-
sambönd á Víöislinunni sýndi erlent
stórfyrirtæki í fjarlægum heimshluta
mikinn áhuga á kaupum á f ramleiðslu-
rétti á Víðis húsgögnunum til fram-
leiðslu á þeim markaöi. Hér heimahef-
ur hluti af Víðis-línunni verið valinn til
sýningar á Listahátið á Kjarvalsstöð-
um í byrjun júní ásamt hlutum frá 7
öðrum húsgagnafyrirtækjum.
Fyrir utan þessi þrjú islenzku fyrir-
tæki sem sýndu á S.F.F. í ár varStacco
stóllinn frá Stálhúsgagnagerð Steinars
sýndur en í dönsku deildinni í bás
Labofa í samvinnu við Stálhúsgagna-
gerð Steinars, en Labofa keypti fram-
leiðsluréttinn af Stálhúsgagnagerð
Steinars fyrir ákveðna markaði.
Stacco stóllinn sló í gegn á Bella Center
sýningunni í fyrra. Hönnuður Stacco
stólsins er Pétur Lúthersson. Labofa
seldi um 1000 stóla á sýningunni í ár og
fjöldann allan af fylgihlutum í hús-
gagnaverzlanir til ýmissa landa. allt
frá Kuwait til Bandarikjanna.
,
Vala Matthíasdóttir nami i arkitektúr i Kaupmannahöfn var tíi aöstoöar í íslenzku básunum. Hór er hún aö laga
til skreytíngar íÁrfellsskilrúmunum. Mynd: Ólafur Guömundsson.
Básinn hjá Trósmiðjunni VÍOi vaktí mikla athygli fyrir smekklegt og stílhreint útíit og
vörur í háum gæðaflokki. Mynd: Ólafur Guðmundsson.