Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MANUDAGUR 7. JONI1982.
Ef verkföll skella á:
BUR-togarar líklega
látnir sigla með afla
—fáist gott verð erlendis
„>ví er ekki aö leyna aö til greina
kemur aö senda eitt af skipunum í
siglingu. En þaö fer algerlega eftir
markaönum úti,” sagði Björgvin
Guömundsson, forstjóri Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur, er DV forvitn-
aöisUum áhrif væntanlegra vinnu-
stöávana á togara Bæjarútgeröar-
innar.
Fiskverkunarstöövar Bæjarút-
gerðarinnar eru mjög afkastamikl-
ar. Geta þær unnið tiltölulega fljótt
úr afla hvers togara. Áhrif boðaöra
verkfalla haf því seinna áhrif á tog-
ara BUR heldur en marga aöra tog-
ara.
Ingólfur Arnarson kom inn fyrir
helgi og er farinn út aftur. Hjörleifur
fór á veiðar á föstudagskvöld. Ottó
N. Þorláksson og Jón Baldvinsson
fóru út á fimmtudagskvöld.
Gert er ráö fyrir aö tveir þeir
síðastnefndu komi inn á milli tveggja
daga verkfallsins og allsherjarverk-
fallsins, þaö er dagana 14. til 16. júní
næstkomandi.
Snorri Sturluson kemur væntan-
lega inn í dag og Bjami Benediktsson
á þriöjudag. Aö sögn Björgvins Guð-
mundssonar verður ákvöröun um
hvort þeir fara aftur á veiöar tekin
eftir helgi.
-KMU.
Einn af togurum Bsjarútgeröarinnar, Ingólfur Amarson, kemur að landi.
Þeir voru einbeittir á svip, þátttakendumir í hjólreiðakeppninni á Þingvöll og
aftur til baka, þegar lagt var á stað austur á Iaugardaginn. Hollywood og Hótel
Valhöll efndu til þessarar keppni.
Matsölu-
staður í
Þor-
lákshöfn
Matsölustaður var opnaður í
Þorlákshöfn fyrir rúmri viku. Ber
hann heitið Veitinga- og sjómanna-
stofan Messinn.
Eins og nafnið bendir til býður
staðurinn, auk veitinga, upp á að-
stöðu fyrir sjómenn á vertíð. Sjó-
menn munu geta farið í gufubað og
sturtu og leikið billjard, svo eitthvað
sé nefnt. Hvers konar grillréttir
verða á boðstólum, auk réttar
dagsins.
Eigendur eru þrenn hjón úr Vest-
mannaeyjum, sem öll hafa setzt að í
Þorlákshöfn; Sævar Guöjónsson og
Sif Svavarsdóttir, Amþór Sigurösson
og Þóra Sigurðardóttir og Gísli Guð-
jónsson og Guörún Alexandersdóttir.
Messinn verður opinn frá klukkan
9 til 22 en um helgar milli klukkan 10
og 21. -KMU.
TRIMM-
DAGUR
ÍLOK
Sunnudagurinn 27. júní næstkom-
andi verður sérstakur trimmdagur.
Iþrótta- og ungmennafélög landsins
standa að trimmdeginum. Ætlunin
með honum er að vekja athygli alls
almennings á íþróttastarfi og hvetja
sem flesta til þátttöku. A að reyna að
glæða áhuga fólks fyrir íþróttum og
útivist.
Stigakeppni verður á trimmdegin-
um. Einstaklingar fá stig fyrir þátt-
töku í íþróttum en stigin reiknast til
viökomandi kaupstaðar eða sýslu.
Verða verðlaun veitt fyrir hæstu
stigatölu miðað við íbúaf jölda.
Allir geta orðið þátttakendur í
trimmdeginum. Eitt stig fæst fyrir
200 metra sund, 2.000 metra skokk,
fimm kílómetra göngu, tíu kilómetra
hjólreiðar. Ennfremur fyrir þrjátíu
tÚ fjörtíu minútna þátttöku í hvers
konar íþróttaæfingum, svo sem
blaki, badminton, fimleikum, hand-
knattleik, knattspyrnu eöa körfu-
knattleik. Þá fá fatlaöir stig fyrir 25
metra sund, hjólastólaakstur,
boccia, bogfimi og hestamennsku.
-KMU.
Svo mælir Svarthöföi Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Vilja verðbætur fyrir óveiddan f isk
Sjómannadagurinn var haldinn í
gær með pompi og prakt. Menn fóru
í stakkasund og kappróðra og sinntu
ýmsu því skemmtanalífi sem í senn
byggir á hreysti og hæfileikum.
Þannig hefur þetta verið alla
sjómannadaga. Og Morgunblaöiö lét
menn sína tala viö fjölda sjómanna,
og fóru þeir til þess vítt og breitt um
landið. Óhætt mun aö segja aö
sjómannadagurinn er íslenskasti há-
tíðisdagur, sem starfsstétt heidur
hér á landi, þvi þótt islenskir
sjómenn séu í alþjóðlegum samtök-
um, halda þeir hátíðisdögum fyrir
sig og skemmta sér undir eigin
fánum og merkjum, og íslenska
fánanum.
Forustulið sjómanna berst þessa
dagana á vettvangi launabar-
áttunnar, sem er orðin okkar dag-
lega brauö. Aldrei liður svo ár í senn,
aö ekki sé öllu sagt lausu milli stétt-
anna og í stéttunum innbyröis. Þessi
miklu magasýrustríö eru auðvitaö
orðin næsta þreytandi, því aldrei
virðist nóg að gert til leiöréttingar.
Verðbólgan er mæld með vísitölu,
sem allar stéttir virðast sammála
um að ekki megi breyta. Samkvæmt
vísitölunni fengu launþegar rúmlega
10% kauphækkun um síðustu
mánaöamót. Nú er stefnt að sam-
komulagi upp á 5% grunnkaups-
hækkun. Þessi hækkun á eftir að
koma út í aukinni verðbólgu á næstu
mánuðum. Hún verður greidd eftir á
eins og venjulega, enda er því ekki
mótmælt, og þess vegna verður
þessi grunnkaupsstreita nú aðeins til
að minnka ráðstöfunarlaun enn
frekar.
En launþegahreyfingin verður að
fá að semja um eitthvaö, hvað lítil-
mótlegt sem það er, og virðist
samningaþófið og niðurstöður þess
oftar en hitt heyra til sálgæslu.
Forustuliöiö verður að sýna árangur,
þó ekki sé nema upp á fimm prósent,
á sama tíma og vísitalan mælir laun-
þegum helmingi hærri kaupbætur.
Sjómenn hafa verið sér á báti og sem
betur fer fá margir þeirra allmikið í
sinn blut, eða svo hefur það verið
þangað til nú, að vafamál er hvort
þorskurinn hefur ekki synt út úr
landhelginni. Þá minnkar auðvitað
aflahluturinn i samræmi við það.
Dæmi er þess að þrjá skipstjóra
verður að hafa á bát yfir árið, svo
skattarnir fari ekki alveg með þá.
Það verður auðvitað einhver
breyting á því, fyrst minna fæst af
þorski.
Fiskverð hefur verið hækkað um
rúm tíu prósent, þótt engin hækkun
hafi orðið á verði til útflutnings.
Gengið var rétt fram að þeim degi.
Nú er það orðið vitlaust aftur, vegna
þess að við getum ekki flutt út tíu
prósent fiskverðshækkun nema
breyta skráningu krónunnar.
Gengisfelling eykur enn á verð-
bólguna sem nú er komin í rúm
sextíu stig. Þannig er haldið áfram
að moka afurðum þjóðfélagsins í
eldinn vegna þess að menn verða að
fá að semja um eitthvað. Flotinn
tapar þrjátíu prósentum á hverjum
fiski sem dreginn er um borð, svo tíu
prósent hækkunin lagar ekkert fyrir
hann. Auknar gengisfellingar laga
ekkert heldur.
Forustulið sjómanna er komið í
stórar stellingar til að leita réttar við
samningaborðið. Þeir eru líka mjög
óánægðir eins og útgerðin, sem tapar
30% á hverjum fiski. Oánægja
sjómanna, segir forustuliðið, stafar
af uppsöfnuðum vanda þar sem jafn-
ræði sjómanna með landsmönnum
hefur ekki verið virt á undanförnum
árum. Auk þess eru uppi stórar
kröfur um, að bættur verði í launum
sá aflabrestur sem orðinn er, þannig
að þótt minna veiðist haldi sjómenn
tekjum sinum miðað við meðaltal, en
það meðaltal á eftir að finna.
Með þessari kröfu virðist
forustulið sjómanna vilja slá frá sér
hlutaskiptareglunni gömlu, sem
hefur verið undirstaöa samninga við
sjómenn. Þurfi að bæta aflaleysi með
hækkuðum launum er gamla reglan
einfaldlega fallin úr gildi. Sumir
munu telja að mál sé til komið, enda
langur vegur frá árabátum til
nútíma veiðiskipa. Kröfur af þessu
tagi eru að verða hin almenna regla
yfir linuna. Þjóðartekjur verða 2%
minni á árinu. Aflahlutur minnkar.
Engu að siður skulu einhverjir
fengnir til að borga fyrir þorsk sem
ekki veiðist.
Svarthöfði.