Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Blaðsíða 32
40 DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 7. JUNI1982. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Hórgœ/ir Hastassja Htta vlð Ijón nokkurt t kvlkmyndlnniCat paoplo ". Nastassja Klásdóttir Kinski Sviðsljós fékk nýlega bréfkorn frá lesanda sem segist hafa lúmskt gaman af því aö lesa um fræga fólkiö og segist auk þess vera Kinski aðdá- andi. Auk þess bendir lesandinn á ónákvæmni hjá Sviðsljósi hinn 6. maí síöastliöinn og bendir á aðsýningar á mynd sem Kinski leikur í,„One from the heart” eftir snillinginn FF Copp- ola, séu enn ekki hafnar. Þess má þó geta aö forsýningar voru á myndinni í Bandaríkjunum í janúar og hún var sýnd á Cannes kvikmyndahátíöinni, aö vísu án nokkurs auglýsinga- skrums, utan keppni. Til að bæta Kinski aödáanda þetta birtum viö hér gullfallegar myndir af Nastössju Kinski semblaðinu bárust nýlega. Af henni er annars það helzt aðfrétta aö kvikmyndastjórinn Wolfgang Peter- sen (Báturinn, sjá DV laugardag 29.) vill fá hana aftur heim til Þýzka- iands til aö leika i næstu my nd sinni. Hlnn góðkunni leikari Jack Lemmon fékk verðlaun á Cannes kvik- myndahátíðinni fyrir leik sinn i myndinni Týndur IMissingl. Þykir Lemmon túika einkar sannfærandi bandariskan föður sem leitar að syni sinum. Verðtaunum úth/utað / Cannes Á dögunum var Gullpálmanum, æöstu verðlaunum kvikmynda- hátiöarinnar í Cannes, úthlutaö. 2 kvikmyndir deildu meö sér verðlaun- um, „Missing” eftir Costa-Gavras og myndin „Yol” sem er eftir landflótta Tyrkja, Yilmas Giiney aö nafni. Costa-Gavras er Frakki af grískum ættum og er aöallega þekktur fyrir kvikmyndina „Z”. Myndin er samt sem áður bandarisk og fékk aðal- leikarinn Jack Lemmon verðiaun fyrir beztan leik. Nokkra athygli vekur aö báöar þessar myndir hafa pólitískan undirtón. „Missing” fjallar um ungan Bandaríkjamann sem er látinn hverfa vegna þess aö hann veit of mikiö um þátt CIA í valdaráni Pinochets í Chile 1973. Hin verölaunakvikmyndin „Yol” (Vegurinn) er gerö af Jandflótta Tyrkja. Fjallar kvöcmyndin um örlög nokkurra tyrkneskra fanga sem fá frí úr fangelsinu til aö heim- sækja fjölskyldur sínar. Höfundur- inn, Giiney, er ekki alveg ókunnur fangelsum í heimalandi sínu því aö hann sat í fangelsi meö 100 ára dóm unz honum tókst aö strjúka og flýja iand. Franskir gagnrýnendur hafa lofaö þessar myndir en verðlaunaút- hlutunin er þó mjög erfið því aö geysilegur fjöldi frábærra kvik- mynda kemur til greina. Wemer Herzog, sem er Islendingum að góðu kunnur fyrir kvikmyndir sínar (t.d. Nosferatu), fékk verðlaun fyrir beztu kvikmyndastjóm á mynd sinni ,,Fitzcarraldo”. Bezti kvenleikari var svo valin hin ungverska Jadwega Jankowska — Cieslak. Italinn Antonioni fékk sérstök verö- laun í tilefni af 35 ára afmæli hátíðar- innar í Cannes. Antonioni er heims- þekktur leíkstj óri en þekktust mynda hans hérlendis mun vera „Blowup”. Af öörum myndum, sem athygli vöktu, má nefna nýjustu mynd Steven Spielberg, E.T.K., sem var frumsýnd á hátíðinni, og nýjustu mynd Francis Ford Coppola „One from the heart”. Báðar voru þær utan keppni. Einnig má nefna mynd Wim Wenders, „Hamett”, og „Passion” eftir meistara Jean-Luc Godard. Og aldrei þessu vant var ein óperumynd mjög umtöluð. Er þar á feröinni „Parsifal”, kvikmynd Hans- Jiirgen Syberberg, byggð á verki Wagners, mynd tekur rúma 4 tíma í sýningu. Þá er bara að vona að við þurfum ekki aö bíða í mörg ár eftir öliu þessu augnakonfekti. Getiö þiö nú hver er nýjasta vestræna stjarnan sem slær í gegn í Sovétríkj- unum! Jane Fonda? Victoria Principal? O sei sei nei. Það er engin önnur en gamla konan Marlene Dietrich. Nú fyrir skömmu hóf sovézka pressan að lofa Dietrich og mynd hennar Bláa engilinn, sem afi og amma muna vel, í hástert. Áhorfendur viröast vera á sama máli því myndin gengur vel. Með sama áframhaldi ættu Sovét- menn að uppgötva Brigitte Bardot, svona um það bil áriö2020! Blár engill sveimar um Sovétríkin Er Lou Reed í raun skáldið góðkunna? Þekkja ekki allir Lou Reed? Þeir sem þekkja hann ekki ættu aö kynn- ast honum. Hann hefur verið í eldlín- unni í rokkinu í 16 ár og gaf út fyrr í vetur nýja plötu, „The blue mask”, sem jafnast á viö þaö bezta sem hann hefur nokkru sinni gert. Lou fór ný- lega til Parísar vegna útkomu plötu sinnar þar í borg. Lou var ekki í nein- um vafa um hvaða hóteli hann vildi búa á, aðeins eitt kom til greina: „L’Hotel”. Af hverju? spyrja menn. Nú, vegna þess aö Lou Reed telur sig vera Oscar Wilde endurborinn og fannst því ekki úr vegi aö rifja upp gamlar endurminningar á L’Hotel þar sem Skari Villti dvaldist í gamla daga.... Á myndinni er Lou ásamt konu sinni Sylviu í leit að horfnum tíma á L’Hótel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.