Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Blaðsíða 1
Irfálst, úháð dagblað 126. TBL. — 72. og 8. Arg. MÁNUDAGUR 7. JUNl 1982. Stöðugir f undir um helgina en árangur virðist vera lítill: „Ég eygi engan Ung Reykjavíkurstúlka, Guörún Möller, var í gærkvöldi kosin fegurðar- drottning Islands 1982, á veitingahús- inu Broadway. Hún mun taka þátt í keppninni um ungfrú alheim, fyrir Is- landshönd. Guðrún var jafnframt kjörin ljós- myndafyrirsæta ársins, en að því vali stóðu ljósmyndarar dagblaðanna. Fanndís Steinsdóttir hreppti Ungfrú Reykjavíkur-titilinn og Kolbrún Anna Jónsdóttir var kosin fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1982. Hún mun því verða fulltrúi Islands á keppninni um Miss Young Intemational í Manilla, en Fanndis fer á Miss World keppnina í London. Fleiri fulltrúar keppa á erlendri grund fyrir Islands hönd. Hildigunnur Hilmarsdóttir fer í keppnina Miss Scandinavia; Guðrún Margrét Sólonsdóttir, sem einnig var kosin vin- sælasta stúlkan í hópnum, verður full- trúi okkar í Miss Nations i Marokkó og María Björk Sverrisdóttir fer fyrir Islands hönd i keppnina Miss International í Japan. Fjöldi gesta fylgdist með keppninni í gærkvöldi og tóku þeir jafnframt þátt í atkvæðagreiðslu en ekki fékkst uppgefiö hvert vægi atkvæðanna var á móti niðurstöðum dómnefndar. Að minnsta kosti virtust gestir mjög ánægðir með úrslitin og voru fagnaðar- læti mikil er þau voru ky nnt. -JB Guðlaugur Þorva/dsson er svartsýnn á bráða lausn kjaramála. Gusumar ganga út frt RanauHbtl s/gurvegaranna. DV-mynd Ami Bjarnason. Borgarfjarðarrallið: Ómar og Jón sigruðu Bræðumir Omar og Jón Ragnarssynir bættu enn einni skrautf jöðrinni í hatt sinn er þeir sigruöu í Borgarfjarðarrallinu sem fram fór um helgina. Þeir bræður kepptu aö vanda á Renault 5 Alpine en nú er búið aö endurbyggja bílinn. Refsistig þeirra Jóns og Omars vom 11,53. Birgir Þ. Bragason og Oskar Gunnlaugsson á Skoda 130RS urðu í öðru sæti með 14,37 refsistig. Þetta er líklega bezti árangur rallskódans frá upphafi, Oskar Olafsson og Ámi Oli Friöriksson urðu þriðju á Escort. Þeir fengu 15,43 stig. Þeir Oskar og Ámi Ola eru nýlega byrjaðir í rallakstri, þannig að árangur þeirra ermjöggóður. 21 bíll var skráöur í keppnina. Einn mætti ekki en þrír duttu ur keppni. Einn bíll valt <g gereyöilagöist. Þaö var Toyota Celesta, þeirra Ragnars Karlr- sonar og Arna Jóhannssonar. -Ji. Níu sækja um Jafnréttisráð Níu umsóknir hafa borizt urn starf framkvæmdastjóra Jafn- réttisráðs og voru umsóknimar lagöar fyrir á fundi ráðsins sl. föstudag. Skipting umsækjenda eftir kynjum er mjög í anda jafn- réttis en um stööuna sóttu fimm konur og f jórir karlar. Einn umsækjenda óskaöi nafnleyndar en aörir umsækjend- ur eru: Auður Styrkársdóttir, Elin Pálsdóttir, Jóhannes Agústsson, Kristbjöm Bjarna- son, Kristín Ástgeirsdóttir, Þórður Gunnar Valdimarsson, Þórunn J. Hafstein og Þröstur Haraldsson. Að sögn núverandi fram- kvæmdastjóra Jafnréttisráðs, Bergþóru Sigmundsdóttur, verð- ur ákvörðun um það hver hreppir stööuna tekin í næstu viku. Fram- kvæmdastjóraskipti munu að lík- indum fara fram um miöjan júlí. -SKJ Lögregluhjól íárekstri Lögreglubifhjól og Lada-jeppi rákust saman á homi Suður- landsbrautar og Vegmúla um klukkan níu í morgun. Lögreglu- maðurinn var fluttur á slysa- deild. Meiðsli hans voru í rannsókn er DV fór í prentun. Að sögn Hilm- ars Þorbjömssonar varðstjóra virtist lögreglumaðurinn hafa slazast mun minna en óttazt var i fyrstu. Virtist hann vera óbrot- inn. Tildrög slyssins vom þau að lögreglumaðurinn kom akandi á bifhjólinu austur Suðurlands- braut. Lada-jeppinn kom niður Vegmúla og sveigði í veg fyrir bifhjólið. Mun ökumaður jeppans ekki hafa séð hjólið. -KMU. Alsæ/ með úrslitín, Ellsabet Traustadóttír, sem kosin var ungfrú ísland árið 1980, býr sig undir að afsala sór títíinum til Guðrúnar. (DV-mynd EÓ) Fegurðar- samkeppni íslands GUÐRUN MOLLER VANN TITILINN endiáþessu — segir Guðlaugur Þorvaldsson sittasemjari. „Ég er mjög svartsýnn. Eg eygi engan endi á þessu. Mér sýnist að þaö sé langt í land ennþá,” sagði Guðlaug- ur Þorvaldsson ríkissáttasemjari í samtali við DV í morgun. Samninganefndir Alþýðusambands Islands og Vinnuveitendasambandsins hafa verið á stööugum fundum yfir helgina. Þeim síðasta lauk um klukkan hálffjögurínótt. Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefnd ASI til fundar viö sig klukkan þrettán í dag og samninga- nef nd VSI klukkan f immtán. Guðlaugur Þorvaldsson sagði að sáttatillaga væri ekki á döfinni. Tveggja daga verkfall flestra félaga innan ASI hefst nk. fimmtu- dag, 10. júní, hafi samningar ekki náðst. Aðeins tveir vinnudagar eru þangað til, utan dagsins í dag. Þrír virkir vinnudagar koma síðan inn á milli til 18. júní. Frá þeimdegierverk- fall þar til annað verður ákveðið. Væntanleg verkföll eru þegar farin aö hafa áhrif. Togarar eru að stöðvast og erlendir ferðamenn hafa afpantað Islandsferðir. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.