Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MANUDAGUR 7. JUNI1982.
27
Bílasýning Kvartmfluklúbbsins:
CORVETTAN
HIRTIÖLL
VERDLAUNIN
Sjöunda bflasýning Kvartmílu-
klúbbsins var haldin síðastliöinn
hvítasunnudag og var hún haldin í
porti Austurbæjarskólans. Var þessi
sýning ekkisvipurhjá sjón, miðað við
fyrri sýningar klúbbsins, en rigning
og slæmt veður settu þar stærsta
strikið í reikninginn. Ofli veðrið því
að einungis hluti af þeim sem ætluöu
að koma með bíla á sýninguna mættu
og áhorfendur voru frekar í færra
lagi.
Það voru hörðustu sýningar-
mennimir sem mættu með bíla sína
og þeir sem höfðu mest að sýna. Stór
hluti bílanna, sem voru á sýningunni,
hafði aldrei verið á sýningu áður hjá
Kvartmíluklúbbnum og í hefldina
var þetta bezta sýning sem
Kvartmíluklúbburinn hefur haldiö,
sé miöað við sýningargripina.
Eins og á fyrri sýningum
Kvartmíluklúbbsins gafst sýningar-
gestum kostur á að greiða bílunum
atkvæði, eftir því hvernig þeim leizt
á þá. Var greinflegt aö bláa ’69
Corvettan átti hugi og hjörtu sýn-
ingargestanna því að hún var kosin
fallegasti, verklegasti og athyglis-
verðasti bíllinn á sýningunni. Yfir-
burðir Corvettunnar í kosningunum
um fallegasta og athyglisverðasta
bflinn voru ótvíræðir og hlaut hún
meira en 100% fleiri atkvæði en
næstu bílar á eftir. I kosningunum
um verklegasta kvartmilubflinn var
mjórra á mununum og fékk Vettan
einungis sjö atkvæði f ram yfir 350 cid
Camaroinn hans Ágústs Hinriks-
sonar.
I öðru sæti keppninnar um falleg-
asta bflinn lenti Sigfús Sverrisson, en
hann sýndi Chevrolet Corvette L—82
árg. ’77.1 þriðja sæti voru tveir bílar
jafnir að stigum. Voru það hvort
tveggja Pontiac bílar, Turbo Trans-
Am sem Aðalsteinn Snorrason á og
Le Mans-inn hans GunnarsHallgríms-
sonar, en sá bfll var kosinn fallegasti
billinn á bflasýningu Bilaklúbbs
Akureyrar þann 17. júní í fyrra.
Eins og fyrr sagði lenti Camaröinn
hans Ágústs Hinrikssonar í öðru sæti
keppninnar um verklegasta
kvartmflubilinn en í þriðja sæti lenti
Guðmundur Kjartansson með bfl
sinn, Shelby American Cobra GT 500,
sem hann keypti í vetur.
I öðru sæti keppninnar um
athyglisverðasta bflinn varð Olafur
Olafsson, en hann sýndi VW sem
hann hefur byggt upp og endur-
hannaö samkvæmt eigin hugmynd-
um. I þriöja sæti varð ’65 Chevrolet
Impalan hans Omars Guöjónssonar.
Sá bíli naut sín ekki fyllilega á
sýningunni vegna rigningarinnar, en
hennar vegna gat Omar ekki haft
blæjuna á bflnum niðri.
Sýningargestir kusu einnig verk-
legasta mótorhjólið á sýningunni og í
þeirri keppni sigraði Flosi Skapta-
son. Sýndi Flosi llOOcc Kawazaki
hjól. I öðru sæti varð Suzuki Katana
1100 hjól sem Adolf Adolfsson á og í
þriðja sæti varö Honda CB 750 en eig-
andi þess, Frans Jezorski, sigraði á
því í kvartmíluæfingunni sem var i
maí.
Fyrirhugað er að hafa verðlauna-
afhendingu fyrir sýninguna eftir
kvartmílukeppnina sem vera á 26.
júni og slá þá saman verðlaunaaf-
hendingu fyrir hana, bflasýninguna
og keppnirnar í fyrra.
J.A.K.
Bfllinn sem lenti í öðru sæti sem fallegasti bíliinn var ’77 Chevrolet Corvette
L—82, en eigandi hans er Sigfús Sverrisson. Þessi bfll hefur tvisvar verið á
Kvartmfluklúbbsins áður og staðið sig vel.
’70 Ford Mustang Mach 1, bflllnn hans Guðna Þórs Þorvaldssonar, er sann-
kaUaður dekurbfll. Er hann vafalaust glssUegasti bfllinn sinnar tegundar hér
á landi og ber hann þess glöggt merki hversu vel Guðni hugsar um hann.
DV-mynd Júhann Kristjánsson.
Gamla Volkswagen bjallan hans Olafs Olafssonar vakti mikla athygli,eins og
aUtaf áður, en að þessu sinni lenti hann í öðru sæti keppninnar um athyglis-
verðasta bflinn. DV-mynd Lilja Oddsdóttir.
Jóhann Kristjánsson og Lilja Oddsdóttlr sýndu Chevrolet Corvette Stingrey L—36 bflinn sinn á sýningunni. Hafa
þau eytt síðastUðnum þremur og hálfa ári í að gera bflinn upp og voru sýningargestir sammála um að það hef ði tek-
izt alveg ágætlega, því að þeir kusu Vettuna fallegasta bflinn, verklegasta kvartmflubflinn og athyglisverðasta bfl-
inn á sýningunni. DV-mynd Jóhann Kristjánsson
Kawazaki 1100 hjóUð hans Flosa Skaptasonar var koslð verklegasta mótorhjóUð á sýningunni, en auk þess sýndi
Flosi stórglæsilegan bfl. Var það Chevrolet Camaro Z 28, árg. ’81. DV-mynd Jóhann Krist jánsson
Agúst Hinrlksson hreppti annað sætið i keppnlmu um verklegasta kvartmilutækið, en Camaróinn hans hefur lengi
verið sigursæU í kvartmflukeppni og átti tslandsmetið í „modlfied” standardflokki í meira en ár.
DV-mynd Jóhann Kristjánsson
Ferdaáætlun SAS DC-8 flugs til Narssars-
suaq og Kaupmannahafnar. Hafid sam-
band við ferdaskrifstofurnar, eða SAS,
Laugavegi 3,2 hæð
- Búnaðarbanka-
húsinu - símar:
21199/22299.
íð
S4S